Morgunblaðið - 24.11.1987, Page 80
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Fisksöluleyfi til Bandaríkjanna:
Nokkrar umsókn-
ir bíða ákvörð-
unar ráðuneytis
Viðskiptaráðuneytinu hafa að
undanfömu borist nokkrar um-
sóknir um leyfi varðandi sölu á
frystum fiski á Bandaríkjamark-
að og bíða þessar umsóknir nú
ákvörðunar f ráðuneytinu, að því
er Björa Friðfinnsson, aðstoðar-
maður viðskiptaráðherra, sagði
S samtali við Morgunblaðið i gær.
Ekki fékkst staðfesting á fjölda
þeirra fyrirtækja sem hér um ræð-
ir, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru þau átta tals-
ins.
Hinn 9. nóvember síðastliðinn
gaf Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra út leyfí til sex aðila um sölu
á frystum fiski til Bandaríkjanna,
en fram að þeim tíma höfðu aðeins
þrír aðilar haft slíkt leyfí.
^ Fyrsta skipið búið með
bráðabirgðakvótann
METVEIÐI var á loðnumiðun-
um síðastliðinn föstudag en þá
veiddust alls 25.720 lestir. Afli
á einum sólarhring hefur ekki
verið meiri sfðan loðnunefnd
tók til starfa. Alls hafa veiðzt
120.765 lestir frá upphafi vertí-
ðar og er fyrsta skipið búið
með bráðabirgðakvóta sinn.
Nú stendur yfír annar haust-
leiðangur Hafrannsóknastofnun-
ar, en fyrri loðnuleiðangur
mistókst vegna óhagstæðra skil-
yrða. Vegna þess hefur ekki verið
unnt að ákveða endanlegan kvóta
á haustmánuðum eins og verið
hefur. Yfirstandandi leiðangur
hófst fyrir nokkrum dögum og
beðið er niðurstöðu hans áður en
kvótinn verður ákveðinn. Það er
Öm KE, sem fyrstur var með
kvóta sinn, en hann hafði á
síðustu vertíð veitt rúmar 2.000
lestir upp í leyfílegan afla þessar-
ar vertíðar.
Morgunblaðið/Sigurður Stoinar Ketilsson
Áhöfnin á Núpi og Friðrik Sigurbergsson læknir búa hinn slas-
aða undir flutning upp f þyrluna f sjúkrabörum. Á myndinni, sem
tekin var úr þyrlunni, sést hve þröngt er aftan við gálgann og
erfitt fyrir þyrluáliöfnina og skipverja að athafna sig.
„Ógnvekjandi
að sjá skip-
ið velta
og stampa“
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
TF-SIF sótti á sunnudag slasaðan
sjómann um borð í línubátinn
Núp ÞH 3 austur fyrir Hora-
bjarg. í þyrlunni var læknir frá
Borgarspftalanum og var hann
látinn síga niður f bátinn til að
hlúa að sjómanninum og búa
hann undir flutning i þyrluna.
Sjómaðurinn var síðan hífður
upp i þyrluna og læknirinn á
eftir. Gekk þetta vel þrátt fyrir
erfiðar aðstæður.
„Það var vissulega ógnvekjandi
að sjá skipið hrejrfast mikið þama
niðri, bæði velta og stampa, en ég
þekki félaga mína í þyrluáhöfninni
og treysti þeim fullkomlega," sagði
læknirinn, Friðrik Sigurbergsson, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Sjómaðurinn er 19 ára gamall.
Hann missti annan fótinn fyrir ofan
ökkla, en líður vel eftir atvikum.
Sjúkraflug þyrlunnar stytti veru-
lega þann tíma sem hann þurfti að
bíða eftir að komast á sjúkrahús.
Sjá„Gátumsættlagi . . .“bls.4—5.
Borgarstjóri fer fram á sérstaka fjárveitingu
vegna þjóðvega í Reykjavík:
Ríkið greiði 222,7
milljónir næsta ár
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Orn KE kemur til Reykjavíkur með síðasta farm sinn að sinni.
Greenpeace-samtökin:
DAVÍÐ Oddsson borgarsfjóri
hefur farið þess á leit við fjár-
veitinganefnd Alþingis að fjár-
veiting til þjóðvega í Reykjavík
Aðgerðii’ ákveðnar
gegn íslendingnm
Fylgjast með og
lýsa áhyggjum
vegna veiða á há-
hyrningum
VIÐAMIKLAR aðgerðir af hálfu
Greenpeace-samtakanna gegn
hvalveiðum íslendinga eru
ákveðnar í upphafi næsta árs,
bæði vestan hafs og í Evrópu.
Aðgerðirnar munu beinast að
'•'''^agsmunum íslenzkra fyrirtækja
í viðkomandi löndum, en ekki
hafa fengizt upplýsingar um það,
í hverju þær verða fólgnar. Fyr-
ir skömmu var yfirmaður
Norðurlandadeildar samtakanna
hér á landi við annan mann og
dreifði þá meðal annars ýmsum
■ipplýsingum til alþingismanna.
^Hreenpeace hefur einnig fylgzt
með veiðum háhyrninga hér, en
sérstakar aðgerðir vegna þeirra
eru ekki á döfinni.
Nanni Dingwell hjá Greenpeace
í Washington sagði í samtali við
Morgunblaðið, að aðgerðir vestan
hafs gegn hvalveiðum íslendinga
væru fyrirhugaðar eftir áramót.
Þeim yrði beitt gegn hagsmunum
íslendinga í Bandaríkjunum. Að-
spurð sagði hún að samtökin hefðu
einnig áhyggjur af veiði fjögurra
háhyminga við landið og fylgdust
með gangi mála. Enn hefði ekki
tekizt að fá upplýsingar um hveijir
myndu kaupa' háhymingana. Full-
trúar Sea World í Bandaríkjunum
hefðu sagt, að þeir myndu ekki
kaupa háhymingana þangað. Það
kæmi heim og saman við það, að
engin leyfí hefðu verið gefín fyrir
innflutningi dýranna til Banda-
ríkjanna. Hins vegar gæti verið að
þau yrðu fyrst í stað flutt til ein-
hvers annars lands.
Birgit Seffmark, yfírmaður
Norðurlandadeildar Greenpeace
leiðir andstöðuna gegn hvalveiðum
íslendinga og hefur verið hér nokkr-
um sinnum, síðast fyrir skömmu.
Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að þá hefði hún sent öllum
alþingismönnum ákveðnar upplýs-
ingar um hvalveiðamar, samþykktir
Alþjóða hvalveiðiráðsins og sam-
komulag Bandaríkjanna og Islands
og fylgt þeim eftir með samtölum
við einstaka þingmenn. Hún vildi
heldur ekki tjá sig um fyrirhugaðar
aðgerðir gegn Islendingum. Hún
sagði ennfremur að baráttan snérist
fyrst og fremst gegn veiðum í
vísindaskyni.
Samkvæmt upplýsingum útlend-
ingaeftirlitsins hefur ekki orðið vart
ferða manna úr Greenpeace-sam-
tökunum eða öðrum friðunarsam-
tökum upp á síðkastið.
verði stórlega aukin þegar á
næsta ári. Annars vegar til að
mæta þeim framkvæmdakostn-
aði sem óhjákvæmilegur er á því
ári og hins vegar til þess að borg-
arsjóður fái endurgreiddan
framkvæmdakostnað undanfar-
innar ára.
í bréfí, sem borgarstjóri hefur
sent fjárveitinganefnd, segir að á
árunum 1980 til 1986 hafí borgar-
sjóður borið kostnað sem nemi 734
milljónum króna vegna þjóðvega í
Reykjavík, en fengið úr vegasjóði
351 milijón króna og eigi því inni
383 milljónir miðað við árslok 1986.
Kostnaður þessa árs sé hins vegar
enn óuppgerður, en ljóst að enn
bætist við þessa inneign, sem muni
nema yfír 500 milljónum króna um
næstu áramót miðað við áætlað
verðlag 1988.
í bréfínu kemur fram að ef fjár-
veitingar fáist sé fyrirhugað að
vinna að eftirtöldum verkefnum:
Gerð Bústaðavegar í nýrri legu
framhjá Öskjuhlíð að Miklatorgi, 4
akreinar, kostnaður 74 milljónir.
Breyting á Miklatorgi í ljósastýrð
gatnamót, 8 milljónir. Brú á Bú-
staðaveg yfir Miklubraut/Hring-
braut við Miklatorg, 75 milljónir.
Breikkun Bústaðavegar við gatna-
mót Grensásvegar, 0,7 milljónir.
Breikkun Kringlumýrarbrautar frá
Hamrahlíð að Miklubraut, 2,9 millj-
ónir króna. Breikkun Sætúns úr 2
akreinum í 4 á kaflanum Skúla-
torg-Kringlumýrarbraut, 24,3 millj-
ónir. Gijótgarður og fylling vestast
við Sætún, 7 milljónir. Breikkun
Miklubrautar við Grensásveg, 1,5
milljón. Undirgöng á Vesturlands-
vegi við Hálsabraut, 13,8 milljónir.
Gullinbrú, undirgöng við Fjallkonu-
veg, 8 milljónir. Skiltabrýr og bætt
umferðarmerki og vegvísar, 7,5
milljónir króna. Alls er áætlað að
þessar framkvæmdir kosti 222,7
milljónir króna á verðlagi næsta árs.
í niðurlagi bréfsins segir að þar
sem greinilegt sé að það kerfí, sem
skammti fé til þjóðvega í þéttbýli,
sé gengið sér til húðar er farið fram
á að fjárveitinganefnd sjái til þess
að sérstök fjárveiting komi til vega-
framkvæmda í Reykjavík á næsta
ári og miðist hún við kostnað við
ofangreindar framkvæmdir svo og
að inneign borgarsjóðs verði greidd
upp á tilteknu árabili, t.d. þremur
árum.
Fiskverð
ákveðið
ALMENNT fiskverð var ákveðið
í gærkvöldi. í því er að mestu
staðfest það verð, sem tíðkazt
hefur i frjálsum samningum.
Samkvæmt því er verð á tveggja
kílóa þorski með kassauppbót
31,42 krónur. Verðið gildir til
31, janúar næstkomandi.
Verðið var ákveðið með atkvæð-
um fulltrúa sjómanna, útgerðar-
manna, oddamanns og annars
fulltrúa fískvinnslunnar, Árna
Benediktssonar. Hinn fulltrúi
vinnslunnar, Bjami Lúðvíksson,
bókaði að hann gæti ekki samþykkt
þetta verð, þar sem vinnslan væri
rekin með tapi.