Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
29
fyrir ári, flykkjast stúlkur í allar
deildir hans.„ Við eigum konur í
öllum mögulegum starfsgreinum,
ekki bara í kvennagreinum. Og það
er allt jákvætt. Við eigum meira
að segja einn kvenknapa..hugsaðu
þér, hvað það hefði þótt ósiðlegt
fyrir fáeinum árum.“
„Öllum verður starsýnt á konu,
ef hún ber blæju,“ hélt hún áfram.,,
Blæjan er í ykkar augum eins kon-
ar auðmýkingartákn. Ég er ekki
sammála því. En spámaðurinn sagði
að konur skyldu bera sig að með
fullri reisn og ekki ögra karlmönn-
um. Og sannleikurinn er bara sá
að ómanskar konur hafa ekki gam-
an af því að flörta eða gefa
karlmönnum undir fótinn. Þær fá
ekki neitt út úr því. Hvaða voðalega
synd er það þá ef kona vill bera
blæju og losna þar með við að karl-
menn séu að glápa á hana. Ég ber
oft blæju, ef ég fer á markaðinn.
En ég er ekki kúguð manneskja
út af því.
Á hinn bóginn er ég á móti
grímunni, sem sumar konur nota
og heitir búrka. Það er hálfgerð
grind, sem er fest yfir augu og nær
niður að munninum. Ekki vinnandi
vegur að kyssa konu með svoleiðis
útbúnað. Þetta setja eiginmennimir
á þær og geyma lykilinn...og þetta
er ógeðfellt. En þá er að hyggja
að því, að þetta er ekki frá okkur
komið, gríman og búrkan á uppruna
sinn í Tyrklandi og íran og alveg
óþolandi, að við.skulum hafa tileink-
að okkur þetta."
Huda hefur sótt ýmsar alþjóðleg-
ar ráðstefnur um málefni kvenna
fýrir hönd lands síns. Meðal annars
var hún formaður sendinefndar
Ómans á kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Nairobi. Hún
stendur einnig fýrir því að fá konur
utan af landsbyggðinni til reglu-
legra funda á vegum ráðuneytisins
og segir, að augljós vakning sé að
verða hjá kvenfólki. Samt segist
hún vona, að gamlar hefðir varð-
andi ijölskyldu og samskipti kynj-
anna breytist ekki. En konur hafi
ekki gert sér grein fyrir, hvílíkt afl
þær gætu verið, sameinaðar. Þó að
ómanskar konur legðu sjálfsagt
annan skilning í það en kynsystur
á Vesturlöndum.
Hún segir mér frá því, þegar
hún hitti manninn sinn fyrst. For-
eldrar hennar bjuggu þá utan
Ómans, ef ég man rétt í Egyptal-
andi.„Hann var sonur vinafólks og
kom í heimsókn. Þá var hann í
háskólanum að læra efnafræði.
Hann varð strax hrifinn af mér...
hvað um mig.nei. Ekki þá, ekki
strax.Ég var of ung til að átta mig
á nokkru svoleiðis," segir hún og
hlær glaðlega. „En hann færði þetta
í tal við foreldra mína þá og þegar
ég varð eldri, ræddu þau þetta við
mig. Ég hugsaði málið og ákvað
að kynnast manninum. Og það á
ekki bara við í mínu tilfelli; sam-
kvæmt islam er ekki hægt að neyða
stúlku í hjónaband. Þó að böm beri
takmarkalausa virðingu fyrir for-
eldrum sínum, hafa foreldrar engan
slíkan rétt. En mér leizt bara vel á
hann! Svo giftum við okkur í Lon-
don og bjuggum þar meðan ég var
að læra og hann fór til Sandhurst.
Nú eigum við þrjá stráka, tólf, níu
og fimm ára. Og hann er alveg vit-
laus í að eignast stelpu."
Eins og ég hef líka áður komið
að er oft erfitt að fá að taka mynd-
ir af konum í Arabalöndum. „Hvað
er athugavert við það?“ sögðu þær
allar þrjár, sitt á hverjum stað,
Wafa og Reem í Kuwait og Huda
í Óman. „Þetta er nýtt fyrir mörg-
um konum. Þeim finnst þetta bera
vott um ágengni. Fyndist ykkur á
Íslandi alveg sjálfsagt að einhver
framandlegur aðili kæmi aðvífandi
og tæki mynd án þess að biðja um
leyfi?“ Það er sjálfsagt nokkuð til
í þessu.
Það fer ekkert á milli mála, að
konan í Arabaheiminum er að
breytast. Hún hefur aðra lífsskoðun
en við, annan lífsmáta, gildi hennar
eru önnur. En þurfa þau endilega
að vera ómerkilegri fyrir það?
Texti:
Jóhanna Kristjónsdóttir
1 : :
Tima Ávöxt-
lengd unar-
Vextir Vextir
6,6% 7.0%
0
o «
—^ Ip^lf
évkur vcrðgildi
Wm mm
■sitt!
■ ■
■
:
44%
á ársgrundvcllí!
Ennþá betri kför!
I dag na fjarmumr a Avoxtunarbrefum
44% ávöxtun á ársgrundvelli,
sem er 14% umfram verðbólgu.
• Enginn aukakostnaöur er dreginn frá
andviröi bréfanna viö innlausn. í
• Innlausn getur aö jafnaöi fariö
fram samdægurs.
VERÐTRYGGÐ
VEÐSKULDABRÉF:
krafa
14,00 93,4
14.26 90,2
14.60 87,2
14.76 84,2
16,00 81,8
16.26 78,6
16.60 76,9
16.76 73,4
16,00 71,0
16,26 68,7
98.9
90.9
88,0
86,1
82.4
79.8
77.8
74.9
72.5
70,8
ÓVERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF:
.t')
Tima- Ákv. umfr. Ár»-
lenvd verðb,- vextir
Ár *pi 20%
1. 8,00 86,6
2. 9,00 79,8
3. 10,00 78,8
4. 11,00 69,0
- ...^ W V ■ 1
Fjármálaráðgjöf - Ávöxtunarþjónusta - Verðbréfamarkaður
LAUGAVEGI 97 - SÍMI 621660
Gengi Avöxtunarbréfa
13.12.1987 er 1.3524
Gengi
Spariskírteina Ríkissjoðs
2. fl. 1987 10.000 að nafnverði
Söluverð 13.12.1987:
til 2ja ára 11.165,72
til 4ra ára 11.149,05
til 6 ára 11.122,29
Verðtryggð og óverðtryggð
veöskuldabréf óskast í sölu.
Ávöxtunarbréfin eru
í fjórum verðflokkum:
Kr. 1.000.-, kr. 10.000.-,
kr. 50.00,- og kr. 100.000.