Morgunblaðið - 10.08.1988, Page 47
47
MORGUNBLAÐDD IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988
HANDKNATTLEIKUR / VINATTULANDSLEIKUR
: .'..V
Ouömundur Hrafnkalsson,
markvörður, var sá eini sem lék vel f
gaer.
foém
FOLK
■ STEVE Hodge var í gær seld-
ur frá Tottenham til Nottingham
Forest fyrir 757 þúsund sterlings-
pund — eða svo héldu menn að
minnsta kosti fram á kvöld. Liðin
höfðu komist að samkomuiagi um
verðið, þegar skyndilega hljóp
snurða á þráðinn. Forest gat ekki
fallist á launakröfur Hodge og leik-
maðurinn sló ekki af þeim kröfum.
Ekkert varð því að hann færi á ný
til Forest, en þar hóf hann einmitt
feril sinn.
■ GRETE Waitz, hlaupadrottn-
ingin norska, gekkst undir upp-
skurð á hné á mánudag sem leið.
Uppskurðurinn sem þótti takast
vel, var hlaupakon-
Frá Sigurjóni unni nauðsynlegur
Einarssyni til þess að hún gæti
i Noregi tekið þátt í Ólympíu-
leikunum í Seoul
eftir rúman mánuð. Grete Waitz
hefur þjáðst af verkjum í hnénu
síðan hún hljóp Stokkhólms-
maraþonið 4. júlf sfðastliðinn. Hún
var bjartsýn aið aðgerðinni lokinni
og sagðist verða farin að skokka
eftir viku.
■ TONY Knapp fyrrverandi
landsliðsþjálfari íslands og núver-
andi þjálfari norska fyrstu deildar
liðsins Djerv 1919 fer sínar eigin
leiðir í þjálfun. Lið hans sem er í
mikilli fallbaráttu, tapaði illa um
helgina gegn Strömmen. Tony
vildi afgreiða leikinn úr hugum leik-
manna sinna og fá þá til þess að
horfa fram á við. Hann tók það til
bragðs að loka liðið inni á hótel-
herbergi og þar var svelgdur bjór
og reyktir vindlar svo lengi sem
menn höfðu lyst. „Mér finnst betra
að menn drekki sorgum sínum allir
í hóp og ræði þar það sem miður
fór“, sagði Tony um málið.
■ GRINDAVÍK sigraði
Njarðvík í A-riðli 3. deildar í gær-
kvöldi 2:1. Mörk Grindavíkur skor-
uðu Júlíus Ingólfsson og Páll
Björnsson, en Kristinn Guðbjarts-
son svaraði fyrir Njarðvík. í A-
riðli 4. deildar sigraði Augnablik
Ægi 4:0. Sigurður Halldórsson
skoraði tvö mörk fyrir Augnablik
og Vilmar Pétursson og Viðar
Gunnarsson settu sitt hvort mark-
ið. í B-riðli sigraði Hveragerði
Fyrirtak 4:0. Olafur Jósepsson
skoraði þijú mörk og Jóhannes
Bjömsson eitt. Ármann vann
Skallagrim 4:0 með mörkum Gú-
stafs Alfreðssonar sem gerði tvö,
Konráðs Ámasonar og Ingólfs
Daníelssonar. Hafþór Aðalsteins-
son og Gunnlaugur Jónsson skor-
uðu fyrir Hvatbera í 2:0 sigri á
Víking Ó.
Fát og fum í Troyes
FÁT, fum og baráttuleysi ein-
kenndi leik íslenska landsliðs-
ins f vináttulandsleik gegn
Frökkum í gærkvöldi. Strákarn-
ir voru langt f rá sínu besta,
sóknarleikurinn var ómarkviss
og helst má þakka Guðmundi
Hrafnkelssyni í markinu að
munurinn varð aðeins tvö
mörk, 20:22.
Ahugaleysi einkenndi leik
íslenska liðsins í fyrri hálfleik.
Leikurinn var mjög hægur og mikið
gert af mistökum.
í seinni hálfleik
var meiri barátta en
þeim fyrri. Svo virt-
ist sem íslendingar
ætluðu að vinna upp
þriggja marka mun, en þegar að-
eins herslumuninn vantaði brugðust
þeir. Misstu boltann hvað eftir ann-
að og Frakkar þökkuðu fyrir sig,
brunuðu upp og skoruðu.
Steinþór
Guöbjartsson
skrifarfrá
Frakklandi .
Atli Hilmarsson og Brynjar Kvar-
an hvfldu í gær vegna meiðsla —
Atli er meíddur á hásin og liðband
er tognað í hné Brynjars. Allir þeir
sem voru í hópnum fengu að spreyta
sig, en það var sama hvað var
reynt, ekkert gekk í sókninni. Hom-
in nýttust ekki fyrr en í lokin en
það var of seint. _
íslenska vömin stóð sig vel á
köflum en réð þó ekkert við leik-
mann að nafni Debureau, sem skor-
aði átta mörk.
Fjögur víti fóm í súginn hjá
íslenska liðinu í leiknum, tvö vom
varin og tvö vítaskot rötuðu fram-
hjá markinu.
Frakkland - Island 22 : 20
Vináttulandsleikur I handknattleik, Troyes i Frakklandi, þriðjudaginn 9. ágúst 1988.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 3:3, 6:3, 8:4, 10:5, 12:7, 12:9, 12:10, 15:10, 15:12,16:12,
16:14, 18:14, 18:17, 19:17, 19:18, 21:18, 21:19, 22:19, 22:10.
MSrk íslands: Alfreð Glslason 3, Kristján Arason 3/1, Sigurður Sveinsson 3/2, Sigurð-
ur Gunnarsson 2, Þorgils Óttar Mathiescn 2, Páll Ólafsson 2, Karl Þráinsson 2, Guðmund-
ur Guðmundsson 2, Júllus Jónasson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 11, Einar Þorvarðarson 1.
Utan vallar: 2 mlnútur.
Mörk Frakklands: Debureau 8, Mahe 5/1, Lathoub 2/2, Terreux 2, Gardent 2, Portes
1, Hager 1, Quinten 1.
Varin skot: Medard 7/1, Thiebaut 7/1.
Utan vallar: 8 mlnútur.
Dómarar: Rauchfuss og Buchda frá Austur-Þýskaland.
Áhorfendur: Um 1.000.
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KVENNA
Valur enn í úrslitin
VALSSTÚLKUR eiga nú mögu-
leika á að vinna bikarkeppnina
fimmta árið f röð. Þær unnu
KR í undanúrslitum á Hlfðar-
enda f gærkvöldi meðþremur
mörkum gegn engu. Öll mörkin
voru gerð í fyrri hálfleik.
Valur byrjaði vel og liðið sótti
látlaust framan af. KR-stúlk-
umar náðu sér ekki á strik í fyrri
hálfleik og Valsdömur nýttu sér það
vel. Þær gerðu nánast út um leikinn
fyrir leikhlé með því að skora þrisv-
ar sinnum án þess að gestimir
næðu að svara fyrir sig.
Fyrsta markið gerði Magnea
Magnúsdóttir af stuttu færi eftir
fyrirgjöf Ingibjargar Jónsdóttur.
Magnea var aftur á ferðinni stuttu
seinna, en Karólína JÓnsdóttir í
marki 'KR varði vel skot hennar -
boltinn barst til Bryndísar Vals-
dóttur sem sendi knöttinn í netið
framhjá Karólínu sem var þó ná-
lægt því að verja aftur. Þriðja mark-
ið skoraði Cora Barker eftir þvögu
í teig KR-inga.
Þrátt fyrir að KR-liðið hafí verið
dauft i hálfleiknum, skoruðu þær
mark sem dæmt var af. Kristrún
Heimisdóttir skoraði beint úr auka-
spymu, en dómari Ieiksins áleit að
það hefði verið stjakað við Sigrúnu
Norðíjörð markverði Vals og dæmdi
þvf markið ógilt.
Haraldur þjálfari KR, breytti lið-
skipan sinna manna í síðari hálfleik
og kom það vel út. Sóknir liðsins
voru öllu beittari en í fyrri hálfleikn-
um, en vöm Vals og Sigrún í mark-
inu komu í veg fyrir að KR næði
að minnka muninn.
Morgunblaöiö/Einar Falur
Ragnhelður Vfklngsdóttlr fyrirliði Vals. Leiðir hún lið sitt til sigurs í bikar-
keppni KSÍ fimmta árið í röð?
■ MILE Isakovic, homamaður-
inn heimskunni í heims- og ólympíu-
meistaraliði Júgóslava í handknatt-
leik, var mættur til Trojes í
Frakklandi í gær, til að fylgjast
með leik íslendinga og Frakka,
Júgóslavar og íslendingar ermg
sem kunnugt er í sama riðli á
Ólympíuleikunum í Seoul, og var
Isakovic að „njósna" um íslenska
liðið fyrir þjálfara Júgóslava, Abas
Arslanagic.
■ J ÚGÓSLA VINN áðumefndi,
Isakovic, leikur næsta vetur með
franska 1. deildarfélaginu Usc
Creteil, en Creteil er útborg París-
ar. Þjálfari liðsins er Júgóslavinn
Hasanefendiz, sem var með lið
Sviss í heimsmeistarakeppninni þar
í landi 1986.
■ OG örlítið meira um Mile Is-
akovic: eins og komið hefur fram
í Morgunblaðinu hafa forráðamenn
júgósiavneska handknattleikssam-
bandsins sagt að hvorki hann né
örvhenta skytta Jovca Cvetkovic
verði með á ólympíuleikunum. Is-
akovic sagði þó í gær, í samtali
við Morgunblaðið, um þetta atriði:
„ég veit ekki betur en ég verði
með!“ Skv. heimildum blaðsins em
þó engar líkur að hann leiki í Seoul.
I ABAS Arslanagic, landsliðs-
þjálfari Júgóslavíu, fylgdist með
Spánarmótinu í handknattleik en
fór leynt, því íslendingar fréttu
ekki af þvi fyrr en S gær í Frakk-
landi! ^
■ HAUKAR munu starfrækja
körfuknattleiksskóla dagana 15. til
20. ágúst. Skólinn er opinn bæði
stúlkum og drengjum. Boiðið verður
upp á þjálfun, körfuknattleiks-
myndir af myndböndum og fleira
en auk þess koma þekktir körfu-
knattleiksmenn í heimsókn. Þeirra
á meðal verða Pétur Guðmunds-
son, atvinnumaður og Pálmar Sig-
urðsson landsliðsmaður. Kennslan
fer fram í íþróttahúsi Hauka. Kenn-
ari verður Ingvar S. Jónsson,
íþróttakennari og þjálfari. Mánu-
daginn 15. ágúst verður innritað
og byijað.
ISKNATTLEIKUR
Gretzky seldur fyrir metfé
WAYNE Gretzky, einn allra
besti ísknattleiksmaður sög-
unnar — af mörgum reyndar
talinn sá besti — var f gær
seldurfrá Edmonton Oilers
til Los Angeles Kings og var
þar um að ræða einn stærsta
sölusamning fþróttasögunn-
ar.
Istað Gretzky fær kanadíska
liðið, Oilers, fyrsta valrétt
Kings i þijú ár — 1989, 1991 og
1993 — og að auki greiðir banda-
riska liðið því kanadiska 10 millj-
ónir dollara, sem er andvirði um
470 milljóna íslenskra króna. Þá
hljóðaði samningurinn upp á að
tveir minni spámenn í liði Oilers
fara einnig til LA Kings, en þaðan
fara aftur á móti tveir mjög góðir
leikmenn til Oilers.
LA Kings hefur lengi verið eitt
slakasta liðið í NHL-deildinni og
er eitt þeirra liða sem fyrst fær
að velja ár hvert í háskólavalinu,
þannig næstu þijú árin fær Edm-
onton-liðið mjög sennilega sterka
leikmenn í valinu.
Gretzky giftist nýlega leikkon-
unni Janet Jones, sem búsett er
í Los Angeles, og siöan brúðkaup-
ið fór fram hafa sögusagnir verið
á kreiki að hjónin myndu setjast
að í kvikmyndaborginni frægu. Á
blaðamannafundi í gær var svo
skýrt frá sölunni, og að Gretzky
hefði farið frám á sölu af persónu-
legum ástæðum; „Wayne Gretzky
til hagsbóta, eiginkonu minni og
baminu sem við eigum von á eft-
ir áramótinu," eins og hann sagði.
Gretzky á nánast öll met í
NHL-deildinni. Hann hefur skorað
flest mörk á einu keppnistímabili
(92), á flestar stoðsendingar á
einu tlmabili (163), stigahæstur á
einu timabili með 215 stig [en þau
eru reíknuð þannig út að fyrir
hvert mark sem leikmaður gerir
fær hann 2 stig og 1 stig fyrir
hverja stoðsendingu], þá hefiir
hann oftar en nokkur annar skor-
að þijú mörk í leik á einu keppn-
istimabili, 10 sinnum, og hann á
samtals flestar stoðsendingar
allra isknattleiksmanna sögunnar,
1.086 sendingar i 696 leikjum.
Því má bæta við að á þeim níu
árum sem hann hefur leikið í
NHL-deildinni hefur Gretzky átta
sinnum verið kjörinn besti leik-
amður ársins. FVábær ieikmaður,
eða eins og íslenskur ísknatt-
ieiksáhugamaður sem Morgun-
blaðið ræddi við I gærkvöldi orð-
aði það: „Það er ekki hægt að
segja að Gretzky sé sá besti —
hann er sá Iangbesti.“