Morgunblaðið - 22.12.1987, Síða 48

Morgunblaðið - 22.12.1987, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 Afmæliskveðja: Ingimundur Stef- ánsson kennari „Hann á afmæli í dag. Þetta er afmæliskveðja." Svo segir í þekktu ljóði. Og Ingimundur Stefánsson frá Rofabæ í Meðallandi á afmæli í dag. Rofabær var vestast í Koteyjar- hverfinu, þó ein af Sandajörðunum. Þær eru á austurbakka Kúðafljóts og eiga land að Kúðaósi. Hann var lengi réttnefndur „vitaðsgjafí" Út- Meðallendinga. Það gerði selveiðin. Þama ólst Ingimundur upp með- *an náttúran var enn ósnortin, af tækni mannanna. Hvergi hef ég heyrt sinfóníu vorsins eins dýrt kveðna og í Út-Meðallandi. En þá voru mýramar enn ekki ræstar fram og minkurinn ókominn í hér- aðið. En hin eilífu fjöll em söm við sig. Þama er fjallasýn ein hin feg- ursta á landinu. Á Rofabæ er Ingimundur hjá foreldrum sínum, þeim Stefáni Ingi- mundarsyni og Margréti Ámadótt- ur, til 16 ára aldurs. Og síðustu 4 árin með móður sinni, að föður sínum látnum. Ingimundur er á Hnausum frá 1923—1929. Þá fer hann á vit menntagyðjunnar og hefði kosið að mynnast betur við hana en hann gerði. Féskortur gerði mörgum erf- itt í kreppunni miklu milli heims- styijaldanna tveggja. Ingimundur varð kennari að menntun. Var hann kennari á nokkmm stöðum, og lengi í Bolung- arvík og á Sólheimum í Grímsnesi. Ingimundur var kvæntur Ulricu Aminoff listmálara. Hún er dáin fyrir nokkmm ámm. Böm þeirra em: Blanca, Helga Sigurlín og Jan Agnar. Þetta er nú það helsta á æviveg- inum og Ingimundi mun ekki líka mjög mikill tíningur. Þó mun ég enn halda áfram. Ingimundur hefur skrifað ágætar minningargreinar í blöð. Sérstæðar og hlaðnar ættfræði, enda mikill ættfræðingur og ágætlega ritfær. Hann er ljóðskáld á hefðbundinn hátt og skaði að hann skyldi ekki geta sinnt því meira. Ekki á hann langt að sækja þetta. Ingimundur Eiríksson hrepp- stjóri, afi hans, var talinn síðasta kraftaverkaskáldið hér og var orð- inn þjóðsagnapersóna í lifanda lífí. Hann óð yfír Eldavatnið um vetrar- nótt hjá Fljótum og hluta af því í kafi. Fór einn lestarferðir austur á Papós og a.m.k. einu sinni yfír Skeiðará, vestur af Hofsnesi. Óð þá og tróð sándbleytur fyrir lestina. Segir Sigurður á Kvískerjum að enginn annar muni hafa farið þar yfír Skeiðará lestarferð. Bærinn Sandar stóð á hólma í Kúðafljóti. Þegar synir Evlalín Er- lendsdóttur em þama vilja þeir heldur hafa samband við Álftaverið. Þeir vom vel skáldmæltir og taka það ráð að kveða „Fljótið" austur fyrir Sandahólmann. Verður þeim vel ággent. Fer Fljótið að þokast austur á Meðallandið. Var og Krist- ur og beðinn ásjár í ljóðinu, sem var mjög guðrækilegt. Sýndist Með- allendingum vá fyrir dymm ef Kúðafljót rynni á byggðina á vetr- um. Þá sagði Ingimundur hrepp- stjóri: A vér köllum andskotann oft í nauðum vöndum. Flytji hann nú fljótt héðan Fljótið út að Söndum. Og Drekinn mikli, sem varpað var niður á jörðina á hinum síðustu tímum, varð við áskomninni. Eins og hendi væri veifað var aðalvatn Kúðafljóts komið vestan fyrir Sanda og var þar lengi síðar. En í tíð Gísla Tómassonar á Melhól fer aðalvatn Fljótsins að renna aust- an Sanda. Mun Gísla hafa þótt valt að hætta sálarheill sinni í glímunni við Kúða- ÍSLANDSSAGA A-K Einar Laxness Þetta er ný, endurskoðuð og aukin útgáfa af fyrra bindi íslandssögunnar í Alfræði Menningarsjóðs. Her er geysi- mikill fróðleikur saman kominn í stuttu máli og rakinn eftir uppflettiorðum. Einnig eru heimildarit tilgreind, svo að les- endur geta aflað sér hvers konar frekari upplýsinga um við- komandi efni. íslandssaga Einars Laxness í Alfræði Menn- ingarsjóðs hefur verið uppseld um skeið en fæst nú aftur ásamt öðrum ritum Alfræðinnar sem teljast óvenju nytsamar handbækur. Bókaúfgáfa /MENNING4RSJOÐS SKÁLHOLTSSTlG 7» REYKJAVÍK • SÍMI 621822 Q O' ö td O' W M Þd Q Þd tö cn M HVALVEIÐAR VIÐÍSLAND1600-1939 Trausti Einarsson *• Höfundur bókarinnar, Trausti Einars- son sagnfræðingur, hefur viðað að sér bestu fáanlegum heimildum íslensk- um, dönskum, norskum, breskum, bandarískum, þýskum, spænskum, batneskum’og frönskum um sögu hval- veiða á Norður-Atlantshafi, einkum umhverfis ísland, frá því á ofanverðum miðöldum og fram til 1940. Hvalveiðar við ísland 1600-1939 er áttunda bindi í ritröðinni Sagnfræðirannsóknir-Studia historica sem Sagnfræðistofnun Háskóla íslands og Menningarsjóður standa að. Trausti Einarsson HVAL.VEIÐAR VID ÍSLAND 1600-1939 MJÓFIRÐINGASÖGUR Vilhjálmur Hjálmarsson Svo langt sem séð verður aftur í tíma er 15 heimili og 100 manns ekkert fjarri meðallaginu í Mjóafirði. Fyrir 140 árum eða svo hófst breytingaskeið á þessum slóðum, og brátt var allt komið á ferð og flug í sveitinni: þorskveiðar margföld- uðust, Norðmenn komu í síldina, fyrsta frosthúsið á landinu var byggt, Norð- menn komu á ný og stofnuðu hvalveiði- stöðvar. Og fólkinu fjölgaði úr 100 í 400 við síðustu aldamót. Síðan er margt breytt-og íbúum Mjóafjarðarhrepps hefur fækkað í 35. Frá öllu þessu greina Mjófirðingasögur Vilhjálms á Brekku, fyrrum alþingismanns og ráðherra. LANDAMÆRI Heiðrekur Guðmundsson Þetta er áttunda ljóðabók skáldsins og kvæðin ort á árunum 1980-87. Heiðrek- ur fer hér víða nýjar brautir í listsköpun sinni en heldur þó tryggð við fyrri sjón- armið og vinnubrögð. Yfir ljóðunum vakir karlmennska og baráttuhugur þessa lífsreynda skálds er kemst gjarn- an að tímabærri og athyglisverðri niðurstöðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.