Morgunblaðið - 14.05.1988, Side 53
53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
'MAZDAPPqí
MÁZDÁ323
greiðslukjör25°/o
4a\\tað30manuðv
rödd, enda forsöngvari í Hóls-
kirkju.
Nokkrum árum síðar giftist
Jónína Elíasi Magnússyni, for-
manni í Bolungarvík, miklum
dugnaðarmanni. Þau áttu saman
sex böm og eni þrjár dætur þeirra
á lífí, Olga, Ágústína og Jónína.
Amma var tólf ára gömul þegar
móðir hennar og stjúpi fluttu til
Kanada með fjögur böm. Þar gekk
amma í skóla á vetrum en vann á
sumrin hjá konu sem seldi fæði
og kynntist amma þar margra
þjóða mönnum. Hún lenti þar í
margs konar ævintýrum sem gam-
an var að heyra hana segja frá.
Eftir 2—3 ár vestra flutti fjölskyld-
an aftur til Bolungarvíkur.
Seinna kynntist hún afa, Haf-
liða Hafliðasyni, skósmíðameist-
ara frá Kirkjubóli í Langadal. Árið
1923 stofnuðu þau sitt heimili,
sem bar þeim fagurt vitni. Þau
eignuðust tvær dætur. Hólmfríði,
gift Sigurði E. Friðrikssyni fv.
fulltrúa og eiga þau einn son,
undirritaðan. Jónu Sveinborgu, en
hún lést 26. ágúst 1980. Svein-
borg var gift Elíasi H. Guðmunds-
syni símstöðvarstjóra í Bolung-
arvík. Þau eignuðust fímm böm.
Ámýju, kennara, gift Theodóri
Ottóssyni kerfísfræðingi, þeirra
synir eru Rúnar og Grétar Sveinn.
Hafliða, tannlækni, hans kona er
Jóna Magnúsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, þau eiga tvö böm,
Magnús og Sveinborgu. Rúnar
Guðmund sem lést af slysförum 9
ára gamall 29. maí 1967, Hólm-
fríði Kristínu sem er við nám í
Bandaríkjunum og Kristin Þórð,
nema. Þá ólu afí og amma upp
eina fósturdóttur, Sigríði Jónu
Nordquist, organista, hún er gift
Hálfdáni Ólafssyni, vélamanni.
Þau eiga tvær dætur, Elísabetu
Maríu, ritara, sem á eina dóttur,
Sigríði Höllu, og Ámýju Hafborgu,
afgreiðslustúlku, og eina fóstur-
dóttur, Unni Guðbjartsdóttur.
Unnur er gift Garðari Benedikts-
syni sjómanni og eiga þau fjögur
böm, Háldfán Ólaf, Benedikt
Ágúst, Branddísi Jónu og Guð-
laugu Björgu.
Amma og afí vom bæði glað-
sinna, hún létt og kát en afí róleg-
ur og glaður. Þau höfðu mikla
ánægju af að taka á móti vinum
og kunningjum því bæði voru þau
gestrisin og alltaf var til nóg í
frystikistunni bæði af mat og kök-
um. Þau höfðu bæði góðar söng-
raddir, sérstaklega amma, og
sungu í kirkjukómum í 40—50 ár,
en á þeim ámm var mikið fé-
lagslíf í Bolungarvík.
Ég átti því láni að fagna að
njóta hjá þeim hlýju og öryggis á
mínum bemsku- og æskuámm.
Móðir mín þurfti oft að dvelja á
sjúkrahúsi og alltaf var amma til-
búin að taka við „óþekktarangan-
um“. Hún var mér alltaf hugulsöm
og góð. Við áttum margar
skemmtilegar stundir saman, hún
las oft fyrir mig og söng. Við spil-
uðum á spil og alltaf vann ég. Oft
saumaði hún á mig falleg föt en
hún var góð saumakona, saumaði
m.a. íslenska þjóðbúninginn.
Fyrir allar þessar hugljúfu
minningar vil ég nú við leiðarlok
þakka henni af heilum hug og biðja
henni Guðs blessunar.
Friðrik Pétur
Þegar horft er um öxl og litið
til baka yfír farinn veg, þá er
margs að minnast. Leikir, staðir
og smáatvik, sem minningar eru
tengdar við, en flestar þessar end-
urminningar hafa aðeins persónu-
legt gildi og eru einskisverðar í
annarra augum. Ég var á 4. ár-
inu, þegar ég fyrst man eftir mág-
konu móður minnar, Ámýju, á
hlaðinu fyrir utan hús afa míns í
Bolungavík, Fals Jakobssonar bát-
asmíðameistara, sem nú er lög-
reglustjórabústaður. Ég var að
leik og sá það þegar að þetta var
óvenjulegur gestur. Yfírbragð
hennar var allt bjart og ljómandi,
og svo var hún létt í spori, að mér
fannst, að hún kæmi varla við jörð-
ina þegar hún gekk. Er hún hafði
heilsað móðursystur minni og
móður minni, kom hún til mín þar
sem ég stóð á hlaðinu skammt
frá. Ámý rétti mér höndina, en
ég _fór hjá mér og var feiminn.
Ámý mun seint gleymast þeim,
sem bezt þekktu hana. Ég þekkti
vel, hvem mann Ámý hafði að
geyma og tel hana hiklaust eina
hinna beztu kvenna, sem ég hef
þekkt um dagana. Hún var sönn
kona og falslaus úr ósviknum
málmi ger, drengskaparkona.
Adda, eins og ég kallaði hana allt-
af, var óvenju hreinskilin kona,
óháð og sjálfstæð í skoðunum.
Hún var bamslega viðkvæm inni
fyrir, en jafnframt glöð og reif,
skemmtileg í viðræðu. Adda var
alþýðleg í lund, mat menn eftir
innra gildi og hjartalagi, en ekki
eftir orðum. Hún tók með þreki
og stillingu hveiju sem að höndum
bar, var lánskona í heimilislífí
lengi ævi, en þá er sorgarél ást-
vinamissis dundu yfír, sást trú
hennar og andlegur þróttur í fögru
ljósi.
Samvera og dagleg umgengni
við Öddu og Hafliða skósmið var
mér ríkuleg. Einlæg tryggð við
afa minn og allt mitt móðurfólk
verður aldrei fullþakkað. Dætrum
hennar og öðrum vandamönnum
vil ég senda hlýjar samúðarkveðj-
ur.
Helgi Vigfússon
MAZDA 626 SEDAN
Allt þaö
nyjasta frá
MAZDAI!
OPIÐ
LAUGARDAG
OG SUNNUDAG
FRÁ KL. 1-5
MAZDA121Í
Sérstaklega kynnum við nýjan
MAZDA 626 STATION, 2 nýjar
gerðiraf MAZDA323: SUPER
SPECIAL og SUPER SPORT
og nýjan MAZDA E 2000 með
aldrifi og dieselvél.
LUXUSBILAR -
SMÁBÍLAR
FJÖLSKYLDUBÍLAR
SPORTBÍLAR
Ennfremur allar aðrar gerðir
af MAZDA626og323, MAZDA
929, MAZDA 121 og B 2600
pallbílana með aldrifi.
Gerið ykkur dagamun um
helgina, komið og skoðið það
nýjasta í bifreiðahönnun og
tækni.
BILABORG HF
FOSSHALSI 1. S. 68 12 99