Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
31
Stefán íslandi - „Áfram veginn...“
Heildarútgáfa
með söng
Stefáns Islandi
KOMIN er út heildarútgáfa með
söng Stefáns íslandi. Hér er um
að ræða 4 hljómplötur, alls 62 lög
og aríur sem taka yfir 3 klst. í
flutningi.
Þetta er ítarlegasta útgáfa sem
nokkum tíma hefur verið gerð með
íslenskum söngvara, enda eru hér
samankomnar nær allar upptökur
sem til eru með söng Stefáns.
Upptökumar spanna rúmlega 20
ára tímabil eða frá 1936 og 1958.
A plötunum er fjölbreytt tónlist,
íslensk og erlend, einkum ítölsk,
ásamt óperutónlist. Þar er að finna
margar perlur tónlistarinnar í ein-
stökum flutningi Stefáns.
Stefán íslandi óperusöngvari.
Reynt hefur verið að gera útgáfu
þessa sem veglegasta og vel hefur
verið vandað til allra verkþátta.
Mikil vinna fór í að safna saman
öllum upptökum sem þekktar em
með Stefáni og tók nokkra mánuði
að ná þeim öllum saman. Margar
upptökumar voru upphaflega gefn-
ar út á 78 snúninga plötum en 25
upptökur hafa ekki komið út áður.
Þeir Trausti Jónsson, veðurfræð-
ingur, og Þorsteinn Hannesson,
söngvari og fyrmrn tónlistarstjóri
útvarpsins, hafa valið upptökumar
á plötunni og eiga miklar þakkir
skildar fyrir gott og- vandasamt
starf. Þórir Steingrímsson tækni-
maður sá um alla tæknivinnu og
gerði það af mikilli kostgæfni.
Útgefandi er Taktur hf. í sam-
vinnu við Ríkisútvarpið.
(F réttatilkynning.)
Fyrsta mynd-
bandið með
klassískri
tónlist
FYRSTA íslenska tónlistarmynd-
bandið með klassískri tónlist hefur
verið gefið út, og inniheldur það
þrjú lög af nýútkominni hljóm-
plötu Símonar H. ívarssonar,
gitarleikara, og Dr. Orthulf
Prunner, orgelleikara.
Lögin eru „Vaknið, Síons verðir
kalla" eftir J.S. Bach, og tveir þættir
út konsert í G-dúr eftir A. Vivaldi.
Upptökur voru gerðar í Dómkirkjunni
og er myndbandið framleitt af Kvik-
myndagerðinni Sýn hf, að því er segir
Dr. Orthulf Prunner, orgelleikari, og Símon H. ívarsson, gítarleikari
í fréttatilkynningu. Sparisjóður félag íslands hf og Tímaritið Hár og
Reykjavíkur og nágrennis, Eimskipa- fegurð studdu gerð myndbandsins.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Ritnefnd bókarinnar talið frá vinstri: Kári Arnórsson, Steinþór Gests-
son en hann skráði söguna og Kristján Guðmundsson.
Saga Landssambands hesta-
mannafélaga komin út:
„I morgun ljómann________“
„í morgun ljómann ...“, saga
Landssambands hestamannafé-
laga, er komin út. Útgáfudagur
bókarinnar var átjándi desember
sem er stofndagur samtakanna.
Samtökin eru nú þijátíu og átta
ára gömul en „í morgun ljóm-
ann___“ spannar yfir fyrstu
þijátíu og fimm árin. Bókin er
skráð af Steinþóri Gestssyni frá
Hæli en ásamt honum voru í rit-
nefnd þeir Kristján Guðmunds-
son og Kári Arnórsson.
Megintilgangur með skráningu
og útgáfu sögu LH var að forða frá
glatkistunni aðdragandanum að
þessum merku tímamótum sem
stofnun LH var í sögu íslenska
hestsins áður en þeir menn féllu frá
sem voru með frá upphafi. Steinþór
Gestsson var einn af stofnendum
LH auk þess sem hann var formað-
ur LH í tólf ár og þekkir hann sögu
sambandsins best af núlifandi
mönnum.
„í morgun ljómann ...“ hefur
að geyma frásögn um þróun hesta-
mennskunnar frá 1949 og segir frá
baráttu frumheijanna fyrir endur-
reisn íslenska reiðhestsins, eins
dýrmætasta gimsteins þjóðarinnar.
Hestamenn standa í mikilli þakkar-
skuld við þessa hugsjónamenn,"
eins og segir í fréttatilkynningu frá
útgefanda sem er LH. Öll vinnsla
bókarinnar fór fram í Prentsmiðj-
unni Odda. Fjöldi mynda er í bókinni
sem tengjast sögu LH og þróun
hestamennskunnar en teikningar
eru eftir Pétur Behrens tamninga-
mann og teiknara.
FÁÐU ÞÉR
BIRGÐIR
í FRYSHNN
3
STÆRÐIR
7
BRAGÐ-
TEGUNDIR