Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988 Filippseyjar: Lögin um skiptingu landareigna samþykkt Manila, Reuter. ÞINGIÐ á Filippseyjum sam- þykkti á miðvikudag lög um endurskipulagningu og umbæt- ur í landbúnaði. Ar er liðið frá því Corazon Aquino kynnti lög- in á þinginu. Stjórnin lítur svo á að lögin séu grundvöllur þess að hægt sé að skipta auðæfum i landinu jafnt á milli þegnanna. Stjómmálaskýrendur draga í efa að markmið laganna um jafn- ari skiptingu auðæfa náist þar sem mörg ákvæði þeirra hafa verið felld niður eða breytt í umfjöliun þingsins. „Þetta er skref í rétta átt en nú á eftir að koma í ljós hvemig framkvæmd laganna verð- ur háttað,“ sagði stjórnmálaskýr- andi í samtali við fíeuter-frétta- stofuna. Eftir langan þingfund á mið- vikudag var gengið til atkvæða um lögin og þau samþykkt í báðum þingdeildum með miklum meiri- hluta atkvæða. Aquino hefur sagt að þessi lög muni binda enda á yfirráð „sykurbarónanna". Aðeins 20 þingmenn af 200 í neðri deild þingsins, en meirihluti þeirra eru landeigendur, greiddu atkvæði á móti lögunum. Af 24 sem sæti eiga í öldungadeild þingsins greiddu allir atkvæði með lögun- um, einn sat hjá við atkvæða- greiðsluna. í lögunum er gert ráð fyrir að 540.000 ferkílómetrum lands verði á næstu tíu árum skipt milli þriggja milljóna leiguliða. Vinstri- sinnar á Filippseyjum hafa lýst yfir óánægju með lögin. Landeig- endur á eyjunni Negros, sem er mesta sykurræktarsvæði Filipps- eyja, hafa hótað að koma sér upp einkaher til að vernda landareign- ir sínar. NordEX norrœna viðshiptasímaskróin 1989 er í Mriiðnum. Tilkynntu þdtttoku m fyrst ordEX gæti auðveldað þér og fyrirtæki þínu leiðir að nýjum viðskiptasamböndum. NordEX er norræn viðskipta- símaskrá, sem hefur að geyma upplýsingar um rúmlega 10.000 fyrirtæki á Norðurlöndum. NordEX er gefin út á 5 tungumál- um og dreift ókeypis til innflytj- enda og annarra, sem leita eftir nýjum viðskiptasamböndum. í NordEX gefst fyrirtækjum kostur á að auglýsa og kynna starfsemi sína með nýjum hætti. Við hvetjum alla þá sem hafa fengið gögn varðandi NordEX 1989 að senda þau sem allra fyrst í pósthólf 311, 121 Reykjavík. Þeir sem ekki hafa fengið send gögn, en hafa áhuga á að vera með, eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við auglýsinga- deild símaskrárinnar í síma 29141. Mundu, að NordEX 1989, norr- æna viðskiptasímaskráin, er alveg í burðarliðnum. PÓSTUR OG SÍMI 1 Sovéskur andófsmaður: Refsað fyrir að hitta Reagan New York, Reuter. SOVÉSKUR andófsmaður, Sergeij Kovaljov, fékk ekki það starf sem honum hafði verið Iofað vegna þess að hann hitti Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í Moskvu þann 30. maí síðastliðinn, segja forsvarsmenn mannréttindasamtakanna Helsinki Watch, sem hafa aðsetur í New York. Kovaljov, sem er 58 ára gam- all, var sjö ár í vinnubúðum og fimm ár í útlegð vegna starfa sinna fyrir tímaritið „Annall líðandi stundar", sem gefið var út í óþökk yfírvalda. Kovaljov er núna félagi í mannréttindasam- tökunum Glasnost-útgáfan. Að sögn Helsinki Watch var Kovaljov neitað um búsetuleyfi í Moskvu þangað til í vetur. Þá fékk hann leyfi í eitt ár að því tilskyldu að hann fyndi sér at- vinnu. Með hjálp vina fékk hann vinnu hjá Vísindaakademíunni í stofnun sem fjallar um upplýs- ingastreymi. Daginn eftir fundinn með Re- agan fór hann með atvinnutilboð- ið til starfsmannastjórans til að fá það staðfest. Embættismaður- inn fór ekki dult með að aðstæður hefðu breyst og sagði að hann fengi enga vinnu við svo búið. AKAI HLJÓMTÆKI nesco LRUGRI/EGUR HF Laugavegi 10, simi 27788 ^^SÍæsfw daga höfum við rýmingarsölu á skrautmunum frá Rosenthal, sem hætt er að framleiða. Þessa muni bjóðum við með allt að helmingsafslætti RÝMINGARSALA Við bjóðum m.a. fallega vasa og platta skreytta af Björn Wiinblad, bæði úr postulíni og keramik, auk mikils úrvals skrautmuna eftir aðra lishönnuði. studiohúsið Á horni Laugavegs og Snorrabrautar, sími18400

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.