Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988 3 Þriggja ára telpa fyrir bíl ÞRIGGJA ára telpa slasaðist töluvert þegar hún varð fyrir bifreið á Skúlagötu um kl. 21.15 á sunnudagskvöld. Hún er þó ekki talin i lífshættu. Telpan var í bifreið, sem lagt var í stæði norðan við götuna. Þegar hún steig út úr bifreiðinni tók hún á rás út á götuna og varð fyrir bifreið, sem var ekið vestur Skúlagötu. Hún hlaut höfuðáverka og skaddaðist á mjaðmagrind. í fyrstu virtust meiðsli hennar mjög alvarleg, en í gær var hún komin til meðvitundar og er nú á bata- vegi. Ásþór RE 10 seld- ur til Grindavíkur Gríndavfk. GRANDI hf. hefur selt Þorbirni hf. í Grindavík togarann Ásþór RE 10. Gengið var frá kaupunum sl. föstudag og verður Asþór afhentur nýjum eigendum eftir tvær vikur. Að sögn Eiríks Tómassonar, breyta Snorra Sturlusyni RE í Frá slysstað á Skúlagötu á sunnudagskvöld. Morgunblaðið/Júlíus • + Hver Islendingur hefur rúma 40 fermetra til búsetu HVER íslendingur hefur 40,7 fermetra af íbúðarfleti til bú- setu samkvæmt skrá Fasteigna- mats ríkisins yfir fasteignir á íslandi. Með sameign fjölbýlis- húsa er íbúðarflötur á hvern íslending um það bil 45 fermetr- ar. Fjöldi fokheldra og full- gerðra íbúða samkvæmt upplýs- ingum úr seinustu fasteigna- skrá var 86.547 íbúðir, þar af voru 46.824 ibúðir í fjölbýlis- húsum og 39.723 einbýlishús. Meðalstærð íbúða hér á landi er 116 fermetrar, fjölbýlishúsa 86 fermetrar og einbýlishúsa 151 fer- metri, að því er fram kemur í fréttabréfi Fasteignamats ríkisins. í stærðarútreikningum Fasteigna- matsins er ekki tekið tillit til sam- eignar. Að meðaltali eru í hverri >búð 4,21 herbergi og að jafnaði hafa hveijir þúsund íbúar 350 íbúðir til umráða. Minnsta meðal- stærð íbúða er í Reykjavík, 103 fermetrar, en mesta meðalstærðin er í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, 133 fermetrar. Af upplýsingum úr skrá Fast- eignamats ríkisins má meðal ann- ars sjá hversu íbúðarhúsnæði á íslandi er nýtt. Ef litið er á tölur fyrir landið allt þá hefur nýbygg- ingum fjölgað svo til stöðugt á hverju tímabili frá upphafi aldar- innar fram á þennan áratug. Frá upphafi þessa áratugar hefUr ný- byggingum fækkað nokkuð svo ætla má að jafnvægi sé að nást í þörfinni á nýbyggðu húsnæði, að því er segir í fréttabréfi Fasteigna- mats ríkisins. framkvæmdastjóra Þorbjarnar hf., eru þessi kaup gerð vegna strands Hrafns III GK 11 í síðasta mán- uði. „Togarinn Ásþór RE er 297 tonn að stærð,“ sagði Eiríkur. „Ásþór er á sóknarmarki, sem þýðir að hann má veiða 1.160 tonn af þorski og 1.700 tonn af karfa en veiðar hans á öðrum tegundum eru fijálsar. Við munum setja allan afla Ásþórs á fiskmarkað eins og við gerum nú þegar með aflann af hinum bátunum okkar, en hug- myndin er samt að nýta aflann sem mest fyrir okkar vinnslu,“ sagði Eiríkur. Brynjólfur Bjamason, fram- kvæmdastjóri Granda hf., sagði að salan væri liður í endurnýjun og endurskipulagningu togaraflota fyrirtækisins. „Af sjö togurum fyr- irtækisins eru þrír orðnir eldri en 15 ára, þeir Ásþór RE, Snorri Stur- luson RE og Hjörleifur RE,“ sagði Brynjólfur. „Nú er Ásþór RE seld- ur, verið er að ganga frá samning- um við skipasmíðastöð um að frystitogara og líklega verður pólsk skipasmíðastöð fyrir valinu. En það er ennþá óráðið hvort Hjörleifur verður seldur eða endurnýjaður,“ sagði Brynjólfur. Kr. Ben. Skelver í Garði: Pillar og pakkar rækju frá Kanada Maðurvarð útivið Ólafsvík MAÐUR fannst látinn í útjaðri Ólafsvíkur á sunnudagskvöld. Talið er að hann hafi orðið úti aðfaranótt sunnudagsins, en þá fór hann fótgangandi frá Hellis- sandi til Ólafsvikur. Maðurinn var á dansleik á Hell- issandi á laugardagskvöld. Um kl. 3 um nóttina hélt hann fótgang- andi áleiðis til Ólafsvíkur, en á milli bæjanna em um 9 kílómetr- ar. Að sögn lögreglu er talið líklegt að hann hafi gengið utan vegar, því enginn varð var víð hann á leiðinni. Veður var hráslagalegt og gekk á með slydduéljum og var maðurinn illa búinn. Um hádegi á sunnudag var farið að leita hans og björgunarsveitir voru kallaðar út. Um kl. 19.30 á sunnudags- kvöld fannst hann látinn í útjaðri Ólafsvíkur og virðist sem hann hafí lagst fyrir utan vegar. Maðurinn hét Sigurlaugur Eg- ilsson, 35 ára gamall, til heimilis að Brautarholti 10 á Ólafsvík. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þijú böm á aldrinum 5 til 16 ára. FYRIRTÆKIÐ NASCO flutti inn fyrir skömmu 60 tonn af frystri rækju í skelinni frá Kanada. Rækjan verður pilluð í verksmiðju fyrirtækisins Skel- vers í Garði og síðan seld í Evr- ópu. Rækjan kom frá Kanada með danska skipinu Helenu, sem tók héðan rækju af grænlenzkum rækjutogara og flutti til Dan- merkur. Egill Jónsson er fram- kvæmdastjóri NASCO. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að með kvótabindingu úthafs- rækjuveiða og kvóta á grunnsjáv- arrækju væri fyrirsjáanlegt að fyr- irtækið fengi ekki nóg af rækju til vinnslu. Því væri ekki um ann- að að ræða en flytja rækjuna inn. Talsverð veiði væri nú við Kanada og því mögulegt að fá rækju það- an. Þetta væri svokölluð iðnaðar- rækja, smá rækja, sem Kanada- menn seldu ópillaða, aðallega til Danmerkur, þar sem hún væri pilluð. Pillunarverksmiðjur virtust af skornum skammti vestra, en stóm rækjuna frystu þeir í skel- inni og seldu til Japans. „Við emm að þessu til að bæta reksturinn, halda stöðugri vinnu fyrir starfsfólkið og auka nýtingu fjárfestingar. Að auki ætlum við okkur einhvem hagnað út úr þessu og vonumst til að fá meira af rækju með þessum hætti til vinnslu," sagði Egill Jónsson. 0' INNLENT Dómur Borgardóms í máli Gróðrarstöðvarinnar Markar: Hefur engin áhrif á starf Skógræktarinnar - segja forsvarsmenn Skógræktar ríkisins og Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur „Við greiðum nú þegar í stofnlánadeild svo þetta hefur engin áhrif á okkar starf- semi,“ sagði Sigurður Blöndal forstöðumaður Skógræktar ríkisins er hann var inntur eftir hvaða áhrif dómur Borg: ardóms um að Gróðrarstöðinni Mörk beri að greiða sjóðagjöld af framleiðslu stöðvarinnar, hefði á starfsemi Skógræktar- innar. í sama streng tók Vil- hjálmur Sigtryggsson fram- kvæmdastjóri Skógræktarfé- Iags Reykjavíkur. Skógræktarfélagið greiðir sjóðagjöld af sinni sölu og sagði Vilhjálmur að frá þeim greiðslum hefði verið gengið fyrir áramót. „Dómurinn breytir því engu fyrir okkur. Við teljum það jafnvel betra að greiða þessi gjöld, þar sem við njótum ýmissa hlunninda í staðinn. Við fylgjum bændum, rétt eins og aðrir fylgja sínum stéttum og stéttarfélögum.“ „Samkvæmt reglugerð sem sett var um stofnlánadeild land- búnaðarins er skógrækt hluti . þess sem þarf að greiða gjöld af og við sóttum mjög fast að fá skógrækt viðurkennda sem lánshæfa. Það var nokkurt þóf milli okkar og stofnlánadeildar í þessu máli en það var þó gert upp fyrir áramót,“ sagði Sigurð- ur Blöndal. „Um tveir fimmtu hlutar okkar veltu eru eigin tekj- ur og þar af er plöntusala stærsti hlutinn. Á meðan reglugerðinni er ekki breytt og greiða þarf af skógræktarstarfi, m.a. plöntupp- eldi til skógræktar á lögbýlum, greiðum við það sem þarf.“ Páfi kemur til ís- lands í júní 1989 TILKYNNT hefur verið í Páfa- garði að Jóhannes Páll páfi II komi til íslands í fyrrihluta júnímánaðar 1989. í fyrstu var talið að páfi mundi hafa hér skamma viðdvöl, koma og fara sama dag, en nú er líklegt að hann gisti á íslandi eina nótt. Heimsókn páfa til Norðurlanda hafa nú verið valin einkunarorð úr Markúsarguðspjalli: „Préd- ikið fagnaðarerindið öllu mannkyni". Heimsókn Jóhannesar Páls páfa II til Norðurlanda var ákveð- in á síðasta ári. Hann mun að líkindum heimsækja Stokkhólm, Helsinki, Turku, Osló, Niðarós, Tromsö, Reykjavík og Kaup- mannahöfn. Hlutfallslega mun hann veija mestum tíma í Noregi. Í frétt frá undirbúningsnefnd heimsóknarinnar til íslands segir meðal annars að líklega vonist páfi til að geta hér haft sama hátt á og annars staðar á ferðum sínum, að taka annars vegar þátt í samkirkjulegri athöfn með kristnu fólki og hins vegar að syngja heilaga messu úti undir Jóhannes Páll páfi. berum himni. Staðarval hefur ekki verið ákveðið. Undirbúning af hálfu kaþólsku kirkjunnar á ís- landi annast rómversk-kaþólski biskupinn í Reykjavík, Alfreð Jol- son, ásamt undirbúningsnefnd.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.