Morgunblaðið - 22.12.1987, Síða 33

Morgunblaðið - 22.12.1987, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 33 Afganistan: Hersveitir ráð- ast á umsáturs- menn Khost Islamabad, Reuter. UM 900 manna stjórnarhersveitir hafa brotist gegnum mikilvœgt fjallaskarð í árás sem ætlað var að binda enda á umsátur upp- reisnarmanna við borgina Khost í austurhluta Afganistans, að sögn afganskra útlaga í gær. Sveitirnar eru enn um 50 kíló- metrum frá Khost, og að sögn Najibullah forseta vofir hungurs- neyð yfir íbúum borgarinnar, sem eru um 40 þúsund, vegna umsát- urs skæruliðanna. Þúsundir stjómarhermanna hafa undanfamar vikur reynt að bijótast niður aðalveginn frá Gardez, höfuð- stað Paktia. Síðasta árásin kemur í kjölfarið af viðvömn Najibullah for- seta, fyrir þrem vikum, um að umsátrið yrði stöðvað með hervaldi. Árásarsveitimar komu frá fjórum herstöðvum til að veija fjallaskarðið sem er 10 til 12 kílómetrum frá Gardez, að sögn afganskrar upplýs- ingamiðstöðvar sem hefur bækistöðv- ar í Pakistan. Miðstöðin hefur eftir yfirmanni skæruliðanna að ti'u upp- reisnarmenn hafi látist en hún hafði engar upplýsingar um mannfall her- sveita stjómarinnar. Ennþá væri barist af mikilli hörku og mikil stór- skotaárás væri gerð á skæruliðana. Khost er nálægt pakistönsku landamærunum og mikilvægum birgðaleiðum skæmliða. Skæmlið- amir hafa haldið vegum lokuðum síðan árið 1979. Þar til fyrir þremur mánuðum hafði borgin og virkið fengið birgðir loftleiðis og frá Pak- istönum sem fluttu vömr yfir landa- mærin, en nú hafa skæruliðamir komið í veg fyrir að matarbirgðir bæmst til þorpsins. Skæmliðamir em vopnaðir bandarískum Stinger-flug- skeytum og hafa stöðvað allar lofts- amgöngur til þorpsins. Lundúnum, Reuter. MARGARET Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, og Míkhaíl Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, urðu hlut- skörpust í vinsældakönnun sem Gallup-fyrirtækið stóð að í Bret- landi frá 30. nóvember til 8. desember. 966 manns voru spurðir hvaða karlmanni og kvenmanni þeir dáðust mest að. Móðir Theresa lenti í öðm sæti í vinsældakönnuninni, Elizabeth Breta- drottning í þriðja og Anna dóttir hennar í fjórða. Irski söngvarinn Bob Reuter Sovésku geimfararnir Anatólíj Levtsjenko, Vladímir Títov og Musakhi Manarov skömmu fyrir geimsko- tið í gær. Títov og Manarov munu taka við störfum tveggja manna áhafnar sovésku geimstöðvarinnar Mir sem er á braut um jörðu. Sovétríkin: Sojuz-TM4 leggur upp í sögulega geimferð f fyrsta skipti verður að fullu skipt um áhöfn geimstöðvar Míkhaíl Gorbatsjov ræðir við Margaret Thatcher þegar hann kom við i Bretlandi á ferð sinni til Bandaríkjanna fyrir skömmu. Thateher og Gorbatsjov hlut- skörpust í vinsældaköiuiun Geldof, sem stóð að Band Aid-hljóm- leikunum, lenti í öðm sæti á eftir Gorbatsjov. Terry Waite, sem hvarf í Líbanon fyrir ellefu mánuðum, varð í þriðja sæti, Karl Bretaprins í fjórða og Jóhannes Páll páfi í fimmta. Ennfremur var valið um vinsælustu íþróttamennina og varð ballskák- meistarinn Steve Davis í fyrsta sæti og kappakstursmaðurinn Nigel Mans- ell í öðm. Spjótkastarinn Fatima Whitbread var síðan valin dáðasta íþróttakonan. Moskvu, Reuter, AP. ÞRÍR sovéskir geimfarar um borð í Sojuz TM-4 geimflaug lögðu í gær upp í ferð til Mir- geimstöðvarinnar sem er á braut um jörðu. Gert er ráð fyrir að á morgun muni þeir lenda flaug sinni við hlið geimstöðvarinnar. Þar munu þeir hitta fyrir Júrí Romanenko sem nýverið setti nýtt geimdvalarmet og félaga hans Alexander Alexandrov. Ro- manenko og Alexandrov munu halda til jarðar viku síðar ásamt Levtsjenko, flugmanni Sojuz- geimflaugarinnar. Verður þetta í fyrsta skipti sem slík áhafnar- skipti fara fram úti í geimnum. Andartaki eftir geimskotið sem átti sér stað klukkan átján mínútur yfir ellefu að íslenskum tíma mátti í beinni útsendingu sjá geimfarana þijá, Vladimír Títov, leiðangurs- stjóra, Musakhi Manarov og Anatólíj Levtsjenko senda stjóm- stöðinni í Baikonur-geimstöðinni í Kazakhstan boð um að allt hefði gengið vel. Er geimflaugin skaust upp í himinhvolfið sáu sjónvarpsá- horfendur hvar rússnesk „ma- trúska“ (trébrúða) sveif um í þyngdarleysi inní geimflauginni. Mir-geimstöðin var tekin í notk- un í febrúar á síðasta ári. Henni er ætlað að vera fyrsta geimstöð sögunnar sem ætíð er mönnuð. Romanenko sem dvalist hefur 318 daga úti í geimnum hefur sagt að hann sé kominn með heimþrá. Gert er ráð fyrir að hann og félagi hans verði komnir heim til jarðar áður en nýja árið gengur í garð. í dagblaðinu Izvestiu var greint frá því í gær að í september árið 1983 hefðu slík áhafanarskipti einnig verið reynd en án árangurs. Títov sem nú er leiðangursstjóri var þá annar tveggja geimfara sem björguðust er kviknaði í geimflaug. í flugtaki. Fyrr það sama ár hafði Títov bjargast giftusamlega er hann átti að lenda geimflaug_ sinni við geimstöðina Saljút-7. Á síðustu stundu sá hann fram á árekstur við geimstöðina og tókst að sveigja flaug sinni á braut og aftur til jarð- ar. Næsta stóra skref í geimferðaá- ætlun Sovétmanna verður stigíð á næsta ári er geimfeijan Energia kemst í gagnið. Suður Kórea: Grunaða konan rýfur þögnina Reuter Samkomulagi um eftírlit fagnað Geoffrey Howe utanríkisráðherra Bretlands óskar Leoníd Zamjatín sendiherra Sovétmanna til hamingju eftir að þeir höfðu skrifað undir formlegan samning í framhaldi af afvopnunarsamkomu- lagi risaveldanna. Samningurinn kveður á um að Sovétmenn megi fylgjast með þvi að bandariskar stýriflaugar verði teknar niður af skotpöllum í Molesworth og Greenham í Englandi. Seoul, Reuter. SUÐUR-KÓRESKA samgöngu- ráðuneytið greindi frá því á laugardag að flugvélin sem týnd- ist við Burma hefði farist í sprengingu á lofti og kóreska ríkisútvarpið sagði frá því að konan sem grunuð er um að hafa falið sprengju í flugvélinni hefði rofið þögn sína. Talsmaður samgönguráðuneytis- ins sagði á laugardag að yfirvöld væru sannfærð um að flugvélin hefði verið eyðilögð á flugi eftir að flakið hefði verið rannsakað. Hann sagði ennfremur að stjómin væri þess full- viss að enginn hefði komist lífs af úr flugvélinni. Sama dag greindi kóreska ríkisút- varpið frá því að asíska konan, sem grunuð er um að hafa ásamt eldri manni falið sprengju í vélinni, hefði náð sér eftir sjálfsmorðstilraunina og byijað að tala við rannsóknar- mennina. Útvarpið hafði eftir rannsóknarmönnunum að konan hefði sagst vera annaðhvort japönsk eða kínversk en ekki kóresk. Suður- kóresk dagblöð hafa lýst henni sem „lifandi flugrita", sem gæti varpað ljósi á þá kenningu yfirvalda að Bo- eing-flugvélin hefði verið eyðilögð í sprengjutilræði hryðjuverkamanna, og að sprengjan hefði þá líklega ver- ið falin af norður-kóreskum útsend- Ólympíuleikarnir: Ungverjar og Austur- Þjóðverjar taka þátt Búdapest, Reuter. UNGVERJAR tilkynntu í gær að þeir ætli að taka þátt í Ólympiu- leikunum í Seoul næsta sumar og skömmu síðar sigldi Ausyur- Þýskaland í kjölfarið. M77-fréttastofan ungverska hefur greint frá því að ungverska ólympíu- nefndin hafi samþykkt með öllum greiddum atkvæðum að taka þátt í Olympíuleikunum og í liði þeirra verði 210 íþróttamenn. Klukku- stundu eftir að þessi frétt barst frá Ungveijalandi kom samskonar frétt frá ADN, hinni opinberu fréttastofu Austur-Þýskalands. Krafa Norður-Kóreumanna um að hluti Ólympíuleikanna eigi að fara fram í Norður-Kóreu hafa leitt til vangaveltna um að kommúnístaríkin, þar á meðal Sovétríkin og Kína, hyggist ekki senda lið á leikanna, líkt og gerðist í Los Angeles árið 1984. Fresturinn til að þiggja boð um þátttöku rennur út 17. janúar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.