Morgunblaðið - 14.05.1988, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
Hagvirki og Vegagerð ríkisins:
Aætlanimar eru
ósambærilegar
- segir forstjóri áætianagerðar hjá Vegagerð
ÞETTA sem Jóhann setti fram
minnti um margt & ævintýrið um
naglasúpuna,“ sagði Jón Rögn-
valdsson forstjóri áætlanagerðar
Vegagerðar ríkisins um þau orð
Jóhanns G. Bergþórssonar þjá
Hagvirki að fyrirtækið geti lagt
hálendisvegi fyrir brot af kostn-
aðaráætlunum Vegagerðarinn-
ar. „Það ber svo mikið í milli
þess sem feist í hans áætlunum
og okkar, að samanburður er
Framfærsluvísitalan:
1,76% hækkun
milli mánaða
VÍSITALA framfærslukostnaðar
reyndist vera 1,76% hærri i maí-
byijun en í upphafi aprílmánað-
ar, samkvæmt útreikningi Kaup-
lagsnefndar.
Þessi hækkun svarar til 23,3%
árshækkunar í samanburði við
25,4% síðustu tólf mánuði. Af þess-
ari 1,76% hækkun stafa um 0,6%
af hækkun á verði matvöru, um
0,7% af hækkun á iðgjöldum bif-
reiðatrygginga og um 0,5% af
hækkun a'verði ýmissa vöru og
þjónustuliða.
Undanfama þijá mánuði hefur
visitalan hækkað um 4,2% og jafn-
gildir það 17,8% verðbólgu á heilu
ári.
ekki raunhæfur."
„Ég get hins vegar tekið undir
það með Jóhanni að það óþarfí að
ráðast strax í ræsa- og brúargerð,
það ætti að nægja að ýta fyrst upp
vegi og láta náttúruna segja til um
hvar hún vill hafa ræsin. En ræsi
og brýr þarf engu að síður að gera
og sá kostnaður var inni i okkar
áætlunum," sagði hann. „Einnig
bundið slitlag, sem flestir, sem um
málið hafa fjallað, telja að þurfí
þótt ef til vill mætti komast af án
þess fyrst í stað. Við reiknuðum
einnig með talsvert mikilli veghæð,
sem þó er ekki óalgeng þegar kom-
ið er upp á flöll. Okkar áætlanir
miðuðust við 6,6 metra breiðan veg
með fláa 1:3 en Jóhann talaði um
6 metra breidd og fláan 1:2, sem
hann játaði síðan að væri of lítið.
Einnig þarf að taka tillit til þess
að mjög misjafn aðgangur er að
efni uppi á hálendinu, sums staðar
verður að keyra efni að og það eru
kaflar sem eiga að fara yfír hraun.
Þar er ekki ýtuland," sagði Jón.
„Þegar svo er litið til þess Jóhann
áætlaði allt of litið efnismagn, mið-
að við Kvíslaveituveg þar sem hæð-
armunur er lítill, þá held ég að
muni engum ósköpum; eins og þetta
var sett fram var um ósambærilega
hluti að ræða. Þetta er eins og með
naglann í naglasúpunni. Súpan
verður betri ef það eru höfð í henni
gijón og kjöttætla," sagði Jón
Rögnvaldsson.
Með viyastyrk og dugnaði má ná langt. Hér sjáum við Reyni Pétur
í Sólheimagöngunni frægu.
Skagfirska
söngsveitin;
Vortónleikar
og markaður
Skagfirska söngsveitin hefur
ákveðið að endurtaka vortónleik-
ana 1988 næstkomandi mánu-
dagskvöld, 16. mai, kl. 20.30 í
Fella- og Hólakirkju, Hólabergi
88.
Er ölium öldruðum í sóknunum,
þ.e.a.s. 67 ára og eldri, boðið á
þessa tónleika. Miðar verða seldir
við innganginn.
Ennfremur verður á vegum
Söngsveitarinnar flóamarkaður og
kaffísala í Félagsheimili Skagfírð-
inga, „Drangey", Síðumúla 35 í
dag, laugardag. Margt muna verður
þar til sölu auk fatnaðar og heima-
bakaðar kökur verða einnig á boð-
stólum.
(Fréttattikynning)
Vorblót Þroskahjálpar
og Oryrkjabandalagsins
Landssamtökin Þroskaþjálp
og Oryrkjabandalagið gangast
fyrir samkomum á fjórum stöð-
um á landinu i dag, laugardaginn
14. mai, svonefndum Vorblótum.
Blótin verða haldin i íþróttahús-
inu Digranesi í Kópavogi,
Glaumborg i Hnífsdal og Bjargi
á Akureyri og standa frá kl.
15—17. Sama kvöld verður blót
í Valaskjálf á Egilsstöðum og
stendur það frá kl. 20.30—22.30.
Nýr framhaldsskóli í stað
Héraðsskólans að Laugum
SAMNINGUR hefur komist á
milli átta hreppa í Suður-Þing-
eyjarsýslu, menntamálaráðu-
neytis og fjármálaráðuneytis
um stofnun framhaldsskóla að
Laugum í S-Þingeyjarsýslu, en
Héraðsskólinn, sem starfræktur
hefur verið að Laugum, verður
lagður niður.
„Framhaldsskólinn að Laugum
tekur til starfa 1. september næst-
komandi. Tekur hann við því fram-
haldsnámi, sem farið hefur fram
við Héraðsskólann, og þar verður
einnig starfræktur 9. bekkur
grunnskóla.
Stefíit skal að því að skólinn
gefí nemendum kost á tveggja ára
námi í almennum grunnáföngum
og f sérhæfðari áföngum eftir því
sem nemendafjöldi og aðrar að-
stæður leyfa. Skólinn mun starfa
samkvæmt skipulagi og starfs-
háttum áfangaskóla og vera hluti
samræmds framhaldsskólakerfis,
sem lýtur námsstjóm stjómunar-
nefíidar framhaldsnáms á Norður-
landi.
Sveitarfélögin, sem að rekstri
skólans standa, kjósa 5 manna
skólanefnd.
Skipting kostnaðar milli rfkis og
sveitarfélaga verður sú sama og
gildir um fjölbrautaskóla, en breyt-
ist í samræmi við löggjöf um fram-
haldsskóla verði hún sett. Skólinn
fær til afnota húsnæði það sem
tilheyrði Héraðsskólanum og nýrri
hluta húsnæðis fyrrverandi Hús-
stjómarskóla að Laugum."
Stofnun Sigurðar Nordals:
Á íslensk menning
framtíð fyrir sér?
STOFNUN Sigurðar Nordals
gengst í dag, laugardag, fyrir
umræðufundi um sérkenni og
takmarkanir íslenskrar menn-
ingar undir fyrirsögninni: Á
íslensk menning framtíð fyrir
sék-T
Fundurinn fer fram 1 hugvís-
indahúsinu Odda og hefst kl. 2
síðdegis. Páll Skúlason prófessor
stjómar umræðum. Aðrir þátttak-
endur eru Birgir Sigurðsson rithöf-
undur, Gerard Lemarquis kennari,
Gerður Steinþórsdóttir kennari,
Guðmundur Emilsson hljómsveit-
arstjóri, Mary Guðjónsson kennari
og Sveinn Einarsson leikhúsfræð-
ingur.
Fjölbreytt skemmtiatriði verða í
boði á öllum stöðunum, segir f
fréttatilkynningu frá samtökunum,
og má nefna að í Digranesi mun
Skólahljómsveit Kópavogs leika við
innganginn, hljómsveitin Sálin
hans Jóns míns leika, Þórarinn Eld-
jám lesa úr eigin verkum, Sól-
heimaskátamir skemmta og Ungl-
ingaleikhúsið í Kópavogi flytur
leikþátt. Kynnir verður Valgeir
Guójónsson.
í Glaumborg verða vistmenn í
Bræðratungu með leikþátt, Harmo-
nikkufélag Vestijarða leikur nokk-
ur lög og fleira.
Á Bjargi leikur Blásarasveit tón-
listarskólans við innganginn, Egill
Olgeirsson flytur ræðu, X-tríóið
leikur, Páll Jóhannesson syngur og
Ingimar Eydal leikur létt lög milli
atriða. Kjmnir verður séra Pétur
Þórarinsson.
í Valaskjálf flylja Helgi Seljan
og Þorlákur Friðriksson gaman-
mál, Sólveig og Margrét Traustad-
ætur með söng og gamanmál og
vistmenn frá Sambýlinu og Vonarl-
andi skemmta. Kynnir þar verður
Hákon Aðalsteinsson.
Aðgangur er ókeypis á öll blótin
og vonast er til að sem flestir fínni
þar eitthvað við sitt hæfi.
Tilefni Vorblótanna er að heild-
arsamtök fatlaðra eru að hefja
víðtækt samstarf og hafa skipað
nefnd svokallaðra Ræðara til að sjá
um framkvæmd tveggja ára félags-
legrar framkvæmdaáætlunar..
Starfsmaður nefndarinnar hefur
verið ráðinn Helgi Hróðmarsson,
viðskiptafræðingur. Markmið áætl-
unarinnar er m.a. að stuðla að
bættum tengslum fatlaðra og ann-
arra landsmann, efla fræðslu um
málefni fatlaðra, sjá til þess að
töivumiðstöð fatlaðra verði efld til
muna, stofna sérþjálfaða stuðn-
Aðalfundur SÍF:
Krefst að verðmyndun gengis
ráðist af framboði og eftírspurn
f ÁLYKTUN aðalfundar SÍF,
sem haldinn var á Akureyri, er
þess krafíst að verðmyndun
gjaldeyris ráðist af framboði og
eftirspurn. Einnig er þess krafist
af stjómvöldum, að ekki verði
gerðar breytingar á núverandi
kerfi sölumála, án fulls samráðs
við samtök framleiðenda, þ.e.
SÍF. Litlar breytingar urðu á
stjóra SÍF og var Dagbjartur
Einarsson endurkjörinn formað-
ur samtakanna.
í ályktuninni segir, að núverandi
fyrirkomulag sölumála á saltfíski
hafí sannað gildi sitt og er vísað á
bug hugmyndum um fjölgun út-
flytjenda. Varað er við að eingöngu
verði beitt hefðbundnum björgunar-
aðgerðum stjómvalda til að tryggja
rekstrargrundvöll fiskvinnslunnar
og krafíst er verðmyndunar gjald-
eyris í samræmi við framboð og
eftirepum. Fundurinn beindi þvi til
stjómar -SÍF, að hún hafí forystu
um að sameina aðila í sjávarútvegi
í öflug hagsmunasamtök. Þá lagði
fundurinn til, að Verðjöfnunarsjóð-
ur fískiðnaðarins vérði þegar lagður
niður.
1 umræðum í lok dagskrár á
fundinum lýstu flestir fundarmenn
stuðningi við núverandi fyrirkomu-
lag í saltfisksölu. Vinnubrögð og
hlutverk SÍF vom til umræðu og
hvöttu fundarmenn forystu og
starfsmenn samtakanna til að vera
vel á verði á mörkuðunum og hafa
forystu um aukna hagræðingu í
rekstri framleiðenda og vöraþróun.
Nokkrir fundarmenn lýstu því áliti
sínu, að of langt hefði verið gengið
í því að ná háu verði fyrir afurðim-
ar. Annarra aðgerða væri þörf til
þess að styrkja stöðu framleiðenda
og bæri stjóm SÍF að hafa for-
göngu um þær aðgerðir.
Fundurinn var haldinn á Hótel
KEA á Akureyri og sóttu hann á
annað hundrað framleiðenda. Fund-
arstjóri var Gísli 'Konráðsábn....
ingshópa fyrir foreldra á hveiju
svaeði og stofna leikhús á vegum
ÖBÍ og Þroskahjálpar.
Áður en dagskráin í Digranesi
hefst mun Svæðisstjóm málefna
fatlaðra á Reykjanesi standa fyrir
kynningu á sumartiiboðum fatlaðra
bama. Kynningin fer fram í sam-
komusal Digranesskóla og hefst
kl. 13.30. Eftirtaldir aðilar munu
kynna starfsemi sína: Garðabær,
Hafnaifyarðarbær, Kópavogskaup-
staður, Mosfellsbær,- Seltjamames-
bær, íþróttasamband fatlaðra,
Reykjalundur endurhæfíngarmið-
stöð, Sumarstarfsemi fyrir hreyfí-
hömluð böm og unglinga, Sumar-
dvöl Foreldra- og kennarafélags
Qslcjuhlíðarekóla, Sumardvöl
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
Reykjadal og Svæðisstjóm málefna
fatlaðra á Reykjanessvæði.
Foreldram á Suðumesjum er
bent á að ráðgert er að standa
fyrir sérstakri kynningu á sumartil-
boðum sveitarfélaga þar síðar en
þeir era hvattir til að koma og
kynna sér önnur tilboð sem ekki
era bundin við sveitarfélög.
(Fréttatiikynning)
Agúst Einars-
son kjörinn í
bankaráð
Seðlabankans
ALÞINGI kaus á miðvikudag
Ágúst Einarsson, hagfræðing, í
bankaráð Seðlabankans til 31.
október 1990. Ágúst kemur f
stað Björns Björnssonar sem
sagði af sér eftir að hann tók
við stöðu bankastjóra Alþýðu-
bankans.
Borgaraflokkurinn vildi fresta
atkvæðagreiðslunni og krafðist
Albert Guðmundsson, formaður
flokksins, að annað hvort yrði
Davíð Bjömsson, varamaður
Bjöms látinn taka sæti í bankaráð-
inu eða að ef kosið yrði að valinn
yrði stjómarandstæðingur þar sem
Bjöm hefði verið fulltrúi flokks í
stjómarandstöðu, Alþýðuflokksins,
þegar hann var tilneftidur. Stjóm-
arflokkamir hefðu nú §óra fulltrúa
af fimm í bankaráðinu.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti sameinaðs þings, sagði
svona mótbárur vera algjörlega
framandi þingvenjum. Það væri
venja að kosning færi fram ef
maður andaðist eða segði af sér.
Varamenn kæmu hins vegar inn í
forföllum aðalmanns. Það væri
þingvenja að þegar svo bæri á sem
nú-yrði kosinn fulltrúi frá þeim
flokki sem hefði sagt af sér.