Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
9
HUGVEKJA
í fangelsi
eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON
3. sd. í aÖventu. Mt. 11; 2.—10.
3. sd. í aðventu.
Mt, 11; 2.-20.
Maður er hnepptur í fangelsi
vegna þess að hann hefur brotið
lðg þjóðfélagsins, lög meirihlut-
ans, lög hins sterka. Við þá aðgerð
má sjaldnast spyija, hvort rétt-
mæt sé. Ekki einu sinni hér á
þessu ári, hvað þá ef litið er til
annarra landa sem búa við annað
þjóðskipulag og enn síður ef við
lítum til fortíðar. Hér á dómkerfið
að tryggja réttlæti og því er það
mjög alvarlegt þegar fram hefur
komið opinber gagnrýni á dóm-
kerfí okkar frá aðilum sem hafa
unnið innan dómkerfísins, hvað
þá ef við bætast frásagnir allra
þeirra aðila sem á síðustu árum
fullyrða að þeir hafí verið hneppt-
ir skyndilega og óvægið í fangelsi
án saka og síðan þurft að sæta
einangrun og harðræði þar, að
ekki sé meira sagt. Þessi mál
hljóta að þurfa endurskoðunar
við, þar sem heiðarleiki og rétt-
læti sé tryggt í allri málsmeðferð
og að sá sem í fangelsi situr geti
treyst því að hann njóti vemdar
og sé hann í trúnaði yfirheyrður;
þá viti ekki þjóðin það nokkrum
dögum síðar.
Þetta er hið átakanlega ytra
borð. En er nokkur leið að skyggn-
ast undir það borð og reyna að
nálgast hugsun þess sem fyrir
verður? Fyrst þess einstaklings,
sem er frelsi sviptur án þess að
hann viti um sök. Allt sem hann
hefur unnið fyrir og trúað að
vemdaði og tryggði mannréttindi,
htynur í einu vetfangi. Og þegar
sá hinn sami horfíst í augu við
hvemig söguburður sannar á
hann sekt, hljóta öll sund sjálfs-
bjargar að lokast. Og hvað er þá
eftir. Aðeins trú.
Og margur unglingurinn hefur
hrasað á villubraut vegna að-
stæðna. Ef til vill var það vegna
þess að hann átti enga foreldra
eða það sem verra var að hann
átti foreldra,' sem sýndu engan
kærleika og bjuggu við fjötra víns
eða eiturefna. Aðstæður eru þá
svo átakanlegar að engin virðist
útgönguleiðin. Og hvað er þá eft-
ir? Aðeins trú.
Og margur er sá fullorðinn sem
hefur orðið fyrir því að gera það
sem hann sér eftir alla ævi og
kemst ekki framhjá nema með því
að taka út sína refsingu. En þá
bíður hans smán hins brotlega og
miskunnarleysi okkar sem teljum
okkur saklaus, þannig að það er
eins og ógjömingur að byija upp
á nýtt. Og hvað er þá eftir? Að-
eins trú.
Hver er þessi trú, sem getur
byggt upp þann sem er brotinn,
gefíð nýjan þrótt, nýjan styrk og
nýtt líf? Það er trúin á Jesúm
Krist.
Á þessum sunnudegi fjöllum
við um Jóhannes skírara, þar sem
hann situr í fángelsi af því að
hann hafði sagt sannleikann um
Heródes, sem hafði brotið lögin.
En Heródes var hinn sterki og
það vom hans lög sem giltu og
því beið Jóhannes dóms í fangels-
inu.
Þá kom trúarefínn til hans, svo
óvæginn og engum staðreyndum
þyrmandi. Var þetta þá allt ein-
tóm blekking sem hann hafði lifað
fyrir? Köllunin til að prédika í
eyðimörkinni, sýnin sem hann sá
við ána Jórdan, þegar hann skírði
Jesúm, vissa hans um að hann
væri Messías og sannfæring um
að hann væri að flytja fagnaðar-
boðskap.
I stað þess að fínna sigurmátt
köllunarinnar beið hans ósigurinn
og smánin í myrkvuðu fangelsi.
Hann var að niðurlotum kominn.
Og þa var aðeins eitt eftir. Hann
sendi menn til Jesú og lét þá
spyija hann: „Ert þú sem koma
á eða eigum vér að vænta ann-
ars? Og Jesús svaraði og sagði
við þá: Farið og kunngjörið Jó-
hannesi það sem þið heyrið og
sjáið: Blindir fá sýn og haltir
ganga, líkþráir hreinsast og dauf-
ir heyra og dauðir upprísa og
fátækum er boðað fagnaðarer-
indi. Og sæll er sá sem ekki
hneykslast á mér.“
Jóhannes beið lægri hlut fyrir
ærandi dansmúsík þess tíma og
eggjandi stúlku, sem hafði áhrif
á valdhafann og ákvarðanatök-
una, gegn hans betri vitun. Höfuð
Jóhannesar var fært Heródesi.
Samt talar það höfuð enn og kall-
ar til okkar með þrumuraustu.
„Þér nöðru afkvæmi. Hver kenndi
yður að flýja undan hinni kom-
andi reiði? En öxin er og þegar
lögð að rótum tijánna; verður þá
hvert það tré, sem ekki ber góðan
ávöxt, upphöggvið og því í eld
kastað. Og mannijöldinn spurði
hann og sagði: Hvað eigum vér
þá að gjöra? En hann svaraði og
sagði við þá: Sá sem hefír tvo
kyrtla, gefí þeim annan, sem eng-
an hefír, og sá sem matföng
hefír, geri eins.“
Röddin hans kallar okkur til
ábyrgðar gagnvart þeim sem mis-
rétti eru beittir, kallar á gjafír af
nægtarborði okkar til munaðar-
lausra bama í Eþíópíu og svo víðar
þar sem hörmungin er — einnig
hér.
Jóhannes skírari kallaði eftir
svari trúarinnar úr fangelsinu um
Jesúm Krist og kraftaverk hans.
Þau kraftaverk eru enn að gerast
allt í kring um okkur. Dauðvona
læknast og sá sem var svo alls-
laus, öllu rúinn, hann á allt í Jesú
Kristi. Þennan fagnaðarboðskap
er ekki hægt að útskýra og ekki
hægt að sanna, en hann er engu
að síður lifuð staðreynd fjölda ein-
staklinga.
Þetta er hin kristna trú sem
boðar sigur réttlætis í hveiju
máli um síðir.
i
HCR ERU UPPLYSIHGAR SCM SKIIA HAGNAÐI
Sérfræðingar Fjárfestingarfélagsins hafa
ávallt kappkostað að gefa sem gleggstar upp-
lýsingar um alla möguleika varðandi
spamað.
Til marks um það höfum við gefíð út marga
veglega bæklinga. í öllum þessum bækling-
um eru haldgóðar upplýsingar um sparnað-
arkosti sem skila þérhagnaði þegar á reynir.
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík s: (91) 28566
Kringlunni 103 Reykjavík s: (91) 689700
Allt frá árinu 1976 hefur Fjárfestingarfélagið
verið í fararbroddi í öfíugri upplýsingastarf-
semi og faglegri ráðgjöf. Komdu við á verð-
bréfamarkaði okkar í Kringlunni og Hafnar-
stræti 7 og ræddu við ráðgjafá okkar. Fáðu
þér upplýsingabæklinga í leiðinni.
Þú getur einnig hringt eða sent okkur svar-
seðilinn og við sendum þér bæklingana um
hæl.
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjöiþjóðabréfa og Tekjubréfa
Gengi: 11. des. 1987: Kjarabréf 2,505 - Tekjubréf 1,312 - Markbréf 1,275 - Fjölþjóðabréf 1,140
SVARSEÐILL
Vinsamlegast sendið mér neðangreinda bæklinga:
□ Kjarabréf □ Verðbréfamarkaðurinn
| □ Tekjubréf □ Fjármálareikningur
1 □ Markbréf □ Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Nafn:
Nafiinr.:
Heimili:
Staður: