Morgunblaðið - 08.03.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ1988
45
Bara staðreyndimar, frú
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
„Dragnet". Sýnd í Laugarásbíói.
Bandarísk. Leikstjóri: Tom
Mankiewicz. Handrit: Dan
Aykroyd, Alan Zweibel og Tom
Mankiewicz. Framleiðendur:
David Permut og Robert K.
Weiss. Kvikmyndataka: Matthew
F. Leonetti. Tónlist: Ira New-
born. Helstu hlutverk: Dan
Aykroyd, Tom Hanks, Christop-
her Plummer og Dabney Cole-
man.
Joe Friday (Dan Aykroyd) er
rannsóknarlögreglumaður í Los
Angeles, algerlega fullkominn emb-
ættismaður borgarinnar. Hann er
líka algerlega fullkomin tíma-
skekkja. Frændi hans, alnafni og
heilög fyrirmynd var uppá sitt besta
á hinum reglusömu tímum sjötta
áratugarins þegar menn tóku til á
skrifborðinu sínu. En þessi Joe
Friday lifír í hinni kolrugluðu popp-
menningu samtímans og hún fer
hryllilega í taugamar á honum.
Joe er aðalpersónan í gaman-
myndinni „Dragnet", sem sýnd er
í Laugarásbíói, og grínarinn Dan
Aykroyd, sjálfur afsprengi popp-
menningarinnar, leikur hann sér-
lega skemmtilega af steinrunninni
alvöru sem maður tengir annars
ekki við hinn galsafengna Aykroyd.
Hann nýtur þess greinilega að spila
svolítið á stífni og formfestu og
hittir á rétta strengi.
„Dragnet" voru vinsælir lög-
regluþættir i Bandaríkjunum á
sjötta áratugnum og Aykroyd virð-
ist hafa tileinkað sér alla helstu
takta og tiktúrur aðalpersónunnar
í þeim. Handritshöfundamir Aykro-
yd, Zweibel og Mankiewicz eiga það
sameiginlegt, fyrir utan að bera
Bensín-
stöðvar
loka kl. 20
BREYTTUR opnunartími á
bensínstöðvum I Reykjavík, á
Seltjarnarnesi, í Mosfellssveit,
Kópavogi, Garðabæ og Hafnar-
firði tók gildi i gær.
Astæða fyrir breyttum opnun-
artíma er nýgerður samningur
vinnuveitenda við verkamannfé-
lagið Dagsbrún og verkamannafé-
lagið Hlíf, er varðar bensínaf-
greiðslumenn. Samningurinn felur
í sér styttingu á opnunartíma
benstínstöðvanna, þannig að fram-
vegis verður lokað kl. 20.00 í stað
21.15 áður. Sölutími bensínstöðva
á áðumefndum svæðum verður
skv. samningi þessum:
Virka daga allt árið: Opnað kl.
7.30, lokað kl. 20.00.
Sunnudaga í júní, júlí, ágúst og
september: Opnað kl. 9.00, lokað
kl. 20.00.
Aðra sunnudaga: Opnað kl.
10.00, lokað kl. 20.00.
Aðrir helgidagan Opnunartími
auglýstur sérstaklega.
Sjálfsalar eru opnir eftir kl.
20.00.
örö moiveeR
HUÓMTÆKI
Aykroyd og Hanks leika lögreglumennina í mynd Laugarásbíós,
„Dragnet".
óframbærileg nöfn, að leggja mikla
áherslu á að endurskapa hið form-
lega andrúmsloft þáttanna, m.a.
með smásmugulegum dagbókar-
færslum sögumanns (Aykroyd),
sem engu máli skipta. Það sem var
svo spennandi í lögguþáttunum fyr-
ir 30 ámm gera þeir hlægilegt í dag.
Myndin dregur næstum allt sitt
grín af tímaskekkjunni Joe Friday
og þótt heildarmyndin sé frekar
veikbyggð má hafa mjög gaman
af einstökum atriðum „Dragnet".
Joe hefur einstakan áhuga á hvað
tímanum líður og hvemig veðrið er
á vettvangi, hann ber hag skatt-
borgarana mjög fyrir brjósti, svo
mjög að hann ekur lögreglubílnum
helst ekki of hratt til að spara
bensín. Konur höfða ekkert sérstak-
lega til hans. „Það er tvennt sem
skilur okkur frá dýrum merkurinn-
ar,“ segir hann við félaga sinn, Pep
Streebek (Tom Hanks). „Við notum
hnífapör og við getum haft stjóm
á kynhvötinni." Streebeck er nýi
félagi Joe á vaktinni og það líður
ekki á löngu áður en hann spyr Joe
hvort hann sé á einhveijum sérstök-
um lyfjum sem hann ætti að vita
um.
A þessu byggjast brandaramir í
„Dragnet" og þeir eru ekki alltaf
jafnfyndnir. En þökk sé Aykroyd
og líka Hanks er „Dragnet" ákaf-
lega geðþekk mynd og dægileg
skemmtun ef væntingamar em
ekki háar fyrir. Það má vera að ef
maður kannast við sjónvarpsþætt-
ina sem myndin er gerð eftir sé hún
enn betri skemmtun.
„Bara staðreyndirnar, frú“ er
kjörorð hins heiðvirða Joe Friday
þegar hann spyr kjaftaglöð vitni
og glæpamálið sem hann fæst nú
við krefst allrar athygli hans. Los
Angeles, „sama borgin og lagið „We
Are the World“ var hljóðritað í“,
er hrikalegt spillingar- og glæpa-
bæli, en er trúarflokkur er kallast
Heiðingjamir standa fyrir mann-
fómum og þjófnuðum og Joe og
Streebek einsetja sér að tvístra
honum.
Með aukahlutverk fara m.a.
Christopher Plummer, sem leikur
glottandi forsprakka heiðingjanna,
og Dabney Coleman, sem leikur
smámæltan klámkóng, og það er
alltaf gaman að þeim. Aðrir leikar-
ar standa sig einnig með prýði.
SOára afmælishátíð
Félags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
SÚLNASAL HÓTELS SÖGU11. MARS 1988.
Rúöstefnan er öllum opin.
AFMÆLISRÁÐSTEFNA.
DAGSKRÁ:
10.00 Mæting.
10.15 Satnlng rfttetsfnunnan Krístján Jóhannsson, formaður FVH.
10.20 Ávarp: Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra.
10.30 Erindi: „Parallels between the nineteen thirties and the nineteen eighties".
Hvað er likt með fjðrða og níunda áratugnum. Dr. Chartes P. Kindle-
berger, gistiprófessor við Middlebury College Vermont, áður prrófessor við
MIT Boston.
11.05 Eríndi: Hagfianftl í hðlfa öld. Þorvaldur Gytfason, prófessor við Háskóla
íslands.
11.40 Fyrirspumir og umræður.
12.00 Hádegisverður.
13.00 Erindi: „Training tomorrow’s and today’s managers.” „A 50 year European
Survey". Manntun og þjðlfun stjómenda, BOérayflHR. TonyHubert,
framkvæmdastjóri European Association of National FToductrvity Centers,
og ritstjóri Intemational Management Development.
13.35 Fyrirspumir og umraeður.
13.55 Erindi: Hlutuark wlftaldptafranftlnga I í«lon«ku atwfamulHI.
Eggert Hauksson, forstjóri Plastprents hf.
14.15 Erindi: Hagfraaftingar þá og nú. Jónas H. Haralz, bankastjóri Landsbanka
íslands.
14.35 Fyrirspumir og umræöur.
14.55 Kaffi.
15.15 Hringborteumranðun Stjómandi dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðta-
banka (slands. Þátttakendun Dr. Charles P. Kindleberger, Tony Hubert,
Þorvaldur Gylfason, Guðmundur Magnússon, prófessor, Háskóla íslands,
Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags ísl. iðnrekenda og Þórir Einars-
son, prófessor, Háskóla íslands.
16.30 Ráðstefnulok.
Ráðstefnustjóri: Guðlaugur Þorvaldsson, rikissáttasemjari.
Skráning á ráðstefnuna er frá og með mánudeginum 29. febrúar til þriðjudagsins
8. mars kl. 9.00-16.00 á skrifstofu FVH í síma 62-23-70.
AFMÆLISHÓF
19.00 Mæting. Mímisbaropinn.
20.00 Hátíðarkvöldverður, skemmtiatriði, dans.
03.00 Hátíðaríok.
Miðasala vegna afmælishófs verður á skrifstofu FVH frá 29. febrúar til 8. mars frá
kl. 9.00-12.00 og einnig eftir hádegi miðvikudaginn 2. mars og þriðjudaginn
8. mars kl. 13.00-17.00.
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga,
Hallveigarstíg 1,101 Reykjavík.
As-tengi
Æ.
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál-í-stál
Stteartaiyigjiuir tJJSxrðSSŒffu & ©
VESTURGOTU 16 SlMAR 14680 21490
Rofmagns
oghand-
lynarar
Liprirog
handhægir.
Lyftigeta:
500-2000 kíló.
Lyftihæð upp í
6 metra.
Mjóar aksturs-
leiðir.
Veitum fúslega
allarupplýsingar.
BILDSHÖFDA 16 SIMI 672444
SIEMENS
VS 9112
Öflug ryksuga
• Stillanlegursogkrafturfrá
250 W upp í 1100 W.
• Fjórfjöld síun.
• Fylgihlutirgeymdirívél.
• Sjálfinndregin snúra og
hleösluskynjari.
Gömlu góðu
SIEMENS gæðin!
SMÍTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300