Morgunblaðið - 14.05.1988, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
11
Morgunblaðið/BAR
Ein8Öngvararnir, f.v.: Viðar Gunnarsson, Adalbert Kraus, Sigríður
Ella Magnúsdóttir og Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
upp á tvístrikað a, b og jafnvel h.
Hlutverk einsöngvaranna er allt
verkið á enda í formi samsöngs en
oft fellir Beethoven einsöngsstróf-
umar fallega saman við kórinn.
Einsöngvaramir skiluðu sínu mjög
vel og einleikur Guðnýjar var sér-
lega fallegur. Reinhard Schwartz
er trúlega reyndur og góður stjóm-
andi, þó einstaka sinnum mætti
merkja ónákvæmni f innkomum,
sem kenna má stjómandanum að
nokkm um og setti „nervusan" blæ
á flutning einstakra kafla.
Að frádreginni einni h-nótu, var
söngur kóranna það besta í flutn-
ingi þessa stórbrotna verks, og þó
allir aðrir eigi einnig skilið mikið
hrós, hljómsveit, einsöngvarar, ein-
leikarar og hljómsveitarstjóri, fyrir
stóigóðan flutning á þessu erfíða
verki, var það viðvera Beethovens
sem mestu máli skipti, sem og
endranær.
Hjartans kveÖjur ogþakkir til allra sem minnt-
ust mín á einn eöa annan hátt á 80 ára af-
mœli mínu þann 23. apríl.
GuÖ blessi ykkur öll.
Sigríður Sigfinnsdóttir.
Ég þakka af alhug öllum vinum mínum og
vandamönnum fyrir vináttu og hlýhug i tilfefni
sjötugs afmœlis mins 4. mai sl. Þakka góÖar
gjafir, skeyti og hlýtt handtak um allan bce.
Gangi ykkur allt i haginn.
Guðmundur Haraldsson.
Lóð til sölu
Tilboð óskast í eignarlóð, 1215 fm., Ásland 22, Helga-
fellslandi, Mosfellsbæ. Sérstæð lóð. Útsýni til allra átta.
Samþ. teikning af sérteiknuðu einb.-, tvíbýlishúsi (150
fm. grunnfl) getur fylgt.
Upplýsingar í símum 652132, 652170, 22848.
SIMAR 21150-21370
S01USTJ. LARUS Þ. VALDIMARSSOM
LOGM. JOH. Þ0RÐARS0M HRL.
Bjóðum til sölu meðal annarra eigna:
Nýendurbyggt einbhús
á úrvalsstað í Smáíbhverfi. Húsið er 70 x 2 fm auk 50 fm kj. Úrvals
innr. og tæki. Nýr bflsk. 24 fm. Ræktuö lóö. Langtlán kr. 3,0 millj. Teikn
á skrifst. Akv. sala.
Með góðum langtímalánum
Á 1. hæð 3ja herb. ib. 78,1 fm nettó í reisul. steinh. við Skúlagötu.
Sameign í endum. Húsnlán kr. 2,1 millj.
Rétt við sundlaugarnar
( Laugardal 6 herb. sór efri hæð rúmir 150 fm i reisul. þríbhúsi. Allt
sór (hiti, inng., þvottah.) 4 svefnherb. með innb. skápum. Tvennar sv.
Bilskréttur. Um 50 fm geymsla í kj.
Vel byggt og vandað
raðhús skammt frá Bústaöakirkju. 4 góð svefnherb. Sólsv. Glæsll. lóö
með sólverönd. Góður bílsk. fylgir.
Nýendurbyggð sórhœð
Neðri hsð við Snorrabraut 4ra herb. um 105 fm nettó. Sérinng.,
sérhiti. Tvö góð kjherb. með snyrtingu. Þribhús. Bílsk. 25,2 fm. Laus
1. júnf nk. Mjög gott verð.
Með góðum bflskúr. Laus strax
endafb. 4ra herb. á 1. hæö viö Ásbraut, Kóp. Sérinng. Góö geymsla í
kj. Ágæt endumýjuð sameign.
í borginni óskast
5 herb. góð íb. með 4 svefnherb. Mlkil útborgun fyrir rótta eign.
í gamla góða Austurbænum
óskast til kaups íb. á 2. hæð. Góðar greiðslur.
Ennfremur einstaklíb. Rétt eign verður borguð út.
Einbýlishús á einni hæð
óskast til kaups i borginni eða nágr. Æskil. stærö 200-250 fm. Aöeins
vönduð eign kemur til greina. Elgnaakipti mögul. bæði ó stærra ein-
býli og stærra sérbýli.
Opið í dag laugardag.
kl. 11-16
Veitum ráðgjöf og traustar
upplýsingar.
AIMENNA
FASTEIGNASAUN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
César Vallejo í Teningi
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
TENÍNGUR. Vettvangur fyrir
listir og bókmenntir. 5. hefti,
vor 1988. Ritstjórn: Eggert Pét-
ursson, Einar Már Guðmunds-
son, Gunnar Harðarson, Hall-
grimur Helgason, Páll Valsson,
Sigfós Bjartmarsson og Stein-
Gunnar Harðarson.
í Teningi að þessu sinni vekur
mesta athygli kynning á César
Vallejo (1892-1938), skáldi frá
Perú. Berglind Gunnarsdóttir
skrifar um skáldið og birtar eru
þýðingar hennar og þeirra Sigfús-
ar Bjartmarssonar og Gunnars
Harðarsonar á níu ljóðum þess.
Á þessu ári eru liðin fímmtíu
ár síðan César Vallejo dó úr ein-
semd, hungri og vonbrigðum í
París. Helstu ljóð hans voru gefín
ót að honum látnum og smám
saman áttuðu menn sig á þvi hvi-
líkur kraftur bjó í skáldskap hans.
Nú er hann hylltur um allan spæn-
skumælandi heim og víðar sem
eitt helsta skáld aldarinnar. Eins
og Berglind Gunnarsdóttir skrifar
er Vallejo „langt í frá að vera ein-
faldur, þvert á móti er hann mjög
samsettur og jafnvel mótsagna-
kenndur, býr yfír allskyns tog-
streitu. Hann tjáir kaldranalega
hart vonleysið á einum stað og
síðan blessar hann eins og Kristur
allt sem lifir og dregur andann
og þjáist".
Berglind bendir líka á hve beit-
ing málsins er mikilvæg í ljóðum
Vallejos, ekki sfst I Trilce (1922).
Mörg ljóða Vallejos eru örvænt-
ingarfull, en í þeim samúð með
manninum og kaldhæðni er rikur
þáttur þeirra. Hann er eitt af fáum
skáldum samtimans sem getur
vakið hlátur lesandans, en miðlar
líka hryggð sem er í senn einkaleg
og algild.
í prósaljóðinu Ég ætla að tala
um vonina yrkir Vallejo um þján-
inguna: „Sársauki minn er svo
djúpur að engin ástæða er fyrir
honum og hann skortir heldur
ekki ástæðu."
Annað skáld sársauka er Sylvia
Plath (1923-1963) sem var banda-
risk. í Teningi eru fjögur ljóð eft-
ir hana í þýðingu Friðriku Benón-
ýs. Plath er þó ólfk Vailejo þvf að
í ljóðum hennar er mikið um
stefnumót við dauðann og sjálf-
seyðingarhvöt áberandi. Brún
hefst svo:
Konan er fullkomnuð.
Hennar dauði
líkami brosir sigri,
blekking griskrar þarfar
flæðir i fellingum skikkjunnar,
hennar beru
fætur sýnast segja:
við náðum hingað, þvi er lokið.
Fleiri erlend skáld eru á dag-
skrá í Teningi. Og meðal tslenskra
skálda eru Oskar Ámi Óskarsson
með ljóðið Sýnir næturvarðarins,
Liðin eru fimmtíu ár siðan César
Vallejo lést. Áhrifamáttur ljóða
hans hefur ekki minnkað og hans
er nú minnst viða um heim, m.a.
I timaritinu Teningi sem gefið
er út i Reykjavik.
Magnús Gezzon með prósaþátt og
Steinar Sigurjónsson, öðru nafni
Sjóni Sands, með tilraun til leik-
ritagerðar.
Teningur ræktar líka myndlist-
ina og gerir það ágætlega, m.a.
með viðtali við ívar Valgarðsson
og Norbert Weber. Fleira mætti
vissulega nefna i Teningi þvi að
efni er fjölbreytt og yfírleitt metn-
aðarfullt þótt um „smámuni" eins
og til dæmis málfar mætti þrasa.
HVÖRF OG GALDRAR
Margrét Reykdal ásamt einu verka sinna. Morgunbiaðið/Bjami
Myndllst
Bragi Ásgeirsson
í FÍM salnum á homi Garða-
strætis og Ránargötu kynnir
Margrét Reykdal 14 málverk,
sem öll eru ný af nálinni. Margrét
er búsett í Osló, en þar stundaði
hún nám við listaháskólann á ár-
unum 1968—76, sem urðu allt í
allt fímm ár. Á þessum árum lauk
hún einnig myndlistarkennara-
prófí ásamt því að taka próf í al-
mennri listasögu við Öslóarhá-
skóla.
Af þessum námsferli má ráða,
að skólun Margrétar hafí verið
nokkuð slitrótt og að hún hafí
e.t.v. átt erfítt með að marka sér
ákveðna stefnu, en einnig getur
þetta borið vott um mikla mennt-
unarþörf á sviðum sjónlista. Svo
kunna fjölskylduhagir og/eða aðr-
ar persónulegar ástæður liggja að
baki.
Ósjálfrátt fer maður að hugsa
út í þetta á sýningu Margrétar,
vegna þess að það er býsna erfítt
að koma auga á langa og hnitmið-
aða skólun í verkunum á sýning-
unni. Verkin einkenna hálfgert
stefnuleysi og hik, auk þess að
átök og tæknileg úrvinnsla eru
lítt merkjanleg.
Hér er meira treyst á frásögn
og hugmyndir og mætti að það
vera skynsamlegt í ljósi ýmissa
framúrstefnuhræringa í nútíman-
um. En sagði ekki George Bern-
ard Shaw einmitt réttilega um
eðli skynseminnar: „Sá sem hlust-
ar á skynsemina er glataður.
Skynsemin fjötrar alla, sem ekki
eru nógu sterklundaðir til að hafa
stjóm á henni".
í listum er það nefnilega tilfínn-
ingin og sannfæringin sem ræður
ferðinni ásamt hæfílegu magni af
óskynsemi.
Það er t.d aldrei skynsamlegt
að taka áhættur, sem eru í mörg-
um tilvikum fyrirfram dæmdar til
að mistakast en þetta verður lista-
maðurinn að gera ef hann vill ná
úrskerandi árangri.
— Hvað mig snertir þá minnist
ég þess ekki að hafa séð kraft-
minna framlag frá hendi Margrét-
ar en að þessu sinni, en hún hefur
sýnt nokkrum sinnum áður hér í
borg.
Trúlega er Maigrét í öldudal
um þessar mundir og kannski eft-
ir að hafa étið yfír sig af fræði-
kenningum um nýlistir eða ánetj-
ast einhverri sértrúarhreyfíngu í
myndlist.
Ekki spái ég neitt í það, en eitt
er alveg ljóst og það er, að engu
sambandi náði ég við þessar
myndir, þær sögðu mér næsta lítið
og höfða því ekki til neinna átaka
á ritvellinum.