Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 70

Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 fclk í fréttum Eins og lesendum er væntan- lega kunnugt, sér fyrirmynd- ardóttirin Lisa Bonet nú um sinn eigin sjónvarpsþátt sem er eins konar framhaJd af „Fyrirmyndar- föðumum" og íjallar um lífið í menntaskólanum sem dóttirin Denise stundar nám í fjarri heim- ili sínu. Ekki hefur þátturinn, sem ber heitið „A different World," Öðmvísi heimur, heppnast sem skyldi, gagnrýnendur hafa rifið hann miskunarlaust í sig og var örvæntingin hjá hinni ungu Lisu orðin mikil. Að endingu sá hún ekki aðra leið út úr ógöngunum en að leita ásjár Cosbys og fram- leiðanda fyrirmyndarþáttana sem bmgðust við skjótt. „Þátturinn á að vera um óskup venjulega krakka sem em að heiman í fyrsta skipti, ekki um ömurlega staðlað- ar unglingaímyndir. Persónumar í þættinum vekja alls enga samúð og handritið er heimskulegt og fullt af smáatriðum," sagði Bill Cosby og hófst þegar handa við betrumbætur. Hann rak fjöldan allan af handritshöfundum og réð nýja í staðinn og les nú hvert ein- asta handrit yfír áður en það er tekið upp. Þess má geta að þætt- imir verða teknir til sýninga í sjónvarpinu upp ú r áramótum og gæti orðið fróðlegt að sjá hvemig til tekst með lagfæringamar. Nú situr Lisa milli vonar og ótta og bíður eftir árangrinum af endur- vinnslunni. Ekki þó alveg ein, því henni til halds og trausts í stjömuþreng- ingunum er vonbiðill hennar Lenny Kravitz. Lenny þessi er upprennandi rokkstjama og segja vinir þeirra hjónaleysa að hjóna- band sé á næsta leiti. Hjónaleysin Lenny og Lisa eru afar samrýmd. Sjónvarpsþættimir hennar Lisu vom allir komnir í flækju þegar Bill Cosby bar að garði. FYRIRMYNDARFJÖLSKYLDAN Hún brosir ekki svo blítt um þessar mundir, hin ástríðufulla Elizabeth Taylor. ELIZABETH TAYLOR Burt með ilminn / Nyjasta afurð Elizabethar Tayl- or, ilmvatnið „Passion" hefur verið útilokað frá mörgum helstu verslunum New York borgar. Ástæðunnar er ekki að leita í sjálf- um ilminum sem fallið hefur í góðan jarðveg heldur er hér um að ræða bann vegna þess að franskt ilmvatn með sama nafni hefur verið á Bandaríkamarkaði í tvö ár. í ákæm á hendur Elizabethu sem er 32 blaðsíður á lengd, er farið fram á að ilmvatnið verði útilokað frá öllum finari verlsunum, en sjálfsagt sé að leyfa sölu á því annarsstaðar. Það sem menn hafa gagnrýnt Elizabethu harðast fyrir, er að áður en kynningarherferðin hófst var búið að vara hana við nafnarugl- ingnum en hún skellti við því skollaeyrum. Hún var enda búin að bíta það í sig að ekkert lýsti sér og ilminum betur en „Passion" sem útleggst sem „ástríður" á því ást- kæra ylhýra. Henni þykir afar súrt í broti að fá ekki að selja ilminn allstaðar og hefur sagt sér til málsbóta að hluti ágóðans renni í sérstakan eyðni- vamarsjóð. En það hreif ekki á hina háu herra og ilmvatnið er nú á bak og burt úr öllum fínni verslunum New York borgar. STJ ÖRNU VEGGJ AKROT Vag’g' og velta, stöðvið umferðina Bono söngvari U2 er ekki sá engill sem sumir ætla ef marka má fram- komu hans við bandaríska gosbrunna á dögunum. Hann er ásamt hljómsveit sinni staddur á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og hefur þar tryllt lýðinn með magnaðri sviðsframkomu. Þó tók steininn úr þegar hljóm- sveitin lék í San Fransisco fyrr í mánuðinum. Varð hann þá svo frá sér numinn af eigin áhrifamætti að hann tók sér spreybrúsa í hönd og ritaði „Vagg og velta, stöðvið umferðina" á gríðarstóran gosbrunn í miðju borg- arinnar á meðan 20.000 ánægðir áhorfendur fylgdust með. Fimm dögum síðar bankaði lögregluþjónn upp á og rétti honum kæru sem var sett fram af hinum öskureiða borgarstjóra Dianne Feinstein. Reiði hennar sjatnaði þó hið bráðasta, því Bono brá við skjótt, lét hreinsa gosbrunninn og baðst margfaldlega afsökunar á framkomu sinni. „Óskapar umferðarhávaði er i þessari borg,“ æpir Bono og æsir múginn í San Fransisco.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.