Morgunblaðið - 22.12.1987, Síða 35

Morgunblaðið - 22.12.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 35 Sunday Telegraph: Norrænar flökkusveitir flykkjast til Glasgow Frá önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Verslunarferðir íslendinga til Glasgow voru blaðamatur í Bretlandi um helgina. Sunday Telegraph birti eftirfarandi frétt eftir David Wa- stell með ofangreindri fyrirsögn á áberandi stað á sunnudag. Stór mynd af klyfjuðum íslendingi og stúlku með budduna á lofti fylgdi greininni. í þýðingu Morgunblaðsins er nöfnum sleppt á þeim, sem nafngreindir eru i grein breska blaðamannsins. „Víkingar hafa hafíð innreið sína þeir pöntuðu drykki. Áfengi er dýrt í Skotland á ný. Þeir koma í þeim ásetningi að snúa aftur með fangið fullt af vörum. Vopn norrænu flökkusveitanna í dag eru viðskiptalegs eðlis en ekki hemaðarlegs og fómardýr þeirra em himinlifandi að sjá þær. Nútíma rán- skapur er háður með „Weesa“-krítar- kortum og ferðatékkum. Víkingamir reka upp herópið „Aaaah! Deben- harns!" og æða yfír verslunargötur. Þetta em íslendingar sem hafa flykkst til Glasgow að undanfömu. Allt upp í 500 manns komu til borgar- innar í hverri viku fyrir jólin. Þeirra Valhöll er að versla í Argyll-stræti, borða og drekka. Þeir leggja upp í ferðimar um borð í vélum Flugleiða, víkingaskip- um nútímans, af því að þeir fá vömr í Bretlandi fyrir þriðjung þess verðs sem þeir þurfa að greiða í Reykjavík. „Maður þarf bara að kaupa tvenn jakkaföt, eitt par af skóm, skyrtu og hálsbindi til að spara Skotlandsferð- ina,“ sagði NN. Það bar mikið á íslendingum í anddyri og á bömm hótelsins Hospi- tality Inn í síðustu viku. Þeir gista þar í þijár nætur fyrir 260 pund (17.420 ísl. kr.) og flugferðimar em innifaldar í verðinu. Þeir vom auðþekkjanlegir í and- dyrinu á bláum augum og brotum í skyrtum sem aðeins sjást á nýupp- teknum flíkum. Þeir pöntuðu líka leigubfla oftar en aðrir. Það kostar víst 5 pund (330 fsl. kr.) að setjast upp í leigubfl í Reykjavík. Inni á Captains Cabin Bar var hægt að þekkja þá á því hversu oft á íslandi og sterkur bjór er bannað- ur. Vodkaflaska kostar 16 pund (1.070 ísl. kr.) í einokunarverslun ríkisins og tveir lítrar af rauðvíni kosta jafn mikið. Heimabrugg er bannað með lögum. Afleiðingin er sú að „heima drekkum við mikið af köldu og heitu vatni," samkvæmt upplýs- ingum NN. Þeir drekka svo mikinn bjór og vodka í Glasgow að jafnvel Skotamir taka eftir því. Það getur leitt til vand- ræða. Kona sem hóf að drekka um borð í vélinni á leið frá íslandi um síðustu helgi og hætti ekki eftir að hún lenti eyddi nótt í fangelsi. Vik- una þar áður flæddi vatn inn á matstað eftir að kona lét renna í bað og sofnaði án þess að skrúfa fyrir. Og tölva í hótelmóttöku skemmdist þegar íslendingar með drykki í hönd- unum duttu á hana. Þrátt fyrir þetta fá þeir ljómandi meðmæli — „fjári góðir viðskiptavin- ir“ — frá Timothy Hunt, aðstoðar- hótelstjóra Hospitality Inn. Hann telur að þeir auki veltu barsins um þriðjung, upp í 3.000 pund,“ segir hann. Þeir spilla ekki heldur viðskiptalífí borgarinnar. Fiskur er hið eina sem þeir kaupa ekki. Sagt er íslendingur nokkur hafí eytt 7.000 pundum (469.000 ísl. kr.) á morgunstund í rafmagnsverslun. Hótelstarfsmenn fundu seðlaveski sem annar hafði týnt á bar. Það vom 3.000 pund (201.000 ísl. kr.) í því. NN hafði eytt 600 pundum (40.200 ísl. kr.) á þremur dögum og var í öllu nýju. NN var á ferð í Glasgow með tveimur dætmm og tengdasyni. „Við ætluðum ekki að versla en við fömm héðan með átta ferðatöskur,“ sagði hann. Margir fara út með tóm- ar töskur og bara fötin sem þeir em í til að forðast tolla þegar þeir koma heim. Kaupin verða þarfari fyrir vik- ið. Flugvöllurinn í Glasgow minnir helst á vömhús þegar brottfarartími nálgast og kenndir íslendingar raða sér upp með pappírshatta til að skrá sig inn. „Glasgow" virðist vera farið að þýða „að versla" á íslensku. Og það ekki bara á jólavertíðinni. Það búa aðeins 240.000 manns á íslandi og hlutimir em ekki lengi að fréttast. Um 75% allra þorpsbúa á einum stað á landinu fóm saman til Glasgow fyrr í vetur. Sagt er að bar- inn á hótelinu þar sem þeir gistu hafí verið „líflegur". Framtakssamur Skoti opnaði nýlega verslun sem heit- ir „Litla Glasgow" í Reykjavík. Hvort þetta eykur skilning þjóð- anna hvorri á annarri er enn á huldu. „íslendingamir tala skrýtilega, fínnst þér ekki?“ sagði Robert Mullen sem ekur flugvallarleigubfl og hefur keyrt nokkra hópa inn í bæ. „Ég skildi ekki orð af því sem þeir sögðu." Þeir sem geta gert sig skiljanlega gefa kannski óviljandi neikvæða hug- mynd um lífíð heimafyrir. Þegar gengið er á þá nefna þeir helst físk og hreint loft sem jákvæða hluti sem landið hefur upp á að bjóða. En fæstir víkinganna í Glasgow í síðustu viku höfðu tíma til að ræða málin. NN var í Skotlandi með konu sinni, tveimur dætmm og bama- bami. Hann fylltist ákafa og leit varfæmislega á klukkuna þegar hann kom út úr Frasers-vömhúsinu með rafmagnsundrahunda og brunabíla. Klukkan var 11.30. „Er kominn bjórtími?" spurði hann vonglaður. „Nú verðum við að kaupa bjór. Ég er kominn til Glasgow til að kaupa bjór.“ En honum varð ekki að ósk sinni. Fylgdarlið hans var þegar farið að skyggnast eftir tækifæri til að versla hinum megin við götuna. „Aaaah! Evans!" hrópaði það og rauk yfír götuna." Skæruliðar kveðast hafa fellt 100 stj órnarhermenn Miami, Reuter. KONTRA-skæruIiðar, sem beijast gegn stjórn sandinista í Nic- aragua, skýrðu frá þvi í gær að hersveitir þeirra hefðu náð þrem- Klingjandi kristall Kærkomin gjöf Crystal Cube I_I Kimi irvi m X n A k l I A I 7 r* r-r- KOSTA BODA v_________------------ BANKASTRÆTI 10, SÍMI 13122 ur bæjum í norð-austurhluta landsins á sitt vald á sunnudag og fellt 100 stjórnarhermenn. Tals- menn vamarmálaráðuneytis Nicaragua staðfestu að átökin hefðu átt sér stað en bættu því við að frásagnir skæruliða væru stór- lega ýktar. Leiðtogar kontra-skæmliða skýrðu frá því í gær að 7.000 menn hefðu tekið þátt í árásinni á sunnudag og kváðust þeir hafa náð þremur náma- bæjum í norð-austurhluta landsins á sitt vald. Sögðu þeir 100 hermenn sandinista hafa fallið í bardögunum. „Ég veit ekki hvort þetta var vfðtæk- asta árás okkar til þessa en hún var vissulega sú sérstæðasta," sagði Adolfo Calero, einn þekktasti leiðtogi skæmliða, í viðtali við fréttamann .Reuíers-fréttastofunnar. „Þetta er þýðingarmikið skref í átt til frelsunar Nicaragua," bætti hann við. Sagði hann sveitir kontra-skæmliða hafa náð bæjunum Bonanza, Siuna og La Rosita á sitt vald og væri þetta áfall fyrir sandinistastjómina þar sem námavinnsla á þessum slóðum væri mikilvæg telqulind. Stjómarherinn hefur 75.000 manns undir vopnum en skæmliðar em tald- ir um 12.000. Nýlega lýsti Daniel Ortega, forseti Nicaragua, því yfír að 600.000 manna varaliðssveitir væm ávallt í viðbragðsstöðu. Kvaðst Ortega telja að viðbúnaður þessi væri í fullu samræmi við áætlun um leiðir til að koma á friði í Mið- Ameríkú. í síðustu viku náðu stjómvöld og skæmliðar samkomulagi um að lýsa yfir tveggja daga vopnahléi yfir jóla- hátíðina. Aðspurður kvaðst Calero ekki fá séð að átökin á sunnudag myndu koma í veg fyrir nýja lotu friðarviðræðna sem áætlað er að hefj- ist eftir jól. Fyrsta lota viðræðnanna fór út um þúfur 4. desember er ekki náðist samstaða um hver væm skil- yrðin fyrir vopnahléi. Á laugardag urðu fulltrúar Banda- ríkjastjómar og þingsins ásáttir um að veita 8,1 milljón Bandaríkjadala til kontra-skæmliða. Þá var banda- rísku leyniþjónustunni (CIA) einnig veitt heimild til að flytja vopn til skæmliða fram til 12. janúar Spánn: Iranir send- ir úr landi Madrid, Reuter. FIMM íranir voru sendir úr landi á Spáni og settir um borð í flugvél til Istanbúl á sunnudag. Áður hafði fólk- inu verið neitað um hæli í Danmörku. Lögregla sagði að íranimir, tvær konur, tvö böm og karl- maður, hefðu verið í haldi á flugvellinum í Madríd frá því þau komu frá Danmörku á miðvikudag. Þar hafði fólkið beðið um pólitískt hæli. Önnur konan og karlinn höfðu reynt að fremja sjálfs- morð um borð í flugvélinni sem flutti þau frá Danmörku til Spánar. Haiti: Ný kosn- inga lög taka gildi . Port-Au-Prince, Reuter. Herstjómin á Haiti hefur gefíð út ný kosningalög, sem heimila yfírvöldum að skoða atkvæði einstaklinga og veitir hermönnum leyfí til að fara inní kjörklefa. Lögin sem birt vom í dag- blaði stjómarinnar á laugardag útiloka að aðrir en stjómarliðar kanni aðstæður á kjörstöðum og veita yfirvöldum heimild til að dæma menn í fjársektir og fangelsi fyrir að hvetja fólk til að kjósa ekki. Þessi lög virðast vera til þess ætluð að koma í veg fyrir að stuðningsmenn Jean-Claude Duvaliers, fyrrum forseta, nái kjöri. Fjórir forsetaframbjóðendur stjómarandstæðinga hafa kraf- ist þess að kosningunum sem eiga að fara fram 17. janúar verði frestað. Fyrstu kosningar í 30 ár fóm fram 29. nóvember síðastliðinn. Loka varð kjör- stöðum skömmu eftir að þeir opnuðu þegar vopnaðir menn í borgaralegum klæðum skutu á fólk á kjörstöðum. Nýju lögin gera ráð fyrir að frambjóðendur prenti eigin kjörseðla og fari með á kjör- stað. Þar fer embættismaður yfir seðilinn. Þegar fólk kemur til að kjósa biður það um seðil ákveðins frambjóðanda og fer með hann í kjörklefa og brýtur saman. Seðillinn er afhentur embættismanni sem setur hann í kjörkassa. Þannig verður hægt að kanna afstöðu allra einstaklinga sem nota kosn- ingarétt sinn. Úganda og Kenýa: Tanzanía reynir að komaá sáttum Kampala, Reuter. Landamæradeilur sem hóf- ust milli Úganda og Kenýa í síðustu viku hafa versnað. Tveir hermenn frá Úganda hafa látist í átökunum. Fólk sem búsett er í nágrenni við svæðið þar sem átökin brutust út hefur verið flutt á brott. Að sögn opinberra aðila í Úganda vilja stjómvöld f Tanzaníu freista þess að reyna að koma á sáttum. Ekki er vitað hváð kom deilunum af stað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.