Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
Nýyrðasafn
úr flug-
máli í undir-
búningi
Samgönguráðherra hefur
skipað nefnd til að vinna að ný-
yrðasafni úr flugmáli. Nefndin
hefur auglýst eftir ritstjóra til
að starfa með henni að þessu
verkefni en gert er ráð fyrir að
það taki að minnsta kosti tvö ár.
Formaður nefndarinnar er Pétur
Einarsson flugmálastjóri.
„Það var gefið út nýyrðasafn úr
flugmáli árið 1956 en það er orðið
úrelt. Þegar íslendingar tala um
flugmál er eins og þeir séu að tala
skandinavísku, það er með naum-
indum hægt að skilja samtalið og
rétt svo að samtengingamar séu
íslenskar. Það virðist því ekki veita
af nýju nýyrðasafni," sagði Pétur í
samtali við Morgunblaðið.
Árni Einarsson í dyrum verslunar sinnar við Fálkagötuna.
Morgunblaðið/Júlíus
Sumarlegt
á Fálka-
götunni
ÞEIR sem fara um Fálkagötuna
í Reykjavík gætu haldið að þeir
hefðu rugiast í dagatalinu, því
þar er umhorfs eins og um mitt
sumar. Fyrir utan verslun Árna
Einarssonar er stillt upp ávaxta-
kössum og jólaöli og að sögn
kaupmannsins kunna viðskipta-
vinir vel að meta hversu sumar-
legt er við verslunina.
„Ég set ávaxtakassa alltaf út á
8tétt á sumrin og nú er veðrið svo
gott að það er engin ástæða til
annars," sagði Ámi. „Ég hef rekið
verslun í 27 ár og veðrið hefur aldr-
ei verið svo gott í desember að þetta
hafi verið hægt áður. Að vísu reyndi
ég að setja jólaeplin út á Þorláks-
messu fyrir mörgum árum, en ég
varð að taka þau inn aftur, því það
var of kalt.“
Ámi sagði að viðskiptavinimir
hefðu gaman af að geta valið ávext-
ina undir beru lofti og þetta tiltæki
hleypti lífi í verslunina.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
Hemnild: Veöurstote íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.1$ i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 22.12.87
YFIRLIT i hádagl í gær: Hæg breytileg vindátt og skúrir víðast
hvar á landinu. Skúrir eða slydduól voru á stöku stað en annars
þurrt.
SPÁ: Fremur hæg breytileg eða suðvestlæg átt og skýjað víðast
hvar á landinu. Slydduél á stöku stað en annars að mestu þurrt.
í fyrstu allhvöss norðaustanátt og rígning á Suðaustur- og Austur-
landi. Hiti 1—4 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á ÞORLÁKSMESSU: Norðaustanátt, vfða hvassviðri með
rigningu á Austurlandi og slyddu eða snjókoma á Norðurlandi og
Vestfjörðum, en úrkomulítið suövestanlands. Híti 2—5 stig á Suð-
ur- og Austurlandi, en náiægt frostmarki á Norðvesturlandi.
HORFUR Á AÐFANGADAG JÓLA: Minnkandi norðan- og norðaust-
anátt og óljagangur á Norður- og Norðausturlandi, en á Suðvestur-
landi lítur út fyrir hæga breytílega ótt og þurrt veður. Kólnandi
veður og líklega frost um allt land.
TÁKN:
Heióskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ # /
* # #
* * * * Snjókoma
* * *
\ 0 Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
— Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
xm, VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma Wtl vsAur Akureyri 2 léttskýjaé Rayfcjavlk 2 úrkomfgr.
Bergen 6 ligþokublettir
Halainki *7 léttskýjaö
JanMayan ♦1 slydda
Kaupmannah. e lóttskýjaö
Narsaarssuaq +8 skýjaö
Nuuk +12 heiösklrt
Ostó ♦1 lágþokublettlr
Stokkhölmur 1 súld
Þórshöfn e aiskýjað
Algarve 17 hálfskýjaó
Amsterdam 8 súld
Aþena 13 tóttskýjaö
Barcelona 16 Wttskýjaö
Berlln e skýjaö
Chlcago ♦2 heiöskfrt
Faneyjar 3 þoka
Frankfurt e rigning
Glasgow 10 rigningogsúld
Hamborg e þokumóöa
LasPalmas 21 tóttskýjað
London 10 súld
LosAngeles e helösklrt
Lúxemborg 6 þoka
Madrld 11 akýjaö
Malaga 17 þokumóða
Mallorca 18 Mttskýjaö
Montreal 2 snjóél
NawYork 7 alskýjað
París 6 alskýjaö
Röm 16 þokumóöa
Vfn 10 skýjað
Washington 7 alskýjaö
Wlnnipeg +17 haföskfrt
Valencla 16 reykur
Mikið siglt
með aflann
TALSVERT hefur verið um sigl-
ingar íslenzkra fiskiskipa á
erlendar hafnir að undanfömu.
í siðustu viku seldu 9 skip afla
sinn í Bretlandi og þijú í Þýzka-
landi. Verð var í flestum tilfell-
um talið viðunandi miðað við
framboð. Þá var einnig talsvert
selt í þessum löndum af gáma-
fiski héðan.
f síðustu viku seldu skipin í Bret-
landi samtals 616 tonn að verðmæti
39,4 milljónir króna. Meðalverð var
63,96. Meðalverð var nokkuð
misjafnt eftir skipum. Hæst varð
það 71,74 hjá Sæljóni SU en lægst
hjá Ottó Watne NS, 57,03. Hæst
verð fékkst fyrir kola, 85,07 að
meðaltali, 82,72 fyrir ýsu og 73,86
fyrir grálúðu. Fyrir þorsk fengust
að meðaltali 61,96 krónur.
893,6 lestir voru seldar úr gám-
um í síðustu viku. Heildarverð var
60,3 milljónir króna, meðalverð
67,45. Fyrir kola fengust 86,45
krónur að meðaltali, 79,46 fyrir ýsu
og 75,83 fyrir grálúðu. Þorskur fór
að meðaltali á 62,88.
Þijú skip seldu samtals 490,2
tonn í Þýzkalandi í liðinni viku fyr-
ir samtals 25,3 milljónir króna.
Meðalverð var rúmlega 50 krónur
á hvert kflo, en aflinn var að mestu
karfi og ufsi. Engey RE seldi 169,8
tónn að verðmæti 9,2 milljónir
króna, meðalverð 54,34. Þorlákur
ÁR seldi 108,9 tonn að verðmæti
5,5 milljónir, meðalverð 50,38. Loks
seldi Breki VE 211,5 lestir að verð-.
mæti 10,6 milljónir, meðalverð
50,06. Þá var einnig selt úr 12 til
13 gámum héðan í Þýzkalandi í
vikunni en upplýsingar um heildina
skortir.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Um 8 milljónir
hafa safnast
JÓLASÖFNUN Hjálparstofinun-
ar kirkjunnar hefur gengið
vonum framar. Að sögn Sigríðar
Guðmundsdóttur, framkvæmda-
stjóra Hjálparstofnunarinnar, er
erfitt að áætla nákvæmlega
hversu mikið hafi þegar safnast,
en þó væri áætlað að sú upphæð
hafi numið um átta milljónum
króna nú fyrir helgina.
Jólasöfnuninni mun formlega
ljúka á Þorláksmessu, en þá verður
tekið á móti söfnunarbaukum og
framlögum í kirkjum landsins.
Verða kirkjur þá opnar frá klukkan
17 til 20.
Að sögn Sigríðar er erfitt að
bera þessa söfnun saman við fyrri
safnanir. í fyrra stóð Hjálparstofn-
unin ekki fyrir formlegri söfnun.
„Söfnunin fyrir jólin 1985 gekk
sérlega vel og við gerum okur von-
ir um að söfnunin í ár verði ekki
lakari," sagði Sigríður. „Það ér
ekki hægt að segja nákvæmleg til
um það á þessu stigi hvemig söfn-
unarfénu verður varið. Mestur hluti
fer væntanlega til hjálparstarfsins
á þurrkasvæðunum í Eþíópíu, en
jafnframt munum við senda fé til
aðstoðar í Bangladesh og til flótta-
fólks frá Mosambique.
Auk hefðbundinna söfnunarað-
ferða hefur Hjálparstofnunin staðið
fyrir sölu friðarkerta og mun sú
sala einnig fara fram við kirkju-
garða landsins á aðfangadag.
Þýskaland:
Alafoss keypti
dreifingar-
fyrirtæki
ÁLAFOSS hf. tók í haust yfir
rekstur dreifingarfyrirtækisins
Scandinavian sport i Stuttgart i
Vestur-Þýskalandi. Stjórnendur
nýja Álafoss eru með sölumálin
á þessu svæði i athugun um þess-
ar mtmdir, að sögn Jóns Sigurð-
arsonar forstjóra, og ræðst
framtíð þessa dótturfyrirtækis
eins og annarra af niðurstöðum
þeirrar vinnu.
Þýska fyrirtækið dreifði miklu
af vörum frá Álafossi um allt
Þýskaland, ásamt ýmsum öðrum
vörum. Var þetta talinn svo þýðing-
armikill hluti af dreifingarkerfi
fyrirtækisins að reksturinn var tek-
inn yfir þegar það bauðst.