Morgunblaðið - 08.03.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
Yfirlýsing frá Heilsulínunni:
Hárrækt með leysigeisla
á að vera sársaukalaus
í dagblöðum hefur mátt sjá að
undanförnu fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu Okurgeislanum. Þar
segir að eigendurnir selji gervinegl-
ur en séu sérmenntaðar frá Hol-
landi í hárvanda. í fréttatímum
Stjömunnar hefur fyrirtækið einnig
verið kynnt. í því tilfelli er margí-
trekað að fréttamaður hafi lent í
mjög sársaukafullri geislameðferð
hjá þeim Hollandsmenntuðu.
Vegna þessa óskar hárræktar-
þjónustan Heilsulínan, Laugavegi
92, eftir að koma á framfæri eftir-
farandi yfirlýsingu:
Leysigeislameðferð við hár-
vandamálum á og verður að vera
sársaukalaus. Ef sársauki fylgir
meðferðinni er það einungis vegna
rangra vinnubragða. Og það hvorki
deyfir sársaukann né bætir skaðann
að slá um sig með heimatilbúnum
(fölsuðum) skírteinum sem eiga að
sanna sérfræðinám frá Hollandi.
Sannleikurinn er sá að eigendur
Okurgeislans hafa enga aðra
menntun né starfsreynslu í hár-
vanda en þá sem þeim auðnaðist á
stuttum tíma hjá Heilsulínunni. Því
miður náðu þær ekki réttum tökum
á hárræktinni þannig að við hjá
Heilsulínunni gátum ekki boðið við-
skiptavinum okkar upp á þeirra
vinnubrögð. Við þurftum síðan að
gefa nokkrum viðskiptavinum fría
tíma til að bæta fyrir árangurslitla
en sársaukafulla tíma hjá þeim
stöllum. Nokkrir viðskiptavinir til
viðbótar þorðu ekki að koma í fleiri
tíma eftir sársaukafullan fyrsta
tíma. Og núna eftir að sársauka-
fullri meðferð þeirra hefur verið
margútvarpað í Stjömunni ogþann-
ig meðferð réttlætt með upplognu
sérfræðinámi frá Hollandi sjáum
við hjá Heilsulínunni okkar nauð-
beygðar til að gefa þessa yfirlýs-
ingu svo taka megi af allan vafa
um að þjónusta þessara tveggja
hárræktarfyrirtækja sé sambæri-
leg.
Meginmunurinn liggur í því að
hárrækt Heilsulínunnar, Laugavegi
92 er með öllu sársaukalaus. Til
viðbótar er tíminn (45—50 mín.)
hjá Heilsulínunni 890 kr. (6 tímar
rúmar 5 þús. kr. á móti tæpum 8
þús. kr. Okurgeislans). Heilsulínan
þarf heldur ekki á fölsuðum
skírteinum og smygluðum tækjum
að halda. Hjá Heilsulínunni talar
árangurinn einn til vitnisburðar um
vinnubrögðin.
F.h. Heilsulínunnar,
Sigurlaug Willianis
Eldri Kópa-
vogsbúum
boðið á
skemmtikvöld
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Kópavogi gangast fyrir árlegu
skemmtikvöldi fyrir eldri borg-
arbúa Kópavogs í kvöld, þriðju-
daginn 8. mars.
I kvöld verður opið hús þar sem
stjórnir félaganna koma með
heimabakaðar tertur, smurt brauð
og kökur með kaffinu. Bingó verður
spilað, sungið og dansað við undir-
leik Jóns Sigurðssonar og Trausta
Jónssonar sem leika á harmonikku
og trommur.
Hross fyrir bíl
I Hafnarfirði
LÖGREGLAN í Hafnarfirði varð
að aflífa hross eftir að það hafði
orðið fyrir bíl á Kaldárselsvegi
á föstudagskvöldið.
Að sögn lögreglunnar er ekki
ljóst með hvaða hætti slysið varð
en líklega mun hesturinn hafa
hlaupið út undan sér og fyrir bílinn.
Ökumaður bílsins og knapinn
sluppu ómeiddir. Bíllinn skemmdist
mikið.
Leiðrétting
I frétt blaðsins sl. sunnudag af
ásókn í sólarlandaferðir misritaðist
nafn Björns Ingólfssonar fjármála-
stjóra ferðaskrifstofunnar Urvals.
Var hann nefndur Éarl Ingólfsson
en heitir Björn Ingólfsson eins og
áður segir. Biður blaðið hlutaðeig-
andi velvirðingar á þessum mistök-
um.
UÓSRITUNARVÉLAR
MAZDA 626
JIEIMSINS BESTIBILL!!
—
• .
--------------------------i
Nú eru aðeins nokkrir mánuðir
síðan hinn nýi MAZDA 626
kom á markaðinn og erekki of-
sögum sagt að fáir nýir bílar
hafi fengið eins lofsamlegar
umsagnir og viðurkenningar
og hann. Hér eru nokkrar:
auto
motor
* Kjörinn„HEIMSINS BESTI
BÍLL“ af lesendum „AUTO
MOTOR UND SP0RT“
Nú 5. árið í röð kusu lesendur
þessa virta þýska bílatímarits
MAZDA 626 „HEIMSINS
BESTA BÍL“ í millistærðar-
flokki ínnfluttra bíla. Á annað
hundrað þúsund kröfuharðir
Þjóðverjar tóku þátt í þessari
árlegu kosningu og sigraði
MAZDA 626 með yfirburðum í
sínum flokki.
Blaðamenn AUTO M0T0R
UND SPORT höfðu áður gert
samanburðarprófun á 5 vin-
sælum bílum í millistærðar-
flokki á þýskum markaði. Úr-
slit urðu:
1. MflZDfl 626 GLX
2. Audi 80 1.9E
3. Ford Sierra 2.0i GL
4. Peugeot 405 SRi
5. Renault 21 GTX
„Sögulegur viðburöur" sagði
Auto Motor und Sport, því
þetta er í fyrsta skiptið, sem
japanskur bíll vinnur slíka
samanburðarprófun.
nuto
ZEITUNG
EUROPfl POKflL
Árlega efnir þýska bílatímarit-
ið „AUTO ZEITUNG" til sam-
keppni um „Evrópubikarinn".
Til keppninnar þetta ár voru
valdar 12 gerðir bíla, sem
kepptu í 3 riðlum. í dómnefnd-
inni voru 8 bílagagnrýnendur
og gefa þeir stig fyrir samtals
60 atriði. Úrslit urðu:
1. BMW318Í
2. MAZDA 626 GLX
3/4. Audi 80
3/4. Peugeot405
5/6. Opel Ascona
5/6. Volkswagen Passat
7. Renault 21
8. Mercedens Benz 190
9/10. HondaAccord
9/10. Mitsubishi Galant
11. Ford Sierra
12. Citroen BX
Munurinn á stigum BMW
318i, sem er dýrari bíll, og
MAZDA 626 var þó vart mark-
tækur því að hann var innan
við þriðjungur úr prósentu-
stigi!
freie
fahrt
KLUBJOURNALDESARBÖ
1. gullverðlaun
hjá FREIE FAHRT
MAZDA 626 hlaut 1. gullverð-
laun í samkeppni, sem fram
fer árlega á vegum „FREIE
FAHRT“ sem er gefið út af fé-
lagi bifreiðaeigenda í Austur-
ríki. í dómnefndinni voru 43
einstaklingar, þar á meðal
hinn heimsfrægi kappaksturs-
maður Niki Lauda, en að auki
höfðu lesendur blaðsins at-
kvæðisrétt. 9 bilar kepptu í ár:
MAZDA 626, Toyota Corolla,
Honda Prelude, Honda Civic,
Daihatsu Charade, Opel Sena-
tor, Peugeot 405, Citroen AX
og Rover825. MAZDA626sigr-
aði keppinauta sína með mikl-
um yfirburðum og má geta
þess að þetta er í fyrsta skipt-
ið, sem japanskur bíll hlýtur
þessi eftirsóttu verðlaun!
Fyrstu 3 sætin skipuðu:
1. MflZDfl 626
2. Peugeot405
3. Citroen AX
Mikið hrós ekki satt? En
MAZDA 626 á það skilið! Því
ekki að kynnast MAZDA 626 af
eigin raun? Við bjóðum ykkur
að koma og skoða þennan frá-
bæra bíl. Verðið mun svo koma
ykkur þægilega á óvart, það er
frá aðeins710 þús. krónum.
(Gengisskr. 04.03 88 stgr.verð Sedan 1.8L
5 gíra m/vökvast.)
Opið laugardaga frá kl. 1-5
ÐILAÐORG HF.
FOSSHALSI 1. S 68 12 99.