Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 22

Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 í tilefni af ályktun 133 lækna um bjórmálið eftirJóhann Tómasson Nýlega birtist í Morgunblaðinu á bezta stað við hlið leiðara ályktun um bjórmálið frá 133 íslenzkum læknum. Ályktuninni, sem er 28 dálksentimetrar, fylgir 36 dálk- sentimetra listi með nöfnum umræddra lækna og heimilisfangi. Það er satt að segja talsverður fengur að þessum nafnalista. Nokkrir þessara lækna hafa aug- ljóslega tiltölulega nýlega skipt um heimilisfang. Heimilisfang enn ann- arra hefur hingað til ekki verið opinbert. Enn meiri fengur hefði verið að þessum nafnalista ef fýlgt hefðu símanúmer læknanna, þar sem sumir þeirra hafa hingað til kosið að leyna bæði því og heimilis- fangi. Þakklátir sjúklingar og bjórunnendur eiga nú hægar með að votta þeim þakklæti sitt. Um ályktunina sjálfa er það að segja, að hún ber öll merki þess að vera flausturslega samin. Það er látið að því liggja, að hún styðj- ist við athuganir á vísindalegum rannsóknum. Hugboð mitt er hins vegar (og innra með mér fullvissa), að höfundur (höfundar) hafí í raun aðeins haft eina heimild tiltæka, þegar umræddri ályktun var flaustrað saman. Hér er átt við Læknablaðið, sem vitnað er til, eða nánar til tekið 8. tbl. 15. okt. 1987. Þar birtist annars vegar faralds- fræðileg rannsókn á skorpulifur á íslandi eftir læknana Hafstein Skúlason, Finnboga Jakobsson og Bjama Þjóðleifsson og hins vegar leiðari um skorpulifur á íslandi eft- ir Tómas Áma Jónasson. Það er athyglisvert, að enginn þessara lækna er í hópi 133-menninganna, og erfítt á ég með að ímynda mér, að það sé þeim sérstakt gleðiefni, hvemig umræddar greinar þeirra em misnotaðar til að styðja fram- komið bjórfrumvarp á Alþingi, fluttu af þremur nýgræðingum þar og einum reynslumeiri. Ég ætla, að títtnefnd ályktun sé samin af einum, e.t.v. tveimur eða þremur læknum, þrátt fyrir að hún birtist í nafni 133. Af þessum 133 læknum em 4 heimilislæknar og 6 geðlæknar, en allir hinir em sér- fræðingar á sjúkrahúsum og læknastofum í hinum ýmsu sér- greinum læknisfræðinnar. Það er Jóhann Tómasson löng lenzka og út af fyrir sig ekki alveg vansalaust, og þeir einir þykja gjaldgengir í ýmsum umræðum (læknisfræði, félagsfræði, hagfræði o.s.frv.), sem skreytt geta sig við- eigandi orðum og titlum. Hér bregður hins vegar svo við, að 133 læknar gefa sig út fyrir að vera 'i; RIMA AUSTURSTRÆTJ4 RÍMA LAUGAVEGI 89’ S.WAAGE KRINGLAN-S.W v AXEL Ó LAUGAVEGI FATAVALKEj Pl 22453 $ ÍE DOMÚS MEDICA - AXEL IjÖPPSKÓRINN VELTUSUN K;- SKÓBÚÐ SELFOSS - É USSONIVE! ' W ■ • K • M “ r li . M iíT’ sgl'jiÉllp ■ Í ■ :S gp- J|i r m Jm:; % p&r " H ■rray,' • I œBSSBzb' . ■' J féSl' 'I Ev ■ annað og meira en þeir em í raun og vem. Allir em þeir vafalítið hin- ir fæmstu fagmenn á sínu sviði, en þungavigtarmenn em þeir ekki í áfengismálum — ekki einn einasti þeirra. Hugsanlega yrðu 3—4 gjald- gengir í fluguvigt. Umrædd ályktun er hrákasmíð og það vekur furðu mína, að sóma- kærir kollegar skuli leggja starfs- heiti sitt við slíka ritsmíð jafnhugsunarlaust og hér virðist hafa verið gert. Annað mál er, hvort þeir styðji bjórfrumvarpið af öðmm ástæðum. Höfundur er heilsugæzlulæknir á Reykjolundi. Kirkjugarðar Reykjavíkur: Aðstoð við kirkju- garðsgesti STARFSMENN kirkjugarðanna aðstoða, eins og undanfarin ár, fólk sem hugar að leiðum ástvina sinna. Á Þorláksmessu og að- fangadag verða talstöðvabflar dreifðir um Fossvogsgarð og leið- beina fólki i samvinnu við skrif- stofu Kirkjugarða Reykjavíkur i Fossvogi, sem verður opin til klukkan 16 á Þorláksmessu og 15 á aðfangadag. í Gufunesgarði og Fossvogsgarði verða starfsmenn einnig til aðstoðar og sérstakar strætisvagnaferðir verða að Gufunesgarði. Á aðfanga- dag verða famar tvær ferðir, frá Lækjartorgi klukkan 10.30 og 14, frá Hlemmi klukkan 10.35 og 14.05 og frá Grensásstöð klukkan 10.45 og 14.15. Vagnamir btða meðan far- þegar fara í garðinn. Það auðveldar mjög alla aðstoð ef garðsgestir vita viðkomandi leiðis- númer. Þeim sem ekki vita það er bent á að hafa samband sem fyrst við skrifstofu Kirkjugarða Reykjavíkur í síma 18166 og hafa númerið á takteinum þegar í garðinn er komið. Tekinn verður upp einstefnuakstur að Fossvogskirkjugarði og lögregla leiðbeinir vegfarendum og stjómar umferð, segir í fréttatilkynningu frá Kirkjugörðum Reykjavíkur. Vandaðir skápar með hillu fyrir myndband og myndbandslykil. Skúffa fyrir spólur. Stgr.verð kr. 11.000,- VMHÚSGÖGN Armúla 8, ilmi 82276 Sjónvarpsskápar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.