Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
LeðurJdœddir hvíldarstólar.
Tilboðsverð kr. 23.000,- stgr.
VAIHÚSGÖGN
Armúla 8, simi - 82275.
Heillandi náttkjóll
úr silkisatíni.
Sannkallaður
draumakjóll.
Gullfallegur
silkisloppur
í sama lit
og kióllinn.
OBAOCaySlNGAPJONUSTAN SlA
Pósthússtræti 13, sími 22477,
í hjarta Reykjavíkur á homi Pósthússtrætis og Kirkjustrætis,
Enginjól
smákökulaus
4 valdar tegnndir fyrir þær sem
enn eru ekki búnar að öllu. Og
nú bökum við úr smjöri.
Gómsætar kökúr í pappírs-
formum
Látið kökumar kólna vel áður
en þið dýfið botninum á þeim í vel
bráðið súkkulaðið. Hafíð súkkulaðið
frekar þunnt. Bezt finnst mér að
bræða það í vatnsbaði, því þá helzt
hitinn lengur.
Þetta þarf í um 40 stk.:
Um 300 gr. hveiti, 200 gr. smjör,
100 gr. sykur, 1 mjög lítið egg (eða
V2 stórt), örlítið hjartarsalt (um V4
tesk.).
Fylling:
150 gr. malaðar möndlur, 50 gr.
sykur, 3 egg. Allt þeytt mjög vel
saman þar til létt og ljóst.
Ofan á:
Flórsykur hrærður út í appelsín-
usafa og strimlar af sykruðum
appelsínuberki.
Minni gerðin af pappírsformum.
Blandið fyrst hjartarsaltinu sam-
an við hveitið og hnoðið síðan deig
á venjulegan hátt. Gott að hnoða
saman í hrærivél sem er með hnoð-
ara.
Geymið deigið á köldum stað í
um klukkutíma. Fletjið það þá út,
eða bara þrýstið því með fingrunum
í botn og hliðar formanna (þunnt
lag). Látið fýllingu í hveija köku,
og bakið við 200 gráðu hita (180
gráður í blástursofni) í 10-12
mínútur.
Látið kökumar kólna vel ef þið
ætlið að taka þær úr formunum.
Smyijið glasúr ofan á og skreytið
efst með strimli af sykruðum app-
élsínuberki.
Hnetukökur með súkku-
laði, um 40 stk.
í þær fara: 300 gr. hnetukjam-
ar, 225 gr. sykur, 4-5 eggjahvítur
(miðlungs), um 125 gr. dökkt suðu-
súkkulaði.
Malið hnetu-
kjamana í kvörn
og blandið saman
við sykurinn og
eggjahvítumar
(þær þeytast ekki
sér).
Bökunarpappír
settur á bökunar-
plötumar og
deigið sett á með
teskeið. Bakað í
miðjum ofni í um
10-12 mínútur
við 200 gráðu
hita (180 gráður
í blástursofni).
Kúrenukökur, um
50 stk.
200 gr. smjör (ekki beint úr
ísskápnum), 2 dl. sykur, 1 dl. kúren-
ur, 1 egg, 5 dl. hveiti, 2 tesk.
lyftiduft.
Hrærið sykur og smjör ljóst og
létt. Skolið vel af kúrenunum,
þurrkið með eldhúsrúllupappír, og
blandið þeim og eggjnu saman við
sykurinn og smjörið. Látið lyftiduf-
tið út í hveitið og hnoðið síðan deig
á venjulegan hátt og verið snögg
að því. Geymið svo deigið á köldum
stað í smástund.
Gerið litlar kúlur úr deiginu milli
handanna og leggið þær á pappírsk-
lætta bökunarplötu. Þrýstið með
gaffli tvisvar á hveija köku til að
búa til rúðumynstur. Bakist við 200
gráður (180 gráður í blástursofni)
þar til kökumar hafa tekið fallegan
lit.
Súkkulaðibitakökur
um 75 stk.
250 gr. smjör, 125 gr. flórsyk-
ur, 1 stórt egg, 300 gr. hveiti,
100 gr. gróftsaxaðir hnetukjam-
ar, 100 gr. gróftsaxað súkkulaði,
möndluspænir til skrauts.
Hrærið saman smjör og flór-
sykur, og bætið síðan egginu út
í. Blandið hnetum og súkkulaði
saman við hveitið og hrærið öllu
saman. Setjið á pappírsklædda
plötu með stórri
teskeið í litla
toppa og stingið
2-3 möndlu-
spænum á hveija
köku.
Bakið efst í
ofninum við 200
gráðu hita (180
gráður í blást-
ursofni) í 8-10
mínútur.
. Látið kökurn-
ar kólna á
bökunarrist áður
en þær eru settar
í kassa.
Nýr klúbbur mat-
reiðslumeistara:
Vilja hrossa-
gauka og
hóstakirtla
á matborðið
STOFNAÐUR hefur verið nýr
klúbbur matreiðslumeistara, sem
ber nafnið Framandi, og hefur
hann m.a. að markmiði að auka
fjölbreytni í matargerðarlist ís-
lendinga.
Nú em tíu matreiðslumeistarar
frá sjö veitingahúsum félagar í
Framanda, en fyrsti viðburðurinn
sem félagið gekkst fyrir var kvöld-
verður í Holiday Inn á fímmtudags-
•kvöldið. Ekki er afráðið hvenær
klúbburinn býður almenningi næst
að bragða á nýjungum félaga sinna,
en stefnt er að því að halda kvöld-
verð í nafni klúbbsins tvisvar á ári.
í stefnuskrá klúbbsins segir að
auka þurfi fjölbreytni á hráefni í
íslenskri matargerð, og er m.a.
minnst á að nýta þurfi þann físk
sem hent er af bátum, nýta betur
innmat eins og kálfanýru og hósta-
kirtil, og að athuga hvort hægt sé
að fá að veiða fugla sem nú eru
friðaðir, svo sem hrossagauka, lóur,
spóa, kjóa og þresti. Þá vill klúbbur-
inn koma á betri tengslum við
veitingahús erlendis, t.d. með því
að félagar fari utan á námskeið.
Skáldsaga
eftir Jo-
hannes Mario
Simmel
IÐUNN Jhefur gefið út bók sem
nefnist Orlaga saga og er eftir
þýska rithöfundinn Johannes
Mario Simmel.
í kynningu útgefanda á bókinni
segir m.a.: „Mögnuð og átakanleg
lýsing á grimmum og miskunnar-
lausum örlögum og mannlegri
þjáningu, saga sem grípur lesand-
ann heljartökum og heldur honum
föngnum, frá upphafi til enda. Þetta
er saga manns sem er hrakinn út
í ógæfuna af eigin ástríðum og ör-
væntingu, sjúkur á sál og líkama.
Eitt sinn var hann elskaður og dáð-
ur um allan heiminn, en nú er hann
flestum gleymdur. Eftir tuttugu ára
bið fær hann loks eitt einasta tæki-
færi til að sýna hvað í honum býr.
En er það of seint?“
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
AXtÆk'