Morgunblaðið - 13.12.1987, Qupperneq 48
PykkvabœjM
Þar vex sem veí er sáð!
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
VEM) í LAUSASÖLU 55 KR.
Laxaslátrun í Grundarfirði:
Hár sjávarhiti
eykur vaxtarhraða
■^LAXASLÁTRUN stendur nú yfir
Igá Snælaxi hf í Grundarfirði.
11 tonn hafa þegar verið seld til
Frakklands með góðum árangri
að sögn Svans Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra og 24 tonn-
um verður slátrað í næstu viku.
Meðalþyngd laxins er 2,1 kíló,
en hann hækkar nokkuð í verði,
þegar hann er kominn yfir 3 kOó.
Ovenjumikill sjávarhiti að und-
anförnu hefur aukið vaxtar-
hraða fisksins veruiega.
í fyrrasumar setti fyrirtækið
76.000 laxaseiði út í sjókvíar og
180.000 á þessu ári. 200.000 seiði
-U>verða síðan sett út á því næsta og
í framhaldi þess verður 400 til 500
tonnum slátrað árlega. Svanur Guð-
mundsson sagði í samtali við
Morgunblaðið, að fyrir áramót yrði
slátrað rúmlega 30 tonnum og 100
tonnum frá áramótum til vors. Það
ylli fyrirtækinu hins vegar nokkrum
erfíðleikum, að lán væru af skom-
um skammti. Afurðalán væri til
dæmis aðeins 30% meðan önnur
fiskvinnsla fengi 70%. Vegna þessa
meðal annars og þrýstings frá
bönkum, væru menn neyddir til að
slátra laxinum smærri en heppileg-
ast væri.
Hins vegar gat Svanur þe_ss að
sjávarhiti væri nú óvenjuhár. I nóv-
ember hefði hitinn verið tveimur
gráðum hærri en í júnímánuði 1986.
Vegna þess hefði vaxtarhraði í nóv-
ember verið óvenjumikill eða um
25% og það hjálpaði vissulega til.
Laxinn sem þeir væm að slátra nú,
væri að meðaltali 2,1 kíló að þyngd
'og fyrir hann fengjust um 260 til
270 krónur á kíló í Frakklandi.
Fyrir þau 11 tonn, sem þar hefðu
verið seld nú, hefðu því fengist um
þijár milljónir króna, en laxinn
væri sendur utan ísaður í gámum.
Veiðistjórn fjögur ár í kvótakerfi:
Aflinn 356.0001
umfram tillögur
ÞORSKAFLI landsmanna á þessum áratug hefur verið í litlu
samræmi við tillögur fiskifræðinga um hámarksafla. í flestum
tilfeUum hefur ársaflinn o’rðið meiri en fiskifræðingar hafa
lagt til, en í tveimur tilfeUum minni. Mestur er munurinn
128.000 tonn. Á kvótaárunum fjórum, sem nú er að ljúka, hef-
ur aflinn farið 356.000 tonnum fram úr tiUögum fiskifræðinga,
en 232.000 fram úr útgefnum hámarksafla frá stjórnvöldum.
Hvað varðar aflahámark stjóm-
valda skal þess getið að í þeim tölum
er ekki tekið tillit til mögulegrar
aflaaukningar sóknarmarksskipa.
Árið 1980 lögðu fiskifræðingar
til 300.000 tonnaþorskafla, en veið-
Pin varð 428.000. Árið eftir voru
tillögur upp á 400.000 en afli varð
461.000. 1982 voru tillögur um
450.000 tonn en aflinn varð
382.000 og 1983 voru lögð til
350.000 en 293.000 öfluðust. Á
viðmiðunarárunum þremur Iögðu
fiskifræðingar samtals til 1,2 millj-
óna tonna veiði, stjómvöld heimil-
uðu 1,22 milljónir og veiðin var
1,14 milljónir tonna. Mismunur í
Spurningar
og svör um
staðgreiðslu
STAÐGREIÐSLA
skatta
hefst 1. janúar næstkomandi 1984 200 232 282 82 50
og um þessar mundir hafa 1985 200 262 328 128 66
flestir landsmenn fengið 1986 300 300 366 66 66
skattkort sín. Þótt stað- 1987 300 330 380 80 50
greiðslukerfið sé í sjálfu sér einfalt munu vafalaust vakna Samtals lögðu fiskifræðingar til
spurningar hjá fólki um ýmis
atriði.
Morgunblaðið hefur því
ákveðið að veita lesendum þá
þjónustu að koma spumingum
þeirra um staðgreiðslukerfið á
framfæri við embætti ríkis-
skattstjóra. Spumingar lesenda
og svör ríkisskattstjóraembætt-
isins munu birtast fljótlega í
blaðinu.
Lesendur geta hringt í síma
Morgunblaðsins 691100 kl.
10-12 árdegis mánudaga til
föstudaga og borið fram spum-
ingar sínar.
heild er því óverulegur, en misvægi
milli tillagna fiskifræðinga og afla
em frá því að vera 128.000 tonn
umfram og í 68.000 undir og aldrei
minni en 57.000 tonn.
I kvótakerfmu hefur alltaf verið
veitt meira en fískifræðingar lögðu
til. Með lfðandi ári er mismunurinn
356.000 tonn, en 232.000 tonn vom
tekin umfram óljósar heimildir
stjómvalda, þar sem svigrúm til
aukningar á afla sóknarmarksskipa
gaf möguleika á meiri veiði en út-
gefnar tölur sögðu til um. Veiðin á
þessum tíma hefur því farið fram
úr tillögum fiskifræðinga, sem svar-
ar til rúms ársafla að meðaltali
þetta tímabil kvótakerfisins.
Hér fara á eftir tillögur fiskifræð-
inga um þorskafla á kvótaámnum,
útgefnar veiðiheimildir stjómvalda
og mismunur á tillögum fiskifræð-
inga og afla og munur á heimildum
og afla. Aflinn er talinn í þúsundum
tonna:
að ein milljón tonna yrði veidd þessi
flögur ár, stjómvöld heimiluðu 1,1
milljón, en veiðin var 1,4 milljónir.
Þorskafli líðandi árs er samkvæmt
áætlunum Fiskifélags íslands.
Skýringin á afla umfram heimildir
stjómvalda liggur í því, að í kvóta-
kerfínu hefur sóknarmarksskipum
venð heimilt að fara 20% fram yfir
leyfilegt aflahámark og bættist
síðan hluti þess við aflareynslu
þeirra við úthlutun næsta árs og
síðan ár frá ári, þar til ný lög taka
gildi, en þá er þetta svigrúm minnk-
að verulega. Aflaaukning á þessu
tímabili hefur því að meiri hluta til
komið til sóknarmarksskipa.
Morgunblaðið/RAX
Lax hífður upp úr sjókví hjá Snælax í Grundarfirði til slátrunar.
\ v á
Framleiddi amfeta-
mín heima í stofu
í fyrsta sinn sem kemst upp um framleiðslu efnisins hér á landi
STARFSMENN fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík
handtóku aðfaranótt föstudagsins rúmlega þrítugan mann,
sem hefur framleitt amfetamín í íbúð sinni í fjölbýlishúsi í
vesturhluta borgarinnar. I íbúðinni fannst nokkurt magn
af fullunnu amfetamíni, efni til framleiðslunnar og tæki.
Á föstudag var annar maður á
sama aldri handtekinn og er hann
grunaður um aðild að málinu. Ljóst
þykir að framleiðslan hefur verið í
gangi í nokkum tíma. Þetta er í
fyrsta sinn sem lögreglan verður
vör við að amfetamín er framleitt
hér á landi.
Að sögn Amars Jenssonar, lög-
reglufulltrúa, er framleiðsla am-
fetamíns flókin aðgerð og þarf til
hennar góða efnafræðiþekkingu.
Hann sagði ljóst að framleiðslan
hefði staðið í nokkum tíma og efn-
ið verið selt hér á landi. „Við höfum
aldrei áður orðið varir við fram-
leiðslu amfetamíns hér,“ sagði
Amar.
„Starfsmenn Rannsóknastofu
Háskóla íslands aðstoða lögregluna
nú við að greina efnin sem fundust
í íbúðinni og hjálpa okkur við að
gera okkur betur ljóst hvað fór þar
fram. Ég vil ekkert láta uppi á
þessu stigi um framleiðsluna, en í
íbúðinni var geysileg hætta á
íkveikju og ótrúlegt að ekki hafí
orðið stórslys."
Lögreglan lagði í gær fram kröfu
um 10 daga gæsluvarðhald yfír
húsráðandanum. Að sögn Amars
átti einnig að krefjast gæsluvarð-
halds yfir hinum manninum, en
ekki hafði verið tekin ákvörðun um
þá kröfu þegar Morgunblaðið fór í
prentun. Báðir mennimir hafa kom-
ið við sögu hjá fíkniefnalögreglunni
áður.