Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 11 Frá tónleikunum i Áskirkju. JÓLATÓNLEIKAR Töniist Jón Ásgeirsson Kammersveit Reykjavíkur hélt tónleika í Áskirkju sl. sunnudag. Húsfyllir var en á efnisskránni voru þrír einleikskonsertar, einn tvíleikskonsert og svo samleiks- konsert af „Corelli gerðinni" eftir Manfredini. Hlíf Siguijónsdóttir var konsertmeistari fyrir þessari næstum alíslensku hljómsveit, sem í heild lék mjög vel. Tónleikamir hófust á tvíleiks- konsert fyrir trompeta eftir A. Vivaldi. Af nærri fímmtíu tvíleiks- konsertum er aðeins einn til fyrir tvo trompeta. Lárus Sveinsson og Ásgeir H. Steingrímsson léku trompeteinleikinn, sem er sam- kvæmt forskriftinni með fullu jafnræði trompetanna enda var leikur þeirra félaga nokkuð vel samstilltur, eilítið órólegur en að öðru leyti fallega útfærður. Annað viðfangsefnið, fagott- konsert í a-moll, er einnig eftir Vivaldi og lék Rúnar H. Vilbergs- son á einleiksfagottið. Vivaldi samdi um fjörutíu fagottkonserta, þó fimm þeirra séu einnig til fyrir óbó en fjórir af þessum fagottkon- sertum eru í a-moll. Rúnar lék konsertinn mjög vel og auðheyrt að hér er á ferðinni vaxandi hljóð- færaleikari. Tartini (ásamt Veracini) stendur mjög sér í konsertsögunni en hann er einn þeirra er braut af sér form- bönd konsertsins og gerði einleik- inn svipaðan því er síðar tíðkaðist í konserttónlist klassíska tímans. Konsert þessi er með þeirri skipan að undirleikurinn er að miklu leyti útfærður af samleikandi tveimur fiðlum en ekki samkvæmt „cont- inue“ formúlunni. Einleikinn í þessu fallega verki flutti Laufey Sigurðardóttir og var leikur hennar einkar fallegur, sérstaklega í hæga þættinum sem Laufey lék með undarlega seiðandi trega. Síðasti þáttur verksins (presto) ar alltof hægur, jafnvel þó miðað sé við „ Barokk-presto". Síðasti einleikskonsertinn á efn- isskránni var gítarkonsert eftir Mauro Giuliani. Hann var ítali en starfaði einnig í Vinarborg og var dáður sem mikill gítarsnillingur. Eftir hann liggja um 200 gítarverk og þar á meðal þrír konsertar. Amaldur Arnarson lék á gítarinn en hann er í fremstu röð gítarleik- ara hér á landi og var leikur hans í heild mjög góður. Verk þetta er glæsileikaverk og naut Amáldur þar góðrar tækni sinnar. Siðasta verkið var svo Jólakon- sertinn eftir Manfredini sem var eiginlega minnst spennandi verk tónleikanna þó hann væri þokka- lega leikinn. í heild vom þetta skemmtilegir tónleikar séstaklega vegna einleikaranna sem stóðu sig mjög vel. Talnaband og svartklædd kona Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Halldór Laxness: DAGAR HJÁ MÚNKUM. Vaka-Helgafell 1987. Efni dagbókar frá þroskaámm er uppistaða Daga hjá múnkum svo að stuðst sé við orð höfundarins í formála. Dagbókin er skráð í klaustrinu Saint Maurice de Cler- vaux í Lúxemborg árið 1923, hefst 14. febrúar og endar 24. júlí. Fram- an við dagbókina skýrir Halldór Laxness aðdraganda þess að hann leitaði í kaþólskt klaustur og aftan við hana segir frá frekari kynnum af munkum. Um Daga hjá múnkum segir Halldór: „Þetta kver hefur smám saman tekið á sig mynd einskonar essay- rómans, sögu í greinaformi eða ritgerða í skáldsögutækni, því hversu vel sem heimildum er fylgt má ávalt gera ráð fyrir að liðin tíð færist ósjálfrátt í stílinn í endur- minníngunni, þótt ekki sé það ásetníngur sögumanns.“ Margt í Dögum hjá .múnkum kemur kunnuglega fyrir sjónir les- enda Halldórs Laxness, víða hefur á það verið drepið hjá honum sjáif- um og í umfjöllun annarra um hann. Engu að síður eru Dagar hjá múnk- um sjálfstæð bók og mikilvægt að skáldið sjálft skuli hafa búið hana til prentunar og aukið þannig að mun skilning manna á „trúarsögu" sinni. En það er meira en trúarsaga sem lesandi kynnist í Dögum hjá múnkum. Lesandinn fær að vita um drög verka eins og Undir Helga- hnúk, margt það sem síðar kallaði fram Vefarann mikla frá Kasmír og aðrar sögur og greinar. Um bemsku sína og persónuleg mál æskuára er Halldór hreinskilinn. Ekki er minnst um vert að skynja andstæður hins þrönga sviðs heim- byggðarinnar og andrúms evr- ópskra mennta. í klaustrinu les Halldór talna- band sitt óspart og nýtur kennslu og leiðsagnar munkanna og ann- arra velviljaðra manna. Konur reyna að freista hans, ekki síst ein svartklædd og heillandi, en hann veit að þær eru sendar af hinum illa og ástundar hreinleika. Holdleg- ar kvalir ungs manns eru þó nokkrar og ekki bætir þrálát tannpína. Fráfall vinar varpar líka skugga á klausturlífíð. Sú saga er átakanleg. Mynd Halldórs af klaustrinu er í anda eftirsjár og virðingar, en lífíð sjálft kemur og málar frásögnina þeim litum sem auka íjölbreytnina. Eftirfarandi línur frá 21. maí lýsa þessu: „Konur tmfla mig mjög í kirkj- unni. Ætla bráðum að láta snoð- klippa mig af þessum ástæðum." Vinum bregður fyrir í dagbók- inni, en yfirleitt er stuttlega minnst á þá. Eftir að borist hafa bréf frá Jóhanni Jónssyni, Nikolínu Áma- dóttur og Nonna 12. mars er þetta látið nægja handa dagbók: „Fékk bréf frá Jóhanni og gladdi það mig mikið. Hann er næstelsti og besti vinur minn og sá einn sem skilyrði hefur til að skilja mig. Sömuleiðis línur frá Nikku, ástmey Jóhanns. Ennfremur kort frá pater Jóni Sveinssyni S.J., elskulegt og fallegt. Guds rigeste velsignelse over Dem! skrifar hann." Þessi stutti texti segir engu að síður heilmikið. Þegar líður á dagbókina er minna skrifað eins og gengur. Stundum er ein málsgrein látin nægja, jafn- vel ein setning: „Fmmsynd mannsins var sú þeg- ar hann fann uppá að segja ég.“ í Skáldatíma minnir mig að danska skáldið og trúarleiðtoginn Johannes Jörgensen hlyti umsögn sem mörgum þótti umdeilanleg. Svo gengur það vissulega til í baráttu- ritum. Það var Jörgensen sem Halldór Laxness hjálpaði Halldóri að fá inni í Cler- vaux og reyndist honum mjög vel, enda er mynd hans í Dögum hjá múnkum einkar trúverðug. Lesendur Halldórs Laxness harma það ekki að hann skuli hafa verið jafn upptekinn af sjálfum sér og dagbókin ber vitni. Sumt í Dög- um hjá múnkum er fyllra en áður hefur komið fram urri ævi hans, brot sem eru gott framlag til heild- armyndar. Skýringar á orðum, hugtökum og nöfnum úr klausturdagbók eru vel unnar og afar nauðsynlegar í þessu samhengi. Góðar tillögnr Þórs Magnússonar þjóðminja- varðar um endurbyggingu Isafjarðarkirkju eftír Finnbjörn Hjartarson Um „Staðinn“ Ein er sú mynd, sem allir ísfirðing- ar þekkja, en hún er sú sem tekin er úr skrúðgarðinum og yfír Isafjarð- arkaupstað, með kirkjuna í for- grunni. Þar stendur hún eins og kóróna „Staðarins" og hefur verið það í hundrað ár. Hvergi á íslandi eru eins mörg „Staðar“-nöfn og á Vestfjörðum. Það virðist í fljótu bragði vera sú mál- kennd Vestfírðinga, að hvort sem um er að ræða andleg umsvif með kirkju og prestsetri eða veraldleg umsvif með útgerð, iðnaði og/eða verslun að þar sé „Staður“/Kaup- staður. — í reynd verður það svo, að þar sem kirkja er í kaupstað, er eins og hún verði númer tvö, sem sagt kirkja kaupstaðarins. En þar sem hún stendur ein, með prestsetri, fær staðarheitið aðra og háleitari merkingu og verður að „Stað“ — Staður í Aðalvík — Staður í Grunnavík — og þannig mætti halda áfram. Ég dró þessa mynd í upphafí til þess að minna á, að í hugum okkar er Ísaijörður ekki aðeins kaupstaður, heldur miklu meira en það. ísafjörður hefir í meira en hundrað ár verið menningarstaður — kirkjustaður — og í kringum þennan „Stað“ mynd- ast kaupstaður. Og því er það, að kirkjan á allan rétt til „Staðarins“. Sá, sem þetta skrifar, vildi í fyrstu, eins og margir ísfírðingar heima og heiman, stuðla að endurbyggingu kirkjunnar í upprunalegri mynd. En auðvitað vissum við, að starfsaðstaða prests og safnaðar var nær engin í gömlu kirkjunni sökum þrengsla. Aðrir vilja byggja nýja kirkju, vísast í nýjum stíl annars staðar á Isafírði, og eigum við mjög erfítt með að sætta okkur við brottrekstur kirkj- unnar af sínum eigin „Stað“. Nýlega birtist svo í Vesturlandi Finnbjörn Hjartarson „Nýlega birtist svo í Vesturlandi hugmynd Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar. Þar kemur hann fram með sáttatillögur, sem ég vil eindregið hvetja ísfirð- inga alla til að kynna sér en þær lúta að stækkun og endurbygg- ingu kirkjunnar og eru að mínu mati mjög góð- ar.“ hugmynd Þórs Magnússonar, þjóð- minjavarðar. Þar kemur hann fram með sáttatillögur, sem ég vil eindreg- ið hvetja ísfirðinga alla til að kynna sér, en þær lúta að stækkun og end- urbyggingu kirkjunnar og eru að mínu mati mjög góðar. Og eitt verð- um við að muna: Kirkjan á þennan „Stað“, og ef hún þarf meira pláss, ísafjarðarkirkja þá á hún það allt að Sólgötu. Það er ekki kirkjunni að kenna, þó þrengt hafí verið að henni með skúrbygging- um (prentsmiðju) og íbúðarhúsi. Það mætti t.d. athuga það að loka Sólgö- tunni, gera hana að botnlanga, þannig að aðeins yrði ekið norðan- megin í hana. Nú er hafín undirskriftasöfnun máli þessu til stuðnings. Undirskrif- talistar Jpessir verða sendir sóknar- nefnd Isafjarðarkirkju, með þeim óskum að hún fái að vera á sínum „Stað“, vonandi endurbyggð með þeirri stækkun sem hægt er. Undirskriftalistar liggja frammi á eftirtöldum stöðum: Sölutuminn Lækur, Lækjargötu 2, Rvk., Verslun- in Herjólfur, Skipholti 70, Rvk., Verzlunin Garðarsbúð, Grenimel 12, Rvk., Samkaup, Njarðvík, Hús- gagnaverslunin Viðja, Smiðjuvegi 12, Kóp., Eden, Hveragerði, Penninn, Kringlunni, Rvk., Sturla Halldórsson, ísafirði. Varað við nýjum stíl Að endingu langar mig til að vara við nýjum stíl í kirkjubyggingum á íslandi, þó að það ætti ekki að þurfa, því nóg eru vítin til að varast í þeim Morgunblaðið/Hannes Pálsson efnum og mörg þeirra t.d. í Reykjavík, þar sem nýjar teikningar af kirkjum sköpuðu ótal vandamál vegna þess að arkitektar virðast ekki gera sér grein fyrir hvaða athafnir fara fram í kirkjum, heldur reisa sjálfum sér vafasaman minnisvarða. Það er t.d. ömurlegt að horfa upp á kirkjuskip, þar sem söfnuðurinn er allur á ská’ og skjön til þess að geta fylgst með í messu, eða þar sem kirkjukórinn kúldrast hokinn undir súð kirkjunnar vegna þess að ekki var gert ráð fyrir neinum söngkór. En þannig er það í einni af nýrri kirkjum á Snæfellsnesi. — Og þannig mætti lengi telja. Við skulum ekki gleyma þvi, að kirkjubyggingar voru í föstum skorð- um um aldir vegna þess að þær voru búnar að laga sig að þeirri athöfn, sem þar fór fram, guðsþjónustunni. í þeirri mynd er ein fallegasta kirkja landsins, Dómkirkjan, og eftirmynd hennar, ísafjarðarkirkja. Ég skora á sóknamefnd ísafíarðar að taka mið af því, og á alla Isfirð- inga að varðveita helgan kirkjustað. Höfundur er prentari.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.