Morgunblaðið - 22.12.1987, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
9
Valgerður Krístins
dóttir - Minning
Fædd 19. marz 1894
Dáin 24. nóvember 1987
í byrjun jólaföstu andaðist í
Borgarspítalanum frændkona mín,
Valgerður Kristinsdóttir, í hárri elli.
Valgerður fæddist í Nýlendu í Hlöð-
versneshverfi á Vatnsleysuströnd
þann 19. mars 1894.
Foreldrar hennar voru hjónin
Þorbjörg Jónsdóttir og Kristinn
Þorleifsson, sem þar bjuggu. Val-
gerður var einkabam þeirra hjóna.
Árið 1902 flutti hún með foreldr-
um sínum til Reykjavíkur. Fyrstu
árin í Reykjavík bjó §ölskyldan í
gömlum bæ við Mýrargötu, en árið
1906 keyptu foreldrar hennar hús-
eignina Hverfisgötu 66 hér í borg.
Þar átti Valgerður heima allt til
ársins 1980, er húsið varð að víkja
af skipulagsástæðum. Hún lærði
snemma að standa á eigin fótum,
því móður sína missti hún á ferm-
ingaraldri. Tók hún þá við húsmóð-
urstörfum og hélt heimili með föður
sínum þar til hann andacjist árið
1917.
Valgerður fékk snemma áhuga á
saumaskap. Árið 1920 hleypti hún
heimdraganum og sigldi til Kaup-
mannahafnar til náms í kjólasaum.
Hún varð mjög fær í iðn sinni og
að loknu námi bauðst gott starf við
sauma þar í borg, sem hún gegndi
til ársins 1939. A þessu árabili kom
hún heim til íslands þrívegis. Ætlun
hennar var alltaf að setjast að
heima á íslandi, en á þeim árum
var erfitt að hverfa frá góðri stöðu
í Danmörku í allsleysið hér heima.
Er heimsstyijöldin braust út árið
1939 var ekki lengur til setunnar
boðið og heim skyldi haldið væri
þess nokkur kostur.
Valgerður var svo lánsöm að
komast heim með Esju, í hinni
frægu Petsamóferð, sem skipið fór
sérstaklega til að ná í íslendinga
sem dvöldu á Norðurlöndum.
Eftir heimkomuna flutti hún í
litla húsið sitt á Hverfísgötunni og
stundaði áfram saumaskap. Meðal
annars vann hún hjá listakonunni
Unni Ólafsdóttur við útsaum á
messuklæðum. Mun margur messu-
skrúðinn bera handbragði hennar
fagurt vitni. Þegar Þjóðleikhúsið
tók til starfa árið 1950 réð Valgerð-
ur sig til starfa á saumastofuna þar
og vann þar samfleytt til ársins
1968.
Valgerður var greind kona, dug-
mikil og samviskusöm. Hún giftist
ekki og átti ekki böm.
Hún var vinmörg og frændrækin,
lét sér mjög annt um hin mörgu
ættmenni sín og bar velferð þeirra
fyrir bijósti fram á síðasta dag.
Það var alltaf gott að leita til
Völu frænku, sjálf gerði hún sér far
um að leysa eigin vanda, kvartaði
aldrei þótt árin færðust yfir og
heilsunni hrakaði. Hún kaus heldur
að vera veitandi en þiggjandi. Sjálf-
stæði var henni í blóð borið. Síðustu
æviárin bjó hún í Austurbrún 6.
Þangað kaus hún sjálf að flytja, er
hús hennar varð að víkja, og undi
þar vel. Úr glugganum gat hún
horft út yfir sundin blá og borgina,
sem hafði alið hana svo langan dag.
Nokkra mánuði fyrir andlátið
dvaldi hún á Droplaugárstöðum,
sátt við Guð og menn.
Hún andaðist þann 24. nóvem-
ber.
Mér er ljúft að þakka þessari
trygglyndu sómakonu samfylgdina.
Blessuð sé minning hennar.
Gísli Teitsson
og 83033
AUSTURBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1-38
Skipholt 40-50
Stigahlíð 37-97
VESTURBÆR
Fornaströnd
Bauganes
Nýlendugata
Einarsnes
Látraströnd
Grettisgata 37-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Barónsstígur4-33o.fl.
Laugavegur 32-80 o.fl.
IHureMnblaMb