Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 66

Morgunblaðið - 22.12.1987, Page 66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER Í987 66 _ 5- GARÐINN ÞINN Hér fjallar Hákon Bjarnason afkunn- áttu fagmannsins um trjárœkt í görðum, gerð trjáa og nœringarþörfog lífþeirra. Gróðursetningu, uppeldi plantna, hirðingu og grisjun um 70 tegunda er lýst í skýru og stuttu máli. Þessi nýja útgáfa bókarinnar er endurskoðuð og aukið hefur verið við hana sérstökum kafla um trjárœkt við sumarbústaði. Hákon Bjarnason hefur um áratuga- skeið verið forystumaður um skógrœkt hérlendis og mun vandfundinn betri leiðbeinandi á því sviði. Ómissandi handbók fyrir alla garðeigendur. IÐUNN Oréttmætur ritdómur Til Velvakanda. Ég var að lesa ritdóma Erlends Jónssonar í Morgunblaðinu 15. des- ember sl. um bók Péturs Guðjónsson- ar „Erindi við þig“. Ósköp skil ég Halldór Kiljan vel núna, þegar hann bað fólk um að lyfta umræðunni á hærra plan, í sjón- varpsþætti fyrir nokkrum árum. Þvi heldur fínnst mér nú umfjöllun Er- lendar um bók Péturs á lágu plani. í stað þess að skrifa um frásögu Péturs af mannlífinu um vfða veröld og um þá gífurlegu reynslu sem höf- undur hefur þá bregst Erlendur við eins og afbrýðisamur smáborgari og lætur í veðri vaka að ef til vill sé Pétur að skálda eitthvað. Erum við íslendingar svo litlir karlar að við getum ekki glaðst yfír því að einhver samlandi okkar skuli hafa ferðast jafn mikið og reynt jafn margt og Pétur? Verst þykir mér þó hvemig Erlend- ur hefur algerlega misst sjónar af aðalinntaki bókarinnar, en það er hreinskilin lýsing leitandi manns að lífsfyllingu og aðgerðir hans í sam- bandi við að gera hugsjónir sínar að raunvemleika. Reynsla Péturs varð til þess að hann komst að þeirri rökréttu_niður- stöðu að honum eins og okkur öllum bæri skylda til þess að gera uppreisn gegn ríkjandi kerfí heimsku, spilling- ar, óréttlætis og ofbeldis. Ef til vill er það vegna þess að Erlendur fínnur fyrir misskilinni skyldurækni til að verja núverandi kerfí, að hann dregur þá ályktun af bókinni að andófshópar hafí lítið áun- nið í gegnum söguna. Þetta er hreinn misskilningur því öll þróun byggist á uppreisn gegn því sem gefíð er (þess sem talið er náttúrulegt eða eðlilegt) og á þetta jafnt við um þjóðfélags- breytingar svo sem framfarir f vísind- um og listum. Sem dæmi má nefna að vart hefði grein Erlendar birst á prenti eins og raun ber vitni, ef Gutt- enberg hefði ekki á sfnum tíma gert uppreisn gegn blekbyttu og fjöður- penna. Breytinga er þörf í þjóðfélagi okk- ar það vita allir — Erlendur lfka — og það em alltaf sterkar raddir sem spyma á móti nýjungum, en þessar nýjungar verða aldrei að raunvem- leika nema að hugrakkir og staðfastir hugsjónamenn láti mótmæli meðal- mennskunnar sem vind um eyru þjóta. Því miður höfum við íslending- ar ekki á að skipa mörgum slíkum hugsjónamönnum, þó að ekki skorti þörfína. Sem betur fer em þó nokkr- ir til staðar og hugsjónamaðurinn blundar innra með enn fleirum. Bók Péturs á eflaust eftir að leysa úr læðingi hugsjónamanninn í mörg- um og gefa öðmm kraft til að fylgja því sem sannast býr innra með þeim, þó svo það gangi í berhögg við gildis- mat ríkjandi kerfis. Sigrún Þorsteinsdóttir brRuíi MULTIPRACTIC HVAÐ JAFNAST ÁVIÐ ÞESSA VÉL? TOLUUEKKUN STRAX! Verð frð kr. 5.150,- V erslunin PFAFF Borgartúni 20 og Kringlunni og betri raftækja- salar um land allt t *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.