Morgunblaðið - 24.11.1987, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
77
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins:
Góður andi ein-
kenndi fundinn
- segir Kjartan Gunnarsson fram-
kvæmdasljóri Sjálfstæðisflokksins
KJARTAN Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins segir að umræður á
sameiginlegum fundi flokks-
ráðs- og framkvæmdastjómar
um helgina hafi verið mjög já-
kvæðar og góður_ andi hafi
einkennt fundinn. Á fundinum
sátu formenn sjálfstæðisfélag-
anna og flokksráðsmenn og
voru fundarmenn um 200 tals-
ins þegar mest var.
Kjartan sagði að á fundinum
hefði verið rætt fram og til baka
um flokksstarfið. Aðspurður hvort
ræddir hefðu verið minnispunktar
um flokksstarfíð, sem byggðir
voru á skýrslu nefndar sem mið-
stjóm flokksins skipaði til að
meta úrslit síðustu alþingiskosn-
inga, sagði Kjartan þeir hefðu
ekki verið ræddir sérstaklega.
Raunar mætti segja að þau atriði
sem komið hefðu fram við þær
umræður væru atriði sem alltaf
væru til umræðu.
í lok fundarins var samþykkt
stjómmálaályktun þar sem fagn-
að er að endir var bundinn á
stjórmálalega óvissu í landinu með
myndun ríkisstjómar undir for-
ystu formanns Sjálfstæðisflokks-
ins. Auk þess er lýst stuðningi við
þau helstu markmið ríkisstjómar-
innar að stuðla að auknu einstakl-
ingsfrelSi, jafnvegi, stöðugleika
og nýsköpun í efnahags- og at-
vinnulífí, bæta lífskjör og draga
úr verðbólgu. Síðan em talin upp
í 19 liðum þau atriði sem fundur-
inn leggur áherslu á í sambandi
við þá pólítísku stefnumótun sem
talið er nauðsynlegt að flokkurinn
eigi frumkvæði áð á Alþingi.
Byggingarsjóður ríksins:
Einungis forgangshóp-
ar fái lán úr sjóðnum
I stjórnmálaályktun flokksr-
áðs- og formannafundar Sjálf-
stæðisflokksins um síðustu
helgi er lagt til að þeir sem
ekki eiga íbúð fyrir eða þurfa
að stækka við sig af fjöl-
skylduástæðum verði látnir
sitja fyrir lánveitingum úr
Byggingarsjóði ríkisins og
stefna skuli að því að einungis
forgangshópar þeirra sem ekki
eigi íbúð fyrir fái lán hjá sjóðn-
um. Aðrir fái fyrirgreiðslu hjá
bankakerfinu og fyrirgreiðsla
ríkisins færist frá niður-
greiðslu vaxta yfir í skattakerf-
ið.
í ályktuninni segir ennfremur
að forsenda þess að fyrirgreiðslan
sé flutt í bankakerfíð sé lenging
lána og samningar við lífeyrissjóð-
ina um kaup á skuldabréfum í því
skyni.
Á meðal annara áhersluatriða
í ályktuninni í sambandi við Bygg-
ingarsjóð ríkisins er að tryggja
lánafýrirgreiðslu til þeirra sem
eiga í greiðsluerfiðleikum vegna
skammtSmalána til húsnæðis-
kaupa og sérstökum flokki
framkvæmdalána verði komið á
til að auðvelda öldruðum og ör-
yrkjum að flytjast í hentugt
húsnæði. Einnig er lögð áhersla
á að sveitarfélög eigi og reki leigu-
íbúðir fyrir þá sem þess þurfa
með. Aukin áhersla verði lögð á
að veita framkvæmdalán til bygg-
ingaraðila þar sem íbúðarbygg-
ingar hafí verið í lægð. Þá er lagt
til að kannað verði hvort lánveit-
ingum Byggingarsjóðs ríkisins
megi skipta milli kjördæma í sama
hlutfalli og greitt er í lífeyris-
sjóði, meðan unnið sé að viðunandi
framtíðarlausnum í húsnæðismál-
um.
Efasemdir um launa-
skatt á sjávarútveg
EFASEMDIR ?im dagningu
aunaskatts á sjávarútveg og
jækkun á endurgreiðslu upp-
safnaðs söluskatts koma fram
í stjórnmálaályktun flokksráðs-
og formannafundar Sjálfstæð-
isflokksins. Segir þar að
vandséð sé hvemig þessi áform
geti samrýmst þvi markmiði að
halda gengi krónunnar stöð-
ugu.
í þeim kafla ályktunarinnar
sem ijallar um sjávarútveg segir
að nauðsynlegt sé að víðtæk sátt
takist um stjórnun fiskveiða. Mik-
ilvægt sé að ná fram veigamiklum
breytingum frá núgildandi lögum
og skuli þær breytingar miða að
því að tryggt verði svo sem kost-
ur er að athafnafrelsi ríki og að
útgerðastaðir ryóti séraðstæða að
fullu.
í lok kaflans er lagt til að Verð-
jöfnunargjóður fiskiðnaðarins
verði lagður niður sem fýrst og
kannað með hvaða hætti megi
koma sveiflujöfnunanyóðum inn-
an fyrirtækja í sjávarútvegi.
Hvatt til samstarfs
á ný í kjaramálum
„ENDA þótt meðaltalskaup-
máttur hafi batnað umfram það
sem desembersamningarnir
gerðu ráð fyrir, eru þeir til sem
una verða við umsamda lág-
markstaxta. Það er nú aðkall-
andi að [aðtlar vinnumarkaðar-
ins og ríkisstjórninj taki á ný
höndum saman og finni áreið-
anlegar leiðtr tíl að hemja
verðbólguna, tryggja kaupmátt
og draga úr launamun sem nú
er orðinn alltof mikill, og í
rikum mæli kynbundinn." Þetta
segir í þeim kafla stjórmálaá-
lyktunar flokksráðs og form-
annafundar í^jálfstæðisflokks-
ins sem fjallar um kjaramál.
í ályktuninni segir einnig að í
kjarasamningunum í desember
1986 hafí ríkisstjómin lagt sitt
að mörkum til að gera aðilum
vinnumarkaðarins kleyft að
hækka lægstu launin veruiega
jafnframt því sem stefnt var að
enn frekari lækkun verðbólgunnar
en tókst að ná fram á þv( ári, en
þá var hún um 10%. Því miður
hafi þetta ekki tekist og I efna-
hagsþenslu síðustu missera hafi
orðið launaskrið og kapphlaup um
vinnuafl.
Ford T árgerð 1927, sem er einn þríggja fornbfla sem Þorsteinn
Baldursson ætlar að selja úr safni sínu.
Fjörutíu til sextíu
ára bílar til sölu
„ALDNIR höfðingjar“ voru aug-
lýstir til sölu i dagblöðum um
helgina. Um er að ræða þijá
fornbíla í eigu Þorsteins Baldurs-
sonar, bílaáhugamanns. Elsti
bfllinn er Ford T árgerð 1927,
en hinir eru Studebaker árgerð
1930 og Chrysler árgerð 1947.
„Ég á fleiri bfla en þessa þrjá
og jafnvel þótt mig taki það sárt
að selja þá er ekki um annað að
ræða,“ sagði Þorsteinn Baldursson.
„Ég hef ekki aðstöðu til að sinna
þeim sem skyldi, en ég ætla ekki
að selja þá nema nýir eigendur séu
allir af vilja gerðir til að gæta þeirra
vel. Fjölmargir hafa haft samband
við mig, en ekki hefur verið gengið
frá sölu á bflunum.“
Þorsteinn kvaðst hafa fengið
Ford T bílinn þjá Magnúsi Jóns-
syni, safnverði í Hafnarfirði, sem
hafí ávallt haldið bflnum rr\jög vel
við. „Það er meira að segja uppr-
unalegt áklæði á sætunum," sagði
Þorsteinn. „Þetta er eini bfllinn hér
á landi sem er með „high and low“,
það er að í stað venjulegra gíra eru
fótstig, eitt fyrir lággír, annað fyrir
hágír og þriðja fyrir bakkgfr. Það
er því ekki fýrir hvem sem er að
aka bflnum, því í raun þurfa menn
að læra að aka bfl að nýju. Það
hafa margir hringt f mig og falast
eftir bflnum, en ég vil fá fyrir hann
verð sem samsvarar þokkalegum
japönskum bfl.“
Annar bfll, sem Þorsteinn ætlar
að selja, er Studebaker Erskine
árgerð 1930. Þorsteinn eignaðist
bflinn fyrir þremur árum og hefur
ekki gert hann upp nema að hluta.
„Ég vil gjaman selja hann ein-
hverjum sem er reiðubúinn til að
gera hann upp. Hann verður seldur
á verði rússneskrar fólksbifreiðar,"
sagði Þorsteinn.
Loks ætlar Þorsteinn að selja
Chrysler Windsor árgerð 1947.
Þessi bfll var lengi f eigu Ludvigs
Storr. „Þessi bíll er í ágætu lagL
og er hægt að nota sem einka-
drossíu," sagði Þorsteinn. „Ég hef
sjálfur ekið honum um bæinn á
góðviðrisdögum á sumrin og hann
verður seldur á svipuðu verði og
notaður ameriskur fólksbíll."
Þorsteinn kvaðst hafa verið með
fombíladellu frá því að hann myndi
eftir sér. „Ég á fleiri bfla en þessa
þijá, meðal annars Lincoln árgerð
1947. Ég hef nýlokið við að gera
hann upp fyrir fleiri hundmð þús-
unda og ætla ekki að láta hann frá
mér,“ sagði Þorsteinn Baldursson
að lokum.
Morgunblaðið/Sigupflur Jónsaon
Karl Björnsson bæjarstjóri og Brynleifur H. Steingrimsson forseti
bæjarstjórnar á Selfossi aka bamavögnunum síðasta spölinn yffer ~
Ölfusárbrú.
Með eyðnivarnir í bama-
vagni yfir Hellisheiði
Selfossi.
NEMENDUR í Fjölbrautaskóla
Suðurlands efndu til herferðar
gegn eyðni á laugardaginn. Barna-
vagni var ýtt yfir Hellisheiði á
laugardag og safnað áheitum til
styrktar fræðslu og rannsóknum
landlæknisembættisins á eyðni.
Það voru verðandi stúdentar sem
stóðu fyrir hérferðinni sem öðrum
þræði var fjáröflun þeirra til að kom-
ast í skólaferðalag. Lagt var af stað
frá Hlemmi klukkan ntu á laugar-
dagsmorgun. Ólafur ólafsson land-
læknir ýtti vagninum fyrsta spölinn.
Þegar kom að ölfusárbrú voru þeir
Karl Bjömsson bæjarstjóri og Bryn-
leifur H. Steingrímsson forseti
bæjarstjómar.mættir til að ýta vagn-
inum síðasta spölinn.
Þessi fjáröflun var unnin í sam-
vinnu við Bylgjuna sem fylgdist með
ferðinni. *
Hópurinn sem stóð fyrir ferðinni
mætti allur í mótefnamælingu á
Borgarspftalann á fimmtudag svona
til að leggja áherslu á framtakið.
Þegar heim var komið fögnuðu nem-
endumir frækinni för með þvf að
bjóða til sölu veijur út bamavögnun-
um.
Sig. Jóns.