Morgunblaðið - 11.08.1988, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.08.1988, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 Vopnahlé í Angóla: Afrískaþjóðaráðið efast um heilindi S-Afríkumanna Ruacana í Namibíu, Nairobi, Harare, Bamako, Havana. Reuter. SUÐUR-afríkst herlið er í þann mund að hafa sig á brott frá An- gólu. Trukkar og skriðdrekar eru í förum milli Ruacana og Oshakati aðalbækistöðvar suður-afríska setuliðsins við landamæri Angólu. Afriska þjóðaráðið og Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, draga í efa heilindi suður-afriskra yfirvalda. Mugabe varaði við þvi að árásir Suður-Afríkuhers á nágrannarfldn gætu magnast eftir að Namibía hefði hlotið sjálfstæði. Hermenn Suður-Afríku sem eiga að vera á brott frá Angóla fyrir 1. september eru á faraldsfæti en að sögn fréttamanns Reuters-frétta- stofunnar hefur herlið verið að flytja hergögn og vistir til bækistöðva sinna við landamærin en ekki hefur orðið vart við að hersveitir hafi farið yfir landamærin. Suður-afrískur embættismaður í Pretoríu sagði fréttamönnum að brottflutningur herliðs frá Angóla væri hafinn. „Herlið okkar mun verða á brott fyrir 1. september," sagði embættismaðurinn suður- afríski. Afríska þjóðaráðið hefur látið uppi efasemdir í garð Suður-Afríku. „Okkur býður í grun að með því að samþkkja vopnahléð séu suður- afrísk stjómvöld aðeins að reyna að vinna tíma til að endurskipuleggja aðgerðir sínar og undirbúa næstu aðgerðir, sem þá munu felast í að þeir gera kröfur sem munu ómerkja samkomulagið," sagði Johnny Mak- Káre Willoch hætt- ir þingmennsku KÁRE Willoch fyrrum leiðtogi hægrimanna hyggst hætta þing- mennsku að loknu þessu kjörtíma- bili, að því er segir í frétt norska dagblaðsins Aftenposten i gær. Willoch sendi formanni Hægri flokksins í Ósló bréf í gær þar sem hann greindi frá því að hann hyggð- ist hætta þingmennsku eftir að hafa setið óslitið á norska Stórþinginu frá því árið 1957. Willoch hefur verið í framboði fyrir flokkinn í 35 ár, hann hefur verið formaður flokksins, þing- flokksformaður oe ritari flokksins í gegnum tíðina. Á ferli sínum hefur Willoch setið í mörgum ríkisstjóm- um, meðal annars gengt embætti forsætisráðherra og viðskiptaráð- heira. Ástæður þess að hann hyggst hætta segir Willoch ekki vera ð hann hafi misst áhuga á stjómmálum. „Ef ég ætla að breyta til verður það að gerast núna,“ sagði Willoch í sam- tali við Aftenposten. Að eigin sögn huggst hann ekki hætta afskiptum af stjómmálum en mun í framtíðinni einbeita sér að öðru en þing- mennsku. HAUST-OC fyrir alla fjölskylduna <?£[ v PÓSTVERSLUN BÆJARHRAUN114, 220 HAFNARFJÓRÐUR Pöntunarlistinn kostar 160 kr. + póstburöargjald SÍml 53900 athini talsmaður afríska þjóðarráðs- ins. _ „Ég treysti ekki suður-afrískum stjómvöldum, þeir verða að sýna það í verki að þeir standi heils hugar að þessum vopnahléssamkomulagi," sagði Mugabe forseti Zimbabwe á blaðamannafundi sem hann hélt í Harare í gær. Mugabe varaði ná- grannaþjóðir Suður-Afríku við og sagði þeim að vera á verði vegna hugsanlegra árása eftir að Namibía hefur öðlast sjálfstæði. Kúbanska fréttastofan Prensa lat- ina fagnar á hinn bóginn vopnahlés- samningunum og telur að með hon- um sé bundinn endi á það sem frétta- stofan kallar „blóðugasti kafli í sögu útþenslustefnu Pretoríu." Svertingjar í Suður-Afríku hafa sakað stjómvöld um að reyna að koma á óróa í löndum svertingja með það fyrir augum að sýna fram á að svartir menn geti ekki stjómað ríkjum sínum. Herman Cohen, starfsmaður Bandaríkjastjómar sem þátt tók í viðræðunum í Genf, þar sem samið var um vopnahléð í Ángóla, sagði í gær að friðsamleg lausn á stríðinu í Angóla væri háð því að skæruliðum UNITA væri tryggð ítök í stjóm landsins í framtíðinni. „Ég held að við séum á réttri leið,“ sagði Cohen, sem er sérstakur ráðgjafi Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta um mál- eftii Afríku. Castro stal senunni Sex leiðtogar Suður-Amerík- urflga eru komnir tfl Quito, höf- uðborgar Ecuador, til að vera viðstaddir þegar Rodrigo Borja- forseti sver embættiseið i dag. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna verður einnig viðstaddur athöfnina. Shultz sagði á blaðamannafundi i Washington i gær að hann hefði ekki í hyggju að ræða við Fidel Castro eða Daniel Ortega, sem báðir munu vera viðstaddur. Castro kom til Quito i gær og vakti koma hans, sem haldið hafði verið leyndri fram á siðustu stundu, mikla athygli. Fjöldi manna flykktist að en fólk virtist iáta sér fátt um finnast að fjórir aðrir leiðtogar Suður-Ameríkuríkja voru að koma til lands- ins. Fráfarandi forseti Ecuador, Leon Febres Cordero, sést á inn- felldu myndinni taka á móti Virgilio Barco, forseta Kolumbiu, við komuna til Quito í gær. Gerði fólk hróp að forsetanum fráfarandi. Hrópaði fólkið „harðstjóri, morðingi" að Cordero er hann kom i síðasta sinn til þinghússins í Quito. Nagorno-Karabakh: Leiðtogi kommúnista styð- ur málamiðlun stiórnvalda Moskvu, Bonn, Reuter. í SOVÉSKA vikuritinu Moskvu- ver afskifti sovéskra stjómvalda deilum i Sovétríkjunum. Arm- fréttir birdst i gær grein eftir af deilunni um Nagomo-Kara- Genrikh Pogosjan, leiðtoga bakh og segir að málamiðlunar- kommúnistaflokksins í Nagomo- lausn þeirra boði afturhvarf til Karabakh-héraði, þar sem hann lýðræðislegra lausna á þjóðerais- DAGVIST BARM VESTURBÆR Dagheimilið Hagaborg — Fornhaga 8 Óskar að ráða 2 deildárfóstrur og aðstoðar- fólk til starfa frá 1. september eða eftir sam- komulagi. Upplýsingar gefur Guðrún forstöðumaður í síma 10268 eða á staðnum. enskur þjóðernissinni, Parvír Airíkjan, sem gerður var útlægur frá Sovétrikjunum í síðasta mán- uði, sagði á blaðamannafundi f Bonn í gær að sovésk stjórnvöld hefðu aukið spennuna í Armenfu með þvf að reyna að rangtúlka baráttuna fyrir sameiningu Nag- omo-Karabakhs og Armenfu. í grein sinni segist Pogosjan geta „horfst rólegur í augu við alþýðuna" eftir að forsætisnefnd Æðstaráðs Sovétríkjanna hafi í síðasta mánuði veitt héraðinu sjálfræði. Þegar Pogo- sjan ávarpaði forsætisnefndina 18. júlí lagði hann fram kröfu um að Nagomo-Karabakh yrði hluti af Armeníu en því hafiiaði forsætis- nefndin. Pogosjan segir í greininni að ákvörðun forsætisnefndarinnar væri „upphafið að nýju lýðræði". „Lýð- raeði, einmitt vegna þess að í marga áratugi ríktu geðþóttaákvarðanir. Með einni undirskrift voru heilu þjóðimar fluttar, lýðveldi hurfu eða birtust aftur, borgir og hémð voru flutt úr einu lýðveldinu í annað. Það var miklu auðveldara að skrifa und- ir eitthvert plagg en að reyna að finna lausn sem hentaði fólkinu," segir Pogosjan. Pogosjan segir að sú staðreynd að allar verksmiðjur Nagomo-Kara- bakhs séu nú reknar með eðlilegum hætti eftir nokkura mánaða verkföll „tali sínu máli“ um að ákvörðun forsætisnefndarinnar hafi verið rétt. Áður en verkföllin stöðvuðust hafði forsætisnefndin varað við því að skipuleggjendur verkfalla yrðu handteknir og hótað að herferð yrði hafin gegn þeim sem hvettu til fjöldamótmæla. Armenski andófsmaðurinn Parvír Aíríkjan sagði á blaðamannafundin- um í Bonn að sovésk stjómvöld hefðu reynt að sannfæra almenning um að deilan um Nagomo-Karabakh væri trúarleg en ekki pólitísk. „Hefðu þau reynt að meðhöndla hana á lýðræðislegan hátt hefði það leitt til friðsamlegrar lausnar," sagði Aíríkjan, sem var handtekinn í Jere- van í mars og gerður útlægur í síðasta mánuði fyrir að hafa kynt undir andóf meðal almennings.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.