Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Biðraðir út úr
húsi á morgnana
Grindavík.
GÍFURLEGUR fjöldi farþega fer daglega um Flugstöð Leifs
Eiríkssonar til og frá landinu, þannig að rnikil örtröð myndast
á vissiun tímum dagsins þegar mesta álagið er. A morgnana
er mjög algengt að afgreiddir séu 900-1200 farþegar á einum
og sama klukkutímanum í allt að 8 flugvélar og fyllist þá af-
greiðslusalurinn og ná biðraðirnar út á stétt.
í örtröðinni í gærmorgun peg-
ar 900 manns mættu í 7 vélar
sem fóru á milli klukkan 7.00
og 8.00 hitti fréttaritari Morg-
unblaðsins Eddu Björk Boga-
dóttur, vaktstjóra hjá Flugleið-
um, og sagði hún að biðraðimar
væru oft margar og langar.
„Þetta er þó hátíð núna þegar
vegabréfaskoðunin er opin í
tveimur hliðum því oft stendur
biðröðin þaðan þvert á okkar
biðraðir yfir alian salinn þegar
eitt hlið er opið,“sagði Edda.
„Mér virðist að nú þegar full
notkun er komin á flugstöðina
séu að koma í ljós ýmsir hönnun-
argallar, sem skapa veruleg
vandræði á vissum tímum dags-
ins.
Afgreiðslusalurinn er allt of
lftill og því skapast þessi örtröð,
auk þess sem aðstaða starfs-
fólksins sem þarf að mæta þessu
álagi á löngum vinnudegi er lítil
og þröng. Skýringin er á því
hvers vegna vélunum er raðað
svona þétt er sú að flestir far-
þegar þurfa að ná í framhalds-
flug erlendis um miðjan daginn.
Þetta ástand ætti að lagast
a.m.k. hjá Flugleiðum, þegar
tekið verður í notkun síðar tölvu-
stýrt innritunarkerfí en þá dreif-
ist álagið jafnt á öll borðin,"
sagði Edda og bætti við að uppi
á efri hæðinni væri komið í ljós
hve Landsbankinn sé illa stað-
settur því þar lokar biðröð oft
og iðulega leiðinni út í flugvél-
amar og margir kvarta yfir því
að ekki skuli vera salemi í 250
metra löngum landgönguranan-
Morgunblaðið/Kr., Ben.
Biðröðin í Flugstöð Leifs Eirikssonar náði út úr húsi þegar mesta
annríkið var f gærmorgun.
um.
Kr.Ben.
Edda Björk Bogadóttir vaktstjóri greiðir úr vandamálum er-
lendra farþega í örtröðinni f gær.
Utanríkisráðherra Dana vill lögsögnmörk í gerðardóm:
GerðaiTlóinur um Kolbeius-
eyjarsvæðið útilokaður
- segir Eyjólfur Konráð Jónsson
UFFE Elleman-Jensen, utanrfk-
isráðherra Dana, hefur greint
frá því að danska stjómin hygg-
ist ná samkomulagi við Norð-
menn um að leggja deilu um lög-
sögumörk við Jan Mayen í al-
þjóðlegan gerðardóm. Eyjólfur
Konráð Jónsson, formaður ut-
anríkismálanef ndar Alþingis,
segir að það sé athugasemda-
laust af Islendinga hálfu, svo
fremi að við eigum aðild að
dómnum. Hins vegar komi alls
ekki til greina að leggja f gerðar-
dóm tilkall Dana til Kolbeinseyj-
arsvæðisins milli íslands og
Sjóefnavinnslan hf:
Samið við Pharm-
aco-Delta um yfir-
töku á rekstrinum
Griudavík.
Lyfjasölufyrirtækin Pharm-
aco hf. og Delta hf. hafa gert
leigusamning við Sjóefnavinnsl-
una hf. og Hitaveitu Suðurnesja
um öll mannvirki og vélar Sjó-
efnavinnslunnar hf. til yfirtöku
á framleiðsluþáttum fyrirtækis-
ins sem eru salt-, kolsýru-,
þurrfs- og kfsilframleiðsla.
Að sögn Hannesar Einarssonar
bæjarfulltrúa í Keflavík, sem gegnt
hefur starfi tengiliðs milli stjómar
og reksturs Sjóefnavinnslunnar hf.
um stundar sakir, þá munu
Pharmaco-Delta yfirtaka rekstur-
inn 1. september.
„Fasteignir og vélar eru leigðar
þeim endurgjaldslaust til 1. ágúst
1991 með kaupréttarákvæði eftir
þann tíma en annars endumýjast
leigan með gjaldtöku sem þá verður
samið um.
Fyrirtækin greiða fyrir alla raf-
magnsnotkun eftir gjaldskrá Hita-
veitu Suðumesja en gufan verður
seld á föstu verði sem fer stig-
hækkandi á hverju ári. Sjóefna-
vinnslan hf. verður ekki lögð niður
en mun annast rekstur hverfilsins
og starfa sem orkusölufyrirtæki. í
samningnum er ákvæði um að það
starfsfólk Sjóefnavinnslunnar hf.
sem þess óskar haldi áfram störfum
hjá nýjum rekstraraðilum," sagði
Hannes. Kr.Ben.
Grænlands þar sem færeyskur
loðnubátur var tekinn fyrir
skömmu.
Norðmenn eru á því að miðlína
eigi að gilda milli Grænlands og Jan
Mayen. Danir, fyrir hönd Grænlend-
inga, telja hins vegar að Grænlend-
ingar eigi að fá fulla 200 mflna
lögsögu að Jan Mayen. íslendingar
og Norðmenn hafa með sér samning
um ævarandi nýtingarrétt íslend-
inga á fiskstofnum á svæðinu og
því eiga íslendingar þar hagsmuna
að gæta. „Ég tel algjörlega áhættu-
laust að samþykkja óskir um gerð-
ardóm hvað þetta svæði varðar, að
því tilskildu að íslendingar eigi að-
ild að honum ásamt Norðmönnum
annars vegar, Dönum hins vegar
og svo einhveijum hlutlausum
oddaaðila," sagði Eyjólfur Konráð.
„Við getum auðvitað ekki unað því
að Norðmenn ráðskist einir með
hafsvæði, sem er sameign okkar.
Ég tel að reglur hafréttarsáttmál-
ans séu svo afdráttarlausar að gerð-
ardómur um svæðið gæti ekki fallið
nema okkur í vil.“
Eyjólfur sagði að hins vegar
kæmi ekki til greina að setja Kol-
beinseyjarsvæðið í gerðardóm. Dan-
Hólmaborg SU á
loðnuveiðum:
Þokkaleg-
ar peðrur
HÓLMABORG SU, skip Hrað-
frystihúss Eskifjarðar, fékk
rúmlega 100 tonn af loðnu í einu
kasti norður af Vestfjörðum í
fyrrinótt. Aðalvél skipsins bilaði
hins vegar og gert var við hana
í Bolungarvík í gær.
„Það eru þokkalegar peðrur þar
sem við fengum kastið," sagði skip-
veiji á Hólmaborg í samtali við
Morgunblaðið. Þess má geta að
peðra er orð notað um fisk í torfum.
„Við erum ekki búnir að ákveða
hvað við greiðum fyrir loðnuna. Við
bíðum eftir lagfæringu á genginu,"
sagði Aðalsteinn Jónsson forstjóri
Hraðfrystihúss Eskifiarðar og aðal-
eigandi Hólmaborgar.
viðurkenna
grunnlínu-
Islendinga.
ir og Grænlendingar
ekki Kolbeinsey sem
punkt fyrir lögsögu
„Svæðið er ótvírætt okkar eign og
engum dettur í hug að breyta
grunnlínupunktinum," sagði Eyjólf-
ur. Hann sagði að til greina kæmi
hins vegar að semja um svæðið og
veita þá Grænlendingum kannski
loðnuveiðirétt við Reykjanes, enda
ættu þeir visst tilkall til hluta loðnu-
stofnsins, en íslendingar fengju að
veiða rækju í lögsögu Grænlendinga
í staðinn. „Aðalatriðið er að um
þetta svæði verður að semja og
engir hafa þrýst meira á að það
verði gert en íslendingar," sagði
Eyjólfur.
Fundur verður í dag í utanríkis-
málanefhd Alþingis um það hvemig
bregjðast skuli við ef Norðmenn og
Danir komast að samkomulagi um
gerðardóm.
Metmán-
uður hjá
Arnarflugi
ARNARFLUG flutti 9.637 farþega
í áætlunarflugi í síðasta mánuði.
Samkvæmt upplýsingum Magnús-
ar Oddssonar, markaðsstjóra flug-
félagsins, er þetta 54% aukning
miðað við sama mánuð í fyrra og
hefur félagið aldrei flutt jafn-
marga á einum mánuði. Fjölgun
farþega fyrstu 7 mánuði ársins
var 47% miðað við sfðustu ár.
Samkvæmt upplýsingum Amar-
flugs hefur aukning jafnframt orðið
mikil í leiguflugi félagsins. í júlí juk-
ust vöruflutningar um 65% miðað
við sama mánuð í fyrra og það sem
af er árinu er aukningin 42%.
Amarflug flýgur nú til fastra
áfangastaða í Þýskalandi, Sviss,
HoIIandi og Ítalíu, alls 14 ferðir á
viku. Það sem af er árinu hefur ferða-
mönnum á leið til íslands frá þessum
löndum fiölgað um 25% miðað við
síðasta ár, en á sama tíma hefur
heildaraukning erlendra ferðamanna
verið 3%.
Áreitti böm
í Öskjuhlíð
LÖGREGLAN leitaði á sjötta
tfmanum í gær að manni, sem
hafði gyrt niður um sig buxur í
Öskjuhlíð, að þremur börnum
ásjáandi, og haft i frammi ósið-
Iega tilburði.
Þrátt fyrir allgreinargóða lýsingu
á manninum, sem talinn var vera
um fimmtugt, tókst lögreglunni
ekki að hafa hendur í hári hans.
Gerd Grieglátin
Fíkniefnasmygl í Arnarfelli:
Börn mannsins önn-
uðust dreifinguna
Fikniefnadeild lögreglunnar
í Reykjavík hefuf sleppt úr
haldi 62 ára gömlum skipverja
á Arnarfelli sem tekinn var með
um 600 gr. af hassi er skipið
kom til landsins á þriðjudag. 34
ára dóttir og 25 ára sonur
mannsins reyndust einnig við-
riðin málið.
Maðurinn játaði i yfirheyrslum
-hjá lögreglunni að hafa flutt inn
um það bil 2 kfló af hassi á undan-
fömum misserum. Efnið keypti
hann í Kaupmannahöfn og önnuð-
ust böm hans dreifingu þess. Son-
urinn hefur áður komið við sögu
fíkniefnamála en hvorki faðir hans
né systir.
Að sögn Reynis Kjartanssonar
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar er
málið að mestu upplýst og þótti
ekki ástæða til að óska eftir gæslu-
varðhaldsúrskurði yfír hinum
grunuðu.
NORSKA leikkonan Gerd Grieg
er látin 93 ára að aldri. Hún var
ekkja Nordahls Grieg, skálds og
kapteins í norska hernum, er lést
árið 1943 þegar flugvél hans var
skotin niður yfir Berlín.
Gerd Grieg lék sitt fyrsta hlut-
verk á sviði norska þjóðleikhússins
í Ósló árið 1910 og tók síðan þátt
í fjölmörgum leiksýningum allt til
ársins 1918, er hún dró sig í hlé.
Tiu árum síðar vakti hún á ný at-
hygli fyrir túlkun sína á persónum
í leikritum Ibsens.
Árið 1940 hélt hún til London
og dvaldi þar og á íslandi öll
strfðsárin. Að stríðinu loknu hélt
hún til Noregs á ný og kom þá
meðal annars fram í tveimur stórum
hlutverkum fram til ársins 1955 er
hún lét af störfum af heilsufars-
ástæðum.
Þann tíma, sem Gerd dvaldi á
íslandi, hafði hún mikil áhrif á leik-
listarlíf íslendinga. Hún setti upp
Gerd Grieg
leiksýningar og tók
nokkrum sýningum.
sjálf þátt í