Morgunblaðið - 24.11.1987, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
63
Ég treysti s veitarf élögnnum til að
standa að tónlistarkennslu með reisn
- segir Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra
Menntamálaráðherra, Birgir ísleifur Gunnarsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að tillagan um að færa rekstur tónlistarskóla til sveit-
arfélaganna væri svar við áralangri kröfu sveitarstjórnarmanna og
landsbyggðarfólks um að flytja fleiri verkefni frá ríkinu yfir til
s veitarf élaganna.
„Það hefur verið," sagði Birgir
ísleifur, „mjög ákveðin pólitísk
krafa um að dreifa valdinu á þenn-
an hátt og því hafa verið teknar
ákvarðanir um að færa ákveðin
verkefni yfir til sveitarfélaganna.
Jafnframt fylgi fleira á eftir á næsta
ári. Þetta er í samræmi við niður-
stöðu sameiginlegrar nefndar ríkis
og sveitarfélaga sem skilaði ítar-
legu áljti fyrir nokkrum mánuðum
síðan. Ég er gamall sveitarstjómar-
maður og treysti sveitarfélögunum
fullkomlega til að standa að tónlist-
arkennslu í landinu með reisn. Við
megum ekki gleyma því að senni-
lega hafa allir tónlistarskólar í
landinu tekið til starfa að frum-
kvæði sveitarfélaga og því er engin
ástæða til að ætla annað en að þau
muni sinna þessu hlutverki með
sóma.
Ég sé tvö vandamál samfara
þessu. Annars vegar eru ýmis sveit-
arfélög sem eiga erfitt með að sinna
þessu verkefni nægilega vel en til
þess að það valdi ekki vandræðum
þarf að koma til aukið fjármagn til
þeirra. Það er fyrirhugað að það
gerist í gegnum Jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga. Hins vegar þarf að sjálf-
Bíllinn í vegkantinum eftir veltuna.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Valt við að forðast hross
Borgarnesi.
FÓLKSBÍLL valt á þjóðveginum
ofan við Gufuá í Borgarfirði fyr-
ir skömmu. Tvennt var i bilnum
og slapp fólkið með minniháttar
meiðsli.
Tildrög slyssins voru þau að
hross voru á veginum og tókst öku-
sögðu að samræma tónlistar-
kennslu í landinu þegar hún er
komin á fleiri hendur. Því hef ég
ákveðið að skipa nefnd fljótlega til
að semja lög um tónlistarkennslu í
landinu þar sem meðal annars verð-
ur kveðið á um ákveðin lágmarks-
gæði, námsefni, eftirlit með
kennslunni og fleira þess háttar.
Ég mun leita eftir samstarfi tónlist-
arskólakennara við það verk.
Nú næstu daga verður lagt fram
á Alþingi frumvarp um tónlistar-
háskóla þar sem gert er ráð fyrir
að ríkið taki alfarið að sér það hlut-
verk að reka Tónlistarskólann í
Reykjavík sem tónlistarháskóla.
Þar er um að ræða gamalt baráttu-
mál tónlistarmanna og tónlistar-
kennara í landinu," sagði Birgir
ísleifur.
manninum að beygja frá þeim en
við það velti hann bílnum í veg-
kantinum. Mikið er um að hross séu
á veginum á þessum slóðum.
Hreppsnefnd Borgarhrepps hefur
ekki bannað lausagöngu hrossa.
- TKÞ
CIRCOLUXfrá
- 80% ORKUSPARNAÐUR
- 6 FÖLD ENDING
Fæst í helstu raftækjaverslunum og kaupfélögum.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
® JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF.
43 SUNDABORG 13 - 104 REYKJAVIK - SiMI 688588
T I L B O Ð
... lækkun á 500 g smjörstykkjunum.
Við komum til móts við heimilin
í jólaundirbúningnum ...
Venjulegt verð kr.
Srvuö**
Jólatilboð:
108,-
Jólaafslátturinn
nær til
smjörstykkjanna
í jólaumbúöunum.