Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Bifreiðaeftirlitsmenn skoða Subaru- bílana í lest Goðafoss í Keflavikurhöfn í gærkvöldi. Guðni Karlsson forstöðumaður er lengst til vinstri og fyrir miðju á myndinni er Margeir Margeirsson Fyrstu Subaru-bílarnir komnir til landsins: 200 kaupendur tilbúnir Keflavík. FYRSTU Subaru-bílamir, sem skemmdust í flóðinu í Dramm- en i Noregi fyrir nokkmm vikum, komu til landsins í gær- kvöldi með Goðafossi, skipi Eimskipafélagsins, sem liggur í höfninni í Keflavík. 91 bifreið er um borð í skipinu og hinir 144 em væntanlegir í janúar. Hafist verður handa um að skipa Subam-bílunum upp úr skipinu í dag. Starfsmenn Bifreiðaeftirlitsins biðu skipsins á bryggjunni í Keflavík og þegar búið var að tollskoða það fóru þeir um borð og niður í lest og skoðuðu nokkra bfla lauslega. Margeir Margeirsson, einn fjögurra eigenda Subaru-bifreið- anna, sagði að það kæmi í ljós í dag hvort Bifreiðaeftirlitið væri tilbúið til þess að skoða bflana. Þeir hefðu hins vegar ákveðið að taka flóra bfla inn á verkstæði í Keflavík, þar sem fram rnyndi fara nákvæm skoðun á þeim og myndu þeir bjóða Bifreiðaeftirlit- inu að taka þátt i skoðuninni. Hann sagði að nú hefðu rúmlega 200 manns látið skrá sig sem kaupendur að bflunum og væri þetta fólk víðs vegar að af landinu. BB Framkvæmdastjórnarfundur VMSÍ: Dræmt tekið í hugmyndir að kjarasamninffi FUNDUR framkvæmdastjórnar V er kamannasambands Islands tók fálega þeim hugmyndum að kjarasamningi, sem komu upp i sérkjaraviðræðum Vinnuveit- endasambands íslands og verka- mannafélagsins Dagsbrúnar og varð niðurstaða hans sú að þess- ar hugmyndir gæfu ekki tilefni til frekari viðræðna við_ vinnu- veitendur að svo komnu. Akveðið var að boða til næsta fram- kvæmdastjómarfundar 8. janúar næstkomandi og hafi ekki verið samið þá að boða við fyrsta tæki- færi til formannaráðstefnu. Guðmundur _ J. Guðmundsson, formaður VMSÍ, sagði í samtali við Morgunblaðið, að mönnum hefði þótt það lítið sem í boði væri og benti á að starfsmenn sveitarfélaga annarra en Reykjavíkur og Kópa- vogs hefðu nýlega hækkað í launum um 8,8% og samningar opinberra starfsmanna fyrir næsta ár kvæðu á um 3% hækkun 1. janúar og 2% hækkun 1. febrúar. Auk þess væri ótti í mönnum um að miklar verð- lagshækkanir væru framundan um áramótin og jafnvel gengislækkun. „Ég spái því að þar sem afstaða VSI hefur ekkert breyst þá horfi til verulegra sviptinga á almennum vinnumarkaði fljótlega á næsta ári,“ sagði Guðmundur. Á fund framkvæmdastjómarinn- ar bárust boð um að ríkisstjómin óskaði eftir viðræðum við forystu VMSÍ. Samþykkt var með 7 at- kvæðum gegn 3 að senda nefnd framkvæmdastjómarmanna á fund hennar. Þar _var gerð grein fyrir viðhorfí VMSÍ til ástandsins í samn- ingamálunum. Guðmundur sagði að þær viðræður hefðu verið góðar og væri eðlilegt að ríkisstjómin kynnti sér hug aðila vinnumarkaðarins til samningamálanna. Þinghald verður milli jóla og nýárs: Samningar stjómar og stjóm- arandstöðu fóm út um þúfur Samningaviðræður milli stjómar og stjórnarandstöðu á sunnudag, um að greitt yrði fyrir framgangi stjómarfrumvarpa svo ekki kæmi til þinghalds milli jóla og nýárs, báru engan árang- ur. Þvi er ljóst að þingfundir verða þann tíma og að þeir hefj- ast aftur strax eftir áramót. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra sagði við Morgunblaðið að venja væri, undir lok þinghalds fyrir jól, að halda fundi um þingstörfín fyrir jólaleyfí, og þær óskir hefðu ekki síður komið fram frá stjómar- andstöðunni. Þær óskir hefðu einnig að þessu sinni komið frá báðum aðilum að haldnir yrðu samráðs- fundir um gang mála í þinginu. Þorsteinn sagði ríkisstjómina hafa, fyrir sitt leyti, reynt að fækka sem mest mátti verða þeim málum sem afgreiða þurfti fyrir jólaleyfíð og á laugardagskvöld hefði hann Rumskaði við reyk- skynjarann MAÐUR, sem keypti sér reyk- skynjara á föstudag, komst að því að slík tæki eru hið mesta þarfaþing. Hann festi reykskynjarann hið bráðasta upp í loft í íbúðinni sinni og á laugardag kom það sér vel. Þá sofnaði maðurinn, en áttaði sig ekki á að kerti log- aði í jólaskreytingu á borði. Maður þessi, sem kveðst sofa mjög fast, rumskaði innan tíðar við mikið væl í reykskynjaranum og þá stóð jólaskreytingin í ljós- um logum. Má teljast mikil mildi að ekki fór verr og prísaði mað- urinn sig sælan fyrir forsjálnina. gert tillögu um að frumvarp um verkaskiptingu milli ríkis og sveitar- félaga yrði tekið til umræðu eftir áramót. Jafnframt hefði hann greint stjómarandstöðunni frá því að í ljósi þess að kjarasamningar stæðu fyrir dyrum hefði verið rætt um það í stjómarflokkunum að söluskatts- hækkun á neyslufiski kæmi ekki að fullu til framkvæmda og stjómin væri reiðubúin að flýta þeirri ákvörð- un í þeim tilgangi að greiða fyrir framgangi mála. Til að vega upp á móti tekjutapi ríkissjóðs vegna þessa er m.a. áætlað að leggja vörugjald á snyrtivörur, sem áætlað er að hafi 120 milljóna króna tekjuauka í för með sér. „Stjómarandstaðan tók sér um- hugsunarfrest, en kom síðan á fund sem ákveðinn var á sunnudag með hreina útúrsnúninga: kröfu um að ríkissjóður yrði rekinn með allt að 5 milljarða halla á næsta ári og að ríkisstjómin afsalaði sér því valdi sem hún hefur samkvæmt stjómar- skrá og er skilt að bera ábyrgð á. Þetta var því einföld yfirlýsing um það að stjómarandstaðan neitaði við- ræðum um framgang mála í þinginu eins og alltaf hafa átt sér stað milli stjómar og stjómarandstöðu," sagði Þorsteinn. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur þingflokks Alþýðubandalagsins, sagði að þegar ríkisstjómin hefði áttað sig á því að allt var komið í hnút hefði hún komið til stjómarand- stöðunnar á laugardagskvöldið og byijað að biðja um gott veður. „Á fundi á sunnudag báðum við um svör við þeim spumingum hvort þeir væru tilbúnir til að hætta við matar- skattinn, enda værum við þá tilbúin til að sætta okkur við að ríkissjóður yrði rekinn með halla og hallinn yrði tekinn niður á lengri tíma en ella. Einnig vildum við fá vissu fyrir því að ekki yrði gripið tii neinna meiriháttar efnahagsráðstafana aft- an við hrygginn á okkur. Þessu svöruðu þeir neitandi og við báðum þá um gagntilboð af þeirra hálfu. Forsætisráðherra ítrek- aði sitt upphaflega tilboð og það var þegar komið fram hjá okkur að við teldum þetta ekki þess virði að fara í staðinn að standa að því að af- greiða alla skattasúpuna með stjóm- inni fyrir jól, og því þurfti ekki að lengja viðræðumar," sagði Steingrímur. Þegar hann var spurður nánar út í tilmælin um að ekki yrði gripið til meiriháttar efnahagsaðgerða í þing- hléi sagði hann það hafa komið fram að stjómin teldi óhjákvæmilegt að grípa til einhverra víðtækra efna- hagsráðstafana. „Við höfum ástæðu til að ætla að eitt af því sem liggur á bak við það að ríkisstjómin hefur sérstakan áhuga á að koma þinginu heim fyrir jól, og láta fresta fundum þess með þingsályktun, sé kannski það að stjómin sé að byija að und- irbúa óhjákvæmilegar efnahagsráð- stafanir en án þess að leggja þær fyrir þingið, eins og eðlilegt væri við þessar aðstæður," sagði Steingrím- ur. Þegar þessi ummæli Steingríms vom borin undir Þorstein Pálsson sagði hann: „Það stóð ekki til að fresta þinghaldinu með neinum öðr- um hætti en venja stendur til og allt tal af þessu tagi ér hreinn útúr- snúningur og uppspuni.“ Ó1 barn eft- ir bílveltu Skinnastað, Öxarfirði. NÝLEGA bar það til er kona var á ferð í bU sínum í Keldu- hverfi að hún missti stjórn á bilnum í hálku og fór hann mikla veltu út af veginum. Skreið konan út úr flakinu og komst nauðuglega til næsta bæjar þar sem þó var enginn heima og gat hringt þaðan eftir hjálp. Konan, sem er tónlistarkenn- ari og átti bráðlega von á bami, var að fara i síðustu kennslu- stund fyrir jól í Skúlagarð er óhappið varð. Komst hún við ill- an leik heim að bænum Hóli og komst í síma þar sem dyr vom ólæstar og gat hringt í heilsu- gæslustöðina á Kópaskeri. Heilsugæslulæknirinn ók í skyndi til Hóls um 40 kflómetra leið og kom hinni nauðstöddu konu til hjálpar. Var hún þegar flutt á sjúkrahúsið á Húsavík þar sem hún skömmu síðar ól sveinbam. Er síðast fréttist heilsaðist bæði móður og syni vel. Sigurvin Grindavík: Skríkaði fótur og féll milli báts og bryggju Snör handtök höfð við björgun mannsins Selfossi. 17 ÁRA piltur féll niður á milli báts og bryggju í Grindavíkur- höfn aðfaranótt laugardags. Félagi hans bjargaði honum með aðstoð manna sem komu að. Pilturinn, Indriði Ingimundarson háseti frá Villingaholtshreppi í Flóa, og félagi hans Sigurbjöm Berg Sig- urðsson annar stýrimaður frá Stokkseyri, ætluðu um borð í bátinn Þorstein GK sem lá utan á öðmm bát í höfninni. Þegar Indriði steig á rekkverkið á bátnum næst bryggj- unni skrikaði honum fótur og féll á milli bátsins og bryggjunnar. Bil- ið þar á milli var innan við metri. Hásjávað var þegar þetta gerðist og Siguijóni tókst að teygja annan fótinn til Indriða og náði hann taki á fætinum og síðan á dekki utan á bryggjunni. Rútubifreið sem kom niður á bryggjuna var bakkað að bátnum til að halda honum frá bfyggjunni og leigubflstjóri sem ók piltunum hjálpaði til við að koma kaðli til Indriða og draga hann upp. Lögreglan kom síðan þama að og ók Indriða í læknisskoðun í Keflavík. Indriða varð ekki meint af volk- inu. Hann sagðist hafa verið fljótur að jafna sig þó honum hefði orðið nokkuð kalt. „Ég varð auðvitað skíthræddur og þeirri stundu fegn- astur að komast upp,“ sagði Indriði. Hann sagðist hafa verið í skoti inn undir bryggjunni þannig að bátur- inn klemmdi hann ekki á milli þegar hann hreyfðist. Sigurbjöm klemmd- ist hins vegar á fætinúm, þó ekki Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Indriði Ingimundarson háseti á heimili sínu í gær. alvarlega. Indriði og fjölskylda hans vilja koma á framfæri þökkum til Sigur- bjöms og alira sem hlut áttu að björguninni. Sig. Jóns.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.