Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
5
Fundi flugmanna og fjár-
málaráðuneytis frestað
Morgunblaðið/Stig Bjame Fiksdal
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, og Bjarne Mark Eidem,
sjávarútvegsráðherra Noregs, f Bodo í Noregi i gær.
Noregur:
FUNDI fulltrúa launadeUdar
fjármálaráðuneytisins, flug-
manna Landhelgisgæslunnar og
Félags islenskra atvinnuflug-
manna, sem vera átti í gær-
morgun var frestað um óákveð-
inn tima. Flugmenn gæslunnar
funduðu í sinn hóp í gær, auk
þess sem fundir voru með yfir-
mönnum Landhelgisgæslunnar
og forráðamönnum FÍA, en
flugmenn gæslunnar, sem vinna
samkvæmt kjarasamningi FÍA,
hafa ekki fengið greitt í sam-
ræmi við samkomulag sem tókst
Sjávarútvegsráðherra
í opinberri heimsókn
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, fór til Noregs
sl. sunnudag i boði Bjarne Mork
Eidem, sjávarútvegsráðherra
Noregs. Ráðherrarnir skoða m.a.
ýmsar stofnanir og fiskvinnslu-
fyrirtæki í Noregi og voru við-
staddir opnun sjávarútvegssýn-
ingar i Þrándheimi sl. mánudag.
Opinberri heimsókn sjávarút-
vegsráðherra til Noregs lýkur á
morgun, fimmtudag.
í föruneyti sjávarútvegsráðherra
eru m.a. eiginkona hans, Sigutjóna
Sigurðardóttir, Ámi Kolbeinsson,
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu, eiginkona hans, Sigríður
Thorlacius, og Jakob Jakobsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Frá Noregi heldur sjávarútvegs-
ráðherra til Finnlands þar sem hann
situr 21. Norrænu fískimálaráð-
sttfnuna í Savonlinna dagana 15.
til 17. ágúst nk. Ráðstefnan er sam-
eiginlegur umræðuvettvangur
hagsmunaaðila, stjómvalda og
vísindamanna.
í tengslum við ráðstefnuna verð-
ur haldinn fundur sjávarútvegsráð-
herra Norðurlanda. Á fundinum
munu ráðherramir m.a. ræða nor-
ræna samstarfsáætlun á sviði sjáv-
arútvegsmála, stjómun á nýtingu
auðlinda hafsins með tilliti til inn-
byrðis tengsla einstakra tegunda,
mengun sjávar, afstöðu Norður-
landaþjóða til Evrópubandalagsins
og samvinnu á sviði líftækni.
milli félagsins og Flugleiða í
sumar.
Vilhjálmur Þórðarson, formaður
FÍA, sagði algjörlega rangt að
samkomulag félagsins við Flug-
leiðir bryti í bága við bráðabirgða-
lögin um efnhagsráðstafanir frá
því í vor. Samkomulagið væri inn-
an ramma laganna. Svonefnt
handbókargjald (Jeppesensgjald)
væri greiðsla fyrir leiðréttingu
handbóka, sem lytu að ýmsum
þáttum starfsins, og færi fram
utan umsamins vinnutíma. Þessi
vinna væri sífellt að aukast og
gjaldinu hefði verið breytt úr
hundraðshluta af kaupi í fastá-
kveðna upphæð og það væm ekki
nær allir sem hefðu hækkað við
þessa breytingu. Varðandi 25 þús-
und króna eingreiðsluna til flug-
manna kæmi tvennt til. Annars
vegar hefðu flugmenn lengt leyfí-
legan útivemtíma sinn úr 12 dög-
um í 18. Hins vegar hefði samn-
ingurinn mnnið út um áramót og
þegar samningar hefðu dregist
fram á sumarið hefðu þau laun
sem samið var um verið greidd
fyrir allt samningstímabilið. Það
hefði ekki verið nú og eingreiðslan
verið uppbót að hluta á það sem
vantaði á greiðslur frá áramótum.
Hann sagði rangt að flugmenn
greiddu ekki skatta af dagpening-
um. Þeir greiddu skatta af þeim
dagpeningum sem væra skatt-
skyldir. Til dæmis væri 25% álag
á dagpeninga flugstjóra og af því
væri greiddur skattur sámkvæmt
lögum um staðgreiðslu. Þeir dag-
peningar sem aðrir flugmenn
fengju væm innan þeirra marka
að greiða ætti af þeim skatta.
'O
INNLENT
Reykjavíkurmaraþon:
Skráningar-
frestur renn-
urút 15. ágúst
AF gefnu tílefni vill fram-
kvæmdanefnd Reylqavikur-
maraþons itreka að frestur tíl
að skrá sig í hlaupið rennur út
15. ágúst og verður ekki tekið
við umsóknum eftír það.
Hlaupið verður frá Lækjargötu
kl. 12.00 á sunnudag 21. ágúst.
Skráning fer fram hjá Ferðaskrif-
stofunni Úrval, Pósthússtræti 13.
Ekki er hægt að skrá sig í gegnum
síma.
Mýrdalssandur:
Skemmdir á grjót-
vörn við Múlakvísl
VÖXTUR hefur verið i ám á
Mýrdalssandi vegna mikilla rign-
inga undanfarið. Loka varð
brúnni yfir Múlakvisl á mánu-
dagskvöld því ástandið var óljóst
og jafnvel búist við skemmdum
á henni, sagði Guðmundur Ara-
son, tækniverkfræðingur þjá
Vegagerð ríkisins í Vík.
Þegar ástand brúarinnar var
kannað í gærmorgun kom þó í ljós
að ekki var um neinar skemmdir á
sjálfri brúnni að ræða. Straumurinn
hafði aftur á móti hrifíð með sér
2-3 m af stórgrýti úr grjótvöm við
brúnna, en skemmdir vom óvem-
legar. Viðgerðir á henni vom hafn-
ar þegar Morgunblaðið náði tali af
vegagerðarmönnum í Vík f gær og
umferð hafin á ný yfír brúna.
Útsýn:
Andri Már Ingólfsson
yfir rekstrarsviði
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
ferðaskrifstofunni Útsýn hf.:
Þær skipulagsbreytingar hafa
verið gerðar hjá Ferðaskrifstofunni
Útsýn hf., að hér eftir er fyrirtæk-
inu skipt í tvö svið, rekstrarsvið og
fjármálasvið. Andri Már Ingólfsson
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Útsýnar.
1. Undir rekstrarsvið heyra
markaðsmál, sala og skipulag og
framkvæmd ferða til og frá landinu.
2. Undir fjármálasvið heyra öll
fjármál, bókhald og tölvumál. Fjár-
málastjóri er sem fyrr Kristinn
Helgason.
Helgi Magnússon er forstjóri og
Ingólfur Guðbrandsson stjómar-
formaður fyrirtækisins.
Aukaferð 7. október
/egna mikillar eftirspurnar bjóðum við nú 22 daga ferð
fyrir fullorðið fólk — 60 ára og þar um bil. Auk okkar ágætu
fararstjóra munu Anna Þrúður Þorkelsdóttir og Kristín Jónasdóttir
sjá um að gera fólkinu dvölina sem ánægjulegasta.
Kynningarfundur
verður haldinn í félagsmiðstöðinni að Hvassaleiti 56-58
fimmtud. 11. ágúst kl. 17.00.
(mðMK
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTÍG 1 SlMAR 28388 - 28580
I