Morgunblaðið - 11.08.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988
21
Afangaskýrsla um starfsskilyrði fiskeldis:
Tillaga gerð um ríkisábyrgð
á rekstrarlánum stöðvanna
Morgunblaðið/Einar Falur
Jón Helgason landbúnaðarráðherra kynnir niðurstöður nefndar sem
kannað hefur starfskilyrði fiskeldis.
NEFND sem landbúnaðarráð-
herra skipaði þann 24. júní
síðastliðinn tii að gera athugnn
á starfskilyrðum fiskeldis á ís-
landi hefur nú skilað sinni fyrstu
áfangaskýrslu. í henni kemur
fram að í samkeppnislöndum ís-
iendinga við framleiðslu á Norð-
ur-Atlantshafslaxi er öll aðstaða
til fiskeldis mun betri. Þar eru
til dæmis veittir 25—30% styrkir
til stofnframkvæmda, en engir
slikir styrkir eru veittir hér á
landi, og rekstrarlánveitingar i
samkeppnislöndunum eru 100%
á móti 50% hér á landi. Leggur
nefndin til að veitt verði ríkis-
ábyrgð á rekstrarlán til fiskeldis.
Miðað við núverandi framleiðslu-
getu seiðaeldisstöðva er gert ráð
fyrir að að minnsta kosti 10 milljón-
ir seiða fari að jafnaði í eldi á ári
hveiju, og allt að 5 milljónir seiða
fari í hafbeit. Áætlað útflutnings-
verðmæti afurða sem þessi seiði
munu gefa af sér er áætlað að
minnsta kosti 5 milljarðar króna á
verðlagi dagsins í dag, en það er
um 10% af heildarútflutningsverð-
mæti síðastliðins árs og samsvarar
öllum útflutningi áls á síðasta ári.
Þar sem nánast öll aðföng til fisk-
eldis eru innlend, þá er hér um að
ræða hreina framlegð til gjaldeyris-
tekna.
í áfangaskýrslu nefndarinnar
kemur fram að þegar borin eru
saman skilyrði fjármögnunar til
stofnframkvæmda til fiskeldis hér
á landi og í samanburðarlöndunum,
sem eru Færeyjar, Noregur, írland,
Skotland og Hjaltlandseyjar, að
styrkir til stofnframkvæmda í þeim
að undanskildum Færeyjum eru á
bilinu 25—30%, en engir hér á
landi. Þá er krafa um eigið fjár-
magn að lágmarki 33% hér á landi,
en er á bilinu 5—20% í saman-
burðarlöndunum. Lán og styrkir í
þeim nema þannig 80—95% af
stofnframkvæmdum, en lánsfé
nemur 67% hér á landi. Hluti stofnl-
ána í sumum samanburðarlöndun-
um er með niðurgreiddum vöxtum,
en hér á landi gilda markaðsvextir.
Þá er í gildi sérstakur skattur af
erlendum lánum hér á landi, en
hann er 6% af lánum til lengri tíma.
Niðurstöður nefndarinnar gefa
þannig til kynna að öll aðstaða til
uppbyggingar fiskeldis verði að telj-
ast mun betri í samanburðarlöndun-
um vegna styrkja, hærra lánsfjár-
hlutfalls, niðurgreiddra vaxta, lægri
eiginfjárkröfu, og auk þess sérstaks
lántökuskatts hér á landi.
Varðandi rekstrarlán kemur
fram í skýrslunni að í samanburð-
arlöndunum fá fískeldisfyrirtæki
lán til ijármögnunar allt að 100%
rekstrarkostnaðar. Hér á landi fá
fískeldisfyrirtæki um það bil 50%
rekstrarkostnaðar fjármagnaðan
með rekstrarlánum, en verða sjálf
að fjármagna afganginn. Þykir
nefndinni verulega skorta á sam-
ræmdar reglur um veitingu rekstr-
arlána til fiskeldis hjá lánastofnun-
um hérlendis til jafnræðis við aðrar
atvinnugreinar.
Að mati nefndarinnar verður
rekstur fískeldisfyrirtækja að telj-
ast mun auðveldari í samanburðarl-
öndunum, þar sem fiskeldisstöðvar
eiga kost á lánum fyrir öllum
rekstrarkostnaði, sums staðar með
ríkisábyrgð á rekstrarlánum. Einn-
ig auka stjrrkir rekstrarlánamögu-
leika í samanburðarlöndunum, og
opinberir aðilar í þessum löndum
mæta þörfum þarlendra banka um
viðunandi tryggingar fyrir lánum.
Höfundar áfangaskýrslunar
leggja til að fískeldi hér á landi
njóti ríkisábyrgðar á rekstrarlánum
á sama hátt og tíðkast í Noregi,
en þar nemur ríkisábyrgðin um 45%
að jafnaði, eða að stofnað verði
sérstakt ábyrgðarfélag á vegum
banka og sparisjóða.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra lagði tillögur nefndarinnar
fram á ríkisstjómarfundi síðastlið-
inn þriðjudag, en þar á eftir að
fjalla um þær.
Háskólanám
í kerfisf ræði
Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemendur hæfa til að
skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og annast
kennslu og þjálfun starfsfólks sem notar tölvur.
Hægt er að hefja nám í september og janúar. Stúdentar af hag-
fræðibraut Ijúka námi á þremur önnum en aðrir geta þurft að
sækja tíma í fornámi, sem er ein önn til viðbótar. Áhersla er lögð
á að fá til náms fólk, sem í dag starfar við tölvuvinnslu og í tölvu-
deildum fyrirtækja auk nýstúdenta. Sérstaklega skal bent á að
þeir, sem hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest í starfi, þurfa að
sækja nú þegar um innritun á vorönn. Nemendur, sem vilja halda
áfram að vinna hluta úr degi jafnframt námi, þurfa að ræða við
kennslustjóra um möguleika á því.
Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar:
Fornám:
Bókfærsla
Rekstrarhagfræði
Tölvufræði
Stærðfræði
Vélritun
Fyrsta önn:
Grunnnámskeið
Turbo Pascal
Almenn kerfisfræði
Stýrikerfi
Verkefni
Önnur önn:
Kerfishönnun
Kerfisforritun
Gagnasöfn og upplýsingakerfi
Forritun í Cobol
Gagnaskipan
Þriðja önn:
Lokaverkefni
Stutt námskeið í ýmsum greinum svo sem:
Tölvufjarskipti, verkefnisstjórnun, forritun-
armálið ADA, „Object-oriented" forritun,
þekkingarkerfi, OS/400 stýrikerfi.
Innritun á haustönn stendur yfir til 15. ágúst en umsóknarfrestur
fyrir vorönn er til 16. september nk. Umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu Verzlunarskólans, Ofanleiti 1. Kennslustjórinn verður
til viðtals á skrifstofu skólans fyrir hádegi meðan innritun stend-
ur yfir og í síma 688400.
TÖLVUHÁSKÓLI V.í.
STRIK/SÍA