Morgunblaðið - 10.08.1988, Síða 29

Morgunblaðið - 10.08.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988 29 Sjálfseignarfélag um stúdentaíbúðir stofnað: Kaupir íbúðir á frjálsum markaði Félagsmálaráðuneytið hefur nýverið samþykkt undirbún- ingsfélag fyrir Félagsstofnun stúdenta á Akureyri. Félagið hefur vilyrði Húsnæðisstofnun- ar ríkisins fyrir láni að upphæð 25 miiyónir króna tíl kaupa á stúdentaíbúðum á Akureyri á þessu ári, en búast má við að umsóknin verði endanlega af- greidd á fundi stjómar Hús- næðisstofnunar nk. mánudag. Upphaflega sótti Skjöldur, fé- lag áhugamanna um Háskólann á Akureyri, um lán til kaupa á húsi nr. 26 við Glerárgötu og hugðist félagið innrétta húsið fyrir stúd- entaíbúðir. Félagsmálaráðuneytið taldi félagið Skjöld sem slíkt ekki lánshæft, en benti þess í stað á að stofna þyrfti nýtt félag stúd- enta og aðstandenda háskólans sem kæmi til með að verða sjálfs- eignarstofnun og taka á sig lán- tökur í líkingu við Félagsstofnun stúdenta í Reykjavík. Gengið var frá stofnun félagsins í sumar og þess æskt að umsóknin yrði yfír- færð á nýja félagið. Gert er ráð fyrir að sjálfseign- arstofnun verði sett á laggimar fyrir 1. október nk. á Akureyri. Lán þau sem veitt eru til félags- legra íbúða em til 40 ára og bera þau verðtryggingu og 1% vexti. Hið nýja félag hefur ekki tilgreint hve húsnæðisþörfín er mikil á komandi hausti, en stefnir að minnsta kosti á kaup á fímm íbúð- um á frjálsum markaði. Ef sam- þykki fæst á mánudag, má búast við lánsafgreiðslu þá strax í kjöl- farið, en lánið er afgreitt í nokkr- um áföngum. Percy Stefánsson starfsmaður Húsnæðisstofnunar sagði að heildarlánveiting til fé- lagslegra íbúða á árinu væri 2 milljarðar. Inni í þeirri tölu væm fjórir málaflokkar, verkamanna- bústaðir, leiguíbúðir sveitarfélaga og leiguíbúðir, sem félagasamtök og aðrir aðilar geta byggt og í fjórða lagi væm kaupleiguíbúðir nú að koma inn hjá Húsnæðis- stofnun í fyrsta sinn. Morgunblaðið/Rúnar Þór Félag áhugamanna um málefni háskólans á Akureyri hefur nú hætt við kaup á Glerárgötu 26 undir stúdentaíbúðir og hyggst kaupa nokkrar íbúðir á frjálsum markaði á Akureyri. Söfnuðu 1.040 kr. með hlutaveltu Þessar ungu vinkonur, Sigurlaug Ýr Sveinbjörnsdóttir 9 ára og Maria Huld Ingólfsdóttir 8 ára, héldu tombólu fyrir skömmu S ' Brekkugötunni. Þær söfnuðu 1.040 krónum sem þær ætla að láta renna til Rauða kross íslands. Morgunblaðið/Helgi Ólafsson Ragnheiður Erla sett í embætti á Raufarhöfn Norðurland eystra: 46 umsóknir um kaupleiguíbúðir ALLS eru til ráðstöfunar 273 miiyónir króna i kaupleiguíbúðir á þessu ári. Á Norðurlandi eystra hefur verið sótt um lán fyrir 46 kaupleiguibúðir, þar af 33 al- mennar kaupleiguíbúðir og 13 félagslegar ibúðir. Umsóknir vom tuttugu frá Akur- eyri, fímm frá Ójafsfirði, tíu frá Dalvík, fjórar frá Árskógsstrandar- hreppi, tvær frá Grenivík, tvær frá Kópaskeri, ein frá Raufarhöfn og tvær frá Þórshöfn. Af þessu em félagslegar umsóknir tíu frá Akur- eyri, tvær frá Grenivík og ein frá Raufarhöfn. Hinar umsóknimar em vegna almennra kaupleiguíbúða. Byggingarsjóður ríkisins lánar til almennra kaupleiguíbúða og era þær ekki háðar eigna- og tekju- mörkum við úthlutun. Kjörin em þau sömu og almennt er, það er lánin em verðtryggð með 3,5% árs- vöxtum. Félagslegu íbúðimar bera hinsvegar 1% vexti. Samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðisstofnun ríkisins í gær, er gífurleg ásókn í kaupleiguíbúðir og í verkamannabústaðakerfíð og hafa hátt í 700 umsóknir borist vegna kaupleiguíbúða fyrir árið 1989 og hátt á fímmta hundrað umsóknir vegna verkamannabústaða. Um- sóknimar þurftu að hafa borist stofnuninni fyrir 1. ágúst. Umsóknir um kaupleiguíbúðir fyrir yfírstandandi ár bárust Hús- næðisstofnun fyrir 22. júní sl. og á Húsnæðisstjóm eftir að fjalla um umsóknimar. Fastlega er þó búist við að niðurstöður liggi fyrir um miðjan næsta mánuð. Raufarhöfn. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir var formlega sett inn í embætti prests á Raufarhöfn síðastliðinn sunnudag í Raufarhafnarkirkju. Séra Örn Friðriksson prófastur í Þingeyjarprófastdæmi setti nýja prestinn inn í embættið og viðstaddir voru úr prestastétt séra Ingimar Ingimarsson prest- ur á Þórshöfn, séra Yr$a Þórðar- dóttir prestur á Hálsi í Fnjóska- dal, séra Bjöm H. Jónsson fyrr- verandi prestur á Húsavík og séra Hulda Hrönn Helgadóttir prestur í Hrísey. Ragnheiður er dóttir hjónanna Bjama Bjamasonar og Ölmu Thor- arensen og búa þau í Reykjavík. Hún lauk prófi í líffræði frá Há- skóla íslands árið 1977. Jafnhliða háskólanámi stundaði hún söngnám í Vínarborg í fulla þijá vetur og upp úr því fékk hún áhuga á guð- fræði. Hún gat þó ekki alfarið slitið sig frá söngnáminu. Nám í guð- fræði las hún mikið til utan skóla og kom heim til próftöku. Með góð- um skilningi kennara tókst henni að nema guðfræði samhliða söng- náminu. Ragnheiður lauk guðfræði- námi 1987. Þá var farið að huga að lausu prestakalli, en að eigin sögn hafði hún áhuga á starfí í þorpi frekar en í sveit. Raufarhafnarhreppur varð fyrir valinu sem starfsvettvangur fyrir þennan unga efnilega prest og bjóða Raufarhafnarbúar Ragnheiði Erlu velkomna til starfa og óska henni alls hins besta um ókomin ár. Um leið vilja íbúar þakka séra Sigurvini Einarssyni fyrir dygga og góða þjónustu á liðnum ámm, en hann þjónaði Raufarhafnarprestakalli nokkur síðastliðin ár ásamt Skinna- staðaprestakalli í Öxarfírði sem hann þjónar enn. Helgi „Wet-jet“ á Pollinum Nýlega festu þrír einstaklingar á Akureyri kaup á fimm Yama- ha-„wet-jet“-skíðum, sem þeir ætla að leigja út á Pollinum. Þessi nýbreytni hefur hlotið góðar viðtökur og hefur þessi nýja iþrótt verið stunduð mikið að undanförnu. Hálftíma leiga er 700 krónur og klukkutíminn kostar 1.200 krónur. Innifalið er í verðinu, auk skiðanna, bensín, gallar og björgunar- vesti. Siglingaklúbburinn Nökkvi annast útleigu á skiðun- um fyrir eigendurna, þá Kristj- án Kristjánsson, Marinó Marin- ósson og Ingólf Árnason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.