Morgunblaðið - 22.12.1987, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987.
67
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Tekju-
skatturinn
er óþarfur
Omælt tjón
vegna friðunar
Til Velvakanda.
Að undanfömu hefur verið fjallað
um tjón sem hvalir hafa valdið á
veiðarfærum loðnusjómanna og er
álitið að þar sé um hnúfubak að
ræða sem friðaður hefur verið und-
anfama áratugi. Þannig er hvalfrið-
unin farin að koma okkur
íslendingum í koll og mun þetta
vandamál segja til sín í síauknum
mæli á næstu ámm. Selurinn hefur
að vísu ekki verið friðaður ennþá,
en ekki er að vita nema hvalfriðun-
armenn snúi sér að honum næst.
Selnum hefur þegar fjölgað gífur-
lega og veldur hahn þjóðarbúinu
ómældu tjóni. Meðan fiskimenn
verða að sætta sig við að þurfa að
takmarka aflamark sitt étur selur-
inn hundmð þúsundir tonna af fiski.
Eftir því sem selnum fjölgar eykst
þetta vandamál og hljóta allir að
gera sér ljóst að hér er um mikið
alvörumál að ræða. Við íslendingar
verðum að gera okkur far um að
vemda fiskistofna okkar fyrir þess-
um vágestum. Efnahagur okkur
hvílir nær eingöngu á fiskinum og
þess vegna verðum við að hafa
stjóm á þessum málum sjálfir og
megum ekki láta einhveija öfga-
hópa í útlöndum komast upp með
að stjóma málum hér. Ég tel að
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra hafí staðið vel að þessum
málum, en þó verið heldur linur við
hvalfriðunarmenn á stundum. Sum-
ir em að tala um að við komum til
með að tapa einhveijum mörkuðum
vestanhafs vegna þessa máls en
þeir mega þá fara. Það er meira
um vert að halda efnahagslegu
sjálfstæði þjóðarinnar og kemur
ekki til greina að fóma því fyrir
einhveija viðskiptahagsmuni.
Sjómaður
Til Velvakanda.
Skattakerfíð íslenska hefur
aldrei verið vinsælt og er það ekki
enn. Fyrir nokkmm ámm trúði ég
því að Sjálfstæðisflokkur og Al-
þýðuflokkur vildu afnema tekju-
skatt, sem er siðlaus vegna þess
að aðeins hálf þjóðin borgar hann.
Og of heimskulegur vegna þess
að hann dregur úr starfsgleði
manna og athöfnum. Ég trúði því
að þessir flokkar ætluðu sér að
gera nauðsynlega skattheimtu að
mestu að neyslusköttum, sem
auka sparnað og draga úr við-
skiptahalla og gjaldeyrissóun. Því
miður hefur verið horfíð frá þessu
í bráð og þess vegna er kurr í lið-
inu.
Auðvitað viljum við velferðar-
þjóðfélag, en það er ekki sama
hvemig menn em skattlagðir. Eins
og allir vita em tvær leiðir til að
koma asna í hús. Það er í eðli
hans að vera staður og þegar ill-
sterkir menn teyma hann og
draga, þá er sú athöfn öllum til
leiðinda, ekki síst asnanum sjálf-
um. Hin aðferðin er að veifa gulrót
og asninn hleypur á eftir henni í
hús, glaður og reifur. Ef dæma
má íslendinga eftir viðbrögðum
þeirra við Lottói og öðram gulrót-
um, þá er augljóst að ríkislottó
þar sem dregið væri um milljónir
daglega, gæfi ríkissjóði þúsundir
milljóna. Og tekjuskattur þar með
óþarfur.
Þeir sem em vantrúaðir á þessa
leið, mættu kynna sér reynslu
annarra ónefnda þjóða, sem beitt
hafa gulrótaraðferðinni með góð-
um árangri.
Kristinn Gíslason
tElE^uiOFNAR
örbylgwO r
göslasph-vélAR
4
Yíkverji
IBandaríkjunum hafa verið um-
ræður um - og jafnvel settar
reglur um - að sekta flugfélög
vegna seinkana. Seinkanir hafa
verið algengar hjá Flugleiðum,
raunar í þeim mæli, að svo virðist
sem starfsfólki félagsins þyki það
sjálfsagt og ekki umtalsvert.
Víkveiji þurfti nokkmm sinnum að
hafa samband við skrifstofu félags-
ins á Keflavíkurflugvelli um helgina
vegna seinkana á flugvélum. Svörin
vom með þeim hætti, að starfsfólki
þótti bersýnilega ekki ástæða til að
gefa nokkra skýringu á 3-4 tíma
seinkun á komutíma flugvélar. Þeg-
ar spurt var fór ekki á milli mála,
að viðkomandi þótti þetta tilefnis-
lausar spumingar.
Nú er auðvitað ljóst, að seinkan-
ir á flugi geta átt sér eðlilegar
orsakir ekki sízt á þessum árstíma,
þegar vont veður getur verið á ein-
hveijum áfangastað og komið í veg
fyrir lendingu eða flugtak. En það
skrifar
mundi ekki skaða þetta flugfélag á
nokkum hátt, þótt tekin yrði upp
annars konar upplýsingamiðlun um
komutíma flugvéla og seinkanir en
nú virðist tíðkast. Það er meira að
segja hægt að lesa slíkar upplýsing-
ar inn á símsvara, svo að starfsfólk
þurfí ekki að gefa sömu svörin aft-
ur og aftur.
XXX
Stofnun samtaka gegn hávaða
hefur vakið vemlega athygli.
Tæpast leikur nokkur vafí á því,
að nýju útvarpsstöðvamar em að
nokkm leyti kveikjan að stofnun
þessara samtaka, þótt fleira komi
til. Þessi Víkveiji hefur orðið fyrir
miklum vonbrigðum með nýju út-
varpsstöðina Ljósvakann. í þau fáu
skipti - að vísu - sem opnað hefur
verið fyrir þá útvarpsstöð hefur
ekki borið á því, að þar væri flutt
tónlist sem væri mjög frábmgðin
þvf, sem algengast er á Bylgjunni,
Stjömunni og Rás 2. Hvað eftir
annað hefur Víkveiji komizt að
þeirri niðurstöðu, að bezta tónlistin
væri í kristilegu útvarpsstöðinni.
XXX
Eitt af því, sem Víkveija kom á
óvart, þegar komið var i nýju
flugstöðina snemma að morgni um
helgina var það, að veitingastofan,
sem er nýopnuð í flugstöðinni var
ekki opin um kl. 7.30 að morgni.
Hvað veldur? Á þessum tíma er
töluverð umferð um flugstöðina
vegna komu flugvéla frá Banda-
ríkjunum og brottfara til Evrópu.
Það er auðvitað sjálfsögð þjónusta,
að veitingastofa á þessum stað opni
snemma.
300 Chrysler-bílar seldir
Bjarni Eiríksson veitti nýlega
viðtöku þrjúhundraðasta Chrysl-
er-bilnum sem Jöfur hf. seldi á
þessu ári. Á myndinni sést Jó-
hann Halldórsson (t.v.), sölustjóri
Chrysler bifreiða, afhenda
Bjarna lyklana að bílnum sem
er af gerðinni Plymouth Reliant.
Markaðshlutdeild Chrysler i sölu
nýrra bíla hér á landi hefur auk-
ist úr 0,33% í u.þ.b. 2,0% á þessu
ári og er nú hvergi meiri I heim-
inum, að Bandaríkjunum frátöld-
um, segir í frétt frá fyrirtækinu.
Heildsölubirgðir Sími: 91 - 673350
AKjJVIA.IV Ö 14.1 IV
☆
RAMMISLEIVSKIR
J ÓLiAS VEIIY AR
Ijitprentaðar myndir til skreytinga
og skemmtunar fyrir börnin.
UTSðUINTitDlil: Bókaverslanír - RammagerAin - Kaupfélögin.