Morgunblaðið - 13.12.1987, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
1AMSTRAD
! VERSLUNV/HlEMM. S. 621122.
j [KK Bókabud
l^Í>Braga^9œ6'
j TOLVUDEILD_s. 621122
| Akranet BAkaakemman / Kaflavik: Bókab. Keflav
| Akurayri: Bókav. Edda / íaafj Hljómtorg
★ Geislaspilari ★
★ Útvarp ★
★ Tónjafnari ★
Tvöfalt segulband
Magnari
Hátalarar
AMSTRAD-GREIÐSLUKJOR
EKKERT ÚT: 7
ALLT AÐ 1í MAN.
ALLT AÐ 12 MÁN. EÐA
REST A 6-8 MÁN.
SKULDA8RÉFI.
AMSTRAD mm
HUÓMTÆKJASAMSTÆBA
HEIMA EÐA íFERÐALAGIÐ
Tollalækkun? kr. 33.66ð!-
Viðlækkumstraxlkr. 29.700.-
HÖFMOPNAÐ
STORGLÆSILEGA
200FERMETRA VERSLUN VID HLEMM.
Nú kynnum við Ijúffenga
lambakjötsrétti
í hádeginu á sunnudögum.
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER
Innbakaður lambavöðvi
með blómkáli, gulrótum og mintsósu
Holts rjómaís
•
Verð kr. 695,- fyrir fullorðna
og kr. 350,- fyrir börn.
NJÓTIÐ HÁDEGIS í HOLTI
MEÐ ALLRIFJÖLSKYLDUNNI.
BERGSTAÐASTRÆTI37 - SÍMI25700
Bergsteinn Guð-
jónsson bifreiða-
stjóri—Minning
Fæddur 4. júlí 1909
Dáinn 4. desember 1987
Laugardaginn 5. desember var
hringt í mig og mér tilkynnt að
hann Bergsteinn væri dáinn. Hann
hafði átt við langvarandi veikindi
að stríða.
Beggi eða „afi“ eins og hann var
kallaður af okkur krökkunum í
hverfinu var vinur allra, alltaf var
hann tilbúinn að hjálpa ef eitthvað
bjátaði á. Böm hændust mjög að
honum vegna þess hve hann var
góður. Man ég þá sérstaklega eftir
því þegar ég lá á spítala 9 ára göm-
ul hve góður hann var við mig. Oft
kom hann 1—2 sinnum í viku til
mfn og stytti mér stundir á meðan
ég lá þar. Hann sagði mér sögur
frá því í gamla daga og aldrei fékk
ég leið á að heyra þær og voru þær
sagðar oftar en einu sinni.
Alltaf var heimili hans á Bústaða-
vegi 77 fullt af bömum sem
heimsóttu hann og oft var hann að
útbúa eitthvað handa okkur. Alltaf
gaf hann okkur krökkunum af-
mælis- og jólagjafir. Beggi hafði
oftast svör við þeim spumingum
sem við lögðum fyrir hann og gaf
hann sér alltaf tíma til að útskýra
hlutina fyrir okkur.
Að lokum langar mig til þess að
þakka fyrir að hafa kynnst þessum
yndislega og góða manni. Ég á aldr-
ei eftir að gleyma þeim góðu
minningum sem ég á um hann og
ég á eftir að sakna Begga.
Blessuð sé minning hans.
Brynja Hauksdóttir
Kveðja frá bifreiðastjórafé-
laginu Frama
Þegar saga Bifreiðastjórafélags-
ins Hreyfils, sfðar Frama, verður
skráð, þá mun nafn eins manns
skera sig þar úr, en það er nafn
Bergsteins Guðjónssonar, er lést
föstudaginn 4. des. sl. Bergsteinn
Guðjjónsson var fæddur 4. júlí 1909
á Stokkseyri. Gerðist leigubifreiða-
stjóri í Reykjavík 1929. í rúm 26
ár helgaði hann stéttarfélagi leigu-
bifreiðastjóra krafta sína.
Sjaldgæft mun vera að eitt stétt-
arfélag eigi einum manni eins mikið
að þakka og leigubifreiðastjórar í
Reykjavík Bergsteini Guðjónssyni.
Reyndar búa leigubifreiðastjórar
um allt land að störfum hans.
Bifreiðastjórafélagið Hreyfíll var
stofnað 6. okt. 1934. Búið var að
gera tvær tilraunir til stofnunar
stéttarfélags atvinnubifreiðastjóra
og höfðu þær báðar mistekist. Mik-
ið átak þurfti á þessum árum, til
að stofna stéttarfélag og koma því
á fót. Samkvæmt fundargerðarbók-
um félagsins ber fljótlega á manni
sem hefur margt gott til málanna
að leggja, það var Bergsteinn Guð-
jónsson. Prúðmennska í ræðu og
riti var eitt megin einkenni hans
ásamt mikilli málafylgju. Hann var
fyrst kosinn í stjóm 1940 og for-
maður félagsins 25. janúar 1943.
Árið 1947 baðst hann undan endur-
kosningu. En var endurkosinn
formaður árið 1951 og var þá sam-
fellt formaður félagsins til ársins
1973.
Á þessum tíma voru mikil um-
brot í landinu, framfarir miklar og
ekki hvað síst í bifreiðaakstri og
umferð og má segja að á þessum
árum hafi Bergsteinn mótað og
byggt upp félagið. Hann var mikill
hugsjónamaður sem ekki spurði
hvað félagið gæti gert fyrir sig,
heldur hvað hann gæti gert fyrir
það.
Ekki tel ég á neinn hallað þó
fullyrt sé, að hann hafí náð ótrúleg-
um árangri í að bæta réttindi
Geirþrúður Arsæls-
dóttir -Minning
Fædd 21. júní 1933
Dáin 17. nóvember 1987
Mig langar til að minnast
tengdamóður minnar hér með örf-
áum orðum og þakka henni
samfylgdina síðustu 8 ár.
Geirþrúður, eða Þrúða, eins og
hún var oftast kölluð, var dóttir
Katarínu Magnússon og Ársæls
Magnússonar steinsmiðs. 2. janúar
1954 giftist hún Gunnari Yngva-
syni frá Hliðsnesi á Álftanesi og
eignuðust þau 6 börn: Ársæl Karl,
kvæntan Onnu Hafsteinsdóttur;
Gunnhildi, er lést fyrir tæpum 2
árum; Högna Stein, kvæntan Eddu
Sigurðardóttur; Gunnar, kvæntan
Erlu Geirsdóttur; Magnús Geir,
unnusta hans er Hafdís Linda Sim-
onsen; og Sólrúnu. Bamabömin
eru orðin 9.
Það var öllum sem til þekktu
þungbær missir er Þrúða dó þann
17. nóvember, eftir harða baráttu
við þau veikindi sem urðu hennar
banamein, því þrátt fyrir hlé-
drægni hennar var hún viljasterk
kona sem leit alltaf á björtu hliðar
lífsins.
Það var alltaf gott að koma í
Breiðholt því þar voru allir vel-
komnir og gestrisnin mikil því
Þrúða var mikil húsmóðir og hafði
hún mikla ánægju af því að stjana
við okkur öll, að maður tali nú
ekki um bamabömin. En þar sem
jólin nálgast nú hvílir skuggi á
t
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför móöur okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Unaðsdal.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og hjúkrunarfólki á Grens-
ásdeild Borgarspítalans.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er auösýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför litla drengsins okkar,
STYRKÁRS SNORRASONAR,
Mávahlíð 38,
Reykjavfk.
Snorri Styrkársson,
Dagrún Magnúsdóttir,
Kristrún Ragnarsdóttir.
félagsmanna og að engum manni
eigi félagsmenn meira að þakka en
Bergsteini Guðjónssyni. Það segir
líka meira en mörg orð um það
traust sem samferðamenn hans
hafa borið til hans, að hann skyldi
vera endurkosinn formaður félags-
ins 26 sinnum. Þegar Bergsteinn
varð sjötugur var hann útnefndur
heiðursfélagi Bifreiðastjórafélags-
ins Frama.
Bifreiðastjórafélagið Frami telur
það heiður að fá að sjá um útför
Bergsteins Guðjónssonar til að sýna
þakklæti fyrir .óeigingjöm störf
hans í þágu félagsins.
Ingólfur Ingólfsson,
formaður Bifreiðastjóra-
félagsins Frama.
Kveðja frá Lífeyrissjóði
leignbifreiðastj óra
Bergsteinn Guðjónsson fyrrver-
andi formaður Frama er látinn.
Þegar jafn ástsæll og virtur for-
ystumaður einnar stéttar er
kvaddur hinstu kveðju, er þeim sem
þekktu störf hans og hafa notið
þeirra í sínum daglegu störfum,
efst í huga þakklæti og virðing. Það
mun ekki ofmælt og á engan hall-
að, þótt sagt sé að flest það sem
leigubifreiðastjórar búa við í dag
mr~“
þeim því stórt skarð hefur verið
höggvið í fjölskylduna við missi
Þrúðu, því hún var einn stærsti
hlekkurinn sem tengdi okkur sam-
an, því til hennar gátu allir leitað
með vandamál sín. Auk húsmóður-
starfanna tók hún einnig þátt í
útgerðinni og kjúklingaræktuninni
með Gunnari því henni var ekki
eiginlegt að sitja auðum höndum.
Fyrir. 2 árum vorum við Gunni
og Geir svo heppin að komast með
Þrúðu og Gunnari til Þýskalands
þegar hún heimsótti skyldfólk sitt
þar því hún hafði ekki komíið þang-
að í 50 ár og sáum við þá hversu
seig hún var í þýskunni, því hún
hafði aðeins verið í Þýskalandi
hluta úr ári þegar hún var lítil og
haldið henni síðan aðeins við með
móður sinni.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég kveðja Þrúðu og koma mér
í hug orð þjóðskáldsins frá Fagra-
skógi er hann segir:
„Hún fer að engu óð,
er öllum mönnum góð
og vinnur verk sín hljóð."
(D.S)
Erla Geirsdóttir