Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
FRA RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitunni er það kappsmál að sem fæstir
verði fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um
jólin sem endranær. Til þess að tryggja öruggt
rafmagn um hátíðirnar vill Rafmagnsveitan benda
notendum á eftirfarandi:
Reynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna henni
yfir daginn eins og kostur er, einkum á aðfanga-
dag og gamlársdag. Forðist, ef unnt er, að nota
mörg straumfrek tæki samtímis, t.d. rafmagns-
ofna, hraðsuðukatla, þvottavélar og uppþvotta-
vélar - einkum meðan á eldun stendur.
Farið varlega með öll raftæki til að forðast
bruna- og snertihættu. Illa með farnar lausar
taugar og jólaljósasamstæður eru hættulegar.
Útiljósasamstæður þurfa að vera vatnsþéttar og
af gerð sem viðurkennd er af Rafmagnseftirliti
ríkisins.
í flestum nýrri húsum eru sjálfvör (útsláttar-
rofar) en í eldri húsum eru vartappar (öryggi).
Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöppum.
Helstu stærðir eru:
10 amper - Ijós
20-25 amper - eldavél
35 amper - aðalvör fyrir íbúð.
Ef straumlaust verður skuluð þið gera eftir-
farandi ráðstafanir:
- Takið straumfrek tæki úr sambandi.
- Ef straumleysið tekur aðeins til hluta úr íbúð,
(t.d. eldavélar eða Ijósa) getið þið sjálf skipt um
vör í töflu íbúðarinnar. Ef öll íbúðin er straum-
laus getið þið einnig sjálf skipt um vör fyrir
íbúðina í aðaltöflu hússins.
Hafi lekastraumsrofi í töflu leyst út er rétt að
taka öll tæki úr sambandi og reyna að setja leka-
straumsrofann inn aftur. Leysi rofinn enn út er
nauðsynlegt að kalla til rafvirkja.
Tekið er á móti tilkynningum um bilanir í síma
686230 hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur allan
sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag er
einnig tekið á móti bilanatiikynningum til kl. 19 í
síma 686222.
Við flytjum ykkur bestu óskir um gleðileg jól
og farsæid á komandi ári, með þökk fyrir
samstarfið á hinu liðna.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
____oW (Geymið auglýsinguna)
Cö
PIONEER
GEISLASPILARAR
Tvær þær efnilegustu
Glæsileg
og sígild hönnun...
Tvær þeirra hljómsveita sem
til urðu á þessu ári, og eru um
leið tvær efnilegustu rokksveitir
á landinu, sendu nýverið frá sér
plötur. Sveitirnar eru Sogbiettir
og Bleiku bastarnir og plöturnar,
sem eru 45 snúninga 12’, gefur
Smekkleysa út.
Á plötu Sogbletta eru lögin Orð
öskursins, Er nema von og 5. gír.
Margir tónlistaráhugamenn ættu
að kannast við Orð öskursins og
5. gír, enda hafa þau lög bæði
verið á tónleikadagskrá Sogbletta
síðan í vor og á meðal skemmti-
legri laga sem hægt er að heyra á
tónleikum. Er nema von er nýlegra
og ekki síðra.
Því verður ekki neitað að tónlist-
in á plötunni fellur líklegast ekki í
kramið hjá iðnaðartónlistarstöðv-
. unum og sennilegast verða þessi
þrjú lög lítið leikin í útvarpi. Það
gefur mönnum enn frekari ástæðu
til að verða sér út um þessa skífu
því tónlistin á henni er jafn kraft-
mikil og hún er kröfuhörð og
textarnir gera ekki annað en að
undirstrika það að í tonlistinni er
enginn undansláttur. Kannski lýsir
eftirfarandi textabrot best inni-
haldinu: Er nema von / þér finnst
þú engu fá breytt / því þú ert svo
lítiil / þú ert reyndar ekki neitt.
að fagrar umbúðir og listilegur
hljóðfæraleikur geti falið andlega
eyðimörk. Eitt umkvörtunaratriði:
Mikið hefði.mig langað til að fá
Helvítis djöfull á plötu.
Bleiku bastarnir eru á töluvert
annárri línu en Sogblettir, enda
standa þeir fjær pönkinu. Það er
þó ekki minni fengur að þeirra
plötu en plötu Sogbletta, enda er
hljómsveitin, eins og áður sagði,
önnur af tveim efnilegustu hljóm-
sveitum landins.
Tónlistin er öllu fágaðri en hjá
Blettunum, hefði jafnvel mátt vera
hrárri, en er vel í samræmi við þá
tónlist sem þeir félaga segjast vilja
leika: Rytmablús/rokkabillý/sýru/
pönk. Tónlistin nýtur sín best á
tónleikum, enda skiptir það mestu
máli. Lögin, sem eru sex, og text-
arnir á plötunni eru gott móteitur
við ýmsa þá froðu sem dælt hefur
verið yfir landann og platan því
nauðsynleg eign ekki síður en
plata Sogbletta. Besta lagið á
henni, Út í myrkrið, er enda á
meðal bestu laga ársins og
Bastablúsinn stendur því lagi ekki
langt að baki. Annað lag sem vekja
má athygli á er Kakkalakki. Bleiku
bastarnir eru vonandi vísir þess
að það er að lifna yfir rokkinu á ný.
Árni Matthíasson
KAPUSALAN *
BORGARTÚNI 22 AKGREYRI HAFNARSTRÆTI 88
SÍMI 23509 Næg bílastæði SÍMI 96-25250
Póstsendum um land allt
Tónlist Sogbletta ætti að vera
skylduhlustun og þá sérstaklega
fyrir allar hljómsveitir sem halda