Morgunblaðið - 17.03.1988, Side 54
r\
ooor V9AV vr aTrn/.nTTTMMn fTTf7A.TnMTT0fT0M
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
Þórarinn E. Hafberg
verkstjóri
Fæddur 7. janúar 1915
Dáinn 9. mars 1988
Ég ætla í örfáum orðum að minn-
ast góðvinar míns Þórarins Haf-
berg. Ég ætla ekki að rekja ævi-
sögu hans, læt þeim það eftir sem
betur kunna með að fara.
Við vorum nágrannar í nokkur
ár. Og betri vini og granna hefí ég
ekki kynnst en þeim sæmdarhjón-
um Þórami og Guðrúnu eiginkonu
hans. Alltaf gátum ég og bömin
mín leitað til þeirra á erfiðum sem
og gleðistundum. Vinátta var svo
góð sem sést best á því að bömin
mín íjogur kölluðu þau afa og
— Minning
ömmu á Réttó. Við munum lengi
minnast veiðiferðarinnar sem við
fórum að Djúpavatni og voru þar í
nokkra daga í veiðihúsi. Alltaf hafði
Þórarinn skemmtilegar sögur að
segja okkur, og í mörg ár á eftir
var mikið gert grín að aflanum sem
var mikill, en mest á stærð við
sardínur, en allir stórir sem smáir
veiðimenn voru ánægðir eftir veiði-
og gönguferðimar.
Alltaf þegar ég kom í morgun-
kaffí (sem var æði oft), var tekið á
móti mér með hlýju handabandi og
kossi á kinn og brosi á vör, og/eða
sagt að það væri búið að laga kaffí
og meðan Gunna mín útbjó meðlæt-
ið töfraði Þórarinn nokkrar
skemmtilegar sögur, alltaf sömu
hlýlegheitin og vinsemdin í minn
garð, og það langar mig að þakka
og á ég eftir að sakna þessara
morgunstunda mikið. Það var erfítt
að segja lítilli tæplega fjögurra ára
dóttur minni þessar fréttir, en eftir
dálitla umhugsun sagði hún: „Þór-
arinn afí var veikur í hjartanu sínu
og læknamir gátu ekki lagað það.
Svo nú er hann dáinn og fer þá upp
til guðs," síðan hallaði hún sér að
öxlinni á mér og grét. Þórarinn var
hagleiksmaður við smíðar og eigum
við íjölskylda mín nokkra góða
smíðisgripi eftir hann. Svo málaði
hann og teiknaði mjög góðar mynd-
ir, en þessu hélt hann ekki mikið á
lofti. Sýnir það hversu hæverskur
hann var. Og nú að leiðarlokum
viljum við kveðja góðan vin og
þakka allt.
Elsku Gunna mín, böm, tengda-
böm og bamaböm. Við sendum
ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur. Guð gefí líkn þeim sem lifa.
Ágústa, Hreinn, Dóra,
Sirrý, Gummi og Sigrún.
Vinur minn og æskufélagi, Þór-
arinn, lést snögglega hinn 9. mars
sl., 73ja ára að aldri.
Þegar ég frétti lát hans rifjuðust
upp þær mörgu ánægjustundir er
við áttum í æsku og á unglings-
árum.
Þórarinn var fæddur í Reykjavík
og ól allan sinn aldur hér. Foreldrar
hans voru Oddrún Jónsdóttir og
Engilbert E. Hafberg, auglýsinga-
stjóri Morgunblaðsins og síðar
bóndi í Viðey.
Þórarinn ólst upp hjá Ingibjörgu
Eysteinsdóttur föðurömmu sinni,
HVAR
ER
ÓDÝRAST
AÐ VERSLA?
ER UMBOÐIÐ
ALLTAF DÝRAST?
I nýgerðri verðkönnun Verðlags-
stofnunar kemur fram að verð á
varahlutum í þá bíla, sem
Hekla hf. hefur umboð fyrir, er
lægst í Varahlutaverslun
Heklu hf. í 7 tilfellum af 12. Þar
að auki var Hekla hf. aldrei með
hæsta verð á þeim varahlutum,
sem könnunin tók til. Þessar
niðurstöðureru sannarlega
góður vitnisburður um að
varahlutir geta verið ódýrastir
hjá viðkomandi bifreiðaumboði.
113% VERÐMUNUR
í könnun Verðlagsstofnunar
kom fram að það munaði allt
að 113% á verði varahlutar í
Heklu hf. og samskonar vara-
hlutar í þeirri verslun, sem
hæsta verðið hafði. Það liggur
því í augum uppi að hægt er að
spara verulega með því að
kaupa þar sem verðið er lægst.
GÆÐIN SKIPTA
LÍKA MÁLI
í varahlutaverslun Heklu hf. eru
aðeins seldir viðurkenndir vara-
hlutir með ábyrgð, sem stand-
ast ýtrustu kröfur framleiðenda
bílanna.
Umboö Bilanaust Borgar- túni 26 Háberg Skeifunni Sa Oliu- élagiö hf. (Esso) GS vara hlutir Hamars- höföa 1 I. Erlings- ' son Ármúla 36 Oliufélagiö Skeljungur (Shell) Blossi Ármúla 15 Oliuversl* un íslands (Olis) Stilling Skeif unni 11 Álimingar Ármúla 22 Laegsta verð Hæsta verö Mismunur í % 1
| MITSHUBISI GALANT 1600 í ÁRG . 1983 — HEKLA HF ‘í
Kerti 1 stk 90* 02 110* 110 105 116 03 125 109 oo 125 38,0% •
Platina 110 110 144 153 185 106 1 56 108 165 55,7%
Lofftsia 248 " 403 378 248 403 62,5% *
Oliusia 237* 312 305 237 312 31,6%
1078* 1514 1277 1 200 1078 1514 40,4% ~*
Bromsuklosaar, 4 stk. 848 845 578 1 280 877 884 576 1260 118,8%
Stýrlsendi 758 780 600 800 760 10,1%
Kúplingsdiskur 1710* 1750 2270 1050 1700 1710 2270 33,3% *
Kúpllngspressa 2280 ' 2270 3004 3814 2250 3814 80,6% “
Þurrkublað 105* 320 301 41 5 314 287 105 415 112,8% ~*
201 187 170 205 170 205 20,8%
Kveikjulok 250 245 218 280 345 283 255 216 345 50,7%
Lmgata varð.
Kynntu þér okkar verð - það borgar sig!
HEKLAHF A
Laugavegi 170-172 Simi 695500
RANGE ROVER
MlNl^TR0;
ágætri og velgefínni konu, sem sá
vel um uppeldi hans, hlúði vel að
honum og uppfræddi hann í guðs-
ótta og góðum siðum.
Eftir fermingaraldur tók hann
þau störf sem honum buðust, sjó-
mennsku, almenna verkamanna-
vinnu og fleira, en öll þau störf sem
honum voru falin leysti hann vel
og samviskusamlega af hendi. Þór-
arinn var mjög handlaginn, góður
smiður og sérstaklega við alla
fínlega hluti.
Þórarinn giftist heitkonu sinni,
Guðrúnu Ólafsdóttur, hinni ágæt-
ustu konu hinn 21. maí 1938. Hef-
ur hjónaband þeirra staðið í hart-
nær 50 ár og mikil ástúð hefur
verið á milli þeirra öll árin. Þegar
Guðrún og Þórarinn hófu búskap
áraði ekki vel fyrir ungu hjónunum
að byrja lífsbaráttuna og afla tekna,
sér og sínum til framfæris, því að
á þessum árum var mikið atvinnu-
leysi og fá tækifæri til þess að
hljóta vinnu. Nú kom alvara lífsins
fram og krafan um að sjá fjölskyldu
farborða.
Árið 1941 var styijöld skollin á,
en þá hófst hér á landi svokölluð
Bretavinna með næga atvinnu
handa öllum.
Árið 1947 byijar Þórarinn að
starfa hjá Reykjavíkurborg og vann
hann þar óslitið tæp 40 ár, þar af
um 30 ár verkstjóri. Hann fór til
Bretlands vegna uppskurðar á
hjarta og tókst sú aðgerð eftir öllum
vonum. Var hann mjög þakklátur
öllum læknum og hjúkrunarfólki
sem annaðist hann í veikindum
hans þetta tímabil.
Guðrún og Þórarinn eignuðust 4
böm, en þau eru: Ingibjörg, Ólafur,
Engilbert og Sigurður.
Þórarinn var mjög trúaður. Hann
var í Fíladelfíusöfnuðinum og söng
þar í kómum í áratugi. Þórarinn
óttaðist ekki dauðann, hann treysti
á Guð.
Ég vil þakka Dóra vini mínum
allar góðu stundimar sem við áttum
saman. Þær em mér ætíð kærar.
Guðrúnu, bömum og tengda-
bömum sendi ég og Svava, kona
mín, okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Hróbjartur Lútherson