Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988 „Átti ekki von á því að vinna“ - segir Martha Jörundsdóttir fsafirði. „ÞETTA var alveg æðislega gaman,“ sagði Martha Jörunds- dóttir, 18 ára menntaskólanemi, sem kjörin var Ungfrú Vestfirðir á Uppsölum á laugardaginn. „Ég átti alls ekki von á að vinna en auðvitað var það ofsalega gam- an.“ Auk Mörthu var Anna Lind Ragnarsdóttir, menntaskólanemi úr Súðavík, kjörin vinsælasta stúlkan í keppninni af keppend- um sjálfum. Martha er dóttir Jörundar Sig- tryggssonar, skipstjóra, og Helgu Sigurgeirsdóttur, hjúkrunarfræð- ings, á ísafirði. Hún hefur stundað sund með sunddeild Vestra í átta ár og er meðal íslandsmeistara fé- lagsins. Hún er nú að hefja störf sem þjálfari hjá liðinu með skólan- um, en hyggur á íþróttanám að loknu stúdentsprófi. Martha sagði að undirbúningur keppninnar hefði verið mjög skemmtilegur, samstarfið gott og vináttusamband skapast. Vildi hún koma á framfæri þökkum til stúlkn- anna, en þó sérstaklega til Dagnýj- ar Bjarkar Pétursdóttur, sem sá um undirbúning og þjálfun. Martha sagði að hún hefði verið hreint æðislega fjörug og skemmtileg. Þegar hún var spurð hvað hefði verið eftirminnilegast við keppnina svaraði hún að það hefði verið stemningin baksviðs. „Það var ofsa- legt fjör og allir svo jákvæðir og skemmtilegir." Dómarar keppninnar voru Ólafur Laufdal, forstjóri úr Reykjavík, Magnea Magnúsdóttir, sem var í öðru sæti í fegurðarsamkeppni ís- lands í fyrra, Friðþjófur Helgason, ljósmyndari, Hrafnhildur Arnar- dóttir, sem kjörin var vinsælasta stúlka keppninnar í fyrra og Ungfrú Vestfirðir 1987, Bergrós Kjartans- dóttir. Úlfar Morgunblaðið/Gísli Úlfarsson Martha Jörundsdóttir, Ungfrú Vestfirðir 1988, er hér krýnd af Berg- rósu Kjartansdóttur, sem var kjörin Ungfrú Vestfirðir j fyrra. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fjóla Grétarsdóttir krýnir Sigrúnu Ágústsdóttur fegurðardrottningu Suðurlands 1988. „Finnst vænst um gömlu kallana mína á deildinnia — segir Sigrún Agústsdóttir, sjúkraliði Sigrún kvaðst hafa gaman af að Selfossi. SIGRÚN Ágústsdóttir 20 ára sjúkraliði frá Vestmannaeyjum var valin fegurðardrottning Suð- urlands á Hótel Ork síðastliðið laugardagskvöld. Hún var valin úr hópi sjö stúlkna sem kepptu til úrslita um þetta sæmdarheiti. Sigrún mun taka þátt í fegurð- arsamkeppni íslands i mars. Linda Hrönn Ævarsdóttir frá Vestmannaeyjum var valin ijós- myndafyrirsæta Suðurlands og vin- sælasta stúlkan í hópi keppenda var valin Anna Berglind Júlíusdóttir frá Þorlákshöfn. Það var Fjóla Grétars- dóttir fegurðardrottning Suður- lands 1987 sem krýndi Sigrúnu Ágústsdóttur þegar kjörið hafði verið kynnt. Sigrún Ágústsdóttir er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og starf- ar á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja sem sjúkraliði. Foreldrar hennar eru Ágúst Þórarinsson og Guðrún Ingi- bergsdóttir. Hún á tvær systur 17 og 8 ára. „Ég fer beint í vinnuna þegar þetta er búið. Þar er ég á mjög fjöl- breyttri og skemmtilegri deild og held að sjúklingarnir taki vel á móti mér. Mér fínnst vænst um gömlu kallana mína þar á deild- inni,“ sagði Sigrún og einnig að það hefði verið fyrir ævintýramennsku að hún fór út í keppnina fyrst en í sumar var hún valin sumarstúlka Vestmannaeyja. vera innan um margt fólk og sagði að sig langaði helst að vinna á mannmörgum vinnustað. Um helg- ar vinnur hún á skemmtistað í Vest- mannaeyjum. Einnig sagði hún það krydda tilveruna að fara út í Elliða- ' ey með föðúr sínum og smala kind- um. „Ég er fædd og uppalin í Vest- mannaeyjum og líkar vel að búa þar. Vestmanneyingar eru mjög. samstæðir, þar þekkir maður alla og gaman að eiga þar heima. Mað- ur er aldrei einn í Eyjum,“ sagði Sigrún og ennfremur: „Þetta hefur verið skemmtilegur tími þó erfitt ” sé að standa sig í líkamsrækt og megrun. Það hefur verið gaman að vera með stelpunum, við erum alla^t góðar vinkonur og munum hittast aftur.“ Sig. Jóns. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra: Treystum sambönd milli Norður- landaráðs og Evrópubandalagsins Hér birtist ræða Jóns Sigurðs- sonar, dóms- og viðskiptamála- ráðherra, í almennum umræðum á 36. þingi Norðurlandaráðs 7. mars 1988: Það er mér mikil ánægja að sitja í fyrsta sinn þing Norðurlandaráðs. Á þessu þingi leggur ráðherra- nefndin fram til endanlegrar af- greiðslu áætlun um aukið umferðar- öryggi á Norðurlöndum. Það er að vísu tilviljun en ekki af ásetningi að ný umferðarlög taka tildi á ís- landi einmitt þessa dagana, og verð- ur þeim fylgt eftir með þjóðarátaki um bætt umferðaröryggi. Umferðin er snar þáttur daglegs lífs á Norð- urlöndum, sem við getum gert ör- uggari með samvinnu og miðlun upplýsinga um reynslu hver hjá sér. Þetta er sannarlega verðugt viðfangsefni norrænnar samvinnu. Ég hef um margra ára skeið haft tækifæri til að fylgjast með starfí Norðurlandaráðs frá sjónar- hóli Norræna fjárfestingarbankans, þar sem ég hef setið í stjóm frá stofnun bankans árið 1976. Það eru engar ýkjur að segja, að Norræni fjárfestingarbankinn sé lýsandi dæmi um árangur norrænnar sam- vinnu. Starfsemi bankans hefur vaxið ört og fjárhagsleg staða hans hefir eflst svo mikið að þrátt fyrir fyrsta tap bankans á síðasta ári af lánveitingu, hefur það ekki teljandi áhrif á stöðu hans eða lánstraust. í samræmi við upphaflegan tilgang bankans hefur hann varið megin- hluta af ráðstöfunarfé sínu til íjár- festingarlána innan Norðurlanda. Skömmu eftir stofnun bankans ákvað Norðurlandaráð, að bankinn skyldi einnig veita svokölluð „fram- kvæmdalán“, þ.e.a.s. lán til fram- kvæmda utan Norðurlanda þar sem aðilar í fleiri en einu ríkjanna hefðu hagsmuna að gæta. Þessi starfsemi hefur einnig aukist að umfangi og hún hefur komið mörgum norræn- um fyrirtækjum að gagni við koma á viðskiptasamböndum í þróun- arríkjum og ríkjum með miðstýrðan áætlunarbúskap. Þetta er ekki auð- velt verkefni og enn verður varla sagt að sá árangur sem náðst hefur svari að fullu til þess kostnaðar og fyrirhafnar sem í hefur verið lagt. Á þessu þingi hefur verið lögð fram tillaga um stofnun norræns þróunarsjóðs í þeim tilgangi að styrkja efnahag þróunarlanda og auka viðskipti Norðurlanda við þau. Ríkisstjórn íslands hefur ákveðið, að Island verði aðili að sjóðnum, •enda þótt ætla megi að hann hafi minni þýðingu fyrir hagsmuni ís- lands en annarra Norðurlanda. Þró- unarsjóðinn á að reka í tengslum við Norræna fjárfestingarbankann, en hann verður þó sjálfstæð stofn- un. Ég tel þetta skynsamlegt fyrir- komulag. En um leið og starfsemi Norræna fjárfestingarbankans vex og teygir sig inn á fleiri svið og til fleiri ríkja, mega menn ekki missa sjónar af meginmarkmiðinu með stofnun bankans, sem er að efla efnahags- samvinnu milli ríkja Norðurlanda. Þótt .bankinn takist á hendur ný verkefni, má það ekki verða á kostnað meginmarkmiðs hans. Norræn samvinna á ekki ein- gö'ngu að vera innhverf — inn- byrðis milli Norðurlanda — hún á einnig að beinast að hinu alþjóðlega umhverfí. Ágætt dæmi um þessa samvinnu, sem án efa hefur styrkt stöðu Norðurlandanna á alþjóða- Jón Sigurðsson vettvangi, er samstaða þeirra og sameiginlegir fulltrúar í stjóm Al- þjóðabankans og alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Á viðskiptasviðinu hefur sam- vinna Norðurlanda innan EFTA verið sérstaklega árangursrík. Inn- ' an EFTA var komið á fríverslun, sem varð reyndar mun víðtækari en Norðurlöndin höfðu náð sam- komulagi um sín á milli í langvar- andi samningaviðræðum á sjötta áratugnum. Jafnvel þótt Danir hafi á sínum tíma gengið úr EFTA er það enn mikilvægasti vettvangurinn fyrir norræna viðskiptasamvinnu. Af ís- lendinga hálfu er lögð áhersla á það, að fríverslun með allar sjávar- afurðir innan EFTA sé mikilvægt skref til þess að útvíkka fríverslun- ina eftir margra ára kyrrstöðu. Aðild Danmerkur að Evrópu- bandalaginu hefur ekki veikt nor- ræna samvinnu, heldur hefur aðild- in fremur auðveldað samvinnu ann- arra Norðurlanda við bandalagið. Það er oft haft á orði og það með réttu, að Danmörk hafi hlutverki að gegna í því að byggja brú milli Norðurlandanna og EB. Það er svo annað mál, hvort yfir þá brú verður nokkru sinni „gengið í bandalagið". Vangaveltur um ný aðildarríki EB eru tæpast tímabærar nú, þar eð bandalagið virðist hvorki hafa tíma né áhuga til viðræðna um aðild fleiri ríkja meðan núverandi aðildarríki eru upptekin við að koma á svokölluðum „innri markaði" fyrir árslok 1992. Með þessu er ég þó ekki að gefa í skyn að við ættum að sýna þróun mála innan bandalagsins tómlæti. Þvert á móti tel ég það mjög mikil- vægt, að við leitumst við að treysta sambönd milli Norðurlanda og EB í því skyni að koma í veg fyrir að þær ráðstafanir til markaðssam- runa sem Evrópubandalagslöndin gera hafi í för með sér nýjar við- skiptahömlur í Evrópu. Innan EFTA ætlum við að leitast við að gera samhliða aðgerðir þeim, sem ákveðnar eru af aðildarríkjum EB. EFTA hefur lykilhlutverki að gegna á viðskiptasviðinu, en einnig í samvinnu Norðurlanda ættum við að leitast við að hafa áhrif á þróun- ina innan V-Evrópu. í þessu sam- bandi vil ég sérstaklega nefna af- nám viðskiptaþröskulda, sem felast í öðru en tollum. Ég vil líka minn- ast á atriði, er snúa að umhverfis- vernd, aðgerðir gegn mengun and- rúmslofts og sjávar, og loks vil ég nefna aukna neytendavernd. Norræn efnahagssamvinna verð- ur á næstu árum að taka sífellt meira mið af þróuninni innan EB. Við verðum að fylgjast mjög vel með þessari þróun og reyna að laga okkur eins og mögulegt er að breyttum aðstæðum. Sé þessa gætt ætti þróunin innan EB ekki að hafa í för með sér neina sérstaka hættu — þvert á móti ætti hún að hvetja okkur til þess að grípa til þeirr;^— efnahagsráðstafana, semeflamun* þjóðarhag þeirra Norðurlandaríkja, sem nú eru utan Evrópubandalags- ins. Fjármálaráðherrar Norðurlanda ákváðu á fundi sínum í júní sl. að heija undirbúning nýrrar sam- starfsáætlunar í efnahagsmálum. Þessi nýja áætlun mun byggð á framhaldi fyrri áætlunar fyrir árin 1986—1989 og er gert ráð fyrir að henni verði hrundið í framkvæmd árin 1990-1992. Megintilgangur nýju áætlunar- innar er að styrkja efnahag Norður- landa og aukna samkeppnishæfni þeirra í alþjóðaviðskiptum. M.a. er stefnt að því að búa Norðurlönd undir gildistöku „innra markaðar- ins“ í ríkjum Evrópubandalagsins. Meginmunurinn milli hinnar nýju samstarfsáætlunar og þeirrar fyrri á að vera aukin áhersla á langtíma- markmið fremur en verkefni til skamms tíma. Ríkisstjórn íslands fagnar hinni nýju samstarfsáætlun og fylgir ein- dregið þeirri áherslubreytingu sem áætlunin verður byggð á. Við viljum í því sambandi leggja mikla áherslu á afnám viðskipta- hafta — ekki síst hvað varðar versl- un með fisk og fiskafurðir — og á bættar samgöngur innan og milli ríkja þjóðanna þriggja, sem byggja vesturhluta Norðurlanda og ann- arra Norðurlandaþjóða. Þetta kallar á aukna fjárfestingu í samgöngu- mannvirkjum innan ramma hinnar nýju norrænu samstarfsáætlunar, sem á að greiða okkur leið inn .í framtíðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.