Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
39
Mikil leit að tveimur drengjum:
Heyrði tíst o g
sá þá drengina
- segir Helgi Kr. Sigmundsson
LEITAÐ var að tveimur drengjum, 3 og 4 ára, í Mosfellsbæ á laugar-
dag. Þeir fundust um kl. 22.30, blautir og kaldir, en ómeiddir.
Mikill fjöldi fólks tók þátt í leitinni að drengjunum. Þeir fundust í
nokkuð djúpum skurði, þar sem þeir léku þar til dimmt var orðið,
en þá rötuðu þeir ekki heim.
Það var um kl. 17 á laugardag
sem rannsóknarlögreglunni í Hafn-
arfírði var tilkynnt að drengjanna
væri saknað. Þá höfðu ættingjar
þeirra þegar byijað leit og björgun-
arsveitin Kyndill einnig. Um kl. 18
var sporhundur fenginn til aðstoðar
og kl. 19 voru allar tiltækar hjálp-
ar- og björgunarsveitir fengnar til
aðstoðar og félagar í golfklúbbnum
Kili tóku einnig þátt í leitinni.
Það var ekki fyrr en kl. 22.30
um kvöldið sem drengimir fundust.
um 1200 metra frá heimilum þeirra.
Það var Helgi Kr. Sigmundsson sem
fann þá. „Eg sá í sjónvarpinu að
strákamir vom týndir og ákvað að
líta eftir þeirn," sagði Helgi. „Ég
fór að gömlu leiksvæði okkar strák-
anna í Mosfellsbæ, niður undir
fjöru. Þar gekk ég meðfram skurði
við veginn og lýsti niður í hann.
Allt í einu heyrði ég tíst, eða kjökur
og skömmu síðar sá ég strákana.
Þeir voru skítugir upp fyrir haus,
því þeir höfðu leikið sér í drullunni
allan daginn, en rötuðu svo ekki
heim þegar dimmdi. Ég bar þá upp
í bíl og ók síðan fram á föður ann-
ars, sem fór með þá heim. Þeir
voru blautir og kaldir, en daginn
eftir höfðu þeir jafnað sig,“ sagði
Helgi.
Morgunblaðið/BAR
Fundað gegn matarskatti
2-300 manns voru á útifundi sem nokkur laun- Alþýðubandalagsins og Ingi Björn Albertsson
þegasamtök héldu á Lækjartorgi í gær til að alþingismaður Borgaraflokksins. Að loknum
mótmæla þvi að söluskattur verði lagður á mat- fundi gengu nokkrir tugir manna að Alþingis-
væli frá áramótum. Meðal ræðumanna á fundin- húsinu þar sem Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
um voru Ólafur Ragnar Grimsson formaður herra veitti ályktun fundarins viðtöku.
Dregið í hausthappdrætti
Sjálf stæðisflokksins
DREGIÐ hefur verið i haust-
happdrætti Sjálfstæðisflokksins
hjá borgarfógetanum í
Reykjavík. Upp komu eftirtalin
vinningsnúmer:
Bifreiðir að eigin vali að verð-
mæti kr. 300.000,- hver komu á
eftirtalin fímm vinningsnúmer:
41337, 33103, 67937, 39259,
47511.
Húsbúnaður að eigin vali að verð-
mæti kr. 50.000 kom á eftirtalin
50 vinningsnúmer: 30127, 14615,
55782, 32979, 41468, 53634,
62783, 77109, 31167, 2808, 20991,
42402, 10206, 68202, 66014,
73015, 39473, 68376, 63538, 9852,
12507, 63614, 63765, 70331,
63702,1592, 69865, 18031, 62932,
12317, 68470, 18061, 39986,
30250, 24990,10390,10355,1681,
33168, 45479, 65422, 8997, 49687,
32312, 43035, 68705, 9039, 23701,
59181, 19530.
Eigendur ofangreindra vinnings-
miða hafi samband við skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, Reykjavík.
Vinningsnúmer birt án ábyrgðar.
Kristján
Sigurðssoná
Hálsi látinn
Stykkishólmi.
KRISTJÁN Sigurðsson bóndi á
Hálsi á Skógaströnd lést laugar-
daginn 19. desember, 76 ára að
aldri. Hann hafði farið seinni
Úr hinni nýju verslun, Bókakaffi.
JÓLAMYND Stjörnubíós að
þessu sinni er gamanmyndin
„Ishtar“. Með aðalhlutverk i
myndinni fara Dustin Hoffman,
Isabelle Adjani og Warren
Beatty.
Myndin íjallar um tvo skrýtna
náunga sem dreymir um að slá í
gegn sem söngvarar og lagasmiðir.
FVamavonir félaganna eru ekki
bjartar, því þeir eru gersamlega
laglausir, hörmulegir lagasmiðir og
auk þess komnir yfír miðjan aldur.
Þeir fá þó starf á hóteli í arabaríki
og þangað halda þeir fullir fyrir-
heita. A flugvellinum við komuna
verður á vegi þeirra undurfögur
arabastúlka og kynnin við hana
verða þeim félögum dýrkeypt. Áður
en varir eru þeir staddir í eyðimörk-
inni, villtir og vatnslausir ásamt
blindu kameldýri og hundeltir af
konungssinum, skæruliðum og
bandarísku leyniþjónustunni, segir
í frétt frá kvikmyndahúsinu.
Framleiðandi myndarinnar er
Bókakaffi í Garðastræti
Aðalleikarar í jólamynd Stjömubíós „Ishtar" þau Dustin Hoffman,
Isabella Adjani og Warren Beatty.
Stjömubíó sýnir gam-
anmyndina „Ishtar“
Warren Beatty, en leikstjóri og
höfundur handrits er Elaine May.
BÓKAKAFFI hefur opnað í
Garðastræti 17, við hliðina á
Unuhúsi.
Bókakaffi er nýlunda á íslandi,
en nokkuð velþekkt fyrirbæri víða
erlendis. Bókakaffið í Garðastræti
17 er allt í senn bókabúð og kaffí-
hús. í bókabúðinni verður fyrst
um sinn boðið upp á íslenskar
bækur síðari ára og að auki eru
allar jólabækumar til sölu þar. í
framtíðinni verður svo boðið upp
á erlendar bækur kennslubækur
og bækur um arkitektúr, kvik-
myndir o.fl.
í tengslum við Bókasöluna er
rekið kaffihús, og þessa dagana
gengur það ýmist undir nafninu
Vinaminni eða Skáldatími. Þar er
boðið upp á kaffí og meðlæti.
Evrópumeistaramót unglinga:
Þröstur er í miðj-
um hóp keppenda
Amheim í Hoilandi, frá Þráni Vigfússyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞRÖSTUR Þórhallsson er í miðjum hópi keppenda á Evrópu-
meistaramóti unglinga í skák, eftir þijár umferðir með 1,5
vinninga. Efstir á mótinu eru Sovétmaðurinn Gelfand og Spán-
veijinn Fernandez með fullt hús eða þijá vinninga og í 3.-4.
sæti Ivanchuk frá Sovétrílyunum og Rimersma frá Hollandi með
2,5 vinninga.
í 1. umferð mótsins, sem tefld var á laugardag, tapaði Þröstur
fyrir Belgíumanninum Van der Voort frá Belgíu og í 2. umferðinni
vann hann Ivan Bem frá Noregi. í 3. umferðinni, sem tefld var í
gær, gerði hann síðan jafntefli við Gruia Calinescu frá Rúmeníu.
Fjórða umferð verður tefld í dag, en ekki var í gærkveldi vitað
hver andstæðingur hans yrði. Tefldar eru 13 umferðir eftir sviss-
nesku kerfí á mótinu og eru þáttakendur 32.
Kaffíhús og Bókabúð undir
sama þaki gefur ýmsa möguleika
sem Bókakaffí í Garðastrætinu
hefur þegar nýtt sér t.d. upplestur
skálda.
Aðstandendur Bókakaffís er
nokkur hópur af ungu fólki, sem
lengi hefur dreymt um að sjá
slíkan stað hér á landi. Bókakaffíð
er opið a.m.k. dagana fram að
jólum til 20 á kvöldin.
(Fréttatilkynning)
hluta dags til að huga að fé sínu
sem var nokkurn spöl frá bæn-
um. Þegar hann kom ekki fram
á eðlilegum tíma var farið að
huga að honum. Fannst Kristján
um kvöldið örendur á hjalla
skammt frá bænum.
Kristján var sonur hjónanna Sig-
urðar Ogmundssonar og Halldóru
Kristjánsdóttur sem bjuggu á Hálsi
frá 19J0 í 60 ár en þá tóku við
búinu Kristján og systur hans Guð-
fínna og Sigurbjörg og hafa búið
þar síðan.
Kristján var ókvæntur. Hann var
alla tíð mikill samvinnu- og sjálf-
stæðismaður.
Arni
Félag heyrnarlausra
Verið er að gefa út
nýja táJknmálsorðabók
Táknmálsorðabók er um
þessar mundir að koma út hjá
Félagi heyrnarlausra. Þetta er
þriðja útgáfa táknmálsbókar,
mjög aukin og endurbætt.
í 2. útgáfu voru alls um 1300
tákn en sú bók hefur verið upp-
seld síðustu 6 ár. Nýja útgáfan
hefur að geyma yfír 1800 tákn.
Bókin er vönduð að allri gerð og
sérstaklega hefur verið hugað að
því að hún henti til kennslu og
sjálfsnáms i táknmáli.
Fyrir jólin hafa verið gerð gjafa-
bréf að Táknmálsbók þar sem
bókin kemur ekki út fyrr en um
áramótin en margir hafa lýst yfír
áhuga á því að gefa slíka bók í
jólagjöf.
Gjafabréfín fást í Bókaverslun
Sigfíisar Eymundssonar og hjá
Heymarhjálp, Klapparstíg 28.
Ung stúlka sýnir tán.
Verð hverrar bókar er kr. 2800.
(Fréttatilkynning.)