Morgunblaðið - 12.06.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
B 27
Örvæntingarfull
leit að Lulu
Fyrsta myndin sem Hanna
Schygulla, ein fremsta kvik-
myndaleikkona Evrópu sem unnið
hefur með mönnum eins og R.
W. Fassbinder, Jean-Luc Godard,
Ettore Scola, Andrzej Wajda, Vol-
ker Schlöndorff og Wim Wenders,
kaus að leika í vestur í Bandaríkjun-
um heitir „Forever Lulu" sem sýnd
er í Regnboganum.
Leikstjórinn er lítið þekktur Isra-
eli sem vill svo til að er sonur borg-
arstjóra Jerúsalemsborgar og hef-
ur aðeins gert tvær líttkunnar
myndir áður. Mótleikarar Schy-
gulla eru tvær rokkstjörnur; önnur
hefur verið kölluð „Garbó pönks-
ins“ og hin var söngvari í hljóm-
sveit sem kallaðist Skyrturnar.
Schygulla er í hverjum ramma
myndarinnar, sem Amos Kollek
sonur Teddy Kolleks, borgarstjóra
Jerúsalems, leikstýrir og skrifar
handrit að. Mótleikararnir eru
Debbie Harry eða „Blondie" og
Annie Golden. Kollek kallar mynd-
ina sína ævintýra-sakamála-gam-
anmynd.
Schygulla leikur Elaine Hines,
örvæntingarfullan og gleðisnauð-
an verðandi rithöfund sem dýrkar
Virginíu Woolf. Á leið sinni að
fremja sjálfsmorð með byssu í
hendi hræðir hún tvo vegfarendur
og annar missir frakkann sinn sem
í eru skilaboð, dagsetning, heimil-
isfang, íbúðarnúmer og nafnið
Lulu. Elaine fer á staðinn og lendir
í skotbardaga sem hún tilkynnir
lögreglunni um og verður fræg fyr-
ir. En hún heldur áfram leitinni að
Lulu.
Spurningin er: Hversvegna valdi
hin eftirsótta og dáða Schygulla
Þjarmað að Hönnu Schygulla í myndinni „Forever Lulu'*.
„Forever Lulu“ sem sína fyrstu
mynd í Bandaríkjunum? Svarið er
einfalt: „Ég vildi leika í gaman-
mynd.“ Og hún helduráfram: „Am-
os bað mig að leika í myndinni í
sama mund og það rann upp fyrir
mér að ég hafði aðeins leikið í al-
varlegum myndum og mér leiddist
það." Lék hún í „Lulu“ vegna þess
að hún var tekin í Bandaríkjunum
og hún hafði lýst áhuga sínum á
að leika í mynd þar? „Ég hefði
valið þetta handrit þótt það hefði
komið frá Spáni," er svarið.
Uppáhaldsleikstjórarnir hennar
bandarískir eru Woody Allen, Sid-
ney Lumet, Martin Scorsese og
umfram allt Stanley Kubrick. En
leikstjórinn sem hún á mest að
þakka er auðvitað Fassbinder sem
hún vann með allt frá 1969 þegar
þau gerðu Ástin er kaldari en
dauðinn til ársins 1981 þegar Lili
Marlene varð til. „Ég hefði aldrei
komið fram í bíómyndum nema
vegna hans,“ sagði hún. „Það var
stórkostlegt ævintýri.
Núna er ég bara eins og hver
önnur leikkona," sagði hún svo.
„Ég fer frá einum leikstjóra til ann-
ars."
Ástralski súpermaðurinn með elskunni sinni, sem Linda Kozl-
owski leikur.
fái hálfa milljón dollara fyrir
hverja setningu sem hann segir
í myndinni), nauðaeinfaldri lýs-
ingu á góðum og vondum gæjum
og hasar sem aldrei dettur niður
geta kvikmyndahúsagestir frá
Reykjavík til Rafalpindi notið
Rambó-mynda án þess að hætta
sé á að menningarfræðilegir
þættirspilli ánægjunni. Samtölin,
sem Stallone semur ásamt Shel-
don Lettich, eru stutt eins og
auglýsingatextar.„Hver ertu?"
spyr vondi Rússinn (Marc de
Jonge). „Þín versta martröð,"
svarar hinn hlédrægi Rambó.
„Hver heldur þú að þessi maöur
sé. Guð?" heldur Rússinn áfram
og hefur greinilega ekki séð hinar
tvær myndirnar. „Nei. Guð er
miskunnsamur. Þessi er það
ekki," er svarið.
Persóna Rambós verður gagn-
rýnendum vestra tilefni mikilla
bollalegginga. í Newsweek er
spurt: Hefur nokkru sinni verið
uppi jafn óaðlaðandi ofurhetja
og John Rambó? Hann er alger-
lega húmorlaus, með ofsóknar-
brjálæði og er algerlega áhuga-
laus um gagnstæða kynið. Þessi
hefndarþyrsta drápsvél hefði
aldrei getað orðið til nema á
níunda áratugnum. í The New
York Times segir: Það er sama
hver ástæðan fyrir hans
lífshættulegu leiðöngrum er, eitt
skal vera á hreinu; John Rambó
stendur ekki í þessu af því hann
hefur gaman af því. Hann hefur
enga persónulega ánægju af því
t.d. að festa snæri og grjót við
andstæðing sinn og kippa pinn-
anum úr handsprengju svo hún
springur þegar maðurinn fellur
oní neðanjarðarhelli. Nei, Rambó
er lýst sem langþjáðum, trúföst-
um manni sem vildi miklu frekar
vera að lagfæra þakið á klaustr-
inu sínu (sem hann er að gera í
Eins manns herinn berst við
Rússa f Afganistan; aumingja
þeir.
upphafi myndarinnar) en standa
í bardögum.
Ramó III var tekin í Thailandi,
ísrael og Arizona en leikstjóri er
Peter MacDonald sem áður var
aðstoðarleikstjóri við Rambó II
og kvikmyndatökumaður Ham-
borgarahæðarinnar.
Mike „Krókódíla“-Dundee er
engu minna ofurmenni en John
Rambó en hann er léttari í lund
og hefur pláss fyrir stúlku í sínu
lífi. Á sama hátt og Rambó verð-
ur að bjarga sínum gamla yfir-
manni verður Dundee að bjarga
ástinni sinni (Linda Kozlowski)
sem hryllilega Ijótir kólumbískir
eiturlyfjasalar hafa rænt. Fyrri
helmingur myndarinnar gerist í
New York en seinni helmingurinn
á heimasjóðum Dundee í
óbyggðum Ástralínu þangað sem
hann hefur gabbað illmennin og
gefur þeim svolitla innsýn í ástr-
alska óbyggðamenningu.
ENGtABÖRNÍN
Laugavegi 17.S.22201.
17.
]
ú
n
í
f
• •
o
t