Morgunblaðið - 17.03.1988, Síða 20
AUK/SlA 1(91-182
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
Kodak
Kodak
myndctvél
á einstaklega
hagstœðu
(fyrir 35mmfilmur)
Að hafa vit fyrir
lærðum sem leikum
eftirlnga Gunnar
Jóhannsson
Tilefni þessa greinarstúfs eru
skrif Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra í Morgunblaðið 4. mars sl.,
þar sem hann gerir athugasemd við
ummæli Jónatans Þórmundssonar
lagaprófessors í viðtali hinn 1.
mars. Davíð kemst að þeirri niður-
stöðu, að þar sem Jónatan sé mót-
fallinn byggingu ráðhússins við
Tjömina, og hafi látið þá skoðun
sína í ljós með ýmsum hætti, sé
hann vanhæfur til að veita félags-
málaráðherra nokkra ráðgjöf í mál-
inu.
Samkvæmt þessu mætti ætla, að
borgarstjóri telji alla þá sem
ákveðna skoðun hafa á ráðhús-
byggingunni, með eða á móti, úr
ieik hvað varðar faglega umfjöllun
í opinbera kerfinu. En eru þá ekki
fleiri aðilar, sem um málið hafa
fjallað, orðnir „vanæfir"? Eða gildir
þetta bara um þá ráðgjafa, sem eru
andvígir ráðhússbyggingunni?
Fróðlegt væri að vita hvort aðrir
aðilar, sem gefið hafa faglega um-
sögn í málinu, t.d. ríkislögmaðurinn
eða borgarlögmaðurinn, hafi á því
nokkrar persónulegar skoðanir. Því
sé svo hættu þeir einnig að teljast
vanhæfír skv. ofansögðu. Jafnt
ætti að ganga yfír fylgjendur og
andmælendur ráðhússins í þessu
sambandi.
Það skiptir hér ekki máli hvort
menn viðra skoðanir sínar opin-
berlega eða ekki, því þau mannrétt-
„Samkvæmt þessu
mætti ætla, að borgar-
stjóri telji alla þá sem
ákveðna skoðun hafa á
ráðhúsbyggingunni,
með eða á móti, úr leik
hvað varðar faglega
umfjöllun í opinbera
kerfinu.“
indi eru öllum íslendingum tryggð
í stjómarskránni. Þótt ég þekki
Jónatan Þórmundsson ekki neitt
finnst mér það vera ósmekklegt af
borgarstjóra að reyna að gera störf
fyrir félagsmálaráðherra tortryggi-
leg vegna skoðana hans.
En allt er þetta á sömu bókina
lært. Vit skal haft fyrir öllum, sem
sjá annmarka á byggingu ráðhúss
við Tjömina. Svo langt er jafnvel
gengið, að heíja framkvæmdir áður
en grenndarkynningu er lokið. Mér
þykir sorglegt til þess að vita, að
það fólk sem maður ljáði atkvæði
sitt í góðri trú í síðustu borgar-
stjómarkosningum, skuli leyfa sér
að æða áfram á þennan hátt, meira
af kappi en forsjá, í svo viðkvæmu
máli sem ráðhúsmálið er. Enn er
þó tími til að snúa við.
Höfundur er landfræðingur og
tónlistarmaður.
kr: 3300.
5áxaábyrgð
Hk.
HfiNS PETERSEN HF
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT!
11.259 komutil
landsins í febrúar
ALLS komu til landsins í fe-
brúarmánuði síðastiiðnum
11.259 farþegar með flugvélum
og skipum, samkvæmt skýrslu
útlendingaeftirlitsins. í þessum
hópi voru Islendingar fjölmenn-
astir, 6.841.
„Láttu ganga ljóðaskrá
um löstinn þann að reykja!“
Nú gefst þér færi á að leggja þitt af mörkum í
baráttunni gegn tóbaksnotkun, með því að taka þátt í
skemmtilegri samkeppni. Þú sendir inn frumort ljóð eða
vísur um skaðsemi tóbaks og kannski verður þú svo
heppinn að sjá þitt framlag notað á vindlingapakka eða í
auglýsingar.
Síðasti skiladagur er 25. mars nk. og stefnt er að því að
birta úrslitin á reyklausa daginn, 7. apríl. Þátttakendur eru
beðnir að merkja ckki kveðskap sinn með nafni heldur láta
nafn og heimilisfang fylgja með í lokuðu umslagi.
Dómnefnd skipa Árni Johnsen, Helgi Sæmundsson og
Kristín Þorkelsdóttir.
Góð verðlaun eru í boði:
1. verðlaun 50 þúsund kr. 2. verðlaun 30 þúsund kr. 3. verðlaun 20 þúsund kr.
Utanáskriftin er:
Vísnasamkeppni Tóbaksvamanefndar
Skógarhlíb 8, 105 Reykjavtk
TÓBAKSVARNANEFND
Útlendingar sem komu hingað í
febrúar voru 4.418. Þar af voru
Bandaríkjamenn ijölmennastir,
1.420. Danir voru 743, Svíar 636,
Bretar 382, Norðmenn 321, Vestur
Þjóðvetjar 213, Hollendingar 92,
Finnar 88 og Japanir 74. Farþegar
frá öðrum þjóðum voru færri. Þar
á meðal voru 40 Sovétmenn, 11 frá
Nígeríu, tveir frá Vatíkaninu og
þrír flóttamenn, ríkisfangslausir.
Frá áramótum hafa alls komið
hingað 22.685 manns, þar af
13.411 Islendingar, útlendingar
voru því 9.274. Á sama tíma í fyrra
komu hingað 19.441, þar af 10.981
Islendingur og 8.460 útlendingar.
TÓBAKSVARNANEFND ÁSKII.IJR SÉR RÉTl' TIL AÐ NOTA ALI/l' ÞAD EFNI SEM BERST 1 SAMKEI’I’NINA.
La vc 0 gerkerfi Tynr inibretti gfleira
Með þessu stórkostlega fyrirkomulagi næsthámarksnýting á lagersvæði. Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við mismunandi aðstæður. Greiður aðgangur fyrir lyftaraogvöruvagna. Ávallt fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga. UMBOÐS OG HEtLDVERSLUN
Sfrazsmzzr
BÍLDSHÖFDA 16 SiMI:672444
‘4