Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 BJÖRGUNARAFREKSINS FYRIR 40 ÁRUM MINNST: Táknræn athöfn á brún bjargsins áður en sigið er niður á Flaugamef. Tólf kertaljós eru tendruð til minningar um björgunarmenn og þá skipveija sem komust lífs af, en þijár blómaskreytingar eru til minningar um þá sem fórust með Dhoon. Aðventukransinn er tákn björgunarstólsins sem skip- brotsmenn voru feijaðir í land með. Lengst tíl hægri á myndinni eru þeir Bjami Sigurbjörnsson frá Hænuvík, og Ásgeir Erlendsson frá Látrum (með staf), en þeir tveir tóku þátt í björguninni á sínum tima. Tólf ljós í Látra- bjargi og jólakort frá Fleetwood Það er skýjaður og drungalegur desembermorgunn þar sem við Morgunbiaðsmenn stöndum fyrir ofan Flaugarnef í Látrabjargi ásamt nokkrum félögum úr björgunarsveitum frá Patreksfirði. Hitinn er liklega rétt um frostmark, það er austankaldi, og ekki mjög slæmt í sjóinn. Bjami Sigurbjörasson úr Hænuvík hefur á orði að veðrið sé ekki ósvipað þvi sem það var dagana örlagariku fyrir 40 árum og einni viku betur þegar skipbrotsmönnum úr enska togaranum Dhoon var bjargað í land og upp bjargið á þessum stað. Bjami er nú einn eftirlifandi af þeim fjórum mönnum sem sigu niður i fjöra eftir skipbrotsmönnum, og hann er nú hingað kominn til að minnast þessa frægasta björgunarafreks i íslandssögunni. Með honum er Asgeir Erlendsson, vitavörður á Látrum, sem einnig tók þátt í björguninni, en aðrir í hópnum era félagar úr björgunar- sveitum sem ætla að kveikja á kertum og siga með þau niður á Flaugaraefið til að heiðra forvera sína í björgunarstörfum og halda minningunni um afrekið lifandi. Það eru einungis 14 manns sem og 12 björgunarmenn sem sigu standa að athöfninni, sem er ein- niðuráFlaugamefímiðjubjarginu föld og látlaus í alla staði. Athöfnin til að ná þeim upp. Þá eru þijár er táknræn: það er kveikt á 12 blómaskreytingar til minningar um kertum, en það voru 12 skipbrots- þá þijá skipveija sem fórust, og menn sem bjargað var af Dhoon, efst á skreytingunni er aðventu- krans sem minnir á árstímann, en á einnig að vera tákn fyrir björgun- arstólinn sem skipveijar voru feijaðir í land með - hringur sem hangir í fjórum böndum. Kransinn er gefinn af Blómum og Ávöxtum, en Rafbúð Jónasar á Patreksfirði hefur útbúið blómaskreytingamar. Það var ekki síst sigkunnáttu björgunarmanna að þakka hve björgun Dhoon-veija tókst giftu- samlega, og félagar úr björgunar- sveitinni Blakki á Patreksfirði æfa sig í að síga hér á hveiju vori til að halda þeirri kunnáttu við, ef einhvemtíma þyrfti á að halda. Eftir að kveikt hefur verið á kert- unum á bjargbrúninni síga tveir menn með þau niður á Flaugar- nef, hálft í hvoru vegna þess að Flaugamef er sögulegur staður í björgunarsögunni - þar gistu sjö Þó að afrekinu við Látrabjarg hafi verið gerð góð skil í bókum og blaðagreinum og svo auðvitað hinni frægu kvikmynd Óskars Gíslasonar, þá áttar maður sig ef til viU ekki að fuliu á því hve erfiðar aðstæðumar hafa verið nema með því að heimsækja bjargið í skammdeginu. Þessi mynd er tekin ofan af Flaugarnef- inu og sýnir strandstaðinn sem var 70-80 metra fyrir utan tangann fremst á myndinni, en hann er um 400 metra fyrir inn- an Flaugamefið. skipbrotsmenn yfír nótt - en einnig til að sýna að sigkunnáttunni er haldið við. Það hefur ekki farist skip undir Látrabjargi síðan Dhoon strandaði, og vonandi þurfa björg- unarmenn aldrei að síga í neyð við aðstæður eins og voru við björgun- ina þá, en björgunarsveitimar á Patreksfírði og í Rauðasands- hreppi eru greinilega við öllu búnar. Þó að athöfnin sé látlaus og ekki fjölmenn, þá sýnir hún að afrekið fyrir 40 árum er geymt en ekki gleymt. Og það er víðar en á Patreksfírði og í Rauðasands- hreppi sem björgunin við Látra- þjarg lifír í minningunni. Einn skipveija af Dhoon, F. Patterson að nafni, hefur sent jólakveðju á hveiju ári eftir slysið, og nú fyrir stuttu barst Slysavamarfélagi Ís- lands jólakveðja frá Albert Wall- bank í Fleetwood og konu hans, þar sem þau hjónin þakka björgun- armönnum innilega fyrir að bjarga sér og skipsfélögum af Dhoon. Þau hjónin giftu sig rétt fyrir ferðina örlagaríku og það er því ekki und- arlegt að þau láti hugann reika á brúðkaupsafmælinu til Ásgeirs vitavarðar, Bjama í Hænuvík, og annarra þeirra sem lögðu sig í hættu í tvo drungalega desember- daga við Látrabjarg fyrir fjörutíu ámm. Texti: Hugi Ólafsson Myndir: Bjarni Eiríksson og Þorkell Þorkelsson VATNIÐ Guðmundur Daníelsson Sviprík og frumleg skáldsaga eftir einn af snjöllustu rithöf- undum okkar nú á dögum. Svið sögunnar er Vatnið mikla í Þjóðvallahreppi, vesturströnd þess með ógnarlegri gufuorku sinni og væntanlegum aflstöðvabyggingum, eyjan úti í Vatn- inu - Bjaiteyja, höfuðstaðurinn, á Grundum - lítið þoip á suðurströnd landsins. Tími sögunnar er áraskeiðið frá 1930 fram yfir 1950, en rætumar hggja aftur til ársins 1914. Þá varð getnaður úti í Bjarteyju, þá varð dauðaslys á Vatninu. Eftir- köst þessara atburða verða uppistaða sögunnar. Bókaúigáfa /V1ENNING4RSJÓDS SKÁLHOLTSSTÍG 7» REYKJAVlK • SlMI 621822
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.