Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 23

Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 . 23 Bakka og Stekkjahverfi verði það blómlegasta í Reykjavík eftirHelga Steingrímsson Á aðalfundi sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi nýlega vald- ist til starfa fðlk sem er staðráðið í að framgangur flokksins verði hvað mestur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur falið okkur að gæta hagsmuna sinna í Breiðholti I og þar með umboð til að vinna hverfinu og íbúum þess eins mikið gagn og við mögulega getum. Undanfarin ár höfum við gert það, þó að stundum höfum við átt erfítt uppdráttar vegna stjómmála- skoðana hinna ýmsu aðila, en núorðið horfír allt til betri vegar enda sér fólk að við viljum vel og vinnum af kappi. Við sjálfstæðismenn höfum tekið upp þá aðferð til að koma sjónarmið- um okkar á framfæri, að fara til fólksins. Elskuleg hjón í Breiðholti I höfðu heimboð fyrir sína vini og kunningja og þeim datt í hug að fá núverandi iðnaðarráðherra, Friðrik Sophusson til að tala við sig og sína gesti ( klukkutíma um þau mál er efst voru á baugi á þeim tíma. Þetta var einkar fjörlegt og voru allir við- staddir sammála um að af þessu mætti meira gera, eiginlega bráð- nauðsynlegt, því hvergi er komið að tómum kofanum þegar Friðrik á í hlut. Mig langar aðeins til að fara örf- áum orðum um hverfíð sjálft. Breið- holt I skiptist í Stekki, en þar eru einbýli, og Bakka, en þeir skiptast í raðhúsahverfí frá Arnarbakka að Stekkjarbakka og svo fjölbýlishús innan Amarbakka. Það þarf ekki annað en að opna símaskrána aftast og sjá kort af Breiðholti I og sjá hversu vel götun- um er raðað í stafrófsröð og einstak- lega auðvelt að rata þar um. Einnig er hverfíð mjög vel skipu- lagt og verslun og þjónusta staðsett á þrem aðskildum og áberandi stöð- um. Ber þar fyrst að telja Mjóddina sem ört er að byggjast upp og segja má að frumkvöðlar þar séu Lands- bankinn og verslunarmiðstöð sú er Víðisbræður reistu af alkunnum dugnaði og snilld. Telja má fullvíst að Mjóddin á eftir að verða með sterkustu athafnapunktum Reykja- víkur og því sá vettvangur er áhersla skal lögð á fyrirmyndar fyrirtæki í verslun og þjónustu enda bendir nú allt til að svo verði. Varla er langt í að þar verði fáanlegt flest það er fólk í Breiðholti I þarf í dag að sækja niður í bæ. Við Amarbakka er Breið- holtskjör sem hefur um árabil verið rekið af þekktum og ósérhlífnum feðgum og ýmsar verzlanir aðrar og við Leirubakka em einnig verslanir er þjóna suðurhluta hverfisins en þessir tveir síðasttöldu verslunar- staðir em kaupmennimir OKKAR er leggja uppúr hinni persónulegu þjónustu við hvem einstakan og er vel að starfsemi þeirra er með ágæt- um. Bakka- og Stekkjahverfí er þekkt fyrir hversu mjög íbúar þess hafa lagt sig í líma við að lagfæra híbýli sín og umhverfi sér, gestum og gang- andi til ánægju og altítt er að fólk hafí orðið að bijóta hús sín niður að meira eða minna leyti vegna steypu- skemmda og byggja þau svo upp aftur og má með sanni segja að nú séu þau betri en ný. Það er mjög gott að vera með böm í Bakka- og Stekkjahverfí því innan hverfísins er engin umferð vélknúinna ökutækja leyfð og fólk getur verið ömggt um ungana sína. Nú stendur til hjá borgaryfirvöld- um að setja við Amarbakka glæsileg- an skrúðgarð í miðju hverfínu, eða þar sem malareyðimörk sú er sem áður þjónaði sem knattspymuvöllur ÍR-inga, og mun þessi framkvæmd kosta geysimikið fé og engin spum- ing hvar kórónan verður á þessu myndarlega hverfí. Uppdráttur og teikningar af fyrir- huguðum skrúðgarði verða til sýnis í Breiðholtskjöri og Nýjagarði og er æskilegt að heimamenn kynni sér málið vel og geri sínar athugasemdir ef þeir hafa einhveijar. Þetta mál Yfirlitsmynd af Breiðholti I. „Eitt af þeim málum er snerta okkur öll mikið eru málefni kirkjunnar og skyldi margur ætla að hún ætti að hafa for- gang hvað snertir að afla peninga fyrir frá- gangi á henni og nánasta umhverfi. Það VERÐUR að finna henni fjáröflunarleiðir og þvi sjálfsagt að öll starfandi félög í hverf- inu taki höndum saman um það verðuga verk- efni.“ er mál íbúanna ALLRA. í upphafí var gert ráð fyrir lög- reglustöð í Mjóddinni en einhverra hluta vegna er hún enn ekki komin og væri fróðlegt að fá að vita hvað teíur. Samkvæmt skipulagi er skipti- stöð fyrir SVR væntanleg á þennan stað eða með öðmm orðum annar Hlemmur svo að sannarlega er ekki vanþörf á aukinni löggæslu. Skólinn okkar við Amarbakka er táknrænt dæmi um fjársvelti því oft er skorið við nögl er síst skyldi og einkennilegt að hið margumrædda RÍKI skuli ekki fylgja fordæmi þegna sinna með því að hlúa betur að skatt- borgurum framtíðarinnar. íþróttaaðstaða ýmiskonar hefúr oft borið á góma og er hinn marg- frægi sundlaugarpyttur við Breið- holtsskóla sýnishom af framtaks- seminni og þurfa íbúar í Breiðholti I ennþá að sækja aðstöðu til íþrótta- iðkana í önnur nálæg hverfi og er það miður og bendir fátt til bóta. Þetta er stærra mál og meira áríð- andi en mörg önnur ef litið er til framtíðar. Umgengni um hverfíð hefur þvl miður ekki verið til fyrirmyndar enda fara um hverfið fleiri en íbúar þess. Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar hefur ættð verið boðin og búin að aðstoða okkur við hin ýmsu tækifæri og nemendur í Breiðholtsskóla hafa af eigin frumkvæði tekið til í kringum skólann og nánasta umhverfí einu sinni í viku. Eitt af þeim málum er snerta okk- ur öll mikið em málefni kirkjunnar og skyldi margur ætla að hún ætti að hafa forgang hvað snertir að afla peninga fyrir frágangi á henni og nánasta umhverfi. Það VERÐUR að fínna henni fjáröflunarleiðir og því sjálfsagt að öll starfandi félög í hverfínu taki höndum saman um það verðuga verkefni. Einnig gæti þar orðið vakning fyrir heill Breiðholts I að félögin fyndu samstarfsgmndvöll á mun fleiri sviðum. Það hefur verið rætt að fulltrúar í borgarstjóm og þá jafnvel alþingis- mennimir okkar komi í hverfíð til skrafs og ráðagerða við íbúana og þar gætu heimamenn komið með spumingar og tillögur varðandi Breiðholt I eða annað sem þeim ligg- ur á hjarta í það skiptið. Því miður vantar okkur ennþá félagsaðstöðu til þeirra hluta og annarra en vinnum að þvi hörðum höndum að eignast hana sem allra fyrst. Við sjálfstæðisfólk í Breiðholti I setjum metnað okkar i það að Bakka- og Stekkjahverfi verði á næstu ámm það líflegasta og blómlegasta í Reykjavík, íbúum þess og öðmm til ágætis þvi að við vitum að þegar á reynir er samtakamáttur íbúanna með eindæmum góður en það er ein- mitt hann sem lyftir Grettistökum þegar ráðist er í stórvirki. Það er því með mikilli bjartsýni er við litum á starfsárið framundan og vinnum með fullum hug og ánægju að þvi er Sjálfstæðisflokkur- inn fól okkur að gera. Höfundur er formaður Sjálfstæð- isfélagsins í Bakka- ogStekkja- hverfi. Hægindastóll með ruggu og snúning. Staðgreiðsluverð kr. 12.500.- VALHUSGOGN ARMÚLA 8. SIMI 82275. $ flö PIOIMEER ÚTVÖRP Pórbergur Pórðarson: Mítt rómantíska æðí Þetta eru dagbe2kur, bréf og önnur óbirt rit Þórbergs frá árunum 1918-1929, eins konar framhald af Ljóra sálar minnar sem út kom í fyrra. Hér er kímní og strákskapur Þórbergs upp á sitt besta. Hann var einstakur bréfritari og í bókinni er að finna mörg skemmtileg- sendibréf sem hann skrifaði vinum sínum á þriðja áratugnum. flest til Vilmundar Jónssonar landleeknis. Þá eru bírt dagbókarbrot úr hinum frægu orðasöfnunar- leiðöngrum Þórbergs og frásögn af fýrstu utanlandsferð hans þar sem hann dvaldi fyrst í Englandi en sótti svo alþjóðaþing guðspekinga í París. Hér eru líka birtir fyrirlestrar um guðspeki, jafnaðarstefnu, esperanto og önnur hugðarefni Þórbergs. Mesta forvítni munu þó eflaust vekja bréf sem varpa Ijósi á tilurð Bréfs til Láru og þá ekki síður á hin sterku viðbrögð sem bókin vakti. Helgi M. Sigurðsson tók safnið saman. það er 213 bls., prýtt 50 gömlum Ijósmynd- um sem margar hverjar hafa ekki birst áður. Verð: 2.490,- Mál og menning Eð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.