Morgunblaðið - 22.12.1987, Side 60

Morgunblaðið - 22.12.1987, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 fclk í fréttum BRIGITTE NIELSEN Er Dallas borgið? Brigitte Nielsen hefur ákveðið að taka boði um að leika í „Dailas" og er ekki að efa að nærvera hennar mun fjölga áhorf- endum til muna. HÚn á að leika I einum tólf þáttum en ekki hefur endanlega verið ákveðið hvaða hlutverki hún mun gegna. Það ætti þó að reynast auðvelt að hola henni niður við hlið JR í nókkrum þáttum. Hugmyndina að þvf að fá hana til að hressa upp á dvínandi vin- sældir Dallasþáttanna, á jöfurinn sjálfur, JR. Hann hefur viðskipta- vitið í lagi og sá að ekkert minna en kynbomban Gitta dygði til að endurheimta fyrri vinsæidir. Um- sjónarmenn þáttanna eru ekki alveg jafnvissir og viðskiptafröm- uðurinn með kúrekahattinn en vona það besta. Gitta er kona önnum kafín þessa dagana en hún þeysist um hinn vestræna heim tii að kynna nýjustu afurð sína, plötuna „Every Body Tells a Story" - Hver einasti (kroppur) segir sína sögu. Gitta kynnir kroppasönginn fyrir lýðnuin. Morgunblaðið/Þorkell „...frá ferðalagi minu og nokkura aðstoðarmanna minna.“ Hluti „aðstoðarmanna" Valgeirs: Þorsteinn Jónsson, Egill Ólafsson, Tinna Gunnlaugsdóttir og Ásgeir Óskarsson. STUÐMENN Uppskeruhátíð að vetri til Stuðmenn héldu uppskeruhátíð að hætti stórbænda um miðjan desembermánuð. Hátíðin var haldin í Hart rokk kaffí og sóttu hana vinir og vandamenn Stuðmanna auk fjölmiðlasnápa af ýmsu tagi. Þar kynntu Stuðmenn afurðir ársins; nýja geisladiska, Strax-plötu og Kínakvikmynd. Margir góðir vinir og félagar stigu á stokk, meðal þeirra má nefna skáldið Guðmund Haraldsson frá Eyrarbakka sem las ljóð úr þriðju ljóðabók sinni eins og honum einum er lagið. Hljómsveitin Ný dönsk úr Menntaskólanum í Hamrahlíð lék og vísnasöngvarinn Valgeir Guðjónsson söng nokkur lög. Þvínæst kynnti hann kvikmynd um ferð sína og nokkurra aðstoðar- manna til Kína. Myndin sú nefnist „Stuðmenn í Kína“, og verður sýnd á gamlárskvöld. Simbi, hárgreiðslu- meistari þeirra Stuðmanna og Bjami Arason sungu hljóðalaust (mæmuðu) tvö lög og fórst það vel úr hendi þó undirbúningurinn hefði verið af skomum skammti. Þá stukku á sviðið framkvæmdastjóri og tvær starfsstúlkur staðarins og tóku nokkur létt spor við góðar undirtektir gesta. Hljómsveitin Svart hvítur draumur sló síðan botninn í skemmtiatriði hátíðarinn- ar. Það vakti mikla kátinu gesta þegar Simbi sté á svið og „mæm- aði“ Ragnhildi Gísladóttur. COSPER — Bara róleg, þeir koma með veggeiningamar á morgun. Fulltrúar Hart rokk kaffis: Hrönn Jónsdóttir, Gunnar Kristinsson og Anna Bára Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.