Morgunblaðið - 22.12.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
9
Glæsilegjólaföt
Dökk, röndótt, tvíhneppt föt.
Vönduð efni, terylene/ull.
Frábær tískusnið.
Verð aðeins kr. 8900,00.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Dagskrá Samhjálpar um hátíðarnar:
Aðfangadagur: Samkoma í Þríbúðum kl. 16.00.
Sunnudagur 27. des.: Samkoma í Þríbúðum kl. 16.00.
Gamlársdagur: Samkoma í Hlaðgerðarkoti kl. 16.00.
Laugardagur 2. jan.: Opið jólahús í Þríbúðum kl. 14.00-17.00.
Sunnudagur 3. jan.: Samkoma í Þríbúðum kl. 16.00.
Fjölbreytt dagskrá. Allir velkomnir.
Gleðilega hátíð!
BOSS
KEIMUR FYRIR KARLMENN
Clara Laugav.-Clara Kringlu-Sævar Karl
Laugav.-Sævar Karl Kringlu- Hygea-Mirra-
Topptískan-París-Nana-Holts apótek-Snyrti-
vörubúðin Glæsibæ-Rakarastofan Suðurlandsbr.
10-Apótek Keflavíkur-Andorra Hafnarfirði-
Snyrtihöllin Garðabæ-Hilma Húsavík-Vörusal-
an Akureyri-Krisma ísafirði.
Fjórar gerðir af sófasettum klædd vatnabuffalóskinni.
Slitsterkt og áferðarfallegt skinn, anelínsútað og gegnum litað.
Sófásettá sérlega hagstæðu verði.
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, sími 82275
FERRARISÚFASETT - 3ja + tveirstölar
kr. 117.500,- stgr.
ERTÞÚÍ
HÚSGAGIMALEfT ?
Borgaraflokk-
urinn og NATO
eftir Júlíus Sólnes
Morgunblaðið og Nicaragua
Afstaða Borgaraflokksins
Júlíus Sólnes, formaður þingflokks Borgarasflokksins, ritar grein
hér í Morgunblaðið á laugardaginn í tilefni af Staksteinum síðast-
liðinn fimmtudag. í greininni segir Júlíus meðal annars um það,
sem stóð hér í dálkinum: „Þar er reynt að' læða þeirri hugsun
inn hjá lesendum blaðsins, að Borgaraflokkurinn sé í raun
andvígur þátttöku íslendinga í NATO þrátt fyrir yfirlýsta stefnu
Borgaraflokksins um hið gagnstæða. Að mati Morgunblaðsins
er Borgaraflokkurinn sem úlfur í sauðargæru." Við þessa grein
Júlíusar Sólnes er staldrað í Staksteinum í dag.
AmótiNATO
Tilefni þess að rætt
var um afstöðu Borgara-
flokksins til NATO hér í
Staksteinum var sú stað-
reynd, að þingmenn
flokksins sátu hjá, þegar
greidd voru atkvæði um
tíllögu Alþýðubandalags-
ins á Alþingi þess efnis,
að úr fjárlögum skyldi
falla árleg greiðsla ís-
lands til Atlantshafs-
bandalagsins að
imdanskildum 1000
krónum, sem notaðar
yrðu til að standa straum
af kostnaði við að senda
bandalaginu tílkynningu
um úrsögn fslands úr
því. í sjálfu sér er um-
hugsunarefni, hvort
ástæða er að taka mark
á tíllögum af þessu tagi.
Það gerðu borgara-
flokksmenn og sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna í
samræmi við samkomu-
lag, sem þeir höfðu gert
við Alþýðubandalagið og
Kvennalista. Vegna
þessa var varpað fram
þeirri spumingu hér i
Staksteinum, hvort Borg-
araflokkurinn mætí
samkomulag við Alþýðu-
bandalagið meira en
aðildina að Atlantshafs-
bandalaginu.
Július Sólnes segir í
Morgunblaðsgrein á
laugardaginn að skrif
Staksteina um þetta mál
virki „hjákátlega" á sig
og vill gera sem minnst
úr þvi, minna en efni
standa til miðað við það,
sem er i húfi, sjálfstæði
og öryggi þjóðarinnar.
Júlíus segir: „. . . Þing-
menn Borgaraflokksins
sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna, án þess að
það hafi hið minnsta með
afstöðu flokksins í vam-
armálum að gera.“
Hvemig má það vera, að
tíllaga sem miðar að úr-
sögn íslands úr NATO
hafi ekkert að gera með
afstöðuna i vamannál-
um? Og Július segir
ennfremur:
„Við sáum ekki ástæðu
til þess að greiða atkvæði
gegn hinum ýmsu tíllög-
um, þar sem við áttum
erfitt með að meta hvað
væm sanngjamar fjár-
veitingar til hinna ýmsu
liða. Greiddum við þvi
ýmist atkvæði með tillög-
unum eða sátum hjá.
Varðandi tillöguna um
lækkun fjárveitingar
vegna þátttöku okkar í
NATO sátum við hjá, þar
sem við studdum hana
ekki.“
Verýulega láta menn
andstöðu sina við tillögur
í ljós með því að greiða
atkvæði gegn þeim. Eins
og Július Sólnes stað-
festír sátu Borgara-
flokksmenn hjá við
atkvæðagreiðslu um það,
hvort segja ættí ísland
úr NATO eða ekki. Þeir
tóku rikara tillit til sam-
stöðu með Alþýðubanda-
laginu en stuðnings við
Atíantshafsbandalagið.
Breytir grein Júlíusar
Sólnes engu um þá stað-
reynd og ekki bætir hann
málstað flokks sins i
þessu máli með órök-
studdum dylgjum um að
Morgunblaðið viýi, að ís-
lendingar hneigi sig í
„hvert sinn, sem Banda-
ríkjamönnum þóknist að
tala við okkur um varn-
armál“. Ekki er nóg með
að borgaraflokksmenn
halli sér að Aiþýðubanda-
laginu í atkvæðagreiðsl-
um um NATO á Alþingi
heldur þurfa þeir að fara
i smiðju til alþýðubanda-
lagsmanna til að ná sér
i bitlaus vopn i baráttu
við þá, sem andmæla þvi,
þegar gera á vamir og
öryggi þjóðarinnar að
skiptímynt í viðræðum
við Bandaríkjamenn um
óskyld mál.
Þjóðviljinn
og- Nicaragna
í forystugrein Þjóðvilj-
ans á laugardag er vikið
að þeirri fullyrðingu í
forystugrein Morgun-
blaðsins á föstudag, að
síðan sandinistar komust
til valda í Nicaragua 1979
hafl ekki verið efnt til
lýðræðislegra kosninga í
landinu. Bendir Þjóðvilj-
inn réttilega á, að kosið
hafi verið í Nicaragua í
nóvember 1984. Forystu-
grein blaðsins af þessu
tilefni lýkur með þessum
orðum: „Það er frumskil-
yrði að hægt sé að
rökræða um alþjóðamál
án þess að gripið sé til
ómerkilegra lyga einsog
áðumefndrar fullyrðing-
ar í leiðara Morgunblaðs-
ins.“
Morgunblaðið fór ekki
með neina lygi, ágrein-
ingurinn við Þjóðvijjann
stendur um það, hvort
efnt hafi verið til lýðræð-
islegra kosninga í Nic-
aragua 1984 eða ekki.
Þeir sem fylgdust með
kosningunum í Nic-
aragua sögðu að fram-
kvæmd þeirra á kjördag
hefði verið með þeim
hættí, að ekki væri unnt
að finna að henni. Á hinn
bóginn höfðu þeir uppi
ýmsar athugasemdir um
það, hvemig staðið var
að kosningabaráttunni
og hvaða ráðiun sandin-
istar beittu gagnvart
háttvirtum kjósendum.
Einn stjómmálaflokkur á
hægra kantí ákvað að
taka ekld þátt í kosning-
unum í mótmælaskyni
við aðferðir rödsstjóm-
arinnar. Verður ekki
undan þeirri staðreynd
vikist, að sú ákvörðun
varð til þess að sandinist-
ar náðu ekki þvi tak-
marki sinu með
kosningunum, sem efnt
var til ekki sist vegna
þrýstings frá Banda-
ríkjunum, að stjómar-
hættir í Nicaragua væm
hafnir yfir gagnrýni
þeirra, sem gera ský-
lausa körfu til lýðræðis-
legra vinnubragða og
stjómarhátta. Er sjálf-
sagt að rökræða það við
Þjóðvijjann, hvort lýð-
ræðislegir stjómarhættir
ríki í Nicaragua eða ekki
og hvort ástæða sé fyrir
stjóravöld þar að setja
fimm eða sex hundmð
þúsimd manns i herinn
hjá 3,3 milýón manna
þjóð — meira að segja
hjá Albönum, sem em
álíka fjölmennir og eiga
i útístöðum við alla, em
ekki nema 42.000 manns
undir vopnum. Einnig er
unnt að ræða við Þjóðvilj-
ann, hvort hemaðar-
hyggjan í Nicaragua sé i
samræmi við friðarvið-
leitnina, sem kennd er
við Oscar Arias, forseta
Costa Rica, en hann fékk
friðarverðlaun Nóbels á
dögunum.
ANNAÐ OG FIMMTA HEILRÆÐIFRÁ
VERÐBRÉFAMARKAÐIIÐNAÐ ARB ANKANS
TIL PEIRRA SEM ERU AÐ BYRJA AÐ SPARA:
... OG ÞAÐ ER EKKERT ERFITT AÐ STÍGA FYRSTU SKREFIN!
5
Takið upp sparnað er afborgunum lána
lýkur! Grípið tækifærið er lán hafa verið
greidd upp og leggið samsvarandi fjárhæð
fyrir í stað þess að eyða peningunum í
annað.
2
Vextir eru leiga fyrir afnot af peningum.
Því fyrr sem byrjað er að leggja fyrir því
lengur vinna vextirnir við að auka
eignirnar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla7, 108 Reykjavik. Simi68 1530