Morgunblaðið - 12.06.1988, Qupperneq 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
ÍClK í
fréttum
Stéttarkrot
Moigunblaðið/ÓLK.M.
Þessa mynd tók ljósmyndari Morgunblaðsins á sólríkum sumardegi
fyrir nokkrum árum. Stúlkan sem situr fyrir miðri mynd og teikn-
ar á gangstéttina í Austurstræti, er Björk Guðmundsdóttir, söngkona
Sykurmolanna, áður en frægðin kallaði.
í dag heldur Björk til tiandaríkjanna í viðtöl við stórblöðin Wash-
ington Post og New York Times, útvarpsstöðvar, tímarit og sjón-
varpsstöðvar.
Stefnir á háskólanám í haust
BLIND STÚLKA LÝKUR STÚDENTSPRÓFI
Ragna Kristín Guðmundsdóttir
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð á þessu
vori af náttúrufræðibraut. Ragna
er alblind og gengur auk þess við
hækjur. Hún lamaðist 12 ára gömul
eftir slys og missti sjónina á fyrstu
önn sinni í skólanum árið 1981 og
sér aðeins mun dags og nætur.
Ragna lauk stúdentsprófinu á 8
önnum, sem er eðlileg námsfram-
vinda, en hún var oft frá vegna
veikinda sinna og þurfti því að
sleppa nokkrum önnum. Hún er
annar alblindi íslendingurinn, sem
lýkur þessum áfanga.
Ragna viðurkennir að þetta hafi
verið erfitt en leggur áherslu á vel-
vilja rektors, kennara og annars
starfsliðs skólans. „Ömólfur
Thorlacius, rektor, og Sigríður The-
odórsdóttir, sem kenndi mér alla
efnafræði, vom mér ótrúlega hjálp-
leg og allir aðrir kennarar vom
boðnir og búnir að rétta mér hjálp-
arhönd. Án hjálpar þeirra hefði
þetta ekki tekist."
Ragna hefur mikinn áhuga á
stærðfræði, enda fékk hún einkunn-
ina 10 í tveimur stærðfræðiáföng-
um í vor. Við stærðfræðinámið naut
hún aðstoðar Jömndar Þórðarson-
ar, kennara við Armúlaskólann,
sem lærði að lesa blindratáknin í
stærðfræðinni. Hyggst Ragna
stunda háskólanám á því sviði. „Ég
er búin að innrita mig í tölfiæði
við Háskóla íslands næsta vetur,
sem er þriggja ára nám, og svo
ætla ég að taka einhveija ensku
með,“ sagði Ragna.
Eftir að hún missti sjónina varð
hún að byggja mikið á hlustun við
lærdóminn, sem er mun erfiðara
og tímafrekara en þegar sjón-
minnisins nýtur við. En hvemig er
aðstaða til náms fyrir blinda?
„Hún hefur breyst mikið frá því
sem áður var, ekki síst eftir að
Blindrabókasafnið fékk nýja tölvu
á síðasta ári, sem gerir því kleyft
að prenta út bækur á blindraletri á
örfáum klukkustundum. Áður gat
sú vinna tekið mánuði. Auk þess
býr safiiið yfir nokkmm ijölda
hljóðbóka. Utvegun námsgagna
tekur því styttri tíma núna en áð-
ur. Þó skortir enn mikið á að
menntaskólanámsefnið sé aðgengi-
legt og þvf þurfti ég oft að fá ein-
hvem til að lesa fyrir mig námsef-
nið. Það hefur líka orðið viðhorfs-
breyting í þjóðfélaginu til blindra
og annarra fatlaðra, sem rekja má
til þess, að samtök þeirra em orðin
miklu öflugri en áður. Fólk er farið
að skilja að við emm engir eftirbát-
ar annarra," sagði Ragna.
Ragna á sér mörg áhugamál.
Hún segist hlusta mikið á bækur
og ferðast eins og kostur er. „Ég
man enn liti og ef lýst er fyrir mér
landslagi get ég vel ímyndað mér
það. Svo er ég næmari á lykt en
áður og fínn því gróðurilminn úti í
náttúranni betur en áður.“
í lokin var Ragna spurð að því
hvort vænta megi þess að fleiri
blindir feti í fótspor hennar. „Það
er ein blind stúlka í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð og sjónskertur
strákur og ég vona að þetta verði
hvatning fyrir fleiri. Við getum
þetta alveg."
Foreldrar Rögnu em Guðmundur
Elínusson, matsveinn, og Hulda
Jónasdóttir, starfsmaður heimilis-
hjálparinnar í Kópavogi.
Morgunblaðið/Þorkell
Ragna Kristín Guðmundsdóttir
missti sjónina á fyrstu önn sinni
í menntaskóla, en með þraut-
seigju og dugnaði lauk hún stúd-
entsprófinu og stefnir nú á há-
skólanám i haust.
Hér hafa makar bæst i hópinn og allir virðast skemmta sér vel.
Morgunblaðið/Bjáhii
Morgunblaðið/Bjami
Þessi föngulegi hópur hittíst í hófi sem haldið var í tilefni stúdenta-
afmælisins heima hjá Ingileifu Bryndísi Hallgrimsdóttur að Lyng-
haga 13. Þau heita: Hinrik Guðmundsson, Margrét Sigurðardóttir,
Guðrún Vilmundardóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigfríður Níeljó-
hníusdóttir, Ólöf Bjarnadóttir, Guðmundur Pétursson, Gunnar Tóm-
asson, Ingiíeif Bryndís Hallgrímsdóttir, Marfa Pétursdóttir, Þórdís
Claessen-Hofdal, Rósa Gestsdóttir, Helgi þorláksson, Þór Guðjóns-
son, Guðrún Steingrímsdóttir, Þorgeir Gestsson, Ragnheiður Haf-
stein, Jónas Haralz, Gerður Magnúsdóttir, Helgi Bergs, Agnar
Tryggvason og Kristján Símonarson.
STÚDENTAAFMÆLI
Stúdentar í 50 ár
Arið 1938 útskrifuðust 46
manns úr Menntaskólanum í
Reykjavík en nú em 14 þeirra látn-
ir. Þessi árgangur hafði vissa sér-
stöðu, því að frá árinu 1915 höfðu
aldrei útskrifast fleiri en 8 stúlkur
í einu, en þetta ár vom þær 21
talsins. Vakti þetta umtal og jafn-
vel hrifningu, en sumir gerðu grín
að og fannst nóg um.
Deildimar í skólanum vom aðeins
tvær á þessum tíma, stærðfræði-
deild og máladeild. Á ámnum fyrir
stríð var erfitt ástand í landinu og
atvinna stopul og áttu því alls ekki
allir kost á áframhaldandi menntun,
en það þykir sjálfsagður hlutur í
dag.