Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 66

Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 Nýting vatnsorku og jarðvarma: Skilar millj- örðum árlega Áætlun um starf- semi Orkustofn- unar 1988-1992 í drögum um starfsemi Orku- stofnunar, sem lögð vóru fram á vetrarfundi Sambands íslenzkra rafveitna og Sambands íslenzkra hitaveitna, segir m.a. að „nýting innlendra orkulinda, vatnsorku og jarðvarma, skili þjóðinni ár- lega nokkrum milljörðum króna i nettó-ávinning, þegar allur kostnaður við rannsóknir, hönn- un, virkjun og rekstur hefur verið dreginn frá, annar en sá hluti rannsóknarkostnaðar Orkustofnunar sem ekki fæst endurgreiddur við virkjun, en það er aðeins lítill hluti. Þessi nettó-ávinningur er margfaldur á við fjárveitingar til stofnunar- innar“. Hér fer á eftir seinni hluti draganna, sem fjallar um endur- Ljósm. Morgunblaðsins/Kristinn Ólafsson Hrauneyjarfoss Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR UTHVERFI Lindargata 39-63 o.fl. Skipholt 1-38 Skipholt 40-50 Skeifan Háagerði Njörvasund Birkihlíð VESTURBÆR Ægisíða 80-98 o.fl. Nýlendugata Einarsnes Látraströnd Grænahlíð KOPAVOGUR Holtagerði Skjólbraut GARÐABÆR SELTJNES Háholt Hrísholt Sæbraut Eskiholt skoðun á starfsemi Orkustofnun- ar: Aætlun þessi fjallar um starfsemi Orkustofnunar næstu fímm árin, 1988 til og með 1992. Hún er ann- ars vegar gerð á grundvelli þeirra verkefna sem fyrirsjáanleg, eða líkleg, eru á tímabilinu, og hins vegar á grundvelli nauðsynlegrar lágmarksfæmi á hvetju fræðisviði orkurannsókna. Hún er þannig gerð út frá þeim tveimur meginsjónar- miðum sem talin eru hér á eftir. (i) Rannsóknarþörf vegna opin- berrar stjómsýslu í orkumálum og vegna orkuiðnaðarins i landinu bæði þess núverandi og þess sem vænta má í framtíðinni út frá 1. Raforkuspá 1985—2015, frá 1985. 2. Jarðvarmaspá 1987—2015, frá 1987. 3. Horfum á nýjum orkufrekum iðnaði er notar raforku og jarð- hita, og á útflutningi á raforku. (ii) Nauðsynlegt lágmarksum- fang á starfsemi Orkustofnunar til að tryggja að á hveiju fræðisviði orkurannsókna sé fyrir hendi nægj- anleg þekking og nægjanlega stór lrjamahópur til þess að unnt sé fyr- irvaralítið að auka rannsóknir í það sem þörf er á vegna breyttra við- horfa í orkumálum, þ.e. til að tryggja viðbragðsgetu stofnunar- innar við breyttum aðstæðum. Fyrra meginsjónarmiðið, eða við- miðunin, verður hér á eftir nefnt rannsóknarþörf, en hið síðara lág- marksumfang. Helstu forsendur Við mat á rannsóknarþörf næstu fimm árin hefur verið tekið mið af eftirfarandi: * Sum rannsóknarverkefni em þess eðlis að þau verða að fara fram óháð sveiflum á orkumark- aði. * Verkefni breytast í tímans rás, óháð sveiflum á orkumarkaði þannig að úr sumum dregur jafn- framt því sem önnur vaxa. * Horfur á nýjum orkufrekum iðn- aði og á útflutningi á raforku eru metnar það óvissar nú sem stend- ur að þær eru ekki ltnar hafa áhrif á rannsóknarþörf í þessari áætlun, en tekið er tillit til þess- ara möguleika með lágmarksum- fanginu. (Sjá nánar á fylgiskjali 2 um samhengi rannsóknarþarf- ar á vatnsorku og raforkumark- aðar samkvæmt raforkuspá og fylgiskjal 3 um nauðsynlegar við- bætur við sannreyndan vinnslu- verðan jarðvarmaforða). * Gert er ráð fyrir að Orkustofnun taki að sér á áætlunartímanum ýmis verkefni fyrir aðila utan orkugeirans hér á landi sem hún hefur bæði kunnáttu og mann- afla til að leysa af hendi. Þessi verk yrðu sumpart söluverk og sumpart kostuð af opinberum Qárveitingum til annars en orku- mála. * Gert ér ráð fyrir nokkrum sölu- verkum erlendis, en þau eru áætluð með varfæmi. Meginniðurstöður Niðurstöður áætlunarinnar eru sýndar á meðfylgjandi töflum 1—7. Hinar helstu þeirra má draga sam- an þannig: 1. Rannsóknarþörfín er talin munu dragast saman úr 120 ársverk- um 1987 í 99 ársverk 1992, að stjómun meðtalinni. Ársverkum á Orkustofnun hefur fækkað úr 150 árið 1982 í 120 í ár, 1987. Þessi samdráttur heldur þannig áfram, en það hægir á honum. 2. Lágmarksumfangið er metið á 96 ársverk á ári, að stjómun meðtalinni. Lágmarksumfangið, sem í eðli sínu er óháð tíma, er þannig lægra en rannsóknarþörfín öll árin. 3. Nauðsynlegar fjárveitingar á fjárlögum til Orkustofnunar eru taldar geta dregist saman úr 159 m.kr. 1987 í 135 m.kr. 1992, reiknað á verðlagi í janúar 1987. Sérstekjur stofnunarinnar eru taldar muni lækka úr 87 m.kr. 1987 í 70 m.kr. 1992. 4. Rannsóknar-ársverkum á Orku- stofnun fækkar samkvæmt áætluninni um 43 nettó yfír þessi fímm ár sem hún tekur til. Á vissum sviðum fækkar ársverk- um alls um 54, samtímis því sem þeim ijölgar á öðrum um 11. 5. Þau 54 ársverk sem þannig er talið nauðsynlegt að ljúka við á áætlunartímanum, og ekki þurfa að halda áfram við lok hans eru á eftirtöldum sviðum: 5.1 Rannsókn smærri virkj- 6 unarstaða vatnsorku og verklok við stærri virkj- anir 5.2 Rekstrarrannsóknir, unn- 2 ar í samvinnu við Lands- virkjun. 5.3 Fiskeldisverkefni: 12 Fyrir sérijárveitingar og mótframlög Fyrir önnur framlög og 8 söluverk 5.4 Jarðhitaleit (fyrir nýjar 3 smáhitaveitur) 5.5 Þróun forðafræði og 9 vinnslueftirlits 5.6 Orkulindir á hafsbotni 1 5.7 Ýmisverk 7 5.8 Stjórnsýsla 6 54 6. Þau 11 ársverk sem ráðgert er að starfsemin vaxi um áætlun- artímanum eru á eftirtöldum sviðum: Endurskoðun á starf- semi Orkustofnunar í stjómarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er ákvæði um að end- urskoða skuli hlutverk Orkustofn- unar og Orkuráðs. Þess er vænst að þessi áætlun geti verið gagnlegt framlag til þeirrar endurskoðunar. Slík endurskoðun á starfseminni við og við er hverri stofnun nauðsyn til að geta lagað sig að breyttum aðstæðum. En mjög mikilvægt er að í þeirri endurskoðun verði tekið mið af báðum þeim sjónarmiðum sem liggja að baki áætlun þessari, og að framan em rakin. Leggja ber áherslu á að ljúka á áætlunartímanum við verkefni þau sem talin em í tölulið 5 hér að of- an. Tvö þeirra em sérstaklega mikilvæg: í fyrsta lagi fískeldisverkefnin. Þau miða að því að afla traustrar yfirlitsþekkingar á því, hvar á landinu em bestu skilyrði frá náttú- mnnar hendi til seiðaeldis í vatni hituðu með jarðhita, og til að reisa matfískstöðvar er tækju við stómm hluta seiðanna og gerðu úr þeim verðmætari vöm, matfísk. Hitt er líka mikilvægt að vita með vissu hvar á landinu ekki em skilyrði til slíks. Hvort tveggja em gmndvall- aratriði þegar skipuleggja skal samdrátt í hefðbundnum búgrein- um á þann hátt, að tillit sé tekíð til möguleika á nýjum atvinnugrein- um eins og fískeldi. Ekki tjóar að ætla bændum þann atvinnuveg þar sem náttúran býður ekki upp á skilyrði til hans. Þau þurfa því að vera vel þekkt. Hvort tveggja er undirstaða undir skynsamlegu stað- arvali fiskeldisstöðva, en það getur ráðið úrslitum um afkomu þeirra. Engin stofnun önnur hefur jafngóð- ar forsendur og Orkustofnun til að afla þessarar þekkingar. í öðm lagi þróun forðafræði og vinnslueftirlits. Hér er um það að ræða að þróa nýjar og betri að- ferðir til að takast á við vandamál sem tengjast langvarandi vinnslu jarðvarma og fleiri og fleiri hitaveit- ur eiga við að stríða. Núverandi aðferðir em ekki nógu góðar til frambúðar, þegar vandinn vex. Þró- un nýrra aðferða er áhættuverk sem ekki er að vænta að starfandi hita- veitur geti staðið undir einar sem söluverkum. Fjárveitingar frá ríkinu verða að koma til. Þetta verk má til með að vinna á áætlunartím- anum. Nýting innlendra orkulinda, vantsorku og jarðvarma, skilar þjóðinni árlega nokkmm milljörðum króna í nettó-ávinning, þegar allur kostnaður við rannsókn, hönnun, virkjun og rekstur hefur verið dreg- inn frá, annar en sá hluti rannsókn- arkostnaðar Orkustofnunar sem ekki fæst endurgreiddur við virkj- un, en það er aðeins lítill hluti. Þessi nettó-ávinningur er margfald- aður á við fjárveitingar til stofnun- arinnar. Svo lengi sem skynsamleg von er til að rannsókn muni auka þennan ávinning ber því að fram- kvæma hana og veita fé til hennar. Þetta er hinn þjóðhagslegi mæli- kvarði á það hvort veija skuli meira fé til orkurannsókna eða ekki. Sá mælikvarði segir ekki til um hvort þetta fé skuli koma sem framlög frá ríkinu, þ.e. skattgreiðendum, eða frá orkuiðnaðinum sem keypt rannsóknarverk. í því sambandi er þó vert að muna að stærstur hluti áðumefnds ávinnings lendir hjá notendum í formi ódýrari orku en ef innlendu orkulindirnar væm ekki nýttar. Aðeins lítill hluti hans fellur í hlut orkuiðnaðarins. En orkunot- endur og skattgreiðendur era mikið til sami hópurinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.