Morgunblaðið - 10.08.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
33
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur! Ég
er fædd 16. janúar 1973 kl.
6.35 að morgni í Hafnarfirði.
Gætir þú sagt mér eitthvað
um sjálfa mig, hæfileika mína
og hvaða starf á best við mig?
Með fyrirffam þökk. Stein-
geit.“
Svar:
Þú hefur Sól, Júpíter, Merkúr
og Venus í Steingeit, Tungl í
Tvíbura, Mars í Bogmanni,
Sporðdreka Rísandi og Vog á
Miðhimni.
Alvara ogöryggi
Þú ert frekar alvörugefin í
grunneðli þínu, ert varkár og
ábyrg og þarft að búa við
ákveðið öryggi til að viðhalda
lífsorku þinni. Þess vegna
getur spennuafstaða Úranus-
ar á Sól valdið þér nokkrum
heilabrotum. Þú þarft því að
gera nokkra málamiðlun með
öryggisþörf þína og líkast til
verður útkoman sú að þú fá-
ist við hagnýt störf en búir
eigi að síður við svigrúm í
daglegu lífi.
Framfarir
Það sem ég á við er að
spennuafstaða Úranusar á Sól
táknar að þrátt fyrir að þú
sért íhaldssöm Steingeit þarft
þú að fást við spennandi mál,
sem gefa þér frelsi og kalla á
nýjungar og framfarir.
Skipulagðar nýjungar
Ég þekki mann sem hefur
þessa sömu stöðu. Hann er
yfirmaður í grónu fyrirtæki
sem byggist á gömlum merg
'og hefðum, en hefur eigi að
síður aðiagað sig nútimanum
og er í fararbroddi fýrir nýj-
ungum án þess þó að svíkja
hefðimar.
Yfirveguð hugsun
Merkúr í Steingeit táknar að
hugsun þín er yfirveguð,
formföst og jarðbundin. Þú
ert raunsæ og skipulögð í
hugsun.
íhaldssöm i ást
Venus í Steingeit táknar að
þú ert frekar gamaldags,
íhaldssöm og varkár í ást. Þú
laðast frekar að jarðbundnu
fólki og vilt eiga fáa og góða
vini og ná djúpri vináttu við
fáa frekar en að eiga marga
kunningja.
Hreyfanleiki i vinnu
Mars í Bogmanni táknar að
þú verður eirðarlaus í vinnu,
ef þú þarft að fást við of mikla
og langvarandi vanabindingu.
Þú þarft því ákveðna hreyf-
ingu, frelsi og fjölbreytileika
til að þér líði vel. Það sama
má segja um Tungl í Tvíbura,
eða það að umhverfi þitt þarf
að vera hreyfanlegt. Æskilegt
er einnig að töluvert sé af
fólki í kringum þig í vinnu.
Fjármálastjórn
Þar sem Sólin er í Steingeit
í 2. húsi tel ég að viðskipti
gætu átt vel við þig, flármála-
stjóm og einhvers konar ftjáls
og sjálfstæð störf fyrir stórt
og traust fyrirtæki. Þú ættir
að geta notið þín í stjómun
og skipulagningu hagnýtra
framkvæmda. Ef Úranusinn
verður sterkari en Steingeitin
ættir þú að geta byggt upp
nýtt fyrirtæki, sem kannski
er meira á hugsjónalínu (Bog-
maður) og hefiir ekki jafn-
mikið með fjármál að gera og
ég hef hér gefið í skyn.
Lögfrœöi
Það að Júpíter er í samstöðu
við Merkúr og Sól gefur
vísbendingu um hæfileika í
lögfræði og á öðrum sviðum
þar sem krafist er hæfileika
til að hafa yfirsýn yfir heild
mála.
GARPUR
'VESAUHGS m/KAMPA :
EMN GLEVP/R. POL/TiK/N J
6ÓÐ/OJ l/Z'S/NOA -
aiana/.' ■ j
GRETTIR
ég Þazf ae> F/t/en or / kvöld-fn
bESS! UPPSToPP/O/ K/S/ /WJN .
/1//LDA /AÚSONUA/ 'A '
._ 'MOTTUNN/ '
|( EN SNJ’ÓLL- l
! \//C/GM -i
//i/EP/J/G |
G/tSTU VE'TT I
ju/e/e upp-
J>-^AjysP/y
j HtTRO GOL i 5 :::: z i í YER NC. • ^ 0,57 eotrons PRESS Se«VIC£. IMC | lÁOI/ A
1 lUolvA iiitih irmy : r— n i . . . —n-rrtn
FERDINAND
(BEING THE MANAGER Of) ( A BA5EBALLTEAM 15 / \VERY 5TRE55FUL.. TOU CAN MANPLEIT, TH0U6H, CHARLIE BROWN, BECAU5E TOU'RE A LOW-KE1/ PER50N.. Jn ( HOU) ABOUT \ | vbelow-kev? / 1—L~Ji T t 8 \ / /tv/Vv c/> vzx íWg, w 3
Það kostar mikla streitu Þó ræður þú við það, Kalli Hvernig væri að segja
að vera liðstjóri í hafna- Bjarna, vegna þess að þú van-stilltur?
bolta. ert stilltur maður ...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Tilgangur vamarsagna er
tvíþættun Stela sagnrými frá
mótherjunum og undirbúa vöm-
ina. Spilarar em almennt vak-
andi fyrir þýðingu hindmnar-
sagna, en steinsofandi gagnvart
sögnum sem vísa á útspil. Ekki
þó austur í eftirfarandi spili:
Norður gefun NS á hættu.
Vestur
♦ 86
♦ 532
♦ DG84
♦ K873
Norður
♦ DG4
♦ D10974
♦ 92
♦ ÁG10
Austur
♦ 753
VÁ
♦ ÁK10753
♦ D62
Suður
♦ ÁK1092
♦ KG86
♦ 6
♦ 954
Vestur Norður Austur Suður
— Pass 1 tigull 1 spaði
2 tíglar 3 tiglar 3 hjörtu Dobl
4 tígiar 4 spaðar Pass Pass
Pass
Útspil: hjartafimma: ----
Þriggja tígla sögn norðurs
lofaði spaðasamlegu og var
áskomn í geim. Sagnvenja sem
mjög er að ryðja sér til rúms.
Austur þóttist viss um að spil
NS kæmu vel saman og makker
kæmi til með að eiga út gegn
fjórum spöðum. Hann sá að einn
slagur á tígul var það mesta sem
hægt var að vonast eftir, svo
samningurinn virtist standa
nema hægt yrði að möndla
hjartastungu. Hann notaði því
tækifærið til að vísa makker«Li
besta útspilið með þremur hjört-
um. Og vestur hlýddi.
Austur fylgdi svo stuðinu eft-
ir með því að spila undan ÁK í
tígli. Þriðja slaginn fékk hann
með því að stinga hjarta, og sá
flórði kom með tímanum á lauf.
resió af
meginþorra
þjóöarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80