Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
5
Bláa lónið
á forsíðu
Wall Street
Journal
Á forsíðu dagblaðsins The Wall
Street Journal miðvikudaginn
16. desember er að finna stutta
frétt um Bláa lónið f Svartsengi
og lækningamátt þess.
í fréttinni segir að fólk sem þjá-
ist af ýmsum húðsjúkdómum
flykkist nú til íslands í þeirri von
að vatnið í Bláa lóninu geti linað
þjáningar þess. Ennfremur segir
þar að verkamaður einn, sem starf-
aði við hitaveituna í Svartsengi
hafi einhveiju sinni fallið í lónið og
uppgötvað sér til mikillar furðu að
baðið hafði jákvæð áhrif á húðsjúk-
dóm, sem angraði hann. Tekið er
fram að enn sé verið að rannsaka
vatnið í lóninu en hugsanlegt sé
talið að kísill í vatninu geti dregið
úr hreistursmyndun og öðrum ein-
kennum tiltekinna húðsjúkdóma.
„Þó svo að heilsulindin í miðju
hrauninu hafí ekki til að bera glæsi-
leika Vichy og Baden-Baden hefur
hún vakið mikla athygli víða í Evr-
ópu og hafa þúsundir manna, þeirra
á meðal sænski kvikmyndaleikstjór-
inn Ingmar Bergman, baðað sig í
lóninu". Þess er getið að menn þurfí
að reiða fram um rúma tvo Banda-
ríkjadali (um 100 kr. ísl.) vilji þeir
nýta sér aðstöðuna og skiptist það
gjald jafnt á milli hitaveitunnar og
hótels sem byggt hafí verið við lón-
ið fyrir fjórum árum.
í lok fréttarinnar er skýrt tekið
fram að Samtök psoriasis-sjúklinga
á Islandi skrái öll tilfelli þar sem
vitað er um að menn hafí fengið
lækningu meina sinna eftir að hafa
baðað sig í lóninu.
Grunnskólar
Reykjavíkur:
74,5% barna
með samfelld-
an skóladag
í SKÓLAMÁLARÁÐI
Reykjavíkurborgar var nýlega
lagt fram yfirlit yfir samfelldan
skóladag í grunnskóium borg-
arinnar veturinn 1987—88. Af
alls 13.816 nemendum, hafa
10.287 samfelldan skóladag, eða
74,5%.
í yfírlitinu, sem fram kemur í
fundargerð Skólamálaráðs, sem
lögð var fyrir síðasta borgarstjóm-
arfund, kemur fram að 100%
nemenda í forskóla hafa samfelld-
an skóladag. í fyrsta bekk er
hlutfallið 93%, í öðrum bekk 86%,
í þriðja bekk 65,5%, í fjórða bekk
77,6%, í fímmta bekk 70,8% í
sjötta bekk 49%, í sjöunda bekk
68,5%, í áttunda bekk 61,3% og í
níunda bekk 63,8%.
Á fundi Skólamálaráðs var einn-
ig lagt fram yfirlit forstöðumanns
kennslumáladeildar um fjölda
síðdegisbekkja í 4.-9. bekk vetur-
inn 1987-1988. Eru þær 23
talsins.
llli
Ajólunum veljum við gjaman það sem
okkur þykir best á jólaborðið og
auðvitað helst sem þjóðlegast. íslenska
lambakjötið er hráe&ii sem á fáa sína líka,
svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað
rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á
jólaborðið. Hér er uppskrift af einni
ómótstæðilegri.
Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu
jólasteik handa okkur með óskum um
gleðilega hátíð.
Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5
daga, helst í loftþéttum umbúðum.
Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið
leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá
ef lærið er of feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í
lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og
kjötið utan af leggbeininu.
Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í
bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið
á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins
að taka lit. Bætið þá pipamum,
rósmarínkryddinu, sojasósunni,
sítrónusafanum og líkjömum útí og látið
Lambalæri
með Kahlua-sósu
Fyrir6-7.
1 meðalstórt Imbalæri
2 msk matarolía
3 sellerístilkar
Yi blaðlaukur (púrrulaukur)
1 tsk græn eða hvít piparkom
1 tskrósmarín (sléttfull)
2 dl Kahlua-kaffilíkjör
2 msk Kikkoman sojasósa
safi úr 1 sítrónu
salt
2 dl Ijóst kjötsoð
dökkur sósujafnari
X-, I s-x
^þegvþú
vilthái
sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið
henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið
lambalærið í pokann og bindið vandlega
fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum.
Takið utan um legginn á lærinu og sláið
pokanum með lærinu í nokkmm sinnum
þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn.
Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum
vel inn í holumar á kjötinu.
Geymið pokann með lærinu á köldum
stað í um einn sólarhring og snúið honum
öðm hvom og nuddið safanum vel inn í
lærið um leið.
Hitið ofninn í 220°C.
Takið lærið úr pokanum og skafið
kryddblönduna utan af með bakkanum á
borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið
með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir).
Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og
skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í
hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og
leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í
ofninum þar til það er búið að fá á sig
fallegan lit. Minnkið þá hitann á ofninum
niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu
er kryddleginum sem eftir var ásamt
kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan
steikt í um 15-30 mín. í viðbót.
Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að
bera það fram á og geymið í heitum og
hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð.
Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott
og bragðbætið með salti og pipar eftir
smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og
þykkið það hæfilega með sósujafnara.
Berið kjötið fram með nýju, soðnu
grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að
skola því niður.
MARKAÐSNEFND
SPENNANDI