Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
FJARSTÝRÐIR
BÍLAR
MIKIÐ ÚRVAL
HAFNARSTRÆTI9« - SlMI 96-27744 AKUREYRI
Helgar-og
viðskiptaf erðir til
Reykjavíkur
Ótrúlega hagstætt verð
Verðfrákr. 6.859,-
Ferðaskrifstofa Akureyrar,
Ráðhústorgi 3, sími 25000.
Piltur og stúlka
Leikstjóri: Borgar Garðarson
Leikmynd: Örn Ingi Gíslason
Lýsing: Ingvar Björnsson
Tónlist: Jón Hlöðver Áskclsson
Frumsýning annan dag
jóla kl. 17.00
2. sýning sunudaginn
27. des. kl. 20.30
3. sýningþriðjudaginn
29. des.kl. 20.30
4. sýning miðvikudaginn
30. dcs. kl. 20.30
5. sýning fimmtudaginn
7. janúar kl. 20.30
6. sýning föstudaginn
8. janúar kl. 20.30
7. sýning laugardaginn
9. janúar kl. 18.00
8. sýning sunnudaginn
10. janúar kl. 15.00
Ath. brcyttan sýningartima.
Forsala aðgóngumiða hafin.
G jafakortið gleðor - tilTolin jólagjöf.
# Æ MIÐASALA
Bf Æh simi
96-24073
laKFéLAG AKUREYRAR
flO piorvEEn
HUÓMTÆKI
Morgunblaðið/Guðmundur Svansson
Eldtungnr stódu út um glugga á efstu hæðinni þegar Slökkvilið Akureyrar kom á staðinn.
Skemmdir urðu miklar á húsinu.
Sjö manna fjölskylda
missti heimili sitt í bruna
SJÖ manna fjölskylda missti
heimili sitt í bruna á Akureyri
síðdegis í gær og nemur tjón
milljónum króna. Enginn slasað-
ist, en húsið er talið ónýtt.
Eldsupptök eru ókunn á þessu
stigi málsins, en rannsóknarlög-
reglan á Akureyri vinnur að
rannsókn eldsupptaka.
Slökkviliðinu barst tilkynning um
bruna í húsinu númer 4 við Kringlu-
mýri laust fyrir kl. 16.00 í gær frá
iögreglustöðinni. „Við kölluðum út
fyrsta útkall og er við vorum á leið-
inni á vettvang sáum við hverslags
var, mikinn reyk og eld, og báðum
þá samstundis um állt slökkviliðið,
hátt í fjörutíu manns,“ sagði Tómas
Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri í
samtali við Morgunblaðið.
„Aðkoman var vægast sagt
slæm. Húsið er byggt á þremur
pöllum, steinsteypt með timburþaki
og var mesti reykurinn og eldurinn
á efstu hæðinni þar sem meðal
annars er stofa og eldhús. Grunur
leikur á að eldurinn hafi komið upp
þar. Efsti hluti hússins var alelda
er við komum og stóðu eldtungum-
Tvær bílveltnr
og mikil ölvun
TVÆR bílveltur urðu á Norður-
landi um helgina, önnur í
Fnjóskadal og hin í Öxnadal.
Lögreglunni á Akureyri barst
tilkynning um bílveltu við Hóla
í Öxnadal kl. 13.30 á laugardag.
Tvennt var í bílnum og voru þau
flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri. Talið er að meiðsl hafi
ekki verið alvarlegs eðlis. Bílvelt-
an í Fnjóskadal var á móts við
Víðivelli. Ökumaður og farþegi
voru fluttir á FSA, en ekki voru
þó meiðsl talin alvarleg.
Að sögn lögregluvarðstjóra var
ölvun í bænum með meira móti um
helgina en gengur og gerist venju-
lega og hafa jólaglöggsboð á
ýmsum stöðum spilað þar nokkuð
inn í. Fjórtán manns fengu að gista
fangageymslur lögreglunnar vegna
ölvunar. Umferðin um helgina gekk
hinsvegar eins og í sögu þrátt fyrir
mikla ös í miðbænum á laugardag-
inn, en þá voru verslanir opnar til
kl. 22.00. Færi er eins og best verð-
ur á kosið hér norðanlands og hefur
umferð verið jöfn og þétt það sem
af er. Fólk víða að hefur komið til
Akureyrar undanfama daga í versl-
unarleiðangra og mátti sjá í bænum
ófáar bifreiðir með Þ-, Ó- og K-
númerum.
ar út um alla glugga. Óttast var
að böm væru innandyra þegar við
komum á staðinn og fór allur okkar
kraftur í að komast inn í húsið,
slökkva á undan okkur, fará inn
og leita af okkur allan grun. Við
fórum inn í húsið bæði uppi og
niðri, en húsið reyndist mannlaust
er við reyndum að brjóta okkur leið
inn,“ sagði Tómas Búi.
Sjónarvottur sagði að svo virtist
sem mikil sprenging hefði átt sér
stað og engu líkara en að verið
væri að skvetta olíu á eld, svo mik-
ill eldur hefði verið í húsinu og
geysilegur reykur. Nærliggjandi
hús voru ekki í hættu enda var
veður stillt og gott á Akureyri í gær.
Sjálft slökkvistarfið mun hafa
tekið um klukkutíma, en slökkvi-
liðsmenn voru ekki komnir í hús
aftur fyrr en laust fyrir klukkan
19.00 í gærkvöldi. Vakt átti að
vera við húsið í alla nótt.
Ein faglærð fóstra hjá
bænum eftir 1. apríl
— segir Jón Björnsson félagsmálastjóri Akureyrarbæjar
TVÆR fóstrur eru nú starfandi
hjá Akureyrarbæ sem ekki hafa
ennþá sagt störfum sínum laus-
um. Báðar þessar fóstrur eru
forstöðukonur á sitt hvoru dag-
heimilinu, en þann 1. april fer
önnur þeirra í barnsburðarleyfi
og því mun ein faglærð fóstra
starfa sem slík hjá Akureyrarbæ.
Útlit er fyrir að loka þurfi tveim-
ur dagvistum strax um áramótin
þar sem þær verða báðar for-
stöðumannslausar þá. Félags-
málastofnun Akureyrarbæjar
hefur auglýst eftir ófaglærðu
fólki til að ganga í forstöðu-
mannsstörf gegn undanþágum
frá menntamálaráðuneytinu. Jón
Björnsson félagsmálastjóri sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki vera bjartsýnn á að það
gengi hinsvegar þar sem það
hefði verið reynt áður.
Félagsmálastjóri kynnti niðurstöð-
ur starfsmatsins sl. föstudag fyrir
öllum starfandi fóstrum og í kjölfar
þess sögðu fjórar fóstrur í viðbót
störfum sínum lausum frá og með
áramótum og taka uppsagnimar gildi
þann 1. apríl nk. Auðveldara hefði
verið að leysa þessi vandræði ef
launahækkunin úr starfsmatinu hefði
orðið ríflegri, að sögn Jóns.
A Síðuseli verður fóstru- og for-
stöðumannslaust frá og með ára-
mótum og á Flúðum er forstöðumað-
urinn að hætta. Hinsvegar Starfa á
Flúðum tvær fóstrur fyrri hluta dags,
en þær eru meðal þeirra er sögðu
upp störfum sínum sl. föstudag. Fé-
lagsmálastjóri gerði því ráð fyrir að
loka þurfi á Síðuseli og á Flúðum
eftir hádegi ef ekkert gerðist sem
leyst gæti vandann.
„Ég tel það enga lausn að ráða
ófaglært fólk til starfa í stað fóstra.
Persónulega held ég að fóstrur fáist
ekki á því verði sem verið er að reyna
að kaupa þær á. Til verulegrar launa-
hækkunar þarf að koma. Þetta hefur
verið bamingur árum saman og reynt
hefur verið að bjarga málum fyrir
hom í tíma og ótíma. Ef þessir hlut-
ir eiga að vera í lagi þarf einfaldlega
að koma til verulegrar kauphækkun-
ar fóstra," sagði Jón.
Hann gerði ráð fyrir að það ófag-
lærða fólk, sem hugsanlega tæki að
sér forstöðumannsstörfin, gengi inn
í það launakerfi sem faglærðar for-
stöðukonur hefðu. Jón taldi að
byrjunarlaun þeirra yrðu á bilinu 56
Starfsmatsnefnd Akureyrar-
bæjar hefur lokið endurmati á
störfum fóstra og er niðurstaðan
sú að almenna fóstran hækkar
um einn launaflokk og fóstrur í
stjórnunarstöðum um tvo launa-
flokka frá því sem nú er.
Karl Jörundsson starfsmaður
nefndarinnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að starfsmatsnefndinni væri
aðeins ætlað að meta störf fóstranna
innbyrðis til stigagjafar. Síðan yrði
kjaranefnd að ákveða hvort þær niður-
stöður yrðu látnar gilda og hefur sú
orðið raunin á. Afgreiðsla kjaranefnd-
ar hefur farið fyrir bæjarráð og var
samþykkt þar óbreytt.
Karl sagði að frá því að kröfur
fóstra hefðu komið fram í sumar hefði
orðið töluverð breyting á launum
þeirra. Þann 1. október sl. hækkuðu
fóstrur í stjómunarstöðum, eða for-
stöðukonur, um tvo launaflokka. Ný
til 58 þúsund krónur og byijunarlaun
ófaglærðs fólks, sem tæki að sér störf
almennra fóstra, yrðu tæp 50.000
krónur. „Þetta er eingöngu þrautaráð
til að reyna að halda deildunum opn-
um. Mér dettur ekki í hug að hægt
sé að reka dagvistir án fóstra. Það
er afskaplega slæmt að þurfa að loka
dagvistum á fólk, sem háð er þeim
vegna vinnu sinnar, svo við verðum
að reyna að kappkosta að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að koma
í veg fyrir lokun,“ sagði félagsmála-
stjóri.
launatafla kom inn þann 1. desember
sl. sem samsvarar einum launaflokki.
Endurmat á störfum fóstra hækkar
forstöðukonur og yfirfóstrur um tvo
launaflokka og síðan kemur eins
launaflokkshækkun til viðbótar þann
1. janúar vegna endurskoðunar á
kjarasamningi sem fram fór í desemb-
ermánuði. Fóstrur í stjómunarstöðum
hafa því hækkað um sex launaflokka
frá því 1. október sl. og fóstrur al-
mennt um fimm þar sem þær fengu
eins launaflokks hækkun út úr starfs-
matinu en forstöðukonur tvo.
„Segja má að þessar hækkanir séu
umfram það sem gerst hefur á al-
mennum vinnumarkaði. Það munar
3,2% á milli launaflokka. Því hafa
fóstrur í stjómunarstöðum fengið
20,77% launahækkun frá þvi 1. októ-
ber sl. og almennar, fóstur 17,3%
hækkun frá sama tírna," sagði Karl.
Starfsmati á störfum fóstra lokið:
Forstöðukonur hækk-
uðu umfram fóstrur