Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 2

Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 Morgunblaðið/Júlíus Gatnamót Vesturlandsvegar og Höfðabakka, þar sem mörg umferðaróhöpp hafa orðið. Atta slasast á klukku- stund í Artúnsbrekku Enn eitt slys á mótum Höfðabakka og V esturlandsvegar Ráðgjafarfyrirtækið Stuðull kannar Ríkisskip; Ríkisendurskoðun leggur til yfirtöku 480 milljóna skulda Ríkissjóður borgar ef ekki tekst að rétta af reksturinn, segir samgönguráðherra MATTHÍAS Á. Mathiesen, samgönguráðherra, hefur falið ráðgjafa- fyrirtækinu Stuðli hf. að framkvæma athugun þá á rekstri Skipaút- gerðar rikisins, sem sagt var frá í Morgunblaðinu i gaer. Matthias segist vilja fá hlutlausan aðila til þess að meta stöðu fyrirtækisins að fenginni skýrslu Rikisendurskoðunar, þar sem fram kemur að staða þess er afar slsem og eignir duga ekki fyrir skuldum. ÁTTA manns slösuðust i þremur umferðarslysum, sem urðu á um eins kilómetra löngum kafla, frá brúnni i Elliðavogi yfir Reykjanesbraut og að gatnamótum Höfðabakka og Vesturlands- vegar, á milli klukkan 15.30 og 16.25 i gær. Að auki varð á þess- um kafla fjórði áreksturinn klukkan 15.55 en þar var aðeins um eignatjón að ræða. Fjórir slösuðust og voru fluttir á slysadeild er Toyota-bifreið, sem ekið var vestur Vesturlandsveg og beygt suður Höfðabakka, lenti í veg fyrir Lancer-bifreið, sem ekið var austur Vesturlandsveg. Meiðsli þriggja voru ekki talin alvarlegs eðlis en talið var að hinn §órði, kona sem sat f framsæti Toyotunnar, hafi skaddast inn- vortis. Bílamir eru báðir taldir ónýtir. Þar með er tala slasaðra á þessum gatnamótum komin f 14 það sem af er árinu en auk þess varð þama dauðaslys í vor. Fáeinum mínútum eftir þetta slys var Chevrolet Corvette-bif- reið ekið vestur aðrein af Bíldshöfða inn á Ártúnsbrekku. Þar var fyrir á vinstri akrein Volvo-bifreið sem Corvettan rakst á og snerist við það á götunni. Tvær bifreiðar sem á eftir komu sluppu naumlega frá árekstri en sú þriðja, Chevrolet Monza, sem í vom fjórir, rakst á Corvettuna og slösuðust þrír. Meiðsli tveggja vom ekki talin lífshættuleg en kona sem sat í framsæti var talin talsvert siösuð. Ökumaður Corvet- tunnar slapp ómeiddur en bílamir tveir em mikið skemmdir. Ökumaður jeppa missti stjóm á bifreið sinni sem beygt hafði verið suður Höfðabakka af Vest- urlandsvegi og ók á ljósastaur. Hann slasaðist nokkuð og var fluttur á slysadeild. „Það á að meta hvort og þá hvaða leiðir séu færar til þess að reka fyrirtækið áfram með óbreyttri þjónustu en þannig að það skili rekstraijöfimði og greiði niður skuldir sínar," sagði Matthías. „Ef ekki, hvaða leiðir sé þá hægt að benda á aðrar, með sérstöku tilliti til könnunar Byggðastofnunar á flutningsþörf landsins miðað við þær stórbættu samgöngur sem orð- ið hafa á landi og f lofti sfðan Ríkis- skip tóku til starfa." I skýrslu sinni um Ríkisskip seg- ir Ríkisendurskoðun að það sé von- laust að skipaútgerðin geti með eig- in rekstri staðið undir skuldum sínum, sem em um 630 milljónir króna. Þar af 404 milljóna skuld við ríkisábyrgðasjóð og 74 milljóna skuld við ríkissjóð. Ríkisendurskoð- un leggur til að ríkissjóður taki að sér greiðslur langtfmalána og skammtímaskulda fyrirtækisins við rikissjóð. Þá segir ríkisendurskoðun það koma til greina að rikissjóður jrfirtaki skuldir Rfkisskipa við ríkis- ábyrgðasjóð og ríkissjóð, samtals 478 milljónir króna. „Ríkið er ábyrgt fyrir skuldum fyrirtækisins og ef ekki finnst leið til þess að enduigreiða þær með jákvæðri af- komu fyrirtækisins verður rikissjóð- ur að greiða þær,“ sagði samgöngu- ráðherra. Matthías sagði að það færi eftir niðurstöðu Qárveitingarvaldsins um framtíðarstefnu í flutningaþjón- ustu, hvort fyrirtækið yrði lagt nið- ur og eignir þess seldar fyrir skuld- um. Eignimar em 112 milljónum minni en skuldimar. Sjá frétt af skýrslu Ríkisend- urskoðunar og könnun Byggðastofnunar á bls. 28. 74 milijónir lagðar til hliðar vegna lífeyrisréttinda starfsmanna Búnaðarbankans: Vextirnir skipta ekki máli því bankarnir tryggja lífeyrinn - segir Benedikt Davíðsson, formaður Sambands almennra lífeyrissjóða „Við höfum allt aðra aðstöðu en til dæmis þeir þjá lifeyrissjóð- um rikisbankanna, þvi að þessir sjóðir eru tryggðir af atvinnu- rekendunum. Lífeyrisréttindin eru tryggð af bönkunum og það sést best á því að þegar verið var að gera Útvegsbankann upp, var talið að þyrfti til viðbótar ið- gjaldi, sem bankinn hefur auðvit- að greitt i sjóðinn á undanföm- um árum, eina milljón vegna hvers starfsmanns eða yfir 400 milljónir til þess að tryggja rétt- indin,“ sagði Benedikt Daviðs- Fékk loft- riffilsskot í höfuðið UNGLINGSPILTUR fékk kúlu úr loftriffli i gagnauga þegar hann var á gangi i Vesturbergi í Reykjavík á mánudagskvöld. Kúlan var Qarlægð á slysadeild Borgarspítalans og olli piltinum ekki varanlegu heilsutjóni en litlu munaði að hún hæfði auga hans. Þrír piltar sem höfðu verið á svöl- um á þriðju hæð í flölbýlisihúsi við Vesturberg áttu sök á skotinu. Þeir gerðu sér leik að því að skjóta úr loftriffli á Ijósastaura og umferðar- skilti. Lögreglan náði tali af þeim og lagði hald á vopnið. son, formaður Sambands al- mennra lífeyrissjóða um vexti þá sem lífeyrissjóðir ríkisbankanna taka af lífeyrissjóðslánum. Þeir hafa verið og em 3,5%, nema hjá lífeyrissjóði Búnaðarbankans, sem hækkaði vextina í 5% 1. júlí, en meðalvextir bankanna af verðtryggðum lánum, sem flestir lifeyrissjóðanna taka, era 9,5%. „Málið er auðvitað að það skiptir engu fyrir þessa sjóði upp á lífeyris- réttindin, hvort vextimir eru 2%, 5% eða 9%. Bankinn tryggir lífeyris- réttindi, sem em ekki lakari heldur en aðrir opinberir starfsmenn hafa. Þetta á raunar einnig við um starfs- menn annarra banka en ríkisbanka, vegna þess að yfirlýsing sem fylgir lq’arasamningi kveður á um að þeir skuli ekki njóta lakari lífeyrisrétt- inda en starfsmenn ríkisbankanna," sagði Benedikt. Hann sagði að því væri ekki hægt að bera saman ávöxtun al- mennu lífeyrissjóðanna annars veg- ar og ávöxtun opinberu lífeyrissjóð- anna og bankanna hins vegar. Hann væri ekki samþykkur því að lífeyris- sjóðimir ættu að ganga á undan öðmm með því að lækka vexti á sínum lánum. Almennu lífeyrissjóð- imir hefðu ekki bolmagn til þess. Þeir ættu ekki fyrir skuldbindingum sínum og það væri enginn sem greiddi mismuninn, eins og tilfellið væri með opinbem sjóðina. Al- mennu lífeyrissjóðimir yrðu að nýta alla möguleika sem þeir hefðu til að ávaxta fé sitt. Ef vextir lækkuðu myndu sjóðimir að sjálfsögðu taka þátt í því, en að hans mati hefðu stjómendur lífeyrissjóðanna ekki heimild til að ganga á undan með að taka lægri vexti eða að láta sjóð- félögum sínum í hendur niðurgreidd lán, eins og talað væri um að gert væri í húsnæðislánakerfinu Samkvæmt ársreikningi Búnað- arbankans, svo dæmi sé tekið, var lagt tii hliðar f sjóð vegna lífeyris- réttinda, auk 8% samningsbundins framlags af gmnnlaunum starfs- manna í lífeyrissjóð, 74,1 milljón á árinu 1987 og samtals em í þessum sjóði rétt rúmar 282 milljónir. Samdrátt- ur í osta- framleiðslu VEGNA minnkandi mjólkur- framleiðslu hefur orðið vem- legur samdráttur í framleiðslu osta, og hefur útflutningur á ostum af þeim sökum að mestu Ieyti lagst niður. Að sögn Óskars Gunnarssonar forsljóra Osta- og smjörsölunnar svarar innvegin mjólk til mjólk- urbúanna nú nokktim veginn til eftirspumarinnar eftir ostum á innlendum markaði, en útflutning- ur er að mestu leyti úr sögunni. Ostabirgðir í landinu þann 1. ágúst síðastliðinn vom rúmlega eitt þús- und tonn, en það er um 300 tonn- um minna en á sama tíma í fyrra. Samdráttur hjá mjólkurbúunum er að sögn Óskars nokkuð mis- jafn, en hjá þeim öllum kemur miklu minni mjólk til vinnslu en þau em byggð fyrir og hafa getað annað á undanfömum árnrn. Fyrir örfáum ámm var innvegin mjólk í kringum 120 milljónir lítra á ári, en er nú komið niður í rúmar 103 milljónir lítra, þannig að um vemlegan samdrátt hefur verið að ræða á tiltölulega skömmum tíma. Þorsteinn Pálsson í Bandaríkjunum: Hádegisfundur með Bandaríkjaforseta FIJNDUR Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra og Ronalds Reag- ans forseta Bandaríkjanna hefst i dag klukkan 11.30 í Hvita húsinu í Washington. Þeir munu fyrst hittast einir ásamt tveimur riturum í skrifstofu Reagans en síðan flytja þeir sig yfir í ríkis- stjórnarherbergið þar sem islenska sendinefndin, sem er í för með Þorsteini og nokkrir bandarískir frammámenn bætast í hóp- ínn. Þessir aðilar munu sitja fund þeirra Þorsteins og Reagans; af hálfu Bandaríkjamanna: Frank Carlucci vamarmálaráðherra, Ken Duberstein starfsmannastjóri Hvíta hússins, John C. Whitehead aðstoðamtanrfkisráðherra og Nic- holas Ruwe sendiherra Banda- rílrianna á íslandi. Islenska sendinefndin sem er í för með Þorsteini er þannig skip- uð: Guðmundur Benediktsson ráðuneytissstjóri, Helgi Ágústs- son sendiherra, Þorsteinn Ingólfs- son skrifstofustjóri Vamarmála- skrifstofunnar, Geir Haarde al- þingismaður og Jónfna Michaels- dóttir aðstoðarmaður forsætisráð- herra. Við þennan hóp á fundinum bætast svo Ingvi S. Ingvason sendiherra íslands f Washington og Hörður H. Bjamason sendi- ráðsritari. Fundinum verður síðan fram- haldið yfir hádegisverði sem snæddur verður í „The Old Fam- ily“ borðstofunni. Fundi þeirra Þorsteins og Reagans lýkur svo klukkan 13.30 með þvf að báðir halda kveðjuræður á tröppum Hvíta hússins. Meðan á fimdi þeirra Þorsteins og Reagans stendur mun Ingibjörg Rafnar, eiginkona Þorsteins, sitja teboð Nancy Reagans. Síðdegis f dag mun Þorsteinn Pálsson síðan hitta Utanríkis- málanefnd öldungardeildar Bandaríkjaþings. Mun sá fundur verða í Þinghúsinu og hefst hann klukkan 16.30. Fleira er ekki á dagskrá Þorsteins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.