Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988 37 ivinna anEB Eiður Guðnason ópubandalagslöndin gerðu hefðu í for með sér nýjar viðskiptahömlur í Evrópu. „Innan EFTA ættum við að leit- ast við að gera samhliða aðgerðir þeim, sem ákveðnar eru af aðild- arríkjum EB. EFTA hefur lykilhlut- verki að gegna á viðskiptasviðinu, en einnig í samvinnu Norðurland- anna ættum við að leitast við að hafa áhrif á þróunina í Evrópu," sagði viðskiptaráðherra. í þessu sambandi vildi hann sérstaklega nefna afnám viðskiptahindrana sem fælust í öðru en tollum en einnig atriði er sneru að umhverfisvernd, aðgerðir gegn mengun andrúmslofts og sjávar og loks aukna neytenda- vemd. Að lokum vék viðskiptaráðherra að samstarfsáætlun Norðurlandanna i)otni Miðjarðarhafs: rumkvæði leilunnar gensen umræður um það í hversu miklum mæli Norðurlandaráð eigi að vera vettvangur umræðna um utanrík- ismál. í ræðu sinni í gær sagði Anker Jergensen að átökin um herteknu svæðin mættu ekki halda áfram lengur. Ekki væru miklar líkur á því að Simon Peres, forsætisráðherra Davíð Oddsson fara með vandmeðfarin mál eins og þetta. Eg hefði kosið, að Jónatan hefði haft samband við mig eða með öðrum hætti kynnt sér þessar frá- sagnir, sem hann hefur haft eftir jafnóáreiðanlegum heimildum eins og reyndist í þessu falli, áður en hann fór að leggja út af þeim. í efnahagsmálum sem nú er í undir- búningi. Sagði hann íslendinga vilja leggja mikla áherslu á afnám við- skiptahafta — ekki síst hvað varðar verslun með fisk og fiskafurðir — og á bættar samgöngur ríkjanna þriggja sem byggðu vesturhluta Norðurlanda og annarra Norður- landaþjóða. Þetta kallaði á aukna ijárfestingu í samgöngumannvirkj- um innan ramma hinnar nýju norr- ænu samstarfsáætlunar, sem ætti að greiða okkur leið inn í framtíðina. Sjónvarpsefni fyrir börn Eiður Guðnason, formaður menn- ingarmálanefndar Norðurlandaráðs, sagði Norðurlöndin nú standa á mik- ilvægum tímamótum í samvinnu á sviði menningarmála. Lögð hefði verið fram ráðherratillaga um sam- starf á sviði menningarmála sem hefði verið undirbúin að frumkvæði menningarmálanefndarinnar. Eiður sagðist binda miklar vonir við þær breytingar sem væru ráðgerðar á Norræna menningarmálasjóðnum en ætlunin væri að auka framlög til hans verulega. Þessi sjóður væri mikilvægasta tækið sem Norðurl- öndin hefðu til þess að styrkja ýmis verkefni á menningarsviðinu. Hann sagðist þó hafa efasemdir um þær breytingar sem væru ráðgerðar á Tónlistarverðlaunum Norðurlandar- áðs en þær fela það m.a. í sér að auk þess að verðlauna tónskáld verð- ur hægt að verðlauna flytjendur tón- verka. Hvatti Eiður menningarmála- ráðherra til að hlýða vel á þá gagn- rýni sem kynni að koma fram í umræðum. Eiður sagði menningarmálasam- vinnuna hafa brugðist á einu sviði en það væri í samvinnu á sviði út- varps og sjónvarps. Þetta hefði leitt til þess að enska hefði styrkst mjög á Norðurlöndum og væri nú að verða tungumál unglinga og unglinga- menningarinnar. Sagði Eiður að nauðsynlegt væri nú þegar að auka samvinnu við framleiðslu á sjón- varpsefni fyrir börn og unglinga. Anker Jörgensen ísraels, og Arafat, yfirmaður PLO, myndu fallast á það að eiga sameig- inlegar viðræður. Anker sagðist vilja hvetja utanríkisráðherra Norður- landanna til þess að íhuga hvort ekki komi til greina að Norðurlöndin myndu sameiginlega taka frum- kvæðið að því að samningaviðræður hæfust á ný. Hann taldi það líklegt að bæði ísraelsmenn og Palestínu- menn bæru það mikla virðingu fyrir Norðurlöndunum að slíkt frumkvæði gæti haft jákvæð áhrif. Mikið væri rætt um að halda þyrfti alþjóðlega ráðstefnu til að leysa vandamál þessa heimshluta, en ekki væri hægt að líta fram hjá því að valdataflið í kringum slíka ráðstefnu gæti dregið það á langinn að viðunandi lausn fyndist og á meðan myndu átökin halda áfram. Því þyrfti að koma til norrænt frumkvæði. Nokkrir þingmenn gerðu athuga- semd við ræðu Ankers og töldu sum- ir að þetta væri ekki vettvangurinn til þess að ræða viðkvæm pólitísk deilumál af þessu tagi. Það gæti skaðað Norðurlandaráð. Þessu sjón- armiði var aðallega haldið á lofti af þingmönnum borgaralegu flokkanna en vinstri menn tóku upp hanskann fyrir Anker og sögðu það mikilvægt að þingmenn mættu tjá sig um öll mál. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁSGEIR SVERRISSON Þjóðernisvakning og þverstæður „glasnost“ ÞJÓÐERNISRÓSTURNAR i Sovétríkjunum að undanförnu varpa skýru ljósi á þverstæður í „glasnost“-stefnu Míkhails Gor- batsjovs. Verði pukrið, leyndarhyggjan og sjálfsblekkingin sem gegnsýrir stjórnkerfi kommúnista upprætt grefur það undan sjálfskipuðu valdi flokksins til að ráðskast að vild með lif alþýðu manna. Á hinn bóginn verður spillingu, stöðnun og skipulegum blekkingum tæpast úthýst án þess að rætt sé á opinskáan hátt um það sem úrskeiðis hefur farið í 70 ára sögu Sovétríkjanna. Rósturnar i Azerbajdzhan og Armeníu eru hugsanlega tilkomnar vegna rang- eða öllu heldur oftúlkunar á „glasnost“-stefnunni. Almenningur hefur vaknað til vitundar um rétt sinn og fullyrða sumir fréttaskýrendur að búast megi við frekara andófi viðs vegar um Sovétríkin grípi ráðamenn i Kreml ekki þegar í stað til aðgerða til að hefta þjóðernisvakninguna. Andóf þjóðarbrota er engan veginn áður óþekkt fyrir- brigði í Sovétríkjunum. Menn minnast ef til vill uppþota á síðasta ári í Alma-Ata, höfuðborg Kazakhstan, sem kostuðu einhver mannslíf og mótmæla Krím-tat- ara í Moskvu í ágústmánuði er þeir kröfðust þess að fá að snúa aftur til síns heima á Krímskaga. Andófsmenn hafa og boðað til mótmæla í Eystrasaltsríkjunum þremur, sem Sovétmenn innlim- uðu í krafti hervalds árið 1940, til að leggja áherslu á kröfur sínar um sjálfstæði og frelsi. Mótmælin í Armeníu og Az- erbajdzhan að undanfömu eiga rætur sínar að rekja til ársins 1923. Það ár sviptu kommúnistar Armena yfírráðum yfir landbún- aðarhéraði einu, sem heitir því óþjála nafni Nagomo-Karabakh, og innlimuðu það í sovétlýðveldið Azerbajdzhan. 120.000 Ármenar búa í héraðinu og telja þeir sig ofríki beitta. Mótmælin hófust er stjómvöld höfnuðu þeirri kröfu flokksmanna í Armeníu að hérað- ið yrði að nýju fengið Armenum. Fulltrúi miðstjórnarinnar vísaði henni á bug með þeim orðum að sameining þjónaði ekki „hags- munum verkamanna í lýðveldun- um tveimur". Boðað var til mót- mæla og verkfalla og herma frétt- ir að hundrað þúsunda manna hafi tekið þátt í mótmælum í Jere- van, höfuðborg Armeníu. Síðan hafa borist fréttir af átökum Arm- ena og Azerbajdzhana í borginni Sumgajt í Nagorno-Karabakh- héraði og mótmælum í borginni Kirovabad, sem er þar skammt frá. Sovéskir embættismenn hafa staðfest að 33 hafí fallið í átökun- um. Talsmenn Sovétstjómarinnar hafa skýrt ffá því að upphafsmenn mótmælanna hafi verið hand- teknir en ekki látið upp hversu margir þeir era. Hins vegar munu „fámennir hópar skrílmenna", eins og það heitir á máli sovéskra embættismanna, enn halda uppi andófí í Kirovobad. Fjölmiðlar birtu ákall frá Gor- batsjov Sovétleiðtoga þar sem hann bað alþýðu manna í Arm- eníu að sýna „samfélagslegan þroska" og stillingu en menn hundsuðu það í fyrstu. Þá var gripið til þess gamalkunna ráðs að heíja skipulega blekkingar- herferð. Tass-fféttastofan birti viðtal við verkamenn frá Armeníu og Azerbajdzhan þar sem þeir lýstu því hvemig þeir strituðu hlið við hlið í nafni þess háleita og helga markmiðs að uppfylla fram- leiðsluáætlun verksmiðjunnar, sem þeir starfa við í héraðinu umdeilda Nagomo-Karabakh. Enn á ný kom í ljós hvað „glasn- ost“ ristir enn grannt í Sovétríkj- unum. Mótmælunurh í Jerevan var haldið vandlega leyndum með þeim afleiðingum að sögusagnir og ýkjufréttir fengu byr undir báða vængi. Síðan hefur róstumar lægt í Jerevan enda mun Gorbatsjov hafa heitið að taka mál þetta til vinsamlegrar skoðunar. Áð sögn sjónarvotta í Jerevan héldu mót- mælendumir sumir hveijir á lofti spjöldum þar sem lýst var yfir stuðningi við umbótastefnu Gor- batsjovs. Aðrir bára myndir af honum um götur borgarinnar að gömlum og góðum sovéskum sið. Virðist þetta sýna að óánægjan beinist ekki að Gorbatsjov sjálfum heldur yfirþyrmandi valdi stjóm- kerfísins og skriffínnanna, sem aðalritarinn hefur sagt stríð á hendur í nafni umbótastefnunnar og kenningarinnar um nauðsyn „glasnost". Á Vesturlöndum á sú skoðun nokkra fylgi að fagna að lýðræð- isríkin geti lagt sitt af mörkum til að treysta Gorbatsjov í sessi og þannig stuðlað að áframhald- andi þróun í umbóttaátt í Sov- étríkjunum. Gorbatsjov er vissu- lega stórmerkilegur leiðtogi og má segja að alger umskipti hafí orðið á samskiptum austurs og vesturs frá því hann komst til valda. Óttast menn eðlilega að harðlínukommúnistum auðnist að bijótast til valda verði Gorbatsjov vikið frá. Þannig mun hafa ríkt um það almenn samstaða á leið- togafundi aðildarríkja Atlants- hafsbandalagsins í síðustu viku að „Gorbatsjov vilji í raun breyta stjómarháttum í Sovétríkjunum," eins og Þorsteinn Pálsson forsæt- isráðherra komst að orði í sam- tali við blaðamann Morgunblaðs- ins. I þessu efni er meðalvegurinn vandrataður. Fyrir leiðtogafund NATO í Brassel lýsti Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, því yfír að tími væri kom- inn til að bregðast af afli við áróð- ursherferð Sovétmanna á Vestur- löndum. Hins vegar brá svo við á blaðamannafundi sem boðað var til í Brassel að Thatcher bar sig saman við Gorbatsjov og sagði þau eiga það sameiginlegt að vera bæði umbótasinnar, sem mætt hefðu mótspymu á heimavelli en færa að lokum með sigur af hólmi. Full þörf virðist á því að freista þess að skilgreina nánar á hvaða „punkti" sjálfsagður og eðilegur stuðningur við Gorbatsjov og stefnu hans snýst upp í andhverfu sína og verður til þess að styrkja stöðu Kremlvetja í áróðursstríð- inu. Ef til vill þarf Gorbatsjov nú að skilgreina nánar umbótastefn- una og „glasnost" bæði fyrir sjálf- ■ um sér og almenningi eystra. Hvar liggja takmörk umbóta og umræðu? Freistandi svar virðist vera að mörkin liggi þar sem mið- stýringu og alræði flokksins er á einhvern hátt ógnað. Þá vaknar sú spuming hvort Gorbatsjov hafí raun tekist að breyta nokkra umfram það að hafa vakið þegna sína til umhugsunar um hið dap- urlega ástand sem ríkir í innanrík- ismálum Sovétríkjanna. Gorbatsjov er nú vandi á hönd- um. Svo virðist sem hann eigi um tvo kosti að velja og báða slæma. Beiji hann mótmæli Armena niður fellur blettur á umbótaímyndina í Sovétríkjunum og ekki síst á Vesturlöndum. Gangi hann hins vegar á einhvem hátt til móts við kröfúr Armena má búast við því að þjóðarbrot víðs vegar um Sov- étríkin rísi upp með ófyrirsjáan- legum afleiðingum ekki síst fyrir Gorbatsjov sjálfan og umbóta- stefnu hans. Mynd þessa af mótmælum á Lenín-torgi í Jerevan, höfuðborg Armeniu, tók finnskur ferðamaður í endaðan febrúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.